Morgunblaðið - 24.04.2002, Síða 50

Morgunblaðið - 24.04.2002, Síða 50
50 MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. KENNARAFÉLAG Reykjavíkur (KFR) er eitt af aðildarfélögum Fé- lags grunnskólakennara og jafn- framt hið fjöl- mennasta. Í kvöld, síðasta vetrardag, kl. 20 verður aðalfund- ur félagsins hald- inn í Álftamýrar- skóla. Vakin er athygli á því að aðeins þeir sem sækja aðalfund- inn eru kosninga- bærir. Til formanns hefur gefið kost á sér María Pálmadóttir, kenn- ari í Austurbæjarskóla. Við vinnu- félagar hennar í skólanum og fleiri erum stolt af því að María skuli bjóða sig fram til formanns, þar sem vissulega er ekki sama hver gegnir þessu starfi. Það eru nýir tímar framundan hjá okkur kenn- urum og ekki síst hér í Reykjavík- urborg. Þess vegna skiptir miklu máli að til forystu veljist hæft fólk með góða þekkingu á kjörum og málefnum kennara, vel máli farið og síðast en ekki síst tilbúið til að leggja það á sig sem þarf til að starfa fyrir okkur með hagsmuni okkar að leiðarljósi og koma fram fyrir okkar hönd. Ég hvet alla kennara í Reykjavík til að mæta á aðalfundinn í kvöld og ljá Maríu at- kvæði sitt. MARGRÉT ÍVARSDÓTTIR, kennari í Austurbæjarskóla. Frá Margréti Ívarsdóttur: Margrét Ívarsdóttir Formannskjör í Kenn- arafélagi Reykjavíkur DIMMT er yfir Betlehem, grætur jólastjarna. Sú jólastjarna sem ég þekki og vil fylgja, stjarnan sem vísar okkur veginn til ljóss heimsins, til þess ljóss sem varð hold í Betlehem forðum og kom til að frelsa heiminn, grætur nú vafalaust yfir ástandinu á því útvalda svæði. Stjarnan sú getur og vill skína svo skært. Hún vill ylja okkur og blessa. Leiðbeina og leiða á veg friðar, friðar sem varir. En mennirnir tóku ekki við honum sem stjarnan vísaði til. Hans eigin menn. „En öllum þeim sem taka vildu við honum gaf hann rétt til að verða Guðs börn. Þeim sem trúa á nafnið hans.“ Fullríkur fyrir alla Hann gleðst yfir öllum sem leita skjóls undir vængjum hans, þeim sem leita friðar sem er æðri mann- legum skilningi. Friðar sem hann einn getur gefið. Hann hafnar eng- um. Hann umber okkur og fyrirgefur dag hvern. Hann varpar engum manni frá sér. Engum sem til hans leitar. En hann grætur yfir börnum þessa heims sárum, föðurlegum, kærleiks- ríkum gráti. Hann grætur vegna allra þeirra sem misnota vald sitt. Yf- ir öllum þeim sem beita ofbeldi og yf- ir öllum þeim sem líða og þjást vegna ofbeldis eða annars ranglætis. Hann grætur yfir öllum þeim sem ekki þekkja hann og ekki vilja taka við honum og þeim friði, kærleika, anda og lífi sem hann stendur fyrir og vill fylla okkur af. Þó er fjöldinn allur enn til sem leit- ar skjóls undir vængjum hans. Með- vitað og hugsanlega hálf-ómeðvitað. Jafnvel þótt þeir skilji hann ekki og trúi aðeins óljóst á nafnið hans og geri sér hugsanlega ekki nema óljósa grein fyrir hver hann er og fyrir hvað hann stendur. Þeim verður ekki vísað frá. Höfðingi friðarins Megi stjarna jólanna áframhald- andi skína skært. Fylgjum henni og látum hana ylja okkur og fylla af friði, kærleika, fögnuði, anda og lífi. Ef við leyfum honum sem stjarnan vísar til, frelsaranum Kristi að móta okkur með því sem hann stendur fyrir þá ætti að verða auðveldara að setjast að samningaborðinu og leysa jafnvel erfiðustu og óskiljanlegustu deilur með friðsamlegri hætti en að berast á banaspjótum þar sem friðhelgi einka- lífsins, já og lífið sjálft er fótum troðið og niðurlægt. Ekki ætla ég að einfalda eða reyna að leysa flókna deilu Ísraela og Pal- estínumanna enda hafa stærri númer en ég komið að þeim málum í gegnum tíðina. En til umhugsunar leyfi ég mér þó að benda á að kannski er hluti af rót vandans sá að við mennirnir tókum ekki og tökum ekki á móti því lífi og þeim varanlega friði sem Betle- hemstjarnan vísar til, boðaði og boð- ar enn í dag. Líf í friði sem einkennist af umburðarlyndi og jöfnum rétti þjóða og einstaklinga. Þar sem ólíkir bræður og systur búa saman og nýta landssvæði og aðrar góðar gjafir Guðs í sátt og samlyndi eins og við er- um sköpuð til að gera. Ekki bara einhver trúarbrögð Leyfum anda ljóss heimsins sem Betlehemsstjarnan vísaði vitringun- um forðum á að móta samskipti okk- ar, hugsun og verk. Er ekki tími til komin að jafnt einstaklingar sem heilu þjóðirnar láti það eftir sér að gera hann að leiðtoga sínum og drif- krafti til lífs í sátt. Hann er ekki bara einhver trúarbrögð. Hann er sonur almáttugs og eilífs Guðs föður á himnum. Hann er persónuleg lifandi staðreynd, frelsari heimsins, sem bæði vill og getur mótað hugarfar og tilgang lífsins. Við þurfum bara að hleypa honum að. Mætti andi hans gefa okkur öllum mýkjandi hjörtu, virðingu fyrir sjálf- um okkur, náunganum og umhverf- inu. Sanngjarna og eðlilega tillits- semi við annars ólíka samferðarmenn okkar. SIGURBJÖRN ÞORKELSSON, rithöfundur og áhugamaður um lífið. Dimmt er yfir Betlehem Frá Sigurbirni Þorkelssyni:

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.