Morgunblaðið - 24.04.2002, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 24.04.2002, Qupperneq 17
AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2002 17 NORÐURMJÓLK tapaði 37 milljónum króna á síðasta ári og sagði Helgi Jóhannesson fram- kvæmdastjóri að reksturinn hefði ekki verið viðunandi. Hann sagði að áætlanir fyrir þetta ár gerðu ráð fyrir 50 milljóna króna hagnaði eftir greiðslu yfirverðs. Framleiðendum á svæði félagsins voru greiddar 54 milljónir króna í yfirverð á árinu og fyrir utan þá tölu er hagnaður Norðurmjólkur tæpar 17 milljónir króna. Rekstrartekjur námu tæpum 2,6 millj- örðum króna en rekstrargjöld tæpum 2,4 millj- örðum króna. Frá 1. nóvember sl. til áramóta tók mjólk- uriðnaðurinn á sig hækkun til framleiðenda um tæp 7% án þess að heildsöluverð hækkaði að sama skapi og fyrir Norðurmjólk þýddi þetta um 13 milljónir króna í útgjaldaauka. Þá sagði Helgi að verðbólga og mikill fjármagnskostn- aður hafi haft áhrif á afkomu ársins. Helgi sagði að framlegð frá rekstri hefði verið góð og að síðasta ár hefði verið eitt af betri rekstr- arárum samlagsins, sé litið til hagnaðar fyrir fjármagnsliði, sem var um 191 milljón króna. Hjá Norðurmjólk var innvegin mjólk á síð- asta ári rúmlega 27 milljónir lítra, þar af á Ak- ureyri um 20,5 milljónir lítra, sem er 1,6% aukning frá árinu áður. Á Húsavík var inn- vegin mjólk um 6,4 milljónir lítra, sem er um 1,5% samdráttur milli ára. Framleiðsla um- fram greiðslumark var um 710 þúsund lítrar eða 2,7% en á landsvísu var framleiðsla um- fram greiðslumark 3,14%. Í ágúst sl. var tekin ákvörðun um að loka mjólkursamlaginu á Húsavík og flytja vinnsl- una til Akureyrar og kemur sú ákvörðun til framkvæmda í næsta mánuði. Helgi sagði að þessi ákvörðun hafi verið erfið en hann er þess fullviss að breytingin styrki fyrirtækið og framleiðendur þess til sóknar í framtíðinni. Helgi sagði að nær allir starfsmenn fyrirtæk- isins á Húsavík væru komnir í aðra vinnu, eða að gerðir hafi verið við þá starfslokasamning- ar. Framleiðendum fækkað mikið Líkt og á landsvísu hefur framleiðendum á samlagssvæði Norðurmjólkur fækkað umtals- vert á undanförnum árum. Í Eyjafirði og S- Þingeyjarsýslu voru um 400 framleiðendur ár- ið 1985 en í lok síðasta árs voru þeir um 200. Helgi sagði þarna um gríðarlega breytingu að ræða en að búin væru að stækka og framleiðsl- an jafnframt að aukast. Hann sagði jafnframt nauðsynlegt að halda mjólkurkvótanum innan svæðisins. Helgi sagði að prótein væri vaxandi í mjólkinni og að nyt í kúm hafi aukist nokkuð á undanförnum árum. Mikill aukning hefur orðið í sölu á mjólk og mjólkurafurðum á síðustu mánuðum. Helgi sagði að innlögð mjólk á landsvísu hinn 1. mars sl. væri minni en á sama tíma í fyrra, þrátt fyrir að greiðslumarkið nú væri 104 milljónir lítra á móti 103 milljónum lítra í fyrra. „Þannig að við erum að fá minna af mjólk inn núna, þrátt fyrir að bændur hafi gengið að því vitandi að greiðslumarkið væri meira nú. Á öllu verðlagsárinu í fyrra var inn- vegin mjólk á landsvísu um 106,5 milljónir lítra en við þurfum um 108 milljónir lítra í ár. Ástæðan fyrir því er aukin próteinsala.“ Greitt fyrir alla umframmjólk Mjólkuriðnaðurinn hefur þegar ákveðið að kaupa prótein úr þremur milljónum lítra af umframmjólk. „Við þurfum á allri mjólk að halda og mér sýnist að við munum greiða pró- teinverð fyrir alla umframmjólk sem kemur í hús.