Morgunblaðið - 24.04.2002, Side 4
FRÉTTIR
4 MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
E
D
D
1
75
64
04
/2
00
1
fiekktustu sögupersónur
Halldórs Laxness, eins og
Bjartur, Salka Valka og
Ólafur Kára son, eru meira
lifandi í íslensku fljó›lífi en
margur sá sem er af holdi og
bló›i. Í flessari forvitnilegu
bók varpar Gunnar Kristjáns -
son á flær n‡ju ljósi me› flví a›
s‡na fram á hvernig kristin
trúar heimspeki birtist í skáld -
verkum Halldórs og setur mark
sitt á persónusköpunina.
Fjallræ›ufólki›
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
og Gerhard Schröder, kanzlari
Þýzkalands, opnuðu við hátíðlega
athöfn í Haus der Berliner Fest-
spiele í Berlín í gær, íslenzku
menningarhátíðina „Island hoch“
sem mun standa yfir fram á
sunnudag. Schröder tók sér hlé
frá undirbúningi kosningastefnu-
skrár þýzka jafnaðarmannaflokks-
ins SPD [þingkosningar fara fram
í Þýzkalandi í september] og öðr-
um önnum til að taka þátt í opnun
hátíðarinnar og eiga viðræður við
hinn íslenzka starfsbróður sinn.
„Við urðum að takmarka okkur
því tíminn var skammur og engin
vandamál við að etja í samskiptum
þjóðanna; þau eru eins og bezt
verður á kosið,“ sagði Davíð Odds-
son í samtali við Morgunblaðið að
loknum viðræðum þeirra. Af póli-
tískum málum hefði væntanlegur
vorfundur NATO-ríkjanna sem
fram fer í Reykjavík um miðjan
maí og stækkunaráform NATO
borið hæst. Ekki hefði gefizt tími
til að ræða Evrópumálin sér-
staklega. Schröder hefði m.a.
skýrt sér frá því sem í sambandi
við NATO hefði komið út úr við-
ræðum hans við Vladimír Pútín
Rússlandsforseta, en sá síðast-
nefndi var fyrir skemmstu í op-
inberri heimsókn í Þýzkalandi.
Þeir hefðu farið yfir möguleika
einstakra umsóknarríkja um að fá
inngöngu í NATO í næstu stækk-
unarlotu, og hvernig Rússar væru
hafðir með í ráðum.
Að sögn Davíðs hefðu enn-
fremur hin óvæntu úrslit fyrri um-
ferðar forsetakosninganna í
Frakklandi og viðbrögðin við þeim
borið á góma. „Þá ræddum við
líka um heima og geima á vinsam-
legum nótum, eins og eðlilegt er.
Við erum búnir að hittast oft og
orðnir góðir vinir,“ sagði Davíð.
Menningarhátíðin „Island hoch“
stendur yfir í Berlín til 26. apríl.
Um er ræða íslenzka menning-
arhátíð þar sem kynntar verða
bókmenntir, kvikmyndir og tónlist
af ýmsu tagi og með ýmsum hætti.
Að hátíðinni standa aðallega
Steidl-forlagið í Göttingen, Sendi-
ráð Íslands í Berlín, Berliner Fest-
spiele, Kvikmyndasjóður Íslands,
kvikmyndadreifingarfyrirtækið
Amuse, Bókmenntakynning-
arsjóður, Literarisches Collo-
quium og Arena-sýningarhúsið.
Hauptstadt-Kulturfond ásamt
þýzka utanríkisráðuneytinu styrk-
ir hátíðina fjárhagslega.
Helztu tilefni hátíðarinnar eru í
fyrsta lagi að um þessar mundir
eru 50 frá því stofnað var til form-
legra stjórnmálasamskipta milli
Lýðveldisins Íslands og Sam-
bandslýðveldisins Þýzkalands.
