Morgunblaðið - 24.04.2002, Page 40

Morgunblaðið - 24.04.2002, Page 40
MINNINGAR 40 MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ Það er svo ótrúlegt að amma okkar skuli vera látin, hún sem alltaf var svo hress. Við erum mjög þakklátar fyrir þann tíma sem hún var hjá okkur. Við nutum þeirra forrétt- inda að fá að alast upp með henni og hún var alltaf til staðar fyrir okkur til síðasta dags. Þær eru ófáar ferðirnar á Hjallhólinn og alltaf var tekið á móti okkur með góðgjörðum og hlýjum hug. Mikið var hún búin að baka af pönnsum, kleinum, rúgbrauði og fleiru handa langömmubörnunum, að ógleymdu öllu því sem hún var búin að prjóna bæði handa okkur og börn- unum okkar. Oft fórum við með ömmu í bílferðir því það var eitt- hvað það skemmtilegasta sem hægt var að gera fyrir hana. Það verður tómlegt í sumar þegar hana vantar í ferðirnar okkar í fjöruna, hvamminn og berjamóinn, svo fátt eitt sé nefnt. Við viljum þakka fyrir allt og kveðja með bænunum sem hún kenndi okkur þegar við vorum litl- ar. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. (Höf. ók.) Helga Björg, Þórey og fjölskyldur. Það er ekki oft sem hún amma mín deyr, segir gamalt máltæki. Síðastliðinn sunnudag upplifði ég það í fyrsta og síðasta skipti að missa ömmu mína, það er ekki gaman. Þótt amma Sveina hafi verið tæplega 83ja ára gömul og maður geri sér fulla grein fyrir því að ekkert okkar lifir að eilífu hér á jarðríki, þá er engan veginn hægt að búa sig undir svona atburð. Líf- ið er ekki og verður aldrei eins og það var. Manneskja sem maður hefur þekkt frá fyrstu stundu er farin og söknuðurinn er mikill. Síðustu daga hafa minningarbrotin flætt um hugann, tilfinningar og stemmningar sem tengjast ömmu, en margar af mínum fegurstu minningum og skemmtilegustu stundum eru tengdar Sveinu á Hjallhól, ömmu minni. Ég var svo lánsamur að fá að dvelja á Borgarfirði eystra flest sumur þegar ég var yngri í góðu yfirlæti, þar náði ég að kynnast ömmu eins vel held ég og nokkur getur þekkt ömmu sína og munu þau kynni lifa með mér til æviloka. Fyrir mér var amma persónugerv- ingur alls hins besta sem eina manneskju getur prýtt, hún var ósérhlífin, dugnaðarforkur, hjartahlý, ég gæti haldið áfram endalaust að þylja upp öll þau góðu lýsingarorð sem ég kann til að lýsa ömmu. Aldrei heyrði ég hana tala illa um nokkra sálu, hún var gestrisin með eindæmum og geta allir sem sóttu hana heim tek- ið undir þau orð, það fór enginn með gaulandi garnir út úr eldhús- inu á Hjallhól. Einhvernveginn þegar ég kalla upp mynd hennar í huga mér þá er það í eldhúsinu á Hjallhól þar sem hún birtist oftast, SVEINBJÖRG STEINSDÓTTIR ✝ SveinbjörgSteinsdóttir fæddist á Borgar- firði eystra 5. júní 1919. Hún lést á Landspítala – há- skólasjúkrahúsi í Fossvogi 7. apríl 2002. Útför Sveinbjarg- ar fór fram frá Bakkagerðiskirkju laugardaginn 13. apríl. í bláum kaupfélags- slopp að bedrífa eitt- hvað, töfra fram mis- munandi kræsingar úr hinum ýmsu hirslum. Allar máltíð- ir á Hjallhól voru margrétta veislur. Að skrifa minning- argrein um ömmu er ekki auðvelt fyrir mig, minningarnar hellast yfir mig og ég gleymi mér í hlýju endur- minninga, fingurnir liggja aðgerðarlausir á lyklaborðinu löngum stundum og ég stari út í tómið, orð eru svo máttlaus á svona stundum. Er annað hægt en vera bljúgur frammi fyrir almættinu? Ég finn að ég er orðinn meyr allur hið innra og ég held ég láti staðar numið hérna, ætla að leyfa mér að minnast ömmu einn með sjálfum