“ Helgi sagði ýmis jákvæð teikn á lofti varð- andi framtíðina. Rekstur Norðurmjólkur fari batnandi, kvótaverð færi lækkandi og að mjólkurneysla þjóðarinnar væri að aukast. Hins vegar taldi hann að hægt væri að hag- ræða enn frekar í mjólkuriðnaðinum. Tap á rekstri Norðurmjólkur nam 37 milljónum króna á síðasta ári Gert ráð fyrir hagnaði á yfirstandandi ári Morgunblaðið/Kristján Mjólkurbílar og útkeyrslubílar Norður- mjólkur bera mjög skemmtileg bílnúmer, sem tengjast vel starfsemi félagsins. Hér er Pétur Haraldsson að losa mjólkurbíl sem er með númerið SMJÖR en önnur bíl- númer Norðurmjólkur eru; SKYR, OST- UR, JÓGÚRT, MYSA, og RJÓMI. ANDRÉSAR Andar leikarnir á skíðum verða settir í Íþróttahöll- inni á Akureyri í kvöld. Alls eru um 800 börn skráð til leiks að þessu sinni og er þetta heldur meiri þátt- taka en mörg undanfarin ár. Alls eru 738 keppendur skráðir til leiks í alpagreinum og um 60 í göngu. Keppni hefst í Hlíðarfjalli í fyrra- málið og stendur fram á laugardag. Í lok hvers dags fer fram verð- launaafhending í Íþróttahöllinni. Þetta kemur fram á heimasíðu Skíðafélags Akureyrar. Þar segir einnig að krakkar frá Grænlandi, sem höfðu skráð sig til þátttöku á leikunum eins og undanfarin ár, hafi þurft að afboða komu sína. Í fyrra kepptu 762 krakkar á Andr- ésar Andar leikunum, árið 2000 voru þeir 789 og 746 árið 1999. Framkvæmd og dagskrá leik- anna er með nokkuð hefðbundnu sniði. Eins og undanfarin ár eru Samskip stærsti styrktaraðilinn og aðrir stórir styrktaraðilar eru ESSO, sem gefur öll verðlaun á leikunum, og Nanoq. Þá koma fjöl- mörg fyrirtæki við sögu með einum og öðrum hætti. Enn er nægur snjór í Hlíðarfjalli þótt hann hafi minnkað nokkuð í blíðunni síðustu daga. Ef ástæða þykir til verða brekkurnar í Hlíð- arfjalli frystar þannig að aðstæður verði sem bestar. Andrésar Andar-leikarnir á skíðum settir í kvöld Morgunblaðið/Kristján Um 800 börn skráð til leiks ÞRJÚ tilboð bárust í hönnun og byggingu tveggja þjónustu- húsa á tjaldstæðinu á Hömrum við Akureyri en tilboðin voru opnuð í gær. Öll tilboðin voru yfir kostnaðaráætlun Fast- eigna Akureyrarbæjar, sem hljóðaði upp á 25 milljónir króna. Stígandi á Blönduósi bauð 27,7 milljónir króna í verkið, sem er um 111% af kostnaðar- áætlun, Fjölnir á Akureyri bauð um 29,6 milljónir króna, eða um 118% af kostnaðaráætl- un og Ármann Ketilsson í Eyja- fjarðarsveit bauð rúmar 32 milljónir króna, eða um 128% af kostnaðaráætlun. Hvort þjónustuhús verður um 65 fermetrar að stærð, með salernum, sturtum og þvottaað- stöðu, auk um 45 fermetra yf- irbyggðrar verandar. Húsun- um á að skila fullfrágengnum á staðnum og er skiladagur verksins 1. júlí nk. Bygging þjónustuhúsa á Hömrum Öll til- boðin yfir kostnað- aráætlun Gönguferð í Baugasel á morgun FERÐAFÉLAGIÐ Hörgur efnir til gönguferðar í Baugasel á morgun, fimmtudag, sumar- daginn fyrsta. Hörgur hefur árlega mörg síðustu ár efnt til gönguferðar í Baugasel á þessum degi. Um er að ræða stutta og þægilega gönguferð, sem tekur um þrjár klukkustundir í allt. Lagt verð- ur af stað frá Bugi kl. 10 að morgni. Allir eru velkomnir. NÚ stendur yfir í Samlaginu listhúsi í Kaupvangsstræti Ak- ureyri gluggasýning Guðmund- ar Ármanns og stendur hún til 5. maí næstkomandi. Guðmundur nam í Mynd- lista- og handíðaskóla Íslands 1962–1966 og í Konsthögskolan Valand, Göteborgs Universitet, Gautaborg Svíþjóð. Hann hefur haldið fjölda einka- og samsýninga. Samlagið listhús er opið alla daga kl. 14.00–18.00 nema laug- ardaga er opið kl. 11.00–16.00 og lokað á mánudögum. Gluggasýn- ing Guð- mundar Ármanns

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.