Morgunblaðið - 23.04.2002, Síða 40
40 C ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
Hamraborg 12, Kópavogi, sími 564 1500, fax 554 2030.
Jóhann Hálfdánarson, Vilhjálmur Einarsson, löggiltir fasteigna- og skipasalar
564 1500
20 ára
EIGNABORG
FASTEIGNASALA
SJÁ NÁNAR OG FLEIRI EIGNIR Á NETINU WWW.EIGNABORG.IS/—
VANTAR EINBÝLISHÚS
Höfum fjársterka kaupendur að
2ja og 3ja herbergja íbúðum í Kópavogi.
Höfum fjársterkan kaupanda að einbýli
á einni hæð í Kópavogi eða Garðabæ.
EINBÝLISHÚS
Sunnubraut 202 fm einbýli á einni
hæð með innbyggðum bílskúr. Hús á mjög
eftirsóttum stað við sjávargötu.
Álfhólsvegur 152 fm nýendurbyggt
einb. á tveimur hæðum. 5 svefnh. 41 fm bíl-
skúr, einkas. V. 18,0 m.
Langabrekka 257 fm einbýli á tveim-
ur hæðum, góð innr. í eldh. 4 svh. Á jarðh.
er 2ja herb. ósamþykkt íbúð, 43 fm bílskúr,
mikið útsýni.
Vatnsendablettur 98 fm einbýli,
hæð og ris, nýleg innrétting í eldhúsi, búið
er að endurnýja húsið töluvert, laust í júlí.
RAÐHÚS OG PARHÚS
Starengi Glæsilegt 150 fm endaraðhús
á einni hæð, mjög fallegar innréttingar,
gegnheilt parket, 21 fm bílskúr, einkasala.
(958)
Bræðratunga 124 fm raðhús á
tveimur hæðum, 3 svefnh. Laust fljótl.Áhv.
3,0 m. byggsj. Einkasala. V. 16,3 m. (944)
Fjarðarsel 147 fm mikið endurnýjað
endaraðhús, 4 svefnh. 24 fm bílskúr. (929)
2JA TIL 4RA HERB. ÍBÚÐIR
Gnoðavogur 77 fm 3ja herb. enda-
íbúð á 2. hæð, laus strax, einkas.
Reynihvammur 2ja herb. neðri hæð
með sérinng. í tvíbýli. Afh. fullfrágengið að
utan án málningar og tilbúið til innréttingar.
Til afh. strax.
NÝBYGGINGAR
Jónsgeisli 215,7 fm raðhús á tveimur
hæðum, bílskúr.
Gauksás - Hf. 205 fm raðhús og 26
fm bílskúr.
Skjólsalir 153 fm raðhús og 30 fm bíl-
skúr.
Suðursalir 235 fm raðhús og 30 fm bíl-
skúr.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Smiðjuvegur Mjög bjart og gott at-
vinnuhúsnæði með stórum innkeyrslu-
dyrum, samtals 518 fm. Búið er að innrétta
í húsnæðinu skrifstofu, kaffistofu, verk-
stjóraherbergi, snyrtingu og milliloft.
Skútuvogur Mjög gott skrifstofu-/lag-
erhúsnæði, alls 341 fm, þar af eru skrifstof-
ur um 80 fm. Hentar sérlega vel fyrir heild-
sölur.
Pósthússtræti 13 Um 240 fm á 2.
hæð, 9 herbergi, lagnir fyrir tölvur, rúm-
góður fundarsalur, skjalageymsla, laust
strax.
SUMARHÚSALÓÐIR
Sumarhúsalóðir við Skorra-
dalsvatn. Allar nánari uppl.
og teikningar á skrifstofu og
á www.eignaborg.is.
GAUKSÁS - RAÐHÚS Glæsilegt raðhús
á tveimur hæðum með innbyggðum bíl-
skúr alls 234 fm. Sérlega vandað vel hann-
að hús, tilbúið til afhendingar. Hús sem
býður upp á mikla möguleika og hægt að
skoða fullbúið hús. Mjög gott fermetra-
verð. Verð 14,9 m.kr. Teikningar og upp-
lýsingar á skrifstofu og á staðnum.
ÓLAFSGEISLI EINBÝLI. Hús sem eru
205 fm og 185 fm. Sérstaklega skemmti-
lega hönnuð hús með innbyggðum bíl-
skúr. Upplýsingar og teikningar á skrif-
stofu. Verð 16,8-19,4 m. kr.
MARÍUBAUGUR - SÉRHÆÐIR -TENGI-
HÚS Mjög glæsilegar sérhæðir 120 fm í
þriggja hæða tengihúsum á góðum útsýn-
isstað í Grafarholti. Tilbúnar til innréttinga
eða tilbúnar án gólfefna. Til afhendingar
strax eða fljótlega. Allar upplýsingar á
skrifstofu.
