Morgunblaðið - 24.04.2002, Side 10

Morgunblaðið - 24.04.2002, Side 10
FRÉTTIR 10 MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÖNNUR umræða um frumvarp ríkisstjórnarinnar um ábyrgð skuldabréfa vegna nýrrar starf- semi Íslenskrar erfðagreiningar fór fram á Alþingi í gær. Þar kom fram að ekki myndu allir stjórn- arandstöðuflokkar þingsins styðja framgang frumvarpsins, auk Pét- urs H. Blöndal, þingmanns Sjálf- stæðisflokksins. Eins og fram hef- ur komið er með frumvarpinu verið að leita eftir heimild til handa fjár- málaráðherra, fyrir hönd ríkis- sjóðs, til að veita einfalda ábyrgð vegna útgáfu móðurfélags Ís- lenskrar erfðagreiningar ehf., de- CODE Genetics Inc., á skuldabréf- um að fjárhæð allt að 200 milljónum Bandaríkjadala eða tæp- um 20 milljörðum íslenskra kr. til uppbyggingar nýrrar starfsemi Ís- lenskrar erfðagreiningar á sviði lyfjaþróunar. Umræðan stóð yfir í allan gærdag og er búist við því að henni verði fram haldið í dag. Efnahags- og viðskiptanefnd þings- ins er þríklofin í afstöðu sinni til frumvarpsins. Vilhjálmur Egilsson, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Al- þingis, mælti fyrir meirihlutaáliti nefndarinnar á Alþingi. Meirihlut- inn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með nokkrum orðalags- breytingum sem þó eru ekki efnis- legar. Vilhjálmur sagði að ríkið væri með ábyrgðinni að taka ákveðna áhættu en velti því fyrir sér hvort eðlilegt væri að ríkið tæki slíka áhættu. „Það má segja ef allt fer á versta veg í þessu þá sé verið að taka 200 milljóna doll- ara áhættu, ekki bara fyrir ís- lenska ríkið heldur myndi líka til viðbótar tapast allt eigið fé Ís- lenskrar erfðagreiningar,“ sagði hann en kvaðst styðja það að ríkið tæki þessa áhættu. Að öðrum kosti myndi móðurfélag Íslenskrar erfðagreiningar, deCODE, leita samstarfs við fyrirtæki í öðrum löndum. Það væri hins vegar óhag- stætt fyrir deCODE vegna þess að verðið á hlutabréfum þess væri á útsöluverði. Síðar sagði Vilhjálmur að rík- isábyrgðin yrði að hafa annan til- gang en beina aðstoð við Íslenska erfðagreiningu, þ.e. tilgang sem þolir það að allt fari á versta veg. „Þannig að við getum tekið ákveðna áhættu á að allt fari á versta veg og að stór hluti af þess- um peningum tapist.“ Vilhjálmur sagði að stjórnarmeirihlutinn væri fyrst og fremst að sækjast eftir því að hér á landi byggðist upp „klasi af þekkingu á þessu sviði,“ eins og hann orðaði það. „Mikið af fólki setjist hér að; hasli sér hér völl á því sviði sem hefur mikla þekk- ingu, mikla menntun og vinnur í hálaunuðum störfum á þessu sviði. Fólk sem borgar háa skatta; legg- ur mikið af mörkum til þjóðfélags- ins, bæði peningalega og eins á öðrum sviðum.“ Í nefndaráliti meirihluta efna- hags- og viðskiptanefndar segir að töluvert hafi verið rætt um það í nefndinni hvort veita ætti öðrum fyrirtækjum sambærilega fyrir- greiðslu og hér um ræddi til Ís- lenskrar erfðagreiningar og greint frá því að fyrirtækið Lyfjaþróun hf. hafi lagt fram upplýsingar þar sem fram kæmi að það teldi sig í sambærilegri starfsemi og Íslensk erfðagreining. „Meirihlutinn bend- ir á að þegar ákvörðun Eftirlits- stofnunar EFTA liggur fyrir um hvort ábyrgðin uppfylli skilyrði ríkisaðstoðar til rannsóknar- og