Morgunblaðið - 24.04.2002, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 24.04.2002, Qupperneq 8
FRÉTTIR 8 MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ afsláttur 20-40% eldavélar flvottavélar flurrkarar frystikistur o.fl. 122 cm á hæ› Ver› á›ur 46.995 kr. Ver› nú 33.995 kr. Sími 525 3000 • www.husa.is Raftækjadagar ÞURRKARI Tricity Bendix, 5kg Ver› á›ur 39.900 kr. Ver› nú 27.990 kr. Ver› á›ur 4.395 kr. Ver› nú 2.595 kr. ÞVOTTAVÉL Tricity Bendix, 1000 snúninga Ver› á›ur 65.995 kr. Ver› nú 48.990 kr. Amica KÆLISKÁPUR BRAU‹RIST Moulinex KÆLIR/FRYSTIR Electrolux 200 cm á hæ›, 3 ára ábyrg›. Ver› á›ur 99.990 kr. Ver› nú 79.920 kr. Íslenskur fimleikadómari á Evrópumóti Dómararegl- urnar eru frekar flóknar Evrópumeistaramót-ið í áhaldafimleik-um kvenna er ný- afstaðið og um þessar mundir er keppni í karla- flokki að hefjast. Mótin eru bæði haldin í Grikk- landi og líta Grikkir á þau sem mikilvægan hlekk í skipulagslegum undirbúningi fyrir Ól- ympíuleikana sem fram- undan eru í landinu. Berglind Pétursdóttir fimleikadómari var óvænt boðin af alþjóða fimleika- sambandinu til starfa sem einn af aðaldómurum mótsins. Þetta er í fyrsta sinn sem Íslendingur hlýtur slíka upphefð. Berglind, sem var marg- faldur Íslandsmeistari í fimleikum á árum áður, svaraði nokkrum spurningum Morgunblaðsins við heimkom- una frá Grikklandi nú í viku- byrjun. – Hver var aðdragandi þess að þér var boðið út sem að- aldómari? „Eftir hverja Ólympíuleika er haldið alþjóðlegt dómaranám- skeið í fimleikum. Eftir það námskeið eru dómarar valdir í ákveðna flokka eftir frammi- stöðu þeirra á námskeiðinu og reynslu þeirra af alþjóðlegum mótum. Í efsta flokkinn komust 26 dómarar og ég var þar á með- al. Við val á yfirdómurum á al- þjóðleg mót er tekið mið af þessu námskeiði. Evrópusam- bandið í fimleikum bauð mér að vera yfirdómari á Evrópumótinu í Patras á Grikklandi sem haldið var í síðustu viku.“ – Ert þú fyrsti íslenski alþjóð- legi fimleikadómarinn? „Ég er sú fyrsta frá Íslandi sem fór á alþjóðlegt dómara- námskeið sem haldið er fyrir öll fimleikasamböndin í heiminum, en það var 1984. Við erum nokkrar sem erum með þessi réttindi í dag, en bara tvær sem höfum haft réttindi svona lengi. En ég er líklega með mestu reynsluna af dómarastarfinu því ég hef haft tækifæri til að dæma á þó nokkrum stórum mótum er- lendis.“ – Æfingar í áhaldafimleikum virðast vera flólkin fyrirbæri, er þetta ekki vandasamt verkefni? „Til að vera dómari í fimleik- um er tekið próf á fjögurra ára fresti, bæði bóklegt og verklegt. Dómarareglurnar í fimleikum eru jú frekar flóknar. Við dóm- gæslu er öll æfingin táknuð, þ.e. hraðrituð. Það er tákn fyrir hverja æfingu og það eru jú ansi margar æfingarnar sem eru til. Svo þarf að vera í æfingu til að greina æfingarnar, geta táknað þær jafnóðum og jafn- framt tekið frádrátt fyrir framkvæmd.“ – Láta keppendur og þjálfarar í ljósi óánægju með dóm- gæslu í fimleikum líkt og í bolta- íþróttum? „Jú, það kemur fyrir að sett er út á störf dómaranna. En ein af reglunum í fimleikum er að þjálfarar mega ekki ræða við dómarana á meðan á mótinu stendur. Hægt er að gefa þjálf- ara gula eða rauða spjaldið og reka þá af keppnissvæðinu.“ – Eru störf fimleikadómara oft og iðulega umdeild? „Þau geta verið það. Sem dæmi má nefna frá Evrópu- mótinu í úrslitum á gólfi. Þar var einn keppandinn sem steig út fyrir gólfflötinn og línudóm- arinn gaf honum frádrátt. Þá var púað á hann og honum send- ur tónninn af þjálfurum. Það getur verið erfitt að standa und- ir því þó svo að dómgæslan hafi verið rétt. Dómgæsla í fimleik- um er oft mat dómaranna á ákveðnum atriðum og þá má jú deila um hvað hafi verið hæfi- lega mikill frádráttur.“ – Nú er keppt eftir nýjum reglum, hvernig klárar fimleika- fólkið sig af þeim? „Nýju reglurnar eru talsvert erfiðari en þær sem voru áður. Það þurfa að vera mun erfiðari æfingar til að fá góða einkunn. En erlendis er fimleikafólkið fljótt að aðlaga sig og einkunn- irnar fara strax hækkandi þó svo að reglurnar hafi bara verið í gildi í rúmt ár. Í byrjun var talað um að þessar reglur gætu dugað í allt að átta ár áður en einkunnaskalinn yrði sprengdur en það stefnir í að það verði fyrr.“ – Hvernig stóðu íslensku stúlkurnar sig í Grikklandi, hvar standa þær miðað við aðra og hvað þarf til að betri árangur náist? „Íslensku keppend- urnir stóðu sig með prýði. Þær skiluðu sínum æfingum nokk- uð vel og fengu þau stig sem við var að búast. Til að fá hærri ein- kunnir þurfa þær að hafa fleiri erfiðleikaæfingar inni í æfingum sínum. Við eigum efnilegar fim- leikastúlkur, en til að þær geti náð meiri árangri þarf að standa betur að þeim.“ – Eru fleiri alþjóðlegir dóm- arar á leiðinni héðan? „Ekki svo að ég viti til en það er aldrei að vita hvað verður. Berglind Pétursdóttir  Berglind Pétursdóttir fæddist 24. október 1962, fæðingarstaður Reykjavík. Hún útskrifaðist stúd- ent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1982 og lauk síðan námi í sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslands 1992. Berglind stundaði fimleika í Íþróttafélaginu Gerplu og ballett í Listdansskóla Þjóð- leikhússins. Hún er margfaldur Íslandsmeistari í áhaldafim- leikum. Auk þess að vera fim- leikadómari, starfar hún sem sjúkraþjálfari og fimleikaþjálfari hjá Gróttu á Seltjarnarnesi. Nýjar reglur og erfiðari æfingar Hvað eru 20 þúsund millur á milli vina ef það getur stuðlað að því að Kára takist að þróa lyf til að koma í veg fyrir svona rugling í sjálfstæðisgenunum?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.