mér. Á næstunni mun ég beina aug- um mínum upp á við því ný stjarna hefur bæst í himinhvelfinguna. Halldór Magnússon. Sveina frænka á Hjallhól er dá- in. Þegar elsta dóttir mín hringdi með þessa frétt, varð mér mjög brugðið. En það liggur víst fyrir okkur öllum að kveðja þennan heim. Með söknuði og þakklæti rifjast upp margar og góðar minningar, frá þeim 27 árum sem ég þekkti þig. Þegar ég var 16 ára og flutti á Borgarfjörð til að stofna heimili varst þú sú manneskja sem hjálp- aði mér og kenndi hvað mest. Að því hef ég búið alla tíð. Alltaf varst þú til í að leiðbeina mér og hjálpa fyrstu árin í mínum búskap. Og ég er ekki síður þakklát þér fyrir það, hvað þú reyndist börnunum mín- um vel. Þú varst þeim eins og amma, alla tíð. Að þiggja kaffi og aðrar frábærar veitingar á Hjall- hól var alltaf gaman. Eins nú hin síðari ár, þegar ég hef verið á ferðinni um Borgar- fjörð, var okkur alltaf tekið opnum örmum á Hjallhól. Elsku Sveina. Ég held að allir sem hafa verið þér eitthvað samferða á lífsleiðinni hljóti að vera betri manneskjur fyrir vikið. Takk fyrir allt. Ég votta þínum nánustu mína innstu samúð. Þín mun verða sárt saknað af mörgum. Hinsta kveðja. Sólbjört. Þín nótt er með öðrum stjörnum. Um lognkyrra tjörn laufvindur fer. Kallað er á þig og komið að kveðjustundinni er. Úr heimi sem ekki er okkar æðra ljós skín en auga mitt sér liljan mín hvíta sem hverfur í nótt frá mér. Og söngnum sem eyrað ei nemur þér andar í brjóst. Dreymi þig rótt, liljan mín hvíta sem opnast á ný í nótt. (Gunnar Dal.) „Komdu sæl vinan, þetta er amma Sveina.“ Þannig hljómuðu kveðjurnar þínar alltaf þegar þú hringdir. Þrátt fyrir að vera ekki ein af ömmubörnunum þínum leið mér samt eins og svo væri, því þannig komstu fram við mig. Það er svo undarlegt þetta líf. Daginn sem þú kvaddir okkur var ég stödd ásamt Albert og Jens á Egilsstöðum hjá mömmu og pabba. Jens var búinn að vera las- inn og til að stytta honum stundir fletti ég m.a. myndaalbúminu hennar mömmu með myndum af honum. Þar rákumst við á myndir af þér og honum þar sem þú sast með hann í fanginu, aðeins nokk- urra mánaða gamlan. Þið voruð bæði svo glöð og brosmild, þú í þínu fínasta pússi, eins og alltaf, og hann hinn ánægðasti í fanginu á langömmu. Gular rósir höfðu verið settar í vasa hjá ykkur og sumarið var nýlega gengið í garð. Ég man að ég hugsaði um hvað það yrði gaman næst þegar við færum í heimsókn til þín á Hjallhól, því það væri orðið svo langt síðan við hitt- umst síðast. Sá dagur kemur ekki í bráð en myndina af þér og Jens mun ég ramma inn því ég vil muna þig eins og þú varst þennan dag. Ég ætla að segja Jens frá þess- ari skemmtilegu og hressu lang- ömmu sem hann átti og ég ætla líka að segja honum að hann eigi að taka þig sér til fyrirmyndar því lífsglaðari og jákvæðari mann- eskju en þig er erfitt að finna. Sumir hafa þann dásamlega eig- inleika að öllum líður vel í návist þeirra. Þannig varst þú. Ég mun aldrei gleyma heimsóknunum til þín í Hjallhól, spjallinu við eldhús- borðið, því þar var nú alltaf kátt á hjalla. Aldrei fór maður heldur svangur út og alltaf kvaddirðu okkur öll með faðmlagi og stroku yfir vangann. