Morgunblaðið - 23.04.2002, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 23.04.2002, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 2002 C 33HeimiliFasteignir BORGIR VINDÁS - ÚTSÝNI Björt og falleg 56,8 fm íbúð á 3ju hæð (efstu) í litlu fjölbýli ásamt stæði í bílageymslu. Vönduð gólfefni. Glæsilegt fjallaútsýni. Hús og sameign í góðu ástandi. V. 8,5 m. 4775 KLAPPARSTÍGUR - LAUS 68 fm uppgerð íbúð á 3ju hæð í góðu steinhúsi skammt frá Laugavegi. Nýjar innréttingar og gólfefni. Áhv. húsbr. um 4 m. kr. V. 8,2 m. 4737 RAUÐÁS Falleg og rúmgóð 85 fm íbúð á fyrstu hæð í litlu fjölbýlishúsi með góðu austurútsýni. Hús og íbúð í góðu ásigkomulagi. Íbúðin getur losnað fljótlega. V. 10,7 m. 4660 SÍÐUMÚLI - EFSTA HÆÐ Mjög vel innréttað skrifstofuhúsnæði, 240 fm með 11 misstórum skrifstofuherbergjum, 2 sal- erni, kaffistofa, tölvuherbergi o.fl. Mjög full- komnar tölvulagnir. Til afhendingar fljótlega. Eft- irsótt staðsetning. V. 25,0 m. 4671 SMIÐSBÚÐ - SKRIFSTOFU- HÚSNÆÐI Mjög snyrtilegt og fullinnréttað skrifstofuhús- næði á annarri hæð, um 170 fm, með sérinn- gangi. Húsnæðið skiptist í nokkur misstór skrif- stofuherbergi, geymslu, eldhús og móttöku. Góð gólfefni og ástand innréttinga er gott. Næg bílastæði. V. 16,0 m. 4533 Til leigu BÆJARLIND - VERSLUN Til leigu gott 321,1 fm verslunarhúsnæði við Bæjarlind 1-3 í Kópavogi. Þþrennar inngöngu- dyr ásamt góðum lagerinnkeyrsludyrum. 4906 SUÐURLANDSBR. - LEIGA Ca 150 fm húsnæði á jarðhæð í glæsilegu húsi. Ýmsir nýtingarmöguleikar. Upplýsingar á skrif- stofu. 4797 Fyrirtæki HÁRGREIÐSLUSTOFA Hárgreiðslustofa með góðri aðstöðu í nýlegu húsnæði á áberandi stað í miðborginni. Hús- næðið er nýtískulega innréttað og búið öllum bestu tækjum. Gott verð. 4707 Sumarhús og lönd SUMARBÚSTAÐALÓÐIR VIÐ HVOLSVÖLL Mjög vel staðsettar lóðir fyrir sumarbústaði rétt við bakka Eystri Rangár. Svæðið er skipulagt og annast seljandi um vegalagningu, vatnslögn og gerð rotþróa. Lóðarstærð er frá 1,0 hektara. Áhugaverð staðsetning. V. 0,490 m. 4095 Landsbyggðin GLÆSILEGT HÚS - FERÐA- ÞJÓNUSTA Höfum til sölu glæsilegt hús rétt við Dalvík ásamt búnaði fyrir starfsemina. Gott land er um- hverfis húsið. Eignin er í mjög góðu ásigkomu- lagi - hitaveita. Húsið er um 300 fm, auk þess 58 fm bílskúr. Hér er eign sem býður upp á ýmsa notkunarmögulekia. 4786 GAUKSRIMI - SELFOSSI Fallegt raðhús á einni hæð með bílskúr, alls um 140 fm. Í húsinu eru 3 svefnherbergi, góð stofa og eldhús o.fl. Húsið er í góðu ásigkomulagi, ný eldhúsinnrétting og bað endurnýjað og góð gólfefni. V. 12,9 m. 4685 Atvinnuhúsnæði KNARRARVOGUR Gott verslunar og skrifstofuhúsnæði um 700 fm við mikla umferðargötu. Húsnæðið er vel stað- sett og góð bílastæði.Laust til afhendingar fljót- lega. 4866 HÖFNIN - HAFNARFJ. Við Lónsbraut eru til sölu eða leigu eining með 4 x 5 m innkeyrslud. Grunnflötur ca 145 fm plús milliloft ca 35 fm Langt. lán gætu fylgt. V. 12,0 m. 3652 KRINGLAN - SALA - LEIGA Vel staðsett 106,5 fm verslunarhúsnæði á fyrstu hæð í Kringlunni. Húsnæðið getur af- hendst við samning. 