Morgunblaðið - 24.04.2002, Page 49

Morgunblaðið - 24.04.2002, Page 49
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2002 49 JÓN Einar Hjartarson í Plastmót- un ehf., Læk í Ölfusi hlaut frum- kvöðlaviðurkenningu FENÚR 19. apríl sl. og er það í fyrsta sinn sem FENÚR heiðrar fyrirtæki eða einstakling sem hefur sýnt fram- sýni og þor innan greinarinnar. Magnús Jóhannesson, ráðuneyt- isstjóri umhverfisráðuneytisins, afhenti Jóni viðurkenninguna á ráðstefnu FENÚR en Jón hefur lagt mikið af mörkum til að efla skilning hér á landi á nauðsyn endurvinnslu og nýtingu úrgangs. Jón hefur í mörg ár stuðlað að endurvinnslu plastúrgangs. Jón keypti plastverksmiðjuna Bjallaplast á Hvolsvelli og flutti hana að Læk þar sem verk- smiðjan hefur verið rekin síðan undir nafninu Plastmótun. Fyrstu árin voru framleidd rafmagnsrör, vatnsrör o.fl. Árið 1984 hóf Jón að þreifa fyrir sér með endur- vinnslu á plasti. Endurvinnsla á plasti var þó í litlum mæli fyrstu árin en jókst nokkuð upp úr 1990. Árið 2000 voru keyptar endur- vinnsluvélar og endurvinnslan stóraukin bæði á veiðarfærum og öðru plasti. Á síðasta ári voru endurunnin um 700 tonn af plasti í Plastmótun og áætlað að end- urvinnslan á þessu ári nemi um 1000 tonnum, segir í frétta- tilkynningu. Frum- kvöðull á sviði end- urnýtingar Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytisins, afhenti Jóni Einari Hjartarsyni viðurkenninguna á ráðstefnu FENÚR. STJÓRN Verslunarráðs Íslands ítrekar afstöðu ráðsins til mikil- vægis áframhaldandi brotthvarfs íslenska ríkisins af vettvangi at- vinnulífsins og að stjórnvöld leyfi frjálsri samkeppni að blómstra með því að halda áfram að skapa góð almenn skilyrði til rekstrar hér á landi. Stjórn Verslunarráðs Íslands ítrekar hvatningu sína til íslenskra stjórnvalda um að haldið verði áfram á farsælli braut fráhvarfs frá sértækum aðgerðum til sam- keppnishæfra almennra rekstrar- skilyrða. Stjórn Verslunarráðs Íslands hvetur ríkisstjórn Íslands og Al- þingi Íslendinga til að standa vörð um samkeppnishæfni íslensks at- vinnulífs til að: 1. Íslensk fyrirtæki í alþjóða- samkeppni sjái sér hag í því að vera áfram staðsett á Íslandi. 2. Íslendingum standi ávallt til boða úrval krefjandi starfa á Ís- landi sem séu samkeppnisfær við störf sem þeim bjóðast erlendis. 3. Erlend fyrirtæki í alþjóða- starfsemi laðist til Íslands með starfsemi sína sökum góðra rekstrarskilyrða hér á landi. Stjórn Verslunarráðs Íslands ítrekar mikilvægi þess að stjórn- völd marki stefnu um hverjir styrkleikar íslensks atvinnusam- félags eigi að vera og hver sér- staða Íslands í samkeppni þjóð- anna eigi helst að vera. Með því auðvelda íslensk stjórn- völd fyrirtækjum sem starfa á Ís- landi að greina styrkleika sína í al- þjóðlegri samkeppni og auka þannig líkurnar á almennum og langvarandi stuðningi atvinnulífs á Íslandi við áframhaldandi hagvöxt og samkeppnishæf lífsskilyrði. Með þessu vinna stjórnvöld og at- vinnulíf á Íslandi saman að því að halda Íslandi ávallt meðal fremstu þjóða í heiminum hvað lífsgæði varðar. Stjórn Verslunarráðs Íslands hafnar hugmynd ríkisstjórnar Ís- lands um að veita einstöku fyr- irtæki ríkisábyrgð á lán, með fyr- irvara um samþykki Alþingis, án