Morgunblaðið - 24.04.2002, Síða 25

Morgunblaðið - 24.04.2002, Síða 25
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2002 25 LAXNESSÞINGI var fram haldið á sunnudag í Háskólabíói. Málstofur sunnudagsins voru fjórar. „Samvirk framníng þjóðreisnar“ – Pólitískar skoðanir, var yfirskrift fyrstu mál- stofu. Jón Ólafsson fjallaði um Lax- ness í Sovétríkjunum. Hann vitnaði í Skáldatíma, þar sem Halldór Lax- ness fjallar um eigin skrif í bókunum Í austurvegi eftir fyrstu ferð hans til Sovétríkjanna þrjátíu árum fyrr og Gerskum ævintýrum sem kom út nokkrum árum síðar, en í Skálda- tíma gagnrýndi hann ýmsilegt er hann skrifaði um Sovétríkin í fyrri bókunum og taldi bjánalegt. Jón sagði Laxness ekkert hafa átt ógert í uppgjöri við pólitískar skoðanir sín- ar, en hins vegar hefði honum verið erfiðara að vinna úr persónulegri reynslu úr ferðunum austur. Í erindi sínu, Myrkri heimsins, fjallaði Hannes Hólmsteinn Gissur- arson meðal annars um pólitík Hall- dórs Laxness. Í upphafi vitnaði hann í orð Bjarna Benediktssonar við Matthías Johannessen þegar Matthías átti að taka viðtal við skáldið: „Farðu upp að Gljúfrasteini Matthías, en farðu ekki skríðandi“ og sagði að þessi orð ættu enn við, ekki ætti að nálgast Halldór Lax- ness skríðandi. Hannes tók dæmi um hvernig rússnesk skáld lýstu hörmulegum aðstæðum í Rússlandi á þeim tíma sem Halldór Laxness ferðaðist þangað, og bar saman við fegraðar lýsingar Halldórs sjálfs af ástandinu. Hannes talaði ennfremur um það hvernig Halldór Laxness hefði útskýrt síðar meir það sem hann áður hafði skrifað um Sovétrík- in í ferðabókunum og sagði Halldór hafa gert það með þrennum hætti; hann hefði verið blekktur; hann hefði talið að Eyjólfur myndi hress- ast, og að hann hefði talið að valið hefði staðið á milli Stalíns og Hitlers. Hannes taldi rétt að Halldór hefði verið blekktur, og víst að Halldór hefði sjálfur trúað því að Eyjólfur myndi hressast. Hins vegar hefði Halldóri skjátlast um þriðja atriðið, á Íslandi hefði aldrei verið spurning um val á milli Stalíns og Hitlers. Danski sagnfræðingurinn Morten Thing fjallaði í erindi sínu um áhrif pólitískra skoðana Halldórs Laxness á danska menntamenn og rithöf- unda. Hann sagði að Halldóri hefði verið fagnað sem miklu skáldi í Dan- mörku og gaf fróðlega innsýn í sam- skipti hans við Nexø, Gelsted, Kirk, William Heinesen og aðra mennta- menn á vinstri væng stjórnmálanna. Hann sagði að verk Laxness hefðu fljótt verið þýdd á dönsku og þýðing- arnar og sú auglýsing sem Laxness fékk fyrir tilverkan danskra komm- únista hefði síðan átt mikinn þátt í að farið var að þýða verk hans um alla Skandinavíu og síðan á enska tungu. Thing sagði líka að danskir komm- únistar hefðu haft mikil áhrif á Hall- dór þegar pólitískar skoðanir hans voru að mótast á þriðja áratugnum. Þá sagði hann að íslenskur diplómat hefði reynt að koma í veg fyrir að At- ómsstöðin yrði þýdd á dönsku og að íslenskir stjórnmálamenn hefðu átt þar hlut að máli. Eins sagði hann að þegar ljóst varð að bókin yrði þýdd hefði verið reynt að hafa áhrif á hvaða nafn hún fengi á dönsku. Er- indi Things vakti mikla forvitni fundargesta. Eldingu svarað með Aftureldingu Önnur málstofa bar yfirskriftina „Hvor í annars draumi“ – Samband bóka og bóka, höfundar og höfundar. Þar töluðu þrír fræðimenn um samband bóka Halldórs Laxness við aðrar bækur. Helga Kress kallaði sitt