4893 HÓLMASLÓÐ Höfum til sölu í þessu mikið endurnýjaða húsi þrjár samliggjandi einingar á jarðhæð, 387,7 fm + 346,6 fm + 206,1 fm, samtals 940,4 fm að stærð. Góðir verslunargluggar á gafli ásamt nokkrum innkeyrsludyrum. Ennfremur er á 2. hæð 308,5 fm nýinnrétt- að skrifstofurými. Selst saman eða hvert í sínu lagi. 4916 KÁRSNESBRAUT Húsnæðið er um 30 fm á jarðhæð með góðri aðkomu frá götu. Húsnæðið er laust. V. 3,2 m. 4661 BÁSBRYGGJA - BÍLSKÚR Ný fullgerð 2ja herbergja 87 fm íbúð á fyrstu hæð ásamt innbyggðum bílskúr. Íbúðin er til afhendingar 1. apríl. V. 12,8 m. 4891 EIGNASKIPTAYFIRLÝSINGAR eru lögboðnir skriflegir gerningar eigenda fjöleignarhúss sem gerðir eru á grundvelli fyrirmæla fjöleign- arhúsalaga og geyma lýsingu á hús- um og lóðum þeirra og mæla fyrir um skiptingu þeirra í séreignir, sam- eign allra og sameign sumra og ákvarða hlutdeild hvers eigenda í sameign. Eignaskiptayfirlýsingar eru fyrst og fremst til fyrir eigendur fjöleign- arhúsa, þeim til hagsbóta og skýr- ingarauka í skiptum þeirra sín á milli. Gera skal eignaskiptayfirlýsingu fyrir öll fjöleignarhús, enda liggi ekki fyrir þinglýstur fullnægjandi og glöggur skiptasamningur. Efni Í fjöleignarhúsalögunum og reglu- gerð um eignaskiptayfirlýsingar, út- reikning hlutfallstalna o.fl. í fjöleign- arhúsum eru ákvæði um efni eignaskiptayfirlýsinga. Þær skulu hafa að geyma m.a. al- menna lýsingu á húsinu, lýsingu á hverjum séreignarhluta, hver sé hlutfallstala hvers séreignarhluta, hvort séreignarhlutum fylgi réttur til bílskúrs eða sérstakur réttur til ákveðins bílastæðis, hvort séreign- arhluta fylgi sérstakur réttur til byggingar ofan á eða við hús eða á lóð þess og greinargóð lýsing á allri sameign hússins. Undirritun Eignaskiptayfirlýsing skal und- irrituð af öllum eigendum ef í henni felst yfirfærsla á eignarrétti, sér- stakar kvaðir, afsal réttinda eða frekari takmarkanir á eignarráðum en leiðir af fyrirmælum fjöleign- arhúsalaganna. Hafi eignaskiptayfirlýsing hins vegar eingöngu að geyma sam- antekt, skráningu og skiptingu húss í samræmi við þinglýstar heimildir og útreikning á hlutfallstölum í sam- ræmi við gildandi reglur þar að lút- andi er ekki krafist undirritunar allra eigenda viðkomandi húss. Sé um að ræða hús þar sem eign- arhlutar eru fleiri en sex nægir að eignaskiptayfirlýsing sé undirrituð af stjórn húsfélagsins en sé um að ræða hús með færri en sex eign- arhlutum nægir undirskrift einfalds meirihluta, annað hvort miðað við fjölda eða hlutfallstölur. Þeir einir mega taka að sér gerð eignaskiptayfirlýsinga sem fengið hafa til þess sérstakt leyfi félags- málaráðherra. Upplýsingar um leyfishafa er að finna á heimasíðu Húseigendafélagsins: www.huseig- endafelagid.is. Fyrir gerð eignaskiptayfirlýs- ingar ber leyfishafa sanngjörn þókn- un og skal fjárhæð þóknunar miðuð við umfang verksins, þann tíma sem það tekur og hversu vandasamt það er. Jafnan skal samið um endur- gjaldið fyrirfram sé þess kostur. Komi upp ágreiningur um endur- gjald geta aðilar skotið honum til kærunefndar fjöleignarhúsamála sem skal leita umsagnar viðkomandi byggingarfulltrúa áður en hún lætur álit í té. Þinglýsing Eignaskiptayfirlýsingum skal þinglýst að fenginni staðfestingu byggingarfulltrúa. Þinglýsing fer fram hjá embætti