Morgunblaðið - 24.04.2002, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 24.04.2002, Blaðsíða 16
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 16 MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ ALLS bárust 23 umsóknir um styrk úr 19. júní sjóði Garða- bæjar að þessu sinni, en um- sóknarfrestur rann út fyrir helgi. Frá þessu er greint á heimasíðu Garðabæjar. „Umsóknirnar eru mjög fjöl- breyttar, þær koma frá ólíkum íþróttagreinum og tengjast íþróttaiðkun kvenna á öllum aldri,“ segir á heimasíðunni. Rúmlega ein milljón króna er til úthlutunar að þessu sinni en styrkirnir verða afhentir á kvennahlaupsdaginn 16. júní nk. Umsóknirnar eru nú til um- fjöllunar stjórnar 19. júní sjóðs- ins. 23 umsóknir um styrk úr 19. júní sjóði Garðabær SKÓLI Ísaks Jónssonar fagnar 75 ára afmæli sínu um þessar mundir. Í dag, síðasta vetrardag, verður af því tilefni opið hús í skólanum frá kl. 9:30. Vinum og velunnurum skólans er boðið að koma og ganga um skól- ann og fylgjast með kennslu í öllum deildum. Ísaksskóli 75 ára Hlíðar MIKIL hátíðarhöld standa yfir í Mosfellsbæ þessa dagana í tilefni af því að Halldór Laxness, sem ólst upp á bænum Laxnesi í Mosfellsdal og bjó síðar að Gljúfrasteini, hefði orðið 100 ára í gær. Var af því tilefni opnuð sýning í Bókasafni Mosfellsbæjar þar sem persónulegir munir fjölskyldunnar á Gljúfrasteini og ljósmyndir úr fórum safnsins eru til sýnis. Sýn- ingin verður áfram opin á morgun og föstudag og lýkur á laugardag. Laxnessdagskrá verður í dag í kaffihúsinu Álafoss föt bezt í Ála- fosskvosinni og hefst hún kl. 20. Á morgun, sumardaginn fyrsta, verða gönguleiðir í Mosfellsdal vígðar þar sem gengið verður frá Gljúfrasteini undir leiðsögn Bjarka Bjarnasonar. Rútuferðir verða frá Hlégarði kl. 8:45 og hefst gangan kl. 9:00. Þá verða opin hús í grunn- og leikskólum bæjarins undir yf- irskriftinni „Skáldið og sveitin“. Börn á leikskólum bæjarins fögn- uðu afmæli skáldsins í gær og héldu afmælisveislu. Á leikskólanum Huldubergi gæddu börnin sér á kökum og kakói en leikskólabörn í Mosfellsbæ hafa að undanförnu verið að læra ljóð eftir Halldór Lax- ness og unnið ýmis verkefni í tengslum við Laxnesshátíðina. Morgunblaðið/Þorkell Börnin á leikskólanum Huldubergi héldu afmæli Halldórs Laxness há- tíðlegt og voru með risaköku með ótal kertum. Skáldið og sveitin Mosfellsbær Í FRÉTTABRÉFI Orkuveitu Reykjavíkur frá því í nóvember á síðasta ári ritar Þorvaldur Stefán Jónsson, verkefnastjóri Nýrra höf- uðstöðva, grein þar sem hann segir frá hugmyndum um að reka lítið kaffihús (netkaffi) gegnt sýningar- sal í vesturálmu nýrra höfuðstöðva Orkuveitunnar á Réttarhálsi. „Þar verður boðið upp á kaffi (Orku- kaffi), te og ýmsa drykki, áfenga sem óáfenga með ýmsu meðlæti,“ segir Þorvaldur í grein sinni. Guð- mundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitunnar, segir að ekki sé ætl- unin að almennt verði áfengissala á kaffihúsinu, sem er fyrst og fremst ætlað starfsmönnum stofnunarinn- ar og þeim sem eiga beint erindi við stofnunina. Borgarfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins gagnrýndu á borg- arstjórnarfundi í síðustu viku útboð OR á líkamsræktarstöð í húsinu og vöktu athygli á fyrirætlunum um sölu vínveitinga og listagallerí. „Þorvaldur rekur í fréttabréfinu hugmyndir sínar um rekstur kaffi- hússins, en engin formleg afstaða var tekin til þeirra og þær því aldrei samþykktar,“ segir Guðmundur. „Almennt verður ekki boðið áfengi á Kaffíhúsinu. Það verður aðeins opið á daginn og þá verður ekki veitt vín. En það má hugsa sér að þegar eitthvað er um að vera í hús- inu á kvöldin verði undir ákveðnum kringumstæðum veitt áfengi.