Morgunblaðið - 24.04.2002, Side 14

Morgunblaðið - 24.04.2002, Side 14
FRÉTTIR 14 MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ  SIGURLAUG Regína F. Lamm varði doktorsritgerð sína í músíkvís- indum við Háskólann í Uppsölum í Svíþjóð 24. nóvember 2001. Ritgerð- in fjallar um upphaf opinberrar um- ræðu um músík og um upphaf tón- leikahalds á Ís- landi á tímum sjálfstæðisbarátt- unnar. Leiðbein- andi Sigurlaugar var dr. Erik Kjell- berg, prófessor í músíkvísindum við Háskólann í Uppsölum. Andmælandi var dr. Heinrich W. Schwab, prófessor í músíkvísindum við Kaupmannahafn- arháskóla. Dómnefnd skipuðu dr. Solfrid Söderlind, prófessor í list- fræði við Háskólann í Uppsölum, dr. Anders Carlsson, dósent í músíkvís- indum við Háskólann í Gautaborg og dr. Veturliði Óskarsson, lektor í ís- lensku við Háskólann í Uppsölum. Ritgerðin tekur mið af þeim þjóð- félagslegu breytingum sem áttu sér stað á Íslandi á 19. öld. Þær breyt- ingar sem urðu í tónmennt og tónlist- ariðkun á Íslandi á þessum tíma eru settar í samband við þau menning- arlegu tengsl sem Íslendingar höfðu við umheiminn, sérstaklega við Dani, þrátt fyrir langa sjálfstæðisbaráttu. Í ritgerðinni eru fjögur megin- atriði tekin fyrir: hugmyndir Íslend- inga um tónlist á 19. öld; upphaf op- inbers tónleikahalds svo og fyrstu tónleikahúsin í Reykjavík; tónleikar í Reykjavík á 40 ára tímabili, frá 1881 til 1920; umræður um tónlist í dag- blöðum samtímans fram til 1920. Rannsóknin sýnir m.a. fram á að útbreiðsla á tónlistarþekkingu á Ís- landi átti sér í fyrstu einkum stað í margvíslegum ritum sem tengdust hugmyndum upplýsingarinnar svo sem ritum Magnúsar Stephensens, Ara Sæmundsens og Péturs Guð- johnsens. Reglubundið tónleikahald á opinberum vettvangi í Reykjavík hófst í byrjun níunda áratugar 19. aldar og fóru langflestir tónleikar fram í Bárunni við Tjörnina. Í upp- hafi tímabilsins var mest um kór- tónlist að ræða sem flutt var inn frá útlöndum, einkum Mið-Evrópu og Norðurlöndunum. Tónverk samin af íslenskum tónskáldum, kórlög og einsöngslög, komu fram í auknum mæli eftir 1890. Á öðrum áratug 20. aldarinnar voru einsöngstónleikar og kammertónleikar orðnir fastur liður í tónleikahaldi í Reykjavík, mest fyr- ir tilkomu íslenskra og erlendra söngvara og hljóðfæraleikara sem höfðu hlotið sérmenntun á sviði tón- listar. Í þeirri tónlistarumræðu sem kom fram í dagblöðum í tengslum við þá tónleika sem haldnir voru, voru félagslegar og þjóðernislegar viðmið- anir meira í hávegum hafðar en um- fjöllun um þau tónverk sem flutt voru. M.a. kemur þar fram mikilvægi þess að fólk sækti tónleika og að sungið væri á íslensku fremur en á erlendum tungumálum. Sigurlaug Regína lauk stúdents- prófi frá Menntaskólanum við Sund 1981. Hún stundaði nám í þýsku við Háskóla Íslands árið eftir og síðan nám í tónmenntakennaradeild Tón- listarskólans í Reykjavík þar sem hún lauk tónmenntakennaraprófi 1985. Árið eftir hlaut hún styrk til þýskunáms við Humboldt Univers- ität í Austur-Berlín. 1986–1989 var Sigurlaug í námi í músíkvísindum og norrænum fræðum við Freie Uni- versität í Vestur-Berlín. 