KLUKKUBERG - HAFNARFIRÐI Á
annarri hæð, glæsileg 4ra herb. íbúð á
tveim hæðum alls 104,3 fm. Vandaðar inn-
réttingar og gott parket á gólfum. Sérinn-
gangur, glæsilegt útsýni og gott ytra um-
hverfi. Verð 12,9 m. kr.
ÞÓRUFELL - REYKJAVÍK Mjög góð og
rúmgóð íbúð 80 fm. Íbúðin er öll í mjög
góðu standi, öll sameign mjög góð, hús
gott að utan og allt ytra umhverfi mjög
gott. Glæsilegt útsýni. Verð 9,8 m. kr.
www.hibyliogskip.is
Vegna góðrar sölu
vantar okkur allar
gerðir eigna á söluskrá.
Eftirspurn eftir öllum
gerðum eigna.
Ekkert skoðunar-
eða skráningargjald.
HELLULÖGÐ svæði eru með dýr-
ari garðframkvæmdum og því vel
þess virði að vanda til verksins.
Hellur eru varanlegt efni sem gefa
möguleika á að vera með hituð
göngusvæði sem alltaf eru laus við
hálku og ís.
Algengir fletir til að helluleggja
eru innkeyrslan, bílaplanið, aðkom-
an að húsinu, stígarnir í garðinum
og svokölluð dvalarsvæði, þar sem
grillað er, borðað, leikið eða legið í
sólbaði.
Hellulagnir og sólarlanda-
ferðir
Hellulögn á bílastæði fyrir fram-
an hús kostar álíka mikið og utan-
landsferð fyrir fjölskylduna. Þess
vegna er þessari framkvæmd oft
frestað og annað látið ganga fyrir.
Hjá flestum eru þó takmörk fyrir
því hversu lengi þeir eru tilbúnir að
láta rykið og óhreinindin af bíla-
planinu berast inn í húsið og eitt
sumarið kemur að því að hellulögn-
in fær forgang.
Hellur eru þó ekki eina
yfirborðsefnið sem hægt er að nota
á innkeyrsluna en önnur nothæf
efni eru steinsteypa, möl og malbik.
Öll hafa þau kosti og galla, svo sem
hvað varðar hagkvæmni og end-
ingu.
Hellur eru dýrar, en mögulegt er
að spara með því að nota þær með
steypu eða malbiki. Til þess að það
borgi sig þarf svæðið að vera stórt,
því annars getur frágangur orðið
flókinn og þar af leiðandi mjög dýr.
Séu hellur notaðar eingöngu hafa
þær nokkra augljósa kosti. Hellu-
lagðir fletir eru mjög slitsterkir og
má mæla endingartímann í áratug-
um. Viðhald á hellulögn er aðgengi-
legt vegna þess að hellur má taka
upp og leggja aftur með sama útliti.
Ef leki verður er auðvelt að komast
að hita- eða vatnslögnum undir
hellulögn og endurleggja má svo
hellurnar þannig að engar skemmd-
ir sjáist.
Ef um steypu eða malbik er að
ræða þarf að saga í efnið og leggja
nýtt í sárið. Þetta getur verið mjög
áberandi, einkum þar sem gamla
efnið mætir því nýja. Ef einhverjir
eru óheppnir með vinnubrögð við
hellulögn er hægt að laga lögnina á
tiltölulega einfaldan hátt. Illa unnin
hellulögnin er þá tekin upp, und-
irlagið endurbætt og sömu hellurn-
ar lagðar aftur – en í þetta sinn á
faglegan hátt.
Framkvæmdaáætlun
Sama gildir um hellulagnir og
aðrar framkvæmdir í garðinum, að
því nákvæmari sem fram-
kvæmdaáætlun er því meiri líkur
eru á því að verkið heppnist vel.
Með framkvæmdaáætlun er meðal
annars átt við ákvarðanir um hellu-
tegundir, hvar í garðinum þær
njóta sín best og í hvaða formum
og munstrum á að leggja þær.
Til þess að móta slíka áætlun er
hægt að merkja útlínur svæðanna í
garðinum, sem til greina kemur að
helluleggja, með hælum eða öðrum
merkjum og taka þannig ákvarð-
anir á staðnum. Aðrar leiðir eru til
dæmis að teikna svæðin inn á bygg-
ingarnefndarteikningu hússins með
einföldum strikum, að fá tillögur
hjá helluframleiðendum, sem sumir
hverjir hafa boðið upp á ráðgjöf
varðandi útlit og munstur, eða að fá
nákvæma teikningu hjá landslags-
arkitekt.