“ Hugsanlega einstaka listasýningar Í húsinu verður sýningarsalur sem að sögn Guðmundar er hugs- aður sem aðstaða til að kynna tækni og sögu stofnunarinnar en ekki sem listagallerí. „Þó mætti hugsa sér að þar yrðu settar upp einstaka lista- sýningar, en sýningarsalurinn yrði ekki rekinn sem listagallerí.“ Útboð á rekstri líkamsræktar- stöðvar í húsinu stendur yfir og rennur frestur til að bjóða í rekst- urinn út á næstu dögum, að sögn Guðmundar. „Aðstaða til líkams- ræktar eins og hún kemur til með að verða í nýja húsinu er minni í fermetrum talið en samanlögð lík- amsræktaraðstaða veitnanna var fyrir sameiningu,“ segir Guðmund- ur. „Eini munurinn í tengslum við líkamsræktina nú og frá því sem áð- ur var er að við ætlum ekki að kaupa tækin í salinn sjálfir og ekki reka hann, heldur bjóða öðrum að sjá um það. Líkamsræktarstöðin verður því á sama grunni og aðrar svipaðar stöðvar.“ Guðmundur segir að starfsmenn muni því kaupa kort í stöðina vilji þeir æfa þar, en Orkuveitan mun halda áfram að styrkja starfsmenn sína til líkamsræktar, „þeir geta þá valið hvort þeir noti styrkinn til kaupa á aðgangskortum í stöðinni í húsinu eða annars staðar“. Guð- mundur sagði að starfsemin yrði undir rekstraraðilum komin og reiknaði með að hún yrði öllum op- in, ekki eingöngu starfsmönnum OR. Ráðgert er að starfsemi Orku- veitunnar flytji í nýja húsnæðið í haust, en hönnuðir hússins eru arki- tektarnir Ingimundur Sveinsson og Ögmundur Skarphéðinsson. Nýjar höfuðstöðvar OR Morgunblaðið/Kristinn Ráðgert er að starfsemi Orkuveitunnar flytji í nýja húsnæðið við Rétt- arháls í haust, en hönnuðir hússins eru arkitektarnir Ingimundur Sveinsson og Ögmundur Skarphéðinsson. Hugmyndir um vínveitingar aldr- ei samþykktar Ártúnshöfði „MÁLIÐ hefur verið kostnaðarsamt og mikill tími hefur farið í að sinna því. Ég mun nú ræða næstu skref við lögmann minn, Jón Steinar Gunn- laugsson. Ég hef alla tíð haft útrétta sáttarhönd, en ég undrast viðbrögð borgaryfirvalda,“ segir Hrafn Gunn- laugsson leikstjóri um niðurstöður Úrskurðarnefndar skipulags- og byggingamála sem fela í sér ógildingu ákvörðunar borgarráðs að fella út byggingarreit fyrir vinnustofu á Laugarnestanga 65, þar sem heimili Hrafns stendur. „Ég hélt að málið yrði leyst í vinsemd, en svo virðist ekki vera. Fjórum dögum eftir að úr- skurðurinn var kveðinn upp voru komnir hingað embættismenn frá borginni og gerðu athugasemdir við hluti sem koma málinu ekkert við.“ Aðdragandinn langur Forsaga málsins er sú að árið 1990 var unnið deiliskipulag fyrir Laugar- nestangann. „Í þeirri tillögu var gert ráð fyrir viðbyggingum fyrir vinnu- stofur við hús númer 62 og 65,“ segir Hrafn. „Íbúar beggja húsanna létu síðan teikna vinnustofur. Þá kom ábending frá borgarminjaverði að við húsið mitt væri að finna mannvistar- lög.“ Borgarminjavörður benti svo á annan stað fyrir byggingarreitinn, sunnan hússins. „Þetta var samþykkt í skipulagsnefnd. Ég hafði engar fregnir af því að þetta var ekki stað- fest af borgarráði, sem er lögformlegt atriði. Ég var ekkert að velta því fyrir mér, enda kann ég ekki á stjórnsýslu- kerfið.