Morgunblaðið - 24.04.2002, Side 20
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
20 MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
KAUPÞING hefur selt hlutabréf í
Jarðborunum fyrir tæpar 60 millj-
ónir króna að nafnverði, eða
22,83% heildarhlutafjár í félaginu,
á genginu 6,75. Söluandvirði nemur
því um 405 milljónum króna en sal-
an er háð skilyrðum sem verður af-
létt innan þriggja vikna, að því er
fram kemur í tilkynningu til VÞÍ.
Þá hefur verið tilkynnt um kaup
Jarðborana og nokkurra innherja á
tæpum 19,6 milljónum króna að
nafnvirði í Jarðborunum á genginu
6,75. Kaupverðið nemur því alls
rúmum 132 milljónum króna.
Stærstan hluta þess keypti fyrir-
tækið sjálft, eða tæpar 15,6 millj-
ónir að nafnverði. Margeir Péturs-
son ehf., sem er í eigu samnefnds
stjórnarmanns Jarðborana, keypti
2,5 milljónir að nafnverði. Bent S.
Einarsson, framkvæmdastjóri
Jarðborana, keypti 900 þúsund
krónur að nafnverði og Örn Sig-
urðsson fjármálastjóri keypti 600
þúsund að nafnverði. Kaupin eru
öll háð skilyrðum sem verður
væntanlega aflétt innan þriggja
vikna. Ekki fékkst upplýst í gær
hver þau skilyrði væru eða hver
væri ástæða fyrir þessum miklu
viðskiptum. Þess má geta að Jarð-
boranir áætla að birta niðurstöður
þriggja mánaða uppgjörs félagsins
í næstu viku.
Eftir viðskiptin eiga Jarðboranir
eigin bréf að nafnverði 16,9 millj-
ónir, eða 6,51% af heildarhlutafé
félagsins, Kaupþing á tæpar 15,5
milljónir að nafnverði í Jarðbor-
unum, eða 5,95% og Margeir Pét-
ursson á 13,4 milljónir að nafn-
verði, eða 5,17%.
Mikil við-
skipti með
bréf í Jarð-
borunum
ÁRSFUNDUR Lífeyrissjóðsins
Einingar felldi í gær tillögur Óttars
Yngvasonar sjóðfélaga um breyting-
ar á samþykktum sjóðsins. Alls
lagði Óttar fimm tillögur fyrir fund-
inn sem miðuðust að því að stjórn
sjóðsins yrði hjá eigendum hans en
ekki í höndum Kaupþings sem er
rekstraraðili hans.
Hörður Sigurgestsson, stjórnar-
formaður Einingar, sagði á fund-
inum í gær að tilkoma hinna svoköll-
uðu frjálsu lífeyrissjóða hefði
gerbreytt umhverfi lífeyrissjóða hér
á landi. Hann benti á að enginn
frjálsu lífeyrissjóðanna fimm væri
sjálfsprottinn, heldur væru þeir allir
stofnaðir af fjármálastofnunum sem
hefðu ráðandi hluti í stjórn sjóð-
anna. „Þetta eru allt sjóðir sem
bankar hafa mótað og haldið utan
um, allt sjóðir þar sem tiltölulega
auðvelt er að flytja inneignir sínar.
Þótt það sé ekki óheimilt að hafa
annað fyrirkomulag á, þá finnst mér
að á öllu þessu ferli, beinlínis
reynslan kenna okkur það að eðli-
legt sé að sjóðirnir séu nátengdir
stofnendum sínum. Það er líka ljóst
að ef bankarnir standa sig ekki þá
sér samkeppni einfaldlega um það
að fjármagnið fer annað. Ef litið er
annað þar sem ég þekki til, þá er
sama uppi á teningnum. Í Banda-
ríkjunum og Bretlandi er kerfi líf-
eyrisréttinda beinlínis í höndum
fjármálastofnana og ég geri ekki
ráð fyrir því að þar séu haldnir árs-
fundir eða sjóðfélagar kjörnir í
stjórn. Það er mín ályktun að það
einkenni þessa starfsemi að það hafi
verið fjármálastofnanir sem komu
henni á laggirnar og báru ábyrgð á
þróun starfseminnar og árangri. Ég
sé ekki ástæðu til að breyta því fyr-
irkomulagi sem hér hefur verið
skapað og er byggt á lögum frá
árinu 1997. Ég tel að hún hafi al-
mennt gefist vel og það sé sjálfgefið
að hún muni í framtíðinni þróast og
styrkjast.“
Brýtur gegn lífeyrissjóðalögum
Hörður Einarsson hæstaréttar-
lögmaður mælti fyrir breytingartil-
lögunum á samþykktum sjóðsins í
fjarveru Óttars Yngvasonar. Í til-
lögunum fólst að stjórn sjóðsins yrði
kjörin á ársfundi sjóðsfélaga. Sagði
Hörður að það ákvæði í samþykkt-
um sjóðsins að stjórn Kaupþings
skipaði þrjá menn í stjórn Einingar
þjónaði þeim tilgangi einum að
skapa Kaupþingi tangarhald á
sjóðnum. Kaupþing þyrfti ekki á því
að halda enda væri fyrirtækið fylli-
lega samkeppnisfært á markaði við
aðra umsýslu- og rekstraraðila líf-
eyrissjóða. Stjórnarmenn, sem til-
nefndir væru af Kaupþingi, hlytu
auk þess að vera vanhæfir við allar
ákvarðanir í sjóðnum sem snerta
Kaupþing. Þá sagði Hörður að ekki
væri við hæfi að sami maður væri
endurskoðandi Einingar og Kaup-
þings. Slíkt væri auk þess ólöglegt
samkvæmt lífeyrissjóðalögum. Þess
vegna væri lagt til að endurskoð-
andi sjóðsins væri óháður rekstr-
araðilanum.