Einnig hafa nokkrir kvöldskólar
og námsflokkar á höfuðborg-
arsvæðinu haldið námskeið í skipu-
lagi og hönnun garða. Til eru er-
lendar bækur sem gefa marg-
víslegar hugmyndir um hvernig
fallegar hellulagnir geta litið út.
Nokkrar slíkar má finna í bóka-
söfnum, bókabúðum eða í gegnum
veraldarvefinn.
Fyrir þá sem vilja hanna sínar
lagnir sjálfir gildir sú meginregla
að leita fyrst eftir góðum upplýs-
ingum og er eindregið mælt með
því að teikna upp hellulögnina áður
en nokkrar framkvæmdir hefjast.
Það auðveldar samskipti við jarð-
vegsverktaka, hellulagningarmenn
og ekki síst meðeigendur að garð-
inum, t.d. makann.
Einfalt er að nota bygging-
arnefndarteikningu hússins, en hún
er yfirleitt í kvarðanum einn á móti
hundrað (1 cm á blaðinu er 1 m í
garðinum). Ofan á þá teikningu má
líma gegnsæjan eða hálfgegnsæjan
pappír og teikna hellulagnirnar á
hann. Til þess að framkvæmdin
megi heppnast sem allra best er
mælt með að góður tími sé tekinn í
þessa vinnu og jafnvel að teiknaðar
séu upp fleiri en ein tillaga þannig
að velja megi þá bestu úr.
Form, litir og
tíska í hellulögnum
Mikið úrval er af hellum sem
nota má í garðinn, mismunandi
stærðir, lögun og litir. Algengt er
nú að valdar séu smáar hellur sem
raðað er í mynstur. Litaðar hellur
eru einnig að verða algengari, en
með þeim er hægt að mynda sam-
spil við liti og form í húsinu og um-
hverfinu.
Fjórir litir eru algengastir, grár
(venjulegur steypulitur), dökkgrár
(stundum kallaður svartur), rauður
og brúnn. Grár og dökkgrár eru
hefðbundnir litir steypu og malbiks
hér á landi, sem alltaf er hægt að
nota og vera viss um að þeir skeri
sig ekki úr.
Rauði liturinn er vandmeðfarnari
og máli skiptir að hann sé hluti af
samspili húss og umhverfis. Brúni
liturinn er nokkuð þægilegur í með-
förum því að hann er að finna í
jarðvegi og gróðri, auk þess sem
viður í girðingum og gluggum húsa
getur myndað skemmtilegt samspil
við hann. Reynslan sýnir einnig að
brúnar hellur dökkna enn meir
þegar þær eldast og passa þá vel á
flestum stöðum.
Þær hellur, sem nú eru helst í
tísku, líkja eftir útliti tilhöggvinna
náttúrusteina eins og grágrýtis,
graníts eða sandsteins. Til að líkja
eftir harðari efnunum eins og gran-
íti eru hellurnar „tromlaðar“, sem
þýðar að margar hellur eru settar í
stóra tunnu (tromlu) sem er snúið
þangað til þær hafa veðrað yf-
irbragð. Til að líkja eftir veðruðum
sandsteini er form steypumótsins
haft þannig í laginu að mjúkar rák-
ir komi í yfirborð hellnanna.
Form og munstur
Með þeirri tækni sem nota má
við að saga og höggva hellurnar er
mögulegt að útbúa ýmiss konar
form og munstur. Þessi form geta
tekið mið af útliti hússins og þannig
er heildarsamspil húss og garðs
aukið.
Einnig geta hlutföll í hurðum og
gluggum, auk bogaþaka, þrí-
hyrndra glugga eða annarra
sterkra útlitseinkenna, geta gefið
tóninn fyrir munstur í hellulögnum.
Ef mismunandi form eru notuð á
svæði í garðinum má gefa hverju
einstöku svæði sinn sérstaka stíl
líkt og þegar herbergi eru máluð í
mismunandi litum.
Síðan eru ólíkar tegundir af
blómstrandi runnum settar við
hvert svæði líkt og þau listaverk og
málverk sem hengja má á veggi. Á
þennan hátt byrjar það ævin-
týrasvæði, sem garður er, að taka á
sig svip.
Með mismunandi formum í hellulögn má gefa hverju einstöku svæði sinn stíl.
Hellulögð svæði
eru ómissandi hluti
af nútímagarði
Ef tekið er mið af útliti hússins í hellulögn má auka heildarsamspil byggingar
og umhverfis.
Gróður og garðar
eftir Björn Jóhannsson landslags-
arkitekt/landslagsarkitekt@lands-
lagsarkitekt.is