undangenginnar kynningar á for- sendum þess að veiting slíkrar ábyrgðar sé nauðsynleg eða hvern- ig veiting ábyrgðarinnar fellur að stefnumörkun ríkisstjórnarinnar fyrir almennan stuðning hennar við atvinnulífið. Verslunarráðið hafnar hugmynd um ríkisábyrgð FÖSTUDAGINN 26. apríl standa skólaþróunarsvið kennaradeildar Háskólans á Akureyri og Skóla- skrifstofa Skagfirðinga fyrir ráð- stefnunni Stytting námstíma til stúdentsprófs? Viðhorf landsbyggð- arfólks. Tilgangur ráðstefnunnar er að fjalla um þá hugmynd sem kynnt hefur verið að stytta námstíma í grunn- og framhaldsskólum og áhrif þess á einstaklinga, sveitar- félög og atvinnulíf. Hugmyndir þessar voru fyrst settar opinber- lega fram í skýrslu Nefndar um mótun menntastefnu sem út kom 1994 í tengslum við lagafrumvörp um grunnskóla og framhaldsskóla. Umræða um þetta mál hefur legið niðri í samfélaginu þar til nú að Verslunarfélag Reykjavíkur hafði frumkvæði að gerð skýrslu um styttingu námstíma í grunn- og framhaldsskólum. Markmið ráðstefnunnar er að fá fram hvort nú séu komnar upp for- sendur að stytta nám til stúdents- prófs um eitt ár eins og tillaga var gerð um og hvort fólk á lands- byggðinni hafi önnur viðhorf til málsins en fram hafa komið í um- ræðum til þessa. Ráðstefnan verður haldin í Mið- garði í Varmahlíð í Skagafirði og hefst kl. 10:30 með setningu Guð- mundar Heiðars Frímannssonar, deildarforseta kennaradeildar HA. Ráðstefnan er öllum opin og þess vænst að sem flestir sjái sér fært að mæta. Skráning er hjá Skóla- skrifstofu Skagfirðinga eða á net- fangið skagskol@ismennt.is. Rætt um styttingu námstíma til stúdentsprófs Ráðstefna í Varmahlíð í Skagafirði SAMFYLKINGIN í Árborg opnar kosningaskrifstofu sína í Tryggva- skála og kynnir stefnumál sín í sveitarstjórnarkosningunum í vor, fimmtudaginn 25. apríl kl. 16, á sumardaginn fyrsta. Sex efstu frambjóðendur Sam- fylkingarinnar í Árborg kynna stefnuna og svara spurningum um hana. Björgvin G. Sigurðsson hefur tekið til starfa sem kosningastjóri Samfylkingarinnar í Árborg. Net- fang á kosningaskrifstofu er: ar- borg@samfylking.is, segir í frétta- tilkynningu. Opna kosninga- skrifstofu í Árborg REYKJAVÍKURLISTIN býður til morgunverðarfundar á nýrri kosn- ingaskrifstofu í verslunarmiðstöð- inni Spönginni, Grafarvogi, kl. 9.30 að morgni sumardagsins fyrsta. Á fundinum mun borgarstjóri kynna stefnumál listans fyrir borgarstjórn- arkosningarnar í vor og frambjóð- endur sitja fyrir svörum. Þrír kvennakórar, Gospelsystur, Vox Feminae og Hljómsystur, undir stjórn Margrétar Pálmadóttur syngja sumarið í bæinn og nemend- ur úr Tónskóla Hörpunnar í Graf- arvogi leika á hljóðfæri. Listakon- urnar Brynhildur Þorgeirsdóttir, Ína Salóme og Guðrún Einarsdóttir sýna verk sín í kosningamiðstöðinni, segir í fréttatilkynningu. Kosninga- skrifstofa í Spönginni Reykjavíkurlistinn Á HÓTEL Skógum undir Eyjafjöll- um er boðið upp á hjónahelgi sem kallast „Að njóta, elska og hvílast“ í samvinnu við félagsráðgjafastofuna Aðgát helgina 26.