þróunarverkefna verður grundvöll- ur til að fjalla um það hvort ástæða sé til að veita ábyrgð öðrum fyr- irtækjum hér á landi sem fást við lyfjaþróun á sambærilegum for- sendum og Íslensk erfðagreining hefur í hyggju,“ segir í áliti meiri- hluta efnahags- og viðskiptanefnd- ar en undir það rita Vilhjálmur Egilsson, formaður nefndarinnar, Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Fram- sóknarflokks, Sigríður A. Þórðar- dóttir og Drífa Hjartardóttir, þing- menn Sjálfstæðisflokks. Pétur með breytingartilllögu Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur eins og kunnugt er lagst gegn frumvarpinu og spurði hann m.a. Vilhjálm Eg- ilsson í andsvari sínu við ræðu hans afhverju 20 milljarða kr. rík- isábyrgð hefði ekki verið boðin út til hvaða fyrirtækis í heiminum þar sem það væri markmið Vilhjálms að laða að hingað hámenntað fólk. „Þar sem það er markmið hjá hátt- virtum þingmanni (Vilhjálmi Egils- syni) að ná hingað inn störfum á þessu sviði, af hverju var ekki hreinlega boðin út 20 milljarða rík- isábyrgð, til hvaða fyrirtækis sem er í heiminum sem gæti skaffað þessi störf og þá hugsanlega með miklu minnu áhættu? Af hverju var það ekki gert? Þar sem það hefur verið stefna ríkisstjórnarinnar að bjóða sem mest út,“ sagði hann. Þess má geta að Pétur hefur lagt fram á Alþingi breytingartillögu við umrætt frumvarp sem felst m.a. í því að fjármálaráðherra verði fyrir hönd ríkissjóðs heimilt, í þeim tilgangi að stuðla að upp- byggingu hátækniiðnaðar á sviði lyfjaþróunar hér á landi, að veita einfalda ábyrgð vegna útgáfu móð- urfélags Íslenskrar erfðagreining- ar ehf., deCODE Genetics Inc., á skuldabréfum eða, eins og segir í tillögu Péturs að „kaupa slík skuldabréf, að fjárhæð allt að 200 milljónir USD til fjármögnunar nýrrar starfsemi Íslenskrar erfða- greiningar ehf. á sviði lyfjaþróun- ar. Fjármálaráðherra veitir ábyrgðina eða lánið að uppfylltum þeim skilyrðum sem hann metur gild.“ Þá leggur þingmaðurinn til að heiti frumvarpsins verði í sam- ræmi við tillögur sínar, þ.e. það heiti: Frumvarp til laga um heimild til handa fjármálaráðherra, f.h. rík- issjóðs, til að ábyrgjast útgáfu eða kaup skuldabréfa vegna fjármögn- unar nýrrar starfsemi Íslenskrar erfðagreiningar ehf. Pétur H. Blöndal ítrekaði í umræðunni að hann myndi greiða atkvæði gegn frumvarpinu og sagði að það yrði stórhættulegt fyrir ríkissjóð ef frumvarpið yrði samþykkt. „En verði svo að þetta frumvarp verði samþykkt þá vona ég að það dæmi gangi upp,“ sagði hann. Jóhanna Sigurðardóttir, þing- maður Samfylkingarinnar, mælti fyrir nefndaráliti fyrsta minnihluta efnahags- og viðskiptanefndar en auk Jóhönnu stendur að því Össur Skarphéðinsson, formaður Sam- fylkingarinnar. Jóhanna gagnrýndi ýmsa þætti frumvarpsins og sagð- ist myndi greiða atkvæði gegn því. Jóhanna gagnrýndi það m.a. hve lítill tími hefði verið gefinn til að kryfja málið í efnahags- og við- skiptanefnd. „Þeim sem leitað var til varðandi upplýsingar gafst í fæstum tilvikum nægur tími til að meitla þær í ritaðan texta,“ sagði hún m.a. sem dæmi um það hve lít- ill tími hefði gefist til þess að fara vel yfir málið. Í áliti Jóhönnu og Össurar segir m.a. að jafnaðar- menn telji að við vissar aðstæður sé réttlætanlegt að grípa