Morgunblaðið - 24.04.2002, Síða 27

Morgunblaðið - 24.04.2002, Síða 27
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2002 27 Ráðgjafar Clinique verða í Lyf & heilsu í dag á Melhaga og í Mjódd. Föstudag: Í Austurstræti og Kringlu. Ofnæmisprófað 100% ilmefnalaust w w w .c lin iq ue .c om Nýr maskari frá Clinique Njóttu þess að sjá Long Pretty Lashes Mascara Með nýja Long Pretty Lashes Mascara verða augnhárin ótrúlega miklu lengri, mýkri og fagurlega sveigð - engar klessur, ekkert smit. Komdu og kynntu þér Long Pretty Lashes Mascara. Spurðu líka um nýja Touch Tint For Eyes augnskuggann og Eye Defining Liquid Liner, sem dregur skýrar útlínur. Saman undirstrikar þetta þrennt augu þín og fegurð þeirra. Nýr Long Pretty Lashes Mascara kr. 1.696 Nýir Touch Tint For Eyes augnskuggar kr. 1.755 Nýir Eye Defining Liquid Liner kr. 1.574 Clinique. 100% ilmefnalaust. THE Scorpion King er nýjasta myndin frá framleiðendum The Mummy og The Mummy Returns. Með aðalhlutverkið í myndinni fer heljarmennið Dwayne Douglas Johnson sem gengur líka undir nafninu The Rock (Kletturinn) en hann er einn fremsti og vinsælasti glímukappi Bandaríkjanna. Mynd- in fjallar um bardagahetjuna Mathayus sem er ráðinn til að kljást við einvald einn sem er stað- ráðinn í að eyða öllum ættbálkum, sem búa í eyðimörkinni í Egypta- landi. Myndin er stútfull af bar- dagaatriðum og tæknibrellum. Leikstjóri myndarinnar er Chuck Russell, sem leikstýrði m.a. Arnold Schwarzenegger í Eraser og gerði Jim Carrey að alþjóðlegri stjörnu í The Mask. Auk þess að vera lið- tækur leikstjóri, hefur Russell einnig verið í hlutverki kvikmynda- framleiðanda svo og handritshöf- undar. Dwayne Douglas Johnson fædd- ist í San Fransiskó árið 1972 og ólst að heita má upp við glímu þar til hann hóf að spila fótbolta með háskólaliðinu í University of Miami þar sem hann var við nám í af- brotafræðum og útskrifaðist 1995. Faðir hans Rocky Johnson náði mjög góðum árangri í íþróttinni og það sama má segja um afann Peter Maivia, sem var einskonar goðsögn á sínum tíma. Að afloknu námi, sneri hann sér að atvinnumennsku í fótboltanum, en eftir að meiðsl gerðu vart við sig, sneri hann sér alfarið að glímunni og tók upp nafnið Rocky Maivia, sem fljótlega styttist í The Rock. Aðeins 26 ára gamall varð hann heimsmeistari í íþrótt sinni og þar með yngstur til að ná þeim áfanga. Hann hefur lengi sýnt kvikmyndaleik áhuga og hefur m.a. birst í litlum hlutverk- um í sjónvarpsþáttunum Star Trek: Voyager, That 70’s Show og síðast en ekki síst í Saturday Night Live. Fljótlega fóru tilboð um kvik- myndaleik að gera vart við sig og þreytti hann frumraun sína í The Mummy Returns. Sem stendur einbeitir hann sér enn að íþrótt sinni sem atvinnumaður og gerir sér jafnframt vonir um frekari til- boð á hvíta tjaldinu auk þess sem hann segist einbeita sér að fjöl- skyldulífinu, en eiginkonan Dany, ól honum þeirra fyrsta barn stuttu eftir að tökum á The Scorpion King lauk. Framleiðendur myndarinnar eru Vince Mc Mahon, Stephen Somm- ers, Sean Daniel, James Jacks og Kevin Misher. Handritið skrifuðu Stephen Sommers, William Os- borne og David Hayter. Leikarar: The Rock (The Mummy Re- turns); Steven Brand (Darling Buds of May, Doctors); Kelly Hu (The Doors, No Way Back); Bernard Hill (Lord of the Rings, The Two Towers); Grant Heslov (True Lies, Congo); Peter Fac- inelli (The Big Kahuna, Riding in Cars with Boys); Ralf Moeller (Gladiator, Batman and Robin); Michael Clarke Duncan (Armageddon, The Green Mile). Leikstjóri: Chuck Russell. Atriði úr kvikmyndinni The Scorpion King. Kletturinn berst við einvald Sambíóin í Reykjavík, Keflavík, Akur- eyri, Háskólabíó og Laugarásbíó frum- sýna The Scorpion King með The Rock, Steven Brand, Kelly Hu, Bernard Hill, Grant Heslov, Peter Facinelli, Ralf Moeller og Michael Clarke Duncan. Í BÍÓMYNDINNI Birthday Girl fer leikkonan