erindi „Á hverju liggja ekki vor- ar göfugu kellíngar,“ þar sem hún fjallaði um Halldór Laxness og Torf- hildi Hólm. Helga talaði um hand- ritasöfnun Árna Magnússonar, tengslin við Íslandsklukku Halldórs Laxness og hlutverk og samband kvenna og bóka í sögum skáldsins. Hún sagði frá sögu sem Halldór skrifaði tólf ára gamall á móti end- urlausnarkenningunni, en Halldór miðaði hana að stærð við Eldingu eftir Torfhildi Hólm, sagnfræðilega skáldsögu um sigur kristninnar á Ís- landi. Halldór kallaði sína bók Aftur- eldingu. Helga rakti feril Torfhildar og benti á að hún hefði verið fyrsta íslenska konan sem hefði haft at- vinnu af ritstörfum og fyrsti Íslend- ingurinn til að skrifa sögulega skáld- sögu. Helga vitnaði í Halldór Laxness sem sagði að Jón Helgason hefði bent sér á sögu Jóns Hregg- viðssonar sem efnvið í Íslandsklukk- una, en sagði ennfremur frá því að Eiríkur Jónsson hefði haldið því fram að Halldór hefði ennfremur stuðst við sögu eftir Torfhildi Hólm. Halldór hefði neitað því en sagt þær byggast á sömu heimildum. Hjörtur Pálsson leitaði í sínu er- indi svara við spurningunni um það hvort Vikivaki Gunnars Gunnars- sonar og Kristnihald undir Jökli eft- ir Halldórs Laxness væru hliðstæð- ar táknsögur. Hjörtur dró fram líkindi með Umba í Kristnihaldinu og Jaka Sonarsyni í Vikivaka og sagði að báðar sögurnar mætti túlka sem táknsögur um skáldið og innri glímu þess við þær persónur sem það vekur upp. Þannig svaraði hann þeirri spurningu sem lagt var af stað með, játandi. Soffía Auður Birgisdóttir kallaði erindi sitt Skálduð ungsjálf, – Sjálfs- myndir Laxness og Þórbergs í skál- dævisögulegum verkum þeirra. Hún lagði til grundvallar bækur Halldórs Laxness, Í túninu heima, Sjömeist- arasögu, Ungur ég var og Grikk- landsárin og Ofvitann eftir Þórberg. Hún sagði meðal annars frá grein- ingu Kristins E. Andréssonar á fyrri hluta Ofvitans, þar sem Kristinn tal- ar um kynlegt samband vísindalegra og skáldlegra frásagnaraðferða Þór- bergs í vanda sínum við að flokka söguna til ákveðinnar bókmennta- greinar. Soffía Auður taldi þó grein Kristins, sem gefin var út snemma á fimmta áratug 20. aldar eina skil- merkilegustu tilraun á prenti til að skilgreina hvað felst í hugtakinu skáldævisaga. Síðasti mælandi í ann- arri málstofu var Lars Lönnroth sem fjallaði um það hvernig Halldór Laxness hefði með Gerplu gert bylt- ingu gegn íslenska sagnaarfinum. Eftir erindi Lars Lönnroth spunn- ust fyrirspurnir um það hvort Fóst- bræðrasaga væri hetjusaga eða sat- íra. Erlingur Gíslason leikari kom fram með þá skemmtilegu ábend- ingu og miðaði við eigin reynslu, að sú spurning ylti algjörlega á því hvernig sagan væri lesin upp, væri hún lesin upp mjög hátíðlega væri hún hetjusaga, en væri upplesturinn eðlilegur yrði hún að bullandi satíru. Helga Kress bætti því við að sama mætti segja um Eyrbyggju, Lax- dælu og Njálu, og virtist fundargest- um mjög skemmt við þessa umræðu. Krapamissir – Paradísarmissir Gestum á þinginu fjölgaði er á daginn leið, góð stemning var í saln- um, þótt heldur reyndist erfitt að fá gesti aðra en dygga fræðimenn til að bera fram fyrirspurnir Þriðja málstofa á Laxnessþingi á sunnudag bar yfirskriftina Glæpur og dyggð – Siðferði. Vésteinn Ólason nefndi erindi sitt: „Mikið undur hversu mart þú kant ljúga,“ – Lygi og sannleikur í verkum Halldórs Laxness. Vésteinn talaði meðal ann- ars um