til sér- tækra tímabundinna aðgerða ef al- menn samstaða næst um að þær þjóni tilgangi sem er afar nauðsyn- legur fyrir þjóðarbúið, áhætta skattborgaranna sá viðunandi og hana sé hægt að meta, nægur tími gefist til að skoða slík mál út í hörgul og óskráðar reglur um jafn- ræði séu ekki brotnar. „Á þeim skamma tíma sem þingmönnum hefur gefist til að brjóta til mergj- ar tillögu ríkisstjórnarinnar um 20 milljarða kr. einfalda ríkisábyrgð til deCODE höfum við síður en svo getað sannreynt að tillagan upp- fylli þessi skilyrði,“ segir í álitinu. Þar kemur einnig fram að áhættan sem felist í umræddri ábyrgð virð- ist vera mjög mikil. „Lyfjaþróun- argeirinn er með áhættusömustu atvinnugreinum veraldar miðað við gögn sem lögð voru fram í nefnd- inni. Þróun lyfs tekur að meðaltali um tíu ár.“ Þá segir að frumskil- yrði þess að hægt sé að fallast á umrædda ríkisábyrgð sé að fyrir liggi áhættumat af hálfu traustra greinenda á markaði. „Gildir þá einu þótt fjármálaráðuneyti telji fjárhagsstöðu fyrirtækisins mjög sterka og skuldsetningu litla. Áhættumat er eigi að síður for- senda upplýstrar ákvörðunar um mál af þessum toga. Ekkert áhættumat var lagt fram, þrátt fyrir ítrekaðar óskir fulltrúa Sam- fylkingarinnar í efnahags- og við- skiptanefnd. Það er einfaldlega óviðunandi þegar svo miklir hags- munir eru í húfi fyrir skattborg- arana.“ Aukinheldur segir í nefnd- arálitinu að allsendis óljóst sé hvort frumvarpið fullnægi jafnræð- isreglum og þar með hvort það komist í gegnum „nálarauga Eft- irlitsstofnunar EFTA (ESA),“ eins og þar segir. Þá kom fram í máli Jóhönnu að fyrsti minnihlutinn teldi umrædda ríkisábyrgð vera fordæmisgefandi. Jóhanna gagn- rýndi, eins og áður segir, ýmsa þætti frumvarpsins og segir í lok nefndarálits hennar og Össurar að Samfylkingin geti af þeim ástæð- um ekki stutt málið. „Aðdragandi þess og eðli er með þeim hætti að ríkisstjórnin verður ein að bera ábyrgð á afdrifum þess á Alþingi.“ Engar viðskiptaáætlanir Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, mælti fyrir áliti frá öðr- um minnihluta efnahags- og við- skiptanefndar, en hann stendur einn nefndarmanna að því áliti. Ljóst er þó að þingmenn VG muni allir leggjast gegn frumvarpinu. Í áliti Ögmundar segir m.a.: „Enn sem komið er hefur aðkoma Al- þingis að málinu verið mjög yf- irborðskennd og skortir nánast all- ar upplýsingar til þess að þingmenn geti fengið yfirsýn yfir málið. Að áliti annars minnihluta er fráleitt að veita fjármálaráð- herra fyrrnefnda heimild og koma þar nokkur atriði til, t.d. hefur ekkert áhættumat verið fram- kvæmt af óháðum fagaðila. Efna- hags- og viðskiptanefnd hefur ekki einu sinni fengið að sjá viðskipta- áætlanir fyrirtækisins. Þá er ástæða til að gagnrýna herðlega að veigamiklum ákvæðum í lögum um ríkisábyrgðir er vikið til hliðar. Enda þótt full rök kunni að vera fyrir því að styðja við atvinnrekst- ur í landinu, jafnvel með sértækum aðgerðum við vissar kringumstæð- ur þá er eðlilegt að það sé gert samkvæmt almennum reglum og að vel athuguðu máli. Hvorugt á við í þessu máli.