-28. apríl. Markmiðið er að ástfangin pör verði ástfangnari, dragi fram það besta í sambandinu, efli ást og róm- antík, slappi af og hvílist saman. Auk þess að fá veganesti með sér heim sambandinu til farsældar, segir í fréttatilkynningu. Hjónahelgi á Skógum AFMÆLISHÁTÍÐ Búdda, helsta andlega hátíð ársins frá sjónarhóli Hvítbræðra, verður haldin í húsa- kynnum Hómapataskólans í Ármúla 44, 3. hæð í Reykjavík, (gengið inn frá Grensásvegi), helgina 26.–28. apríl. Föstudag kl. 20–22, laugardag og sunnudag kl. 13–17. Efni: opnun og hreinsun, erindi, tónlist, miðlun og hugleiðsla, lokun. Aðgangseyrir fyrir hvern dag er 500 kr., segir í fréttatilkynningu. Afmælishátíð Búdda OPNUÐ hefur verið á Garðatorgi í Garðabæ Kaffihöllin, kaffihús sem býður upp á súpu og salatbar virka daga og hefur einnig á boðstólum úr- val af smurbrauði, tertum og öðru góðgæti. Boðið er upp á ýmsa góða kaffi- drykki ásamt bjór og sterku víni. Allir kaffidrykkir eru gerðir með kaffi- baunum frá Te og kaffi í Hafnarfirði. Í Kaffihöllinni er einnig hægt að setjast niður og horfa á knattspyrnu- leiki og aðra íþróttaviðburði á 61" sjónvarpsskjá eða spila í kössum frá Gullnámunni og RKÍ, staðurinn tekur um 50 manns í sæti innandyra en einnig er hægt að sitja utandyra í yf- irbyggðri göngugötu. Eigandi Kaffihallarinnar er Gústav Sófusson og er afgreiðslutíminn frá klukkan 9 virka daga og 10 um helgar. Kaffihöllin opnuð á Garða- torgi í Garðabæ Rangt nafn Þau leiðu mistök voru gerð í frétt um fyrri umferð frönsku kosning- anna í blaðinu í gær að rangt var farið með millinafn eins af viðmælendum, Oddnýjar Eirar Ævarsdóttur, sem búsett er í París. Oddný Eir er beðin velvirðingar á mistökunum. Klemenz leikstýrði Í fregn af andláti Eriks Bidsteds í blaðinu í gær, var sagt að hann hefði leikstýrt sýningunni á Kardimommu- bænum 1960. Hið rétta er að Klem- enz Jónsson leikstýrði sýningunni. Beðist er velvirðingar á mistökunum. Rangt föðurnafn Í fyrirsögn minningargreina um Rafn Eiríksson á blaðsíðu 50-51 í Morgunblaðinu í gær, þriðjudaginn 23. apríl, var rangt föðurnafn, en það var hins vegar rétt í formálanum. Beðist er velvirðingar á þessum mis- tökum. LEIÐRÉTT SKÁTAMESSA verður í Hallgríms- kirkju sumardaginn fyrsta, fimmtu- daginn 25. apríl og hefst hún kl. 11. Fyrir messu munu skátar standa heiðursvörð fyrir utan kirkjuna. Jón Dalbú Hróbjartsson þjónar til altaris. Ræðumaður verður Helgi Grímsson aðstoðarskátahöfðingi og skólastjóri. Skátakórinn undir stjórn Arnar Arnarssonar leiðir sönginn. Skátamessa í Hallgrímskirkju VINSTRIHREYFINGIN – grænt framboð opnar kosningaskrifstofu á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 25. apríl, kl. 14 á Fjarðargötu 11 og verður opið þar daglega frá kl. 15- 19. Við opnunina mun fyrsti maður á lista VG í Hafnarfirði, Sigurbergur Árnason, flytja stutt ávarp. Aðrir frambjóðendur verða á staðnum. Allir velkomnir. Heitt á könn- unni, segir í fréttatilkynningu. VG í Hafnarfirði opnar kosninga- skrifstofu FULLTRÚARÁÐ Samfylkingar- félaganna í Reykjavík var stofnað mánudaginn 8. apríl sl. Auk þess að vera samráðsvettvangur Samfylking- arfélaganna sér ráðið um framboðs- mál Samfylkingarinnar í sveitar- stjórnarkosningum í höfuðborginni og í alþingiskosningum í báðum Reykjavíkurkjördæmum. Hafa Sam- fylkingarmenn nú komið á fót kjör- dæmisráðum í öllum kjördæmum landsins. Páll Halldórsson var kjörinn for- maður