ástir Steins Elliða í Vefaran- um mikla frá Kasmír og sálarstríð hans um það hvernig hann gæti lifað lífinu í sannleika. Vésteinn vék að því tilvistarlega sannleikshugtaki sem Halldór Laxness glímir við í sögunni og afstöðu einstaklings sem gerir skilyrðislausa kröfu um það að vita hverju lífið eigi að þjóna. Að missa og finna aftur sína Para- dís var heitið á erindi Dagnýjar Kristjánsdóttur. Paradísarheimt var viðfangsefni fyrirlestursins. Dagný sagði frá Eiríki á Brúnum og ævi hans sem var fyrirmynd Halldórs Laxness að verkinu, en gat þess hversu lítið Halldór hefði stuðst við persónu Eiríks í Steinari undir Steinahlíðum sem var gjörólíkur Ei- ríki að lunderni. Sem dæmi tók hún góðhestinn Krapa sem Steinar kaus að gefa Danakonungi en neitaði að selja, öfugt við það sem Eiríkur á Brúnum gerði. Dagný velti vöngum um það hvað fyrir Steinari hefði vak- að, og hvers hann hefði vænst frá Danakonungi í staðinn. Gjörningur Steinars hefði verið í anda þeirra fornhetja sem hann gjarnan bar sig saman við og því hefði hann mátt trúa því að líf sitt tæki aðra og betri stefnu eftir að hafa gefið kóngi gjöf. Dagný sagði missi Krapa hafa verið fyrsta Paradísarmissi Steinars Steinssonar. Ármann Jakobsson kallaði erindi sitt Nietzche í Grjótaþorpinu: Sið- ferði manns og heims í Atómstöð- inni. Ármann fjallaði um organist- ann í Atómstöðinni og setti fram kenningu um að persóna hans væri undir mun meiri áhrifum frá kenn- ingum Nietzches en Taóisma, sem margir hafa talið organistann sprott- inn úr. Ármann tók dæmi úr orð- ræðu organistans þar sem hefð- bundnum gildum um fjölskyldu og fleira er snúið á haus og sýndi fram á tengsl við heimspeki og kenningar Nietzches. Forn stíll með púlsinn á nútímanum „Ekkert orð er skrípi,“ – Mál og stíll var yfirskrift fjórðu málstofu. Guðrún Kvaran fjallaði um orða- forða í skáldverkum Halldórs Lax- ness og sagði meðal annars frá orða- söfnun skáldsins. Halldór skráði hjá sér í glósubók orð og orðasambönd sem hann heyrði hjá íslensku al- þýðufólki víðs vegar um landið og notaði í verk sín. Guðrún sýndi mörg dæmi um sérstaka orðnotkun skáldsins og vék einnig að notkun Halldórs á enskum og dönskum orð- um í verkum sínum. Þorleifur Hauksson vitnaði í grein Halldórs um tísku og menningu, þar sem Halldór sagði hvert skáld barn síns tíma sem hlyti að taka mið af tíðaranda og tísku. Þorleifur gerði Gerplu og Íslandsklukkuna að um- fjöllunarefni og sýndi fram á hvernig Halldór notaði nútímaleg stílbrigði við skrif þessara bóka sem báðar eru byggðar á sagnfræðilegum grunni, bæði hvað varðar efni og stíl. Hann talaði einnig um hugmyndir Hall- dórs sjálfs um eigin stíl og málfar bæði á yngri árum og þegar skáldið eltist og skoðanirnar breyttust. Þor- leifur kallaði fyrirlestur sinn Að hugsa í öðrum myndum. Síðasta erindi dagsins flutti Hel- ena Kaeckova. Erindið kallaðist Að þýða Laxness, og í því fjallaði hún um reynslu sína af því að þýða Brekkukotsannál yfir á tékknesku. Frjó umræða um Laxness Morgunblaðið/Kristinn Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor og danski sagnfræðingurinn Morten Thing hlusta af athygli á erindi Jóns Ólafssonar á Laxnessþingi. begga@mbl.is Laxnessþingi í Háskólabíói var fram haldið á sunnudag. Bergþóra Jónsdóttir sat þingið og stiklar á stóru yfir þau þrettán erindi sem þá voru flutt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.