1989–1990 starfaði hún í Íslenskri tónverkamið- stöð í Reykjavík og hélt síðan til Uppsala til frekari náms. Frá árinu 1999 hefur Sigurlaug verið fastráðin hjá músíkforlaginu Warner/Chappell Music Scandinavia AB í Stokkhólmi. Eiginmaður Sigurlaugar er Steff- en Lamm verkfræðingur. Dóttir þeirra er Birta Marlen. Foreldrar Sigurlaugar eru Ásdís Jónasdóttir og Friðþjófur Max Karlsson við- skiptafræðingur. Doktor í músík- vísindum HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest úrskurð Hér- aðsdóms Reykjavíkur um að karlmaður sæti gæsluvarðhaldi til 27. maí fyrir fjölda fjársvika- og skjalafalsmála sem hann er bendlaður við. Er hann m.a. grunaður um að hafa í janúar og febrúar í 12 skipti svikið út farsíma og fylgi- hluti í verslunum Landsíma Íslands alls að verðmæti 834.827 krónur sem hann lét skuld- færa heimildarlaust í viðskiptareikninga fyr- irtækja. Lögreglan í Reykjavík taldi miklar líkur á því að maðurinn myndi halda áfram brotum sínum ef hann héldi óskertu frelsi. Lögreglan handtók hann í síðustu viku vegna gruns um fjársvik og skjalafals hinn 8. apríl. Þann dag kom maðurinn inn í verslun Landsíma Íslands í Smáralind og sveik út farsíma að andvirði 50.460 krónur, að hluta til með tékka sem hann hafði falsað undirskrift á. Maðurinn sótti m.a. um tékkareikning hjá Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis í Álfabakka í nafni annars manns og fékk tékkhefti og debetkort auk þess sem hann framvísaði víxileyðublaði til tryggingar á heimild til yfirdráttar 500.000 króna á reikning- inn. Hafði maðurinn falsað undirskrift tveggja manna. Þá er maðurinn grunaður um að hafa stofnað til reikningsviðskipta við fyrirtækið Sindra-Stál og á tímabilinu frá 14. janúar til 28. febrúar tekið út í reikninginn verkfæri að verðmæti 423.846 krónur þrátt fyrir að hann sé með öllu eignalaus og ógjaldfær. Í febrúar tók maðurinn bíl á leigu hjá bílaleigunni Avis í nafni annars manns fyrir hönd fyrirtækisins Rolf Johansen & Co. og falsaði leigusamninginn. Í febrúar stofnaði hann til reikningsviðskipta við Þór í Ármúla og framvísaði til tryggingar væntanleg- um viðskiptum víxileyðublaði með fölsuðum undirskriftum. Reynslulausnin reyndist ekki vel Í febrúarlok sveik maðurinn út vörur hjá fjórum verslunum Húsasmiðjunnar að verð- mæti 352.537 krónur með því að láta skuldfæra andvirði varanna heimildarlaust í viðskipta- reikning teiknistofu hjá Húsasmiðjunni. Í febr- úar reyndi maðurinn í félagi við annan mann að svíkja skjávarpa og myndavél, samtals að verð- mæti 572.912 krónur, út hjá verslun Nýherja en vörurnar pöntuðu þeir í nafni Rolfs Johan- sens & Co. Loks er maðurinn grunaður um að hafa ekið undir áhrifum áfengis og deyfandi lyfja og valdið þannig tjóni. Manninum var veitt reynslulausn um mitt síðasta ár. Hann hefur viðurkennt aðild sína að allmörgum brotum sem flest voru framin á þessu ári. Bendlaður við fjölda fjár- svika- og skjalafalsmála Fékk reynslu- lausn í fyrra VEIÐIMENN voru almennt að fá lítið um síðustu helgi, víða var rennt, en skilyrði voru ekki sem best og lítið að hafa. Þannig stóðu margir vaktina um helgina í Þing- vallavatni og var víða reynt, í Lambhaga, á Öf- ugsnáða og víða í þjóðgarðinum en veiði var lítil. Á sama tíma voru menn í Soginu, m.a. í Ásgarði og á Torfastöðum, en lítið aflaðist og hvassviðri var til trafala. Þá er veiði hafin á Hrauni í Ölfusi og einn ábú- enda á Hrauni sagði veiði litla enn sem komið er, aðeins nokkrir niðurgöngufiskar. „Hér glæðist veiðin yfirleitt og er hvað best um og upp úr maí, þannig að við bíðum bara róleg,“ sagði landeigand- inn. Flóð og drulla Austar, í Geirlandsá, töldu menn um helgina