“ Frjálslyndi flokkurinn hefur ekki fulltrúa í efnahags- og viðskipta- nefnd en Sverrir Hermannsson, formaður Frjálslynda flokksins, hefur lagst eindregið gegn frum- varpinu. „Enginn Íslendingur,“ sagði hann, „enginn einstaklingur myndi hætta fé sínu með þessum hætti til síns málefnis. Ekkert fyr- irtæki um víða veröld myndi held- ur gera það. Ég skal þó ekki full- yrða um það að til séu ríkisstjórnir eins og ráðstjórn Íslands sem myndi taka slíkt til bragðs.“ Ekki áhrif á lánshæfi ríkissjóðs Með nefndarálitum fyrsta og annars minnihluta efnahags- og viðskiptanefndar fylgja einstakar umsagnir aðila um frumvarp rík- isstjórnarinnar. Í umsögn Seðla- banka Íslands segir m.a. að bank- inn búi ekki yfir þeirri sérfræðiþekkingu sem nauðsynleg er til að meta áhættu sem um- ræddri ríkisábyrgð fylgir. „Seðla- banki Íslands hefur hins vegar áð- ur lýst þeirri afstöðu sinni til ríkisábyrgða að þær séu almennt ekki heppilegar. Þegar þær eru veittar er nauðsynlegt að ákvarð- anir séu teknar á grundvelli ít- arlegs mats á þeirri áhætt sem þeim fylgir.“ Bankinn ítrekar hins vegar að viðbrögð þeirra matsfyr- irtækja sem meta lánshæfi ríkis- sjóðs við frumvarpinu hafi öll verið á einn veg, þ.e. að umrætt mál eitt og sér hafi ekki áhrif á núverandi lánshæfismat. Í umsögn Samtaka fjárfesta kemur fram að stjórn Samtakanna lýsir sig mótfallna frumvarpinu í núverandi mynd. „Ástæður þess eru fyrst og fremst þær að með frumvarpinu er horfið frá markaðri stefnu um almennar aðgerðir í efnahagsmálum og teknar upp sér- tækar aðgerðir. Einnig eru teknar upp aftur beinar og óbeinar rík- isábyrgðir á rekstri almennrar at- vinnustarfsemi á Íslandi. Óvarleg veiting ríkisábyrgðar á lántökum hefur valdið verulegu tjóni í ís- lensku atvinnulífi.“ Samtökin vekja jafnframt athygli á því að á ís- lenskum fjármálamörkuðum séu nokkur fyrirtæki sem vinni að at- hyglisverðum rannsóknum og þró- un. „Ríkisábyrgð á láni fyrir Ís- lenska erfðagreiningu hf. raskar starfsgrundvelli sumra þessara fyrirtækja með óeðlilegum hætti og getur beinlínsi skaðað þau og fjárfesta sem að þeim standa.“ Að lokum má geta umsagnar Bandalags háskólamanna, BHM, en bandalagið leggur áherslu á að Íslensk erfðagreining hljóti að fenginni þeirri ríkisábyrgð sem um ræðir að gera kjarasamning við hlutaðeigandi stéttarfélög, þar með talin aðildarfélög BHM. „Íslensk erfðagreining hefur alfarið neitað því að gera kjarasamning við Félag íslenskra náttúrufræðinga og við svo búið verður ekki unað – og enn síður ef fjöldi starfsmanna eykst eins og gert er ráð fyrir í kjölfar samþykktar frumvarpsins.“ Minnt er á að skv. lögum um atvinnurétt- indi útlendinga beri að leita um- sagnar hlutaðeigandi stéttarfélags en stéttarfélögunum hefur veist erfitt að gegna eftirlitshlutverki sínu meðan ekki nýtur við kjara- samnings við fyrirtækið. Önnur umræða um ríkisábyrgð á skuldabréfum vegna nýrrar starfsemi ÍE fór fram í gær Viðskiptaáætlanir ekki kynntar þingnefnd Morgunblaðið/Þorkell Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, leggst gegn frumvarpi ríkisstjórnarinnar um ríkisábyrgð. Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, horfir á Pétur, en Össur ætlar að sitja hjá. ÞINGFUNDUR Alþingis hefst kl. 10 f.h. í dag en þá heldur áfram umræða um ríkisábyrgð til handa Ís- lenskri erfðagreiningu. Í kvöld kl. 20 hefst svo eldhús- dagsumræða.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.