“ Því lét Hrafn öðru sinni teikna vinnustofu. „Ég hafði af þessu tölu- verðan kostnað, en ég vildi koma til móts við borgaryfirvöld. Þegar teikn- ingarnar voru tilbúnar og ég sótti um leyfi til að byggja, barst mér bréf frá borgarskipulagi varðandi afmörkun lóðarinnar. Þá sé ég að ekki er gert ráð fyrir byggingarreitnum. Ég gerði athugsasemd við þetta, hélt að mistök væru á ferðinni en nýju lóðamörkin voru samþykkt án þess að bygging- arreiturinn væri þar inn á. Samt hafði þeim verið breytt vegna byggingar- reitsins. Þegar hafist var handa við gerð deiliskipulags var reiturinn ekki inni og ég gerði athugasemdir við deiliskipulagið.“ Deiliskipulagið var samþykkt árið 2000. „Ég hef engan áhuga á að standa í stríði við borgina og reyndi að leita sátta,“ segir Hrafn. „Síðan fá tveir nágrannar mínir að byggja við sín hús en mér er neitað. Þá leitaði ég mér lögfræðiaðstoðar sem varð til þess að málið fór fyrir úr- skurðarnefndina.“ Málið snertir alla „Mér finnst þetta mikilvægt mál sem varðar samskipti stjórnvalda og einstaklinga“ segir Hrafn. „Þetta snertir ekki bara mig, heldur alla.“ Niðurstöðu Úrskurðarnefndarinn- ar segir Hrafn staðfesta að á honum hafi verið brotin lög. „Ég hefði því bú- ist við að borgaryfirvöld vildu leysa málin í góðu. En viðbrögðin eru þau að fjórum dögum seinna er farið að gera athugasemdir við allt annað á svæðinu sem kemur byggingarreitn- um ekkert við og er vinnustofunni óviðkomandi.“ Árni Þór Sigurðsson, formaður skipulags- og byggingar- nefndar, sagði í Morgunblaðinu sl. fimmtudag að ráðist hefði verið í framkvæmdir á lóðinni sem ekki væri leyfi fyrir. Hrafn segist hafa útbúið litlar tjarnir við húsið í kjölfar þess að vatnsbúskapur nánast hvarf þegar lögð var skólplögn sem drenaði upp svæðið og fuglalíf var í hættu. „Ég lét borgaryfirvöld vita af því að ég hefði látið renna í uppþornaða mýrarbolla og þar væru nú tjarnir. Nú er farið að beina umræðunni að þessu verki.“ Hrafn fékk jarðveg þegar rotþró var grafin á vegum borgarinnar og Árni Þór gerir athugasemdir við. „Ég bað verktakana að skilja jarðveginn eftir á svæði þar sem löngum hefur verið sturtað efni. Ég hef síðan lagað hólana til og vil að þar vaxi njóli og hvönn. Þetta hef ég gert til að fegra umhverfið, en ekki hef ég viljað valda spjöllum.“ Hrafn er sannfærður um að vinnu- stofa myndi auka gildi útivistarsvæð- isins, en ekki draga úr því. „Í bréfi sem ég sendi borgarskipulagi Reykjavíkur 1993 segi ég m.a. að vinnustofan geti tengst því listalífi sem fyrir er á nesinu og aukið það, án þess að hindra á nokkurn hátt nátt- úrulífsskoðun eða hafa áhrif á þau verndarsvæði sem máli skipta. Í ljósi þessa hefði ég hugsað mér að vinnu- stofan gæti verið almenningi opin að hluta. Þá benti ég á að arkitektarnir létu útlit vinnustofunnar ráðast af umhverfinu svo hún myndi falla sem best inn í landslagið. Ég er sannfærð- ur um að vinnustofan myndi gera úti- vistarsvæðið enn skemmtilegra.“ Hrafn segir að ef vilji sé fyrir hendi sé hægt að láta mál sem þessi veltast um í borgarkerfinu von úr viti. „Það kostar stjórnmálamennina ekki neitt persónulega þó borga þurfi mér ein- hverjar bætur á endanum úr borg- arsjóði, en það er sóun á skattpen- ingum almennings. Hins vegar er dýrt fyrir einstakling að berjast við kerfið.“ Hrafn Gunnlaugsson um ógildingu lóðarskipulags Undrandi á viðbrögð- um borgaryfirvalda Morgunblaðið/Golli Hrafn segist hafa látið renna í tjarnir við hús sitt til að efla fuglalíf á svæðinu sem minnkaði að hans sögn er skólpleiðsla var lögð. Laugarneshverfi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.