ekki taka því að setja saman og sátu og spiluðu brids á meðan áin fyllti dalinn í æsilegu hlaupi, kolmórauð á lit. Þar hefur raunar lítið veiðst að undanförnu og varla verið bókaður fiskur síðan 7. apríl að sögn veiðimanna. Aðeins milli 30 og 40 fiskar hafa verið veiddir, flestir fyrsta daginn. Gott í Skógá Veiði hófst nýlega í Skógá, eða nánar tiltekið í Skógtjörn, en ekki er veitt í ánni í vorveiðinni. Að sögn Ásgeirs Ásmundssonar leigutaka veiddust 60 bleikjur fyrsta hálfa daginn. Lítið er veitt í miðri viku, en helgarnar eru umsetnar og veiði góð. Mest var þetta tveggja punda bleikja, en Ásgeir sagði mun vænni fiska vera þarna einnig og bara tímaspursmál hvenær 4–6 punda bleikjurnar gæfu sig. Morgunblaðið/Golli Vorveiðin stendur sem hæst og hér sést veiðimaður landa vænum silungi í Tangavatni í Landsveit. neitað því að hann hafi dregið sér fé og sagt kæruna tilefnislausa með öllu. Þá hafi hann ekki skuld- sett skólana umfram heimildir. Of mikið og of dýrt Maðurinn var skólastjóri Rafiðn- aðarskólans og Viðskipta- og tölvu- skólans sem eru að fullu í eigu raf- iðnaðarmanna. Hann var einnig skólastjóri Margmiðlunarskólans sem er í eigu Rafiðnaðarskólans og Prenttæknistofnunar, auk þess sem hann gegndi fleiri trúnaðar- störfum fyrir rafiðnaðarmenn. Skólakerfi rafiðnaðarmanna velti um 500 milljónum á síðasta ári en þá voru um 40-50 manns í fullu RANNSÓKN lögreglunnar í Reykjavík á málum fyrrverandi framkvæmdastjóra skólakerfis raf- iðnaðarins miðar að sögn lögreglu vel, en hann var í vetur kærður fyrir tugmilljóna fjárdrátt úr sjóð- um skólanna. Skólastjóranum hafði þá verið sagt upp störfum eftir að í ljós kom mikil fjármálaóreiða hjá þeim stofnunum í skólakerfinu sem voru undir hans stjórn. Skuldir skólanna munu nema um 900 milljónum króna en eignirnar eru metnar á um 600 milljónir. Tillögur um leiðir út úr vandanum verða lagðar fyrir stjórn skólanna innan tíðar. Skólastjórinn fyrrverandi hefur starfi og álíka fjöldi var í hluta- störfum. Ekki náðist í Guðmund Gunn- arsson, formann Rafiðnaðarsam- bands Íslands, RSÍ, í gær, en hann er staddur erlendis. Í grein sem ber titilinn „Umræður um skóla- málin á Sambandsstjórnarfundi RSÍ 2002,“ segir Guðmundur m.a. að stefnt sé að því að starfsemi Rafiðnaðarskólans verði óbreytt en leitað verði til annarra um að koma að öðrum rekstri. Þá segir hann að því hafi verið haldið fram að fé hafi verið sólundað í skólakerfinu. Þetta sé að sumu leyti rétt. Fest hafi verið kaup á of miklum og of dýr- um kennslubúnaði, húsnæðið stærra en þörf krefur og innrétt- ingar óþarflega veglegar. Þá hafi stjórnarmenn skólanna fengið vill- andi upplýsingar um rekstrarstöðu skólanna og stjórnandi þeirra farið út í fjárfestingar og framkvæmdir sem ekki voru heimildir fyrir. „En vel búið og innréttað skólahús ásamt miklum búnaði er þarna og eru mikil verðmæti, það má segja að búið sé að tækjavæða skólana fram í tímann. Það má færa rök fyrir því að fært hafi verið of mikið fjármagn til félagsmanna í gegnum skólakerfið, með því að námskeiðs- gjöld hafa verið of lág og fámenn- um námskeiðum ekki aflýst,“ segir í greininni. Rannsókn lögreglu á málum fyrrverandi skólastjóra miðar vel Skuldir skóla rafiðnaðar- ins um 900 milljónir króna ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN? Víðast hvar er dræm veiði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.