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að vera ein af ömmubörnunum þínum og ég er ennþá þakklátari fyrir það að litli minn skyldi hafa fengið að kynnast þér. Við munum öll sakna þín, ég, Albert og Jens, en við kveðjum þig með gleði og væntumþykju í hjarta. Guð blessi þig. Kveðja, Halldóra Dröfn. Mig langar í örfáum orðum að minnast vinkonu minnar, Svein- bjargar Steinsdóttur frá Borgar- firði eystri, sem lést 7. apríl sl. Ég man, þegar ég kynntist henni fyrst, þá kom hún og dvaldi hjá dóttur sinni á Stöðvarfirði, en ég bjó í næsta húsi og var mikill samgangur þar á milli. Sveinbjörg var einstaklega dugleg, það geisl- aði af henni gleðin og aldrei féll henni verk úr hendi. Ég minnist samverustundanna okkar og inni- legs hláturs hennar, þegar ég var að setja í hana hárrúllur og laga á henni hárið, svo að hún yrði fín á sunnudögum því þá bjó hún sig alltaf sérstaklega upp á, þótt hún væri vel til höfð alla daga. Ég minnist daganna, þegar hún þurfti að dvelja á Sjúkrahúsinu á Egilsstöðum sl. haust, en þá fór ég oftast á hverjum degi til hennar. Áttum við þar saman margar skemmtilegar og ógleymanlegar stundir, því þrátt fyrir veikindi hennar var hugurinn hress og aldrei langt í þá kátínu og gleði, sem einkenndi hana alla tíð. Á þessum stundum sagði hún mér atburði frá liðnum dögum og sögur af öllum barna- og barnabörnum sínum, sem henni þótti svo vænt um. Ef ég var komin áður en „Leiðarljós“ hófst í Sjónvarpinu, sem hún hafði fyrir sið að fylgjast með, horfðum við saman og héld- umst í hendur. Ég man, hvað við hlógum mikið, þegar ég færði henni bláber og rjóma einn sunnu- daginn, meðan hún dvaldi þarna, og hún ákvað að geyma að borða þessa sendingu þangað til daginn eftir, því hún var svo hrædd um að missa niður í sunnudagsfötin sín. Ég gæti skrifað endalaust um hana Sveinbjörgu, því hún var al- veg einstök kona, eins og allir, sem henni kynntust, vita glöggt. Ég þakka vinkonu minni fyrir að hafa fengið að kynnast henni og allt það, sem hún gaf mér og kveð hana með þessu ljóði um leið og við hjónin sendum öllu hennar fólki okkar dýpstu samúðarkveðj- ur: Ég þakka allt frá okkar fyrstu kynnum það yrði margt, ef telja skyldi það. Í lífsins bók það lifir samt í minnum er letrað skýrt á eitthvert hennar blað. Ég fann í þínu heita stóra hjarta, þá helstu tryggð og vináttunnar ljós. Er gerir jafnvel dimma vetur bjarta úr dufti lætur spretta lífsins rós. (Margrét Jónsdóttir.) Hlíf B. Herbjörnsdóttir. Mig langar með nokkrum orðum að minnast góðs vinar sem ég eins og svo mörgum öðrum hef kynnst í gegnum starf mitt. Það var aldrei komið að tómum kofunum hjá þér, og alltaf tekið á móti mér opnum örmum og bros á vör enda alltaf stutt í brosið. Ég ætla ekki að hafa þetta langa grein þó af nógu væri að taka heldur nýta mér okkar ágætu hagyrðinga sem koma svo mörgu til skila í fáum línum og sendi þér því þessar ljóð- línur: Svo viðkvæmt er lífið, sem vordagsins blóm er verður að hlíta þeim lögum SIGURÐUR HALLDÓRSSON ✝ Sigurður Hall-dórsson fæddist í Borgarnesi 25. maí 1946. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Eiri 16. apríl síðast- liðinn og var útför hans gerð frá Lága- fellskirkju 23. apríl. að beygja sig undir þann allsherjardóm sem ævina telur í dögum. Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mér hverfur úr minni, og nú ertu genginn á guðanna fund, það geislar af minningu þinni. (Fr. St. frá Grímsst.) Elsku Guðrún mín, þú reyndist manni þín- um vel. Enda ekki við öðru að búast frá eins yndislegri manneskju og þú ert og langar mig að senda þér þessar línur um leið og ég bið algóðan Guð að taka vel á móti Sigga og styðja þig og styrkja í sorginni. Er sárasta sorg okkur mætir og söknuður huga vorn grætir þá líður sem leiftur af skýjum ljósgeisli af minningum