Morgunblaðið - 23.04.2002, Side 26
26 C ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
U
PPBYGGINGIN í Sala-
hverfi í Kópvogi fer ekki
fram hjá neinum, sem
ekur þar um. Byggðin
einkennist af töluverðri fjölbreytni,
bæði fjölbýli og sérbýli, en skipulag
hverfisins gerir ráð fyrir þéttri
byggð. Samt er þess ríkulega gætt
að hafa þar opin svæði.
Það er margt sem gerir Sala-
hverfi eftirsóknarvert. Hverfið
stendur hátt í suður- og suðvest-
urhalla með miklu útsýni bæði út á
Kópavog og til suðvesturs út á
Reykjanesskagann. Um leið er
hverfið í skjóli fyrir norðanátt og
vegna hallans snýr það mjög vel
við sólu. Gróður ætti því að dafna
vel.
Stutt er í skemmtileg útivistar-
svæði á Rjúpnahæð og í grennd við
Vatnsenda og í hverfinu verður
góður golfvöllur en einnig íþrótta-
svæði með íþróttahúsi og sundlaug.
Mikill kraftur hefur verið í upp-
byggingu Salahverfis. Öllum lóðum
hefur verið úthlutað og hvarvetna
blasa nýbyggingarnar við. Sumar
eru fullkláraðar og íbúarnir fluttir
inn. Aðrar eru enn í byggingu, mis-
jafnlega langt komnar.
Alls er gert ráð fyrir um 1.000
íbúðum í hverfinu og að um 3.000
manns muni búa í hverfinu full-
byggðu. Í hverfinu verða grunn-
skóli, tveir leikskólar, gæzluvöllur
og heilsugæzla, sem hafa ýmist
þegar verið tekin í notkun eða eru
langt komin.
Fullkláraðar íbúðir
við Blásali
Eitt þeirra byggingarfyrirtækja,
sem haslað hafa sér völl í Sala-
hverfi, er Byggingarfélagið Viðar
ehf. en stofnandi þess var Viðar
Daníelsson byggingarmeistari. Áð-
ur hefur þetta fyrirtæki einnig lát-
ið mikið til sín taka annars staðar í
Kópavogi og byggt þar mörg fjöl-
býlishús m. a. í Smárahverfi.
Í Salahverfi fékk fyrirtækið út-
hlutað 4,6 hekturum af óskipulögðu
svæði, sem það síðan lét skipu-
leggja, annaðist þar alla gatnagerð
og byggði svo öll hús á svæðinu.
Við Blásali 22 stendur nú nánast
fullbúið tólf hæða fjölbýlishús, sem
fyrirtækið hefur byggt og er með
46 íbúðum. Í húsinu eru tvær 13
manna lyftur, sem ganga frá kjall-
ara og upp á efstu hæð. Arkitekt
hússins er Orri Árnason.
Fjórar íbúðir eru á öllum hæðum
nema á 1. hæð og í kjallara. Þessar
íbúðir verða tilbúnar til afhend-
ingar 24. maí nk. Þær eru af fjór-
um stærðum, 4ra herb. íbúðir, sem
eru 125 ferm., 3ja herb. íbúðir, sem
eru ýmist 93 ferm. eða 100 ferm.
og loks 2ja herb. íbúðir, sem eru 78
ferm.
Verð á þessum íbúðum er mis-
munandi, frá 12,5 millj. kr. þær
minnstu og upp í tæpar 20 millj.
kr. þær stærstu. Verðið fer ekki
bara eftir stærð heldur líka eftir
staðsetningu, en mestu útsýnis-
íbúðirnar eru dýrastar eðli málsins
samkvæmt.
Töluvert er í þetta hús lagt en
það er einangrað með steinull og
klætt með lituðu áli á grind. „Þessi
utanhússklæðning er nánast við-
haldsfrí,“ segir Þorgils Arason,
byggingaverkfræðingur og fram-
kvæmdastjóri Viðars ehf.
Hljóðeinangrun á milli íbúða er
mun meiri en venjan er. „Á síðustu
tíu árum höfum við byggt um 500
íbúðir og kynnzt vaxandi óskum
fóks um meiri hljóðeinangrun,“
segir Þorgils. „Til þess að koma til
móts við þessar óskir var ákveðið
að byggja fjölbýlishús við Blásali
22 og annað við 24 með sérstöku
tilliti til hljóðvistar í íbúðunum.
Þannig er 20 cm þykk plata á
milli hæða og ofan á hana kemur 5
cm einangrun og síðan þar ofan á 5
cm ílögn, sem slitin er frá öllum
steyptum veggjum með sérstökum
plastlistum. Heildarþykkt gólfa er
því 30 cm.
Á milli allra íbúða eru svo allir
veggir 25 cm þykkir, en algengast
er, að þeir séu 20 cm. Einnig eru
allar íbúðirnar með lokaðri for-
stofu. Það á að deyfa hljóð, sem
kemur að utan frá sameigninni.“
„Þetta er mikið útsýnishús,“
heldur Þorgils áfram. „Snæfellsjök-
ull sést t. d. úr íbúðunum jafnt á
jarðhæð sem á tólftu hæð. Íbúð-
irnar eru líka skipulagðar með til-
liti til útsýnisins þannig, að hver
einasta íbúð nái útsýni í suðvestur
og fái sól í suður. Þar af leiðandi
eru íbúðirnar svolítið ílangar með
gangi og svefnálmu.“
Pípulögn verður rör í rör kerfi,
sem leggst í hljóðeinangrunarlagið
og allt heitt vatn er forhitað í hús-
inu. Hellulögn við inngang verður
með snjóbræðslu og lóðin verður að
öðru leyti hellulögð, tyrfð og
plöntur settar niður.