Hörður sagði ennfremur óeðlilegt
að framkvæmdastjóri sjóðsins væri
skipaður af rekstraraðilanum. Slíkt
stæðist heldur ekki lífeyrissjóðalög
og yrði því að breyta. Þá væri
ákvæði samþykkta Einingar um að
Kaupþing annaðist innra eftirlit
með rekstri sjóðsins, einnig á skjön
við lífeyrissjóðalög. Þar að auki
sagði Hörður að ekki væri gert ráð
fyrir því í lífeyrissjóðalögum að
rekstraraðili hefði neitunarvald
gagnvart samþykktum sjóðsins.
Sagði Hörður að þessum samþykkt-
um yrði að breyta og sagðist sann-
færður um að það yrði gert, hvort
sem ársfundurinn samþykkti breyt-
ingartillögurnar eða ekki, því koma
þyrfti lagalegri umgjörð sjóðsins á
rétta braut.
Hörður Sigurgestsson sagðist
telja að samþykktir sjóðsins byggju
við verulegt lagaumhverfi, auk þess
sem starfsemi hans væri bundin við
lífeyrissjóðalög og háð eftirliti Fjár-
málaeftirlitsins. Reglugerðir sjóðs-
ins væru allar samþykktar af fjár-
málaráðuneytinu. Lagaramminn um
starfsemi frjálsu lífeyrissjóðanna
væri því lýðræðislegur og allir sjóð-
félagar hafi vitneskju um í hverju
samþykktir hans eru fólgnar.
Kosið var um breytingartillögurn-
ar með skriflegri kosningu á fund-
inum í gær og voru þær allar felldar
með miklum meirihluta atkvæða.
Unnið að sameiningu við
Frjálsa lífeyrissjóðinn
Hörður Sigurgestsson ræddi á
fundinum um hugmyndir um sam-
einingu Einingar og Frjálsa lífeyr-
issjóðsins. Sagði hann að samþykkt-
ir sjóðanna hefðu verið samræmdar
og að fjárfestingarstefnur sjóðanna
væru sambærilegar. Markmiðið
með sameiningu sjóðanna væri að
skapa aukna rekstrarhagkvæmni
með stærri sjóði. Sagði Hörður að
stjórnir beggja sjóðanna hefðu rætt
sameiningarmál og báðar samþykkt
að láta gera úttekt á hagkvæmni
sameiningar. Þessi vinna væri nú í
gangi og í henni hefði ekkert óvænt
komið fram. Stutt væri í endanlegar
niðurstöður en frumforsenda væri
að réttur sjóðfélaga yrði ekki skert-
ur og að þeir héldu eignum sínum
óröskuðum. Stefnt er að því að boða
til kynningarfundar fyrir sjóðfélaga
innan fárra vikna. Sagðist Hörður
sjálfur ekki í vafa um að sameina
ætti sjóðina, að uppfylltum eðlileg-
um skilyrðum. „Markmið sameinaðs
sjóðs, sem yrði öflugasti lífeyris-
sjóður landsins, yrði auðvitað að
vera sá sjóður sem sýndi bestan ár-
angur,“ sagði Hörður.
Tekist á um samþykktir Lífeyrissjóðsins Einingar
Allar tillögur um
breytingar felldar
Morgunblaðið/Þorkell
Hörður Sigurgestsson, stjórnarformaður Lífeyrissjóðsins Einingar.