Nicole Kidman með hlutverk rússneskrar brúðar, Nad- iu, sem pöntuð er í gegnum póst- lista af bankastarfsmanni nokkrum í smábæ einum í Englandi. Banka- starfsmaðurinn John Buckingham er leikinn af Ben Chaplin sem fór með hlutverk í Thin Red Line. Brúðurin er gullfalleg og þótt hún tali ekki mikla ensku, bætir hún það upp í svefnherberginu. En þeg- ar svokallaðar frænkur hennar tvær koma svo óvænt í heimsókn í tilefni af afmæli brúðarinnar, er hinn saklausi bankastarfsmaður óvænt orðinn flæktur í spillingu og glæp með ófyrirséðum afleiðingum enda eru frænkurnar ekkert annað en gjörspilltir rússneskir bófar. Myndin er unnin í samvinnu þriggja bræðra, Butterworth- bræðra, sem reka breskt kvik- myndafyrirtæki. Leikstjóri mynd- arinnar er Jez Butterworth, sem einnig skrifaði kvikmyndahandritið ásamt bróður sínum Tom. Fram- leiðendur eru Stephen Butterworth og Diana Phillips. Þeir Butter- worth-bræður þreyttu frumraun sína í bíóbransanum með gerð bófa- myndarinnar Mojo, en ákváðu að nota aðra uppskrift í mynd sína að þessu sinni. Þeir ákváðu að nota nú hið klassíska aðdráttarafl kynjanna og krydda síðan að eigin vild með glæpsamlegu athæfi og spennu, fyndinni og hversdagslegri per- sónusköpun, óvæntum uppákomum, háðslegum en glettnum samræðum og síðast en ekki síst persónutöfr- um. Þeir Butterworth-bræður voru allir á því að mynd þeirra ætti að fjalla um samskipti og reyndar ekki síður um samskiptaleysi, sem virð- ist hrjá svo mörg nútímasambönd. Þeir veltu því fyrir sér hvað maður kynni að taka til bragðs sem pant- aði sér verðandi brúði í gegnum Netið, en sæti síðan uppi með töfrandi konu sem hinsvegar skildi hvorki upp né niður í tungumáli hans, menningu eða veröld nema ef vera skyldi svefnherbergið. Bræðurnir sáu í þessum fyrstu hugmyndum sínum ýmsa kosti sem mætti útfæra á glettinn máta, en þó með spennuívafi. Leikarar: Nicole Kidman (Moulin Rouge, The Others, Batman Forever); Ben Chaplin (Lost Souls, Washington Square, The Remains of the Day); Vincent Cassel (Hate, The Crimson Rivers, The Messenger: The Story of Joan of Arc); Mathieu Kassovitz (A Self-Made Hero, The Fifth Element, Amelie). Leikstjóri: Jez Butterworth. Kidman í myndinni Birthday Girl sem frumsýnd er í dag. Brúður pöntuð af póst- lista Regnboginn frumsýnir Birthday Girl með Nicole Kidman, Ben Chaplin, Vincent Cassel og Mathieu Kassovitz. Sögufélags- húsið í Fischer- sundi Elskaðar ástarsögur er yf- irskrift rann- sóknarkvölds sem Félag ís- lenskra fræða stendur fyrir kl. 20.30. Dagný Kristjáns- dóttir fjallar um ástarsögur sem bókmenntagrein. Mikill meirihluti þeirra bókmennta sem skrifaðar hafa verið um dag- ana fjallar um ástir af einhverju tagi. Til umræðu eru staðlaðar skemmtibókmenntir um ástir og ör- lög fagurra kvenna og myndarlegra karla. Þúsundir slíkra bóka eru framleiddar árlega á Íslandi, seldar og lesnar. Hver les þessar bækur? Hvers vegna? Eru þetta kannski ekki bókmenntir? Þessar og fleiri spurningar verða bornar upp. Goethe-Zentrum. Laugavegi 18 Þýsku kvikmyndina Crazy frá árinu 2000 verður sýnd kl. 20.30. Leikstjórn og handrit er eftir Hans Christian Schmid. Myndin, sem byggð er á samnefndri metsölubók eftir Benjamin Lebert, hlaut silf- urverðlaun Þýsku kvikmyndaverð- launanna 2001. Hinn 16 ára gamli Benjamín er sendur í heimavistarskóla þar sem honum á loksins að takast að ljúka grunnskólaprófi. Þótt hann sé lam- aður að hluta er Benjamín fljótlega tekinn inn í klíku herbergisfélaga síns þannig að hann eignast nýja vini. Sameiginlega þrauka þeir hversdagsleikann í skólanum en hið raunverulega líf byrjar utan skóla- stofunnar. Myndin er ótextuð. Aðgangur er ókeypis. Gallerí Nema hvað, Skólavörðu- stíg Carl Boutard nemi við mynd- listarbraut LHÍ lýkur sýningu sinni, The Waste Land, með gjörn- ingi kl. 20. Í DAG Dagný Kristjánsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.