Í bílageymslunni eru 54 stæði,
þar af 30 til sölu fyrir Blásali 22.
Þessi bílageymsla er sameiginleg
með fjölbýlishúsi við hliðina, sem
er við Blásali 24 og Viðar ehf.
byggði fyrir Búmenn. Íbúðirnar
þar hafa þegar verið teknar í notk-
un.
Þvottaaðstaða er í bílageymsl-
unni, sem er upphituð og einangruð
með lýsingu, loftræstingu og úðara.
Innangengt er svo í lyftu í Blásali
22 og 24. Stæði í bílageymslu eru
seld sér og kosta 1,6 millj. kr.
Innréttingar í íbúðunum eru
spónlagðar með mahóní og baðinn-
rétting er hvítlökkuð með plast-
lagðri borðplötu. Innihurðir eru
hefðbundnar og spónlagðar með
maghóní.
Meira líf að færast
í markaðinn
Sala á íbúðum í Blásölum 22
hófst í janúar og nú eru 13 þeirra
þegar seldar. „Sala var fremur treg
framan af, en nú hefur mun meira
líf færzt í markaðinn,“ segir Íris
Hall, sölustjóri hjá Viðari ehf., en
þessar íbúðir eru til sölu hjá fimm
fasteignasölum.
„Það er mikið um fyrirspurnir og
margir, sem koma og skoða,“ segir
Íris. „Sem dæmi um áhuga fóks má
nefna, að eina helgina fór fram
sölukynning á þessum íbúðum með
tilstilli fasteignasölu Brynjólfs
Jónssonar og þá komu um fimm
hundruð manns til þess að skoða
þessar íbúðir. Fasteignasalan
Eignanaust sýndi aðra helgi og þá
komu um 300 manns. Margt af
þessu fólki var eldra fólk eða fólk
komið yfir miðjan aldur.“
„Mér finnst komin meiri bjart-
sýni í fólk,“ heldur Íris áfram. „Af-
föll af húsbréfunum hafa lækkað og
verðbólgan er á undanhaldi. Allar
horfur eru á að rauðu strikin svo-
kölluðu muni halda og framundan
sé stöðugleiki í þjóðfélaginu. Efna-
hagsástandið er greinilega að jafna
sig. Þetta er til þess fallið að auka
bjartsýni hjá fólki.
Óvissan var meiri fyrr í vetur og
afföllin af húsbréfum urðu óeðlilega
mikil. Sennilega hefur orðið til
nokkur uppsöfnuð eftirspurn í
þeirri sölutregðu, sem þá sagði til
sín og þessi eftirspurn er að koma
fram núna.
Það er án efa til staðar mikil
undirliggjandi eftirspurn eins og
sagt er og síðustu mannfjöldatölur
benda ótvírætt til þess, að fólki
heldur áfram að fjölga á höfuð-
borgarsvæðinu með ekki minni
hraða en áður. Þetta hefur sín áhrif
á eftirspurnina eftir íbúðarhús-
næði, því að allir þurfa þak yfir
höfuðið.“
„Það er mikill ávinningur af ný-
samþykktum lögum um fast-
eignasölu,“ sagði Íris Hall enn-
fremur, en hún stefnir að því að fá
löggildingu sem fasteignasali. „Til
þessa hafa réttarreglur um kaup
og sölu á fasteignum byggst á
dómapraxis og gömlu lögunum um
lausafjárkaup frá 1922. Þetta leiddi
Mikið útsýni einkennir
nýjar íbúðir við Blásali
Uppbygging Salahverfis í
Kópavogi hefur verið
ótrúlega hröð og alls
staðar blasa nýbygging-
arnar við. Magnús Sig-
urðsson kynnti sér nýjar
íbúðir byggingarfyrirtæk-
isins Viðars ehf. í Sala-
hverfi.
Morgunblaðið/Þorkell
Frá vinstri: Guðmundur Sigurbjörnsson byggingarstjóri, Viðar Daníelsson, forstjóri Byggingarfélagsins Viðars ehf., Íris
Hall sölustjóri, Orri Árnason, arkitekt og hönnuður hússins, og Þorgils Arason, framkvæmdastjóri Viðars ehf.
Morgunblaðið/Þorkell
Við Lómasali 6–8 í Salahverfi er Viðar ehf. með í byggingu fimm hæða fjölbýlishús með 24 íbúðum. Þessar íbúðir verða
3ja eða 4ra herbergja, ýmist 100 eða 120 ferm. að stærð og allar með stæði í bílageymslu. Þessi mynd er af hönnuðum
hússins og byggingarstjóra með húsið í baksýn. Frá vinstri: Jorge G. Enrigues, Cao Millán, Gunnar Einarsson bygging-
arstjóri, Kristinn Ragnarsson arkitekt og Carlos N. Gonzalez. Útlendingarnir eru allir arkitektar frá Mexíkó.
Geysimikið útsýni er frá fjölbýlishúsinu Blásali
Við Blásali 22 stendur nú nánast fullbúið tólf h
irnar verða afhentar 24. maí nk. Húsið til hæg