sýslumanns í því umdæmi sem viðkomandi eign er. Það er gert að skilyrði þinglýs- ingar eignaryfirfærslu í fjöleign- arhúsi að eignaskiptayfirlýsing liggi fyrir og að eignayfirfærslan sé í samræmi við hana. Sýslumönnum ber því að vísa frá afsölum eigna þar sem ófullnægjandi eða engar eigna- skiptayfirlýsingar eru til. Séu gerðar breytingar á fjöleign- arhúsi eða innbyrðis eignatilfærslur sem breyta eða raska eignaskipta- yfirlýsingu og eignarhlutföllum skulu eigendur án ástæðulauss dráttar gera nýja eignaskipta- yfirlýsingu og láta þinglýsa henni. Mat á því hvort eldri fyrirliggj- andi skiptagerningar séu fullnægj- andi og hvort þörf sé á nýrri eigna- skiptayfirlýsingu skal byggt á hagsmunum, þörfum og forsendum eigenda og eðli og tilgangi slíkra gerninga samkvæmt fjöleign- arhúsalögum og þeim eignarrétt- arsjónarmiðum og lagaviðhorfum sem búa að baki þeim. Sé fyrir hendi þinglýstur skipta- gerningur, sem tilgreinir a.m.k. sér- eignir og hlutfallstölur þeirra í sam- eign og ekki fer augljóslega í bága við ófrávíkjanleg ákvæði fjöleign- arhúsalaga og eigendur vilja hafa áfram til grundvallar í skiptum sín- um, er ekki þörf á að gera nýja eignaskiptayfirlýsingu meðan ekki kemur fram formleg krafa frá ein- hverjum eigenda þar af leiðandi. Hins vegar getur sérhver eigandi, sem telur gildandi hlutfallstölur fyr- ir hús sitt rangar eða fyrirliggjandi skiptasamning ófullnægjandi eða rangan að öðru leyti, krafist þess að ný eignaskiptayfirlýsing verði gerð í samræmi við fyrir mæli fjöleign- arhúsalaganna og reglugerðar um eignaskiptayfirlýsingar. Sameiginleg ákvörðun eigenda Það er meginregla í fjöleign- arhúsalögunum að allir hlutaðeig- andi eigendur eiga óskoraðan rétt á að eiga og taka þátt í öllum ákvörð- unum er varða sameign húss, bæði innan húss og utan og sameiginleg málefni sem snerta hana beint og óbeint. Þetta á einnig við þegar tek- in er ákvörðun um að láta gera nýja eignaskiptayfirlýsingu fyrir fjöleign- arhús. Taka verður ákvörðun um slíkt á löglega boðuðum fundi og nægir samþykki einfalds meirihluta eig- enda nema um sé að ræða breyt- ingar á þinglýstri eignaskipta- yfirlýsingu og hlutfallstölum, þá þarf samþykki allra eigenda. Sé ákvörðun tekin án samráðs við aðra eigendur eða þeim ekki gefinn kostur á að taka þátt í ákvarð- anatöku getur eigandi krafist þess að framkvæmd samkvæmt ákvörð- uninni verði stöðvuð og neitað að taka þátt í kostnaði þangað til að lögleg ákvörðun hefur verið tekin. Þess ber þó að geta að hér er um lögboðna skyldu að ræða sem hvílir á hverjum og einum eiganda og því gilda ekki alveg sömu sjónarmið og þegar tekin er ákvörðun um að fara til dæmis í þakviðgerðir eða aðrar framkvæmdir. Sé ekki til fullnægjandi skipta- samningur fyrir fjöleignarhús getur hver og einn eigandi krafist þess að slíkur samningur verði gerður. Ákvörðun sem tekin er á fundi um að ekki skuli gera nýja eignaskipta- yfirlýsingu er andstæð lögum og því óskuldbindandi. Eignaskiptayfirlýsingar Hús og lög eftir Elísabetu Sigurðardóttur, hdl, lögfræðing Húseigenda- félagsins/huso2@islandia.is Teikning/Brian Pilkington

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.