hlýjum. (H.J.H.) Júlíana Grímsdóttir. Hún Lauga frænka mín er dáin og mig langar til að minnast hennar í örfáum orð- um. Fyrsta minning mín um hana er þegar hún og Ásta frænka komu til fjöl- skyldu minnar í New Jersey árið 1967 til að hugsa um mig og bræð- ur mína á meðan mamma okkar var á spítala. Þrátt fyrir að það hafi verið erfiðir tímar fyrir okkur systkinin eru minningarnar sem við eigum frá þessari heimsókn fullar af skemmtilegum uppátækj- um og hlátri Laugu frænku. En þannig áhrif hafði hún Lauga á allt og alla, það var sama hversu erf- iðar aðstæðurnar voru, henni tókst alltaf að sjá björtu hliðarnar. Minningarnar halda áfram að streyma fram og allar eru þær jafngóðar. Ég átti eftir að heim- sækja hana til Íslands og dvelja hjá henni um lengri eða skemmri tíma og eru þær minningar dýr- mætar. Fyrir hönd móður minnar, föður og bræðra vil ég nota tækifærið hér og þakka henni fyrir þá tryggð og gæsku sem hún alla tíð sýndi henni mömmu minni. Ég vil svo að lokum senda son- um hennar, tengdadætrum, barna- börnum og öðrum aðstandendum mínar innilegustu samúðarkveðjur með þeirri vissu að minningin um þessa góðu frænku mína mun lifa með þeim og okkur öllum alla tíð. Kristín Erla Boland. Elsku Lauga frænka mín er far- in. Margar stundir átti ég hjá henni í Hveragerði. Fyrst þegar ég var fimm ára, en þá var mamma á spít- ala og ég fékk að vera hjá Laugu SIGURLAUG GUÐMUNDSDÓTTIR ✝ Sigurlaug Guð-mundsdóttir fæddist í Reykjavík 24. febrúar 1919. Hún lést 3. apríl sl. Útför Sigurlaugar var gerð frá Hvera- gerðiskirkju mið- vikudaginn 17. apríl síðastliðinn. frænku á meðan. Það fannst mér ofsalega spennandi því hún var svo mikil uppáhalds- frænka mín. Hún var alltaf svo skemmtileg og kát, söng svo skemmtilegar vísur og kunni heilu revíurnar utan að. Seinna dvaldi ég hjá henni á sumrin við að passa Egil son þeirra Hallgríms og síðar bættist Palli við. Þá var nú oft fjör á bænum. Lauga var forkur dugleg og vann heilmikið í gróðrarstöðinni sem þau áttu en alltaf hugsaði hún vel um heimilið, börnin sín og litlu „fósturdótturina“. Lauga var mjög söngelsk og var um árabil í kirkjukór Kotstrand- arkirkju undir styrkri stjórn Lovísu Ólafsdóttur organista. Stundum voru kóræfingar heima hjá Laugu og þá fannst mér nú gaman að hlusta og lærði ég þá margan sálminn utan að sem ég kann enn. Þegar ég missti pabba minn, ellefu ára gömul, var ég hjá henni og hún þurfti að tilkynna mér lát hans. Það var hlýr og góð- ur faðmur sem hún breiddi út til að hugga mig. Því gleymi ég aldr- ei. Alltaf síðan hefur Lauga frænka verið einstök í mínum huga og höfum við hjónin oft fengið góð- an kaffisopa og kökusneið hjá henni á leið okkar um Suðurland. Ég vil að lokum votta sonum hennar, tengdadætrum, barna- börnum og barnabarnabörnum mína dýpstu samúð og bið góðan Guð að styrkja þau öll í sorg þeirra. Þú, Guð míns lífs, ég loka augum mínum í líknarmildum föðurörmum þínum og hvíli sætt, þótt hverfi sólin bjarta, ég halla mér að þínu föðurhjarta. Þín líknarásján lýsi dimmum heimi, þitt ljósið blessað gef í nótt mig dreymi. Í Jesú nafni vil ég væran sofa og vakna snemma þína dýrð að lofa. (Matthías Joch.) Far þú í friði, elsku Lauga mín. Hólmfríður Þorvaldsdóttir. ÆSKILEGT er að minningargreinum fylgi á sérblaði upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi að- eins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. Formáli minningargreina

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.