Þessara tímamóta verður minnzt
með ýmsum hætti bæði í Þýzka-
landi og á Íslandi, en „Island
hoch“-hátíðin er einn stærsti við-
burðurinn sem haldinn er af þessu
tilefni. Hins vegar er tilefnið 100
ára afmæli Halldórs Kiljans Lax-
ness, en á vegum Steidl-forlagsins
er nú nýkomin út heildarútgáfa á
verkum Nóbelsskáldsins í þýzkri
þýðingu. Þessara tímamóta er
einnig minnzt með sérstakri sýn-
ingu um ævi og störf skáldsins í
sameiginlega húsi Norrænu sendi-
ráðanna.
Ísland á traustan og
góðan vin í Þýzkalandi
Í opnunarávarpi sínu í gær
minntist Davíð Oddsson bæði arf-
leifðar Halldórs Laxness og þess
hve menningarsamskipti Íslands
og Þýzkalands hefðu verið góð og
náin á liðnum öldum og áratugum.
Og á þeim 50 árum formlegra
stjórnmálasamskipta, sem nú sé
hægt að líta til baka til, hafi það
ítrekað sýnt sig hve traustan og
góðan vin Ísland eigi í Þýzkalandi.
Schröder lét þess í sínum ávarps-
orðum sérstaklega getið hve hin
ríka bókmenntahefð á Íslandi
hefði alið heiminum mörg góð
skáld og rithöfunda í gegnum tíð-
ina – „og geri enn“. Minntist
Schröder einnig á að íslenzki for-
sætisráðherrann væri sjálfur
„sönnun kenningarinnar um hin
sérstöku tengsl Íslands og bók-
menntanna,“ en í Þýzkalandi er nú
nýútkomin þýðing á smásagna-
safninu „Nokkrir góðir dagar án
Guðnýjar“ og fór kanzlarinn lof-
samlegum orðum um bókina. Dav-
íð mun lesa upp úr bókinni í bóka-
búð í Berlín í dag.
Ræddu málefni Atlants-
hafsbandalagsins á fundi
Reuters
Vel fór á með Davíð Oddssyni forsætisráðherra og Gerhard Schröder,
kanzlara Þýzkalands, er þeir hittust í Berlín í gær við hátíðlega opnun
íslenzku menningarhátíðarinnar „Island hoch“.
Berlín. Morgunblaðið.
Davíð Oddsson forsætisráðherra og Gerhard Schröder, kanzlari
Þýzkalands, opnuðu íslenzka menningarhátíð í Berlín í gær
Reyna að
misnota
góð-
mennsku
kirkjunnar
BISKUPSSTOFU hafa borist
gylliboð frá Afríku þar sem
þjóðkirkjunni er lofað gulli og
grænum skógum. Þessum boð-
um er ekki tekið enda talið víst
að um hreina og klára fjárplógs-
starfsemi sé að ræða. Svona boð
hafa verið algeng í viðskiptalíf-
inu undanfarin misseri.
Séra Sigurður Árni Þórðar-
son segir að fjöldi bréfa berist
söfnuðum og kirkjum um allan
heim frá óprúttnum aðilum sem
reyni að misnota sér góð-
mennsku kirkjunnar.
Þessi bréf koma aðallega frá
Nígeríu og öðrum löndum Vest-
ur-Afríku. Annars vegar er um
að ræða hjálparbeiðni sem engin
leið er að ganga úr skugga um
hvort sé sönn eða ósönn. Er fólki
bent á að leita hjálpar hjá söfn-
uðum í viðkomandi landi.
Hins vegar er reynt að fá
söfnuði til að taka þátt í peninga-
þvætti. Fyrir skömmu kom slíkt
bréf frá Afríkuríki þar sem þjóð-
kirkjunni var lofað milljónum
króna. Fyrst þurfti aðeins að
senda peninga til að stofna
reikninga en síðan myndu pen-
ingar flæða í sjóði kirkjunnar.