GENGISVÍSITALA krónunn-
ar lækkaði í gær um 0,9% í 5,3
milljarða króna viðskiptum og
endaði gengisvísitalan í 131,8
stigum. Í ½5 fréttum Búnaðar-
bankans kemur fram að vísital-
an hefur ekki verið jafn lág síð-
an í lok apríl á síðasta ári og er
því um 12 mánaða lágmark að
ræða. Frá áramótum hefur
gengi krónunnar styrkst um
rúm 7,6%. Gengi bandaríkja-
dals var við lok markaða í gær
95,26 kr., gengi evru endaði í
84,8 kr. og pundið endaði í 138
kr.
Gengið
styrkst um
7,6% frá ára-
mótum
STOFNAÐ hefur verið félagið
Pharmaco Ísland ehf. sem yfirtekur
rekstur lyfja- og tæknideilda
Pharmaco hf., og samkvæmt til-
kynningu frá Pharmaco hf. er auk
þess unnið að undirbúningi stofnun-
ar sérstaks félags um rekstur snyrti-
vörudeilda félagsins. Stefnt er að því
að félögin taki til starfa 1. júní næst-
komandi og verða þau að fullu í eigu
móðurfélagsins.
„Grunnhugmyndin að baki nýjum
félögum er að gera rekstur innlendu
starfseminnar gegnsærri og auð-
velda stjórnendum þannig yfirsýn
auk þess að veita tækifæri til sam-
starfs og hagræðingar, en rekstur
innanlandsdeilda var ófullnægjandi
á síðasta rekstrarári. Samhliða und-
irbúningi að stofnun hinna nýju fé-
laga hefur verið unnið að hugmynd-
um um hagræðingu í rekstri og eru
þær aðgerðir þegar farnar að skila
sér í bættri afkomu. Sala innanlands-
deilda jókst um 24,4% fyrstu þrjá
mánuði ársins miðað við sama tíma-
bil á síðasta ári og nam rúmlega 980
milljónum króna,“ segir í tilkynning-
unni.
Framkvæmdastjóri Pharmaco Ís-
lands ehf. verður Guðbjörg Alfreðs-
dóttir. Stjórn félagsins verður skip-
uð þeim Björgólfi Guðmundssyni,
stjórnarformanni, Kristni Gunnars-
syni og Sindra Sindrasyni. Forstjóri
Pharmaco-samsteypunnar er Sindri
Sindrason.
Pharmaco
Ísland ehf.
stofnað
HAGNAÐUR af rekstri Nýherja
fyrstu þrjá mánuði ársins nam 23,6
milljónum króna eftir skatta saman-
borið við 3,1 milljónar króna hagnað
árið áður. Hagnaður félagsins fyrir
fjármagnsgjöld og afskriftir –
EBITDA – var 51 milljón króna bor-
ið saman við 39 milljónir króna árið
áður.
Rekstrartekjur námu 1.037 millj-
ónum króna, en voru 1.110 milljónir
króna árið áður, og lækkuðu því um
7%. Vörusala dróst saman um 12%
milli ára, en þjónustutekjur jukust
um 28%. Hlutfall EBITDA af veltu
var tæp 5% samanborið við 3,5% á
fyrra ári. Launakostnaður lækkaði
um tæp 4% á milli ára, en starfs-
menn voru 7% færri en árið á undan.
Annar rekstrarkostnaður og af-
skriftir voru svipuð bæði tímabilin.
Veltufé frá rekstri var 30 milljónir
króna en var 29 milljónir króna árið
áður. Gengishagnaður var 11,8 millj-
ónir króna samanborið við 8,3 millj-
ónir króna gengistap og tap dóttur-
félaga nam 1,6 milljónum króna
samanborið við 8,3 milljóna króna
tap í fyrra. Eigið fé Nýherja var í lok
tímabilsins 1.239,4 milljónir króna.
Aukinn hagn-
aður af rekstri
Nýherja
♦ ♦ ♦
FORMLEGAR viðræður eru hafnar
um sameiningu Íslenska hugbúnað-
arsjóðsins hf., Talentu Hátækni og
Talentu Internet undir nafni Ís-
lenska hugbúnaðarsjóðsins. Baldur
Már Helgason, framkvæmdastjóri
Talentu-Hátækni, segir um ástæður
þessara viðræðna að samruni sé leið
til að auka hagræði í rekstri sjóð-
anna.
Sameinaður sjóður muni vera bet-
ur í stakk búinn til að fylgja eftir ein-
stökum fjárfestingum og nýta þau
tækifæri sem skapast við markaðs-
aðstæður eins og eru í dag. Auk þess
eigi stærri og sterkari sjóður að vera
álitlegri kostur fyrir fjárfesta.
Í tilkynningu til VÞÍ segir að við-
ræðunum verði hraðað og stefnt sé
að því að niðurstöður liggi fyrir í maí.
Talenta og
Íshug hefja
viðræður
♦ ♦ ♦