stjórnar fulltrúaráðsins. Gjaldkeri er Hákon Óli Guðmunds- son, meðstjórnendur Ágúst Ágústs- son, Guðrún Árnadóttir, Jóhanna Eyjólfsdóttir og Sjöfn Kristjánsdóttir og til vara eru Bryndís Nielsen, Einar Jón Ólafsson og Kristinn Karlsson. Fulltrúar í ráðinu eru um 200. Í lögum fulltrúaráðsins eru ákvæði um að á meðan kjördæmi eru tvö í Reykjavík skuli ráðið starfa í þeim báðum óháð búsetu fulltrúa í ráðinu. Einnig eru ákvæði um að val á fram- boðslista skuli fara fram með sama hætti og á sama tíma í kjördæmunum tveimur og að réttur félaga og stuðn- ingsmanna til áhrifa á það val, t.d. í prófkjöri, skuli ekki bundinn búsetu þeirra innan Reykjavíkur. Í lögum ráðsins er ennfremur kveðið svo á að allajafna skuli fara fram prófkjör um frambjóðendur meðal félaga Samfylkingarinnar og gefin heimild til að víkka það út til stuðningsmanna utan flokksins, svip- að og gert var í prófkjöri flokksins í febrúar. Samfylkingin með kjördæm- isráð í öllum kjördæmum RÁÐSTEFNA um málefni fjölskyld- unnar verður haldin á Selfossi laug- ardaginn 4. maí kl. 10-17 í húsnæði Fjölbrautaskóla Suðurlands. Að ráð- stefnunni standa Kvenfélagasam- band Íslands og Kvenréttindafélag Íslands í samvinnu við Bandalag kvenna í Reykjavík og Samband sunnlenskra kvenna. Yfirskrift ráð- stefnunnar er: „Fjölskyldan, horn- steinn eða hornreka?“. Fjallar hún um stöðu fjölskyldunn- ar í samfélaginu, samþættingu vinnu og fjölskyldulífs og fjölskyldustefnu opinberra aðila. Fjöldi fyrirlestra ásamt tónlistaruppákomum. Páll Pétursson félagsmálaráðherra flytur ávarp í upphafi ráðstefnunnar en fyrirlesarar verða: Sigrún Júl- íusdóttir félagsráðgjafi og prófessor við HÍ, Þórhallur Heimisson prestur, Eva María Jónsdóttir dagskrárgerð- armaður, Haraldur Sigurðsson frá ÍTR, Anna Sigríður Ólafsdóttir mat- væla- og næringarfræðingur, Björg Sigurðardóttir frá Ráðgjafastofu, Bjarni Harðarson ritstjóri Sunn- lenska fréttablaðsins, Aldís Arnar- dóttir og Þorsteinn Rúnar Ásgeirsson unglingar á Selfossi. Veitingar í hádegi og veislukaffi í lok ráðstefnunnar er innifalið í 2.000 kr. ráðstefnugjaldi. Nánari upplýsingar og skráning hjá Kvenfélagasambandi Íslands í síma eða á netfangi: kvenfels@centr- um.is, segir í fréttatilkynningu. Ráðstefna um málefni fjöl- skyldunnar NÝR og endurbættur vefur Knatt- spyrnufélagsins Víkings, www.vik- ingur.is, hefur verið opnaður. Vefurinn nær til allra deilda fé- lagsins. Á vefsvæðinu er sérstakur vefur fyrir hverja deild félagsins þar sem upplýsingar eru um stjórn hverrar deildar, sögu, iðkendur í meistaraflokki og æfingaplön. Markmiðið er að vefurinn verði miðpunktur í miðlun upplýsinga til iðkenda, félagsmanna og stuðnings- manna félagsins í framtíðinni. Vikingur.is á að höfða bæði til ungra Víkinga og einnig til þeirra sem eldri eru og því þótti við hæfi að þau Helga Torfadóttir, mark- vörður meistaraflokks kvenna og landsliðsins í handknattleik, og Dið- rik Ólafsson, fyrrverandi markvörð- ur Víkings og landsliðsins í knatt- spyrnu, opnuðu vefinn í sameiningu. Fyrirtækið Netspor ehf. sá um að greina þarfir notenda fyrir vefinn en vefsmíðin var í höndum Spuna ehf. Víkingar end- urbæta vef sinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.