„Þetta átti að leysa öll vanda-
mál þjóðkirkjunnar. Þetta voru
milljónir dollara sem átti að
senda yfir, sem einhver ríkur
aðili ætlaði að gefa íslensku
þjóðkirkjunni.“
Upplýsingar á Netinu
Sr. Sigurður sagði greinilegt
að menn notfærðu sér Netið til
að afla sér upplýsinga um heim-
ilisföng og sendu síðan bréf eða
tölvupóst á viðkomandi. „Þessir
skömmustu aðilar vita sem svo
að það má lengi reyna góð-
mennskuna í kirkjunni. Þeir vita
að við erum veik fyrir gæsku-
verkum og þess vegna reyna
þeir þessa leið,“ sagði hann.
Svo rammt hefur kveðið að
þessu að Ismael Noko, fram-
kvæmdastjóri Lútherska
heimssambandsins, hefur sent
aðildarkirkjum bréf og varað við
slíku. Hann beinir því til kirkna
og söfnuða að vísa slíkum bréf-
um til lögreglu. Sr. Sigurður
Árni segist engin dæmi þekkja
um að íslenskur söfnuður hafi
tapað fé vegna slíkra bréfa.
Gylliboð hafa
borist frá Afríku
sveiflan var yfir 20 prósent. Það
gerði það að verkum að við vorum
með 1.800 milljóna gengistap á síð-
asta ári. Það er stóra skýringin í
þessu.“
Hagnaður á fyrsta
fjórðungi þessa árs
Aðspurður hvort Orkuveitan
muni bregðast við þessu á einhvern
hátt segir Guðmundur lítið hægt að
gera varðandi gengið. Hins vegar
bendir hann á að um 900 milljóna
króna hagnaður hafi verið á rekstri
fyrirtækisins á fyrstu þremur mán-
RÚMLEGA 500 milljóna króna tap
varð á rekstri Orkuveitu Reykjavík-
ur í fyrra samkvæmt bráðabirgða-
ársreikningum miðað við tæplega
400 milljóna króna hagnað árið áð-
ur. Forstjóri fyrirtækisins segir
skýringuna liggja í gengissveiflum á
síðasta ári.
Guðmundur Þóroddsson, forstjóri
Orkuveitunnar, segir tapið nema
um 530 milljónum króna. „Þetta eru
fyrst og fremst gengissveiflur. Það
var hagnaður árið áður þegar geng-
issveiflur voru litlar en síðan komu
þessi ósköp í fyrra þegar gengis-
uðum þessa árs og því sé ekki útlit
fyrir að tapreksturinn muni halda
áfram svo lengi sem gengi er hag-
stætt.
Að sögn Guðmundar eru þó ekki
bara slæmar fréttir fólgnar í árs-
reikningunum. „Hagnaður fyrir af-
skriftir og fjármagnskostnað eykst
úr 3,5 milljörðum í 3,6 milljarða og
eigið fé Orkuveitunnar jókst líka
um einn milljarð á síðasta ári,“ seg-
ir hann. „Það er ákveðin reiknings-
skilavenja, þar sem gengistapið er
gjaldfært, sem gerir það að verkum
að það hefur svona sterk áhrif.“
Orkuveitan tapaði 530
milljónum á síðasta ári
Að sögn lögreglunnar á Sauðár-
króki hvolfdist nánast úr öllum
rækjukörunum þegar bíllinn fór útaf.
Vaskir björgunarsveitarmenn voru
fengnir til aðstoðar og mokuðu þeir
rækjunni aftur upp í körin. Fisk-
VÖRUFLUTNINGABÍLL sem
flutti 26 tonn af rækju fór á hliðina
við Norðurárbrú í Norðurárdal
snemma í gærmorgun. Bíllinn er tal-
inn nánast ónýtur en ökumaður slapp
með skrámu á höfði.
matsmenn munu væntanlega leggja
mat á hvort rækjan sé hæf til vinnslu.
Flutningabíllinn var að mæta öðrum
bíl þegar hann fór út af en ekkert
liggur fyrir um orsakir þess að bíl-
stjórinn missti stjórn á honum.
Vöruflutningabifreið á hliðina
með 26 tonn af rækju