Vísir - 18.06.1980, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 18. júní 1980/ 142. tbl. 70. árg.
Óánægja farDega sem fóru með Samvlnnuferðum til Riminí 21. mai sl.:
„Hópurinn hefur ákveðiD
að hofða mál vegna Dessa"
segir Arni Garðar Kristinsson. sem gefur ófagrar lýsingar á aðnúnaðinum
„ Hópurinn hef ur ákveðið
að höfða mál vegna
þessa"/ sagði Árni Garðar
Kristinsson, sem var einn
af f erðamönnunum er f óru
með Samvinnuferðum til
Rimini á ftalíu 21. maí síð-
asrliðinn.
,/Við fengum rangar
upplýsingar frá byrjun.
Okkur var selt í þær íbúðir
sem alls ekki voru til og
móttökurnar fóru fram úti
á miðri götu í Porto
Verde".
,,Svo þegar maöur átti aö fara I
þetta fallega hús, sem auglýst var
framan á kynningarbæklingnum
og selt var i, þá reyndist það vera
privat jagtklúbbur, lokaöur meö
lás og slá — svo inn fórum viö
ekki. Við komumst aö þvi seinna
aö hann haföi aldrei verio til
leigu. Það er eins og þeir væru ao
auglýsa frimúrarahöllina hér.
Eftir að hafa veriö i bráöa-
birgðahúsnæði sem bauð upp á
kojur og 3 teppi fyrir 6 manns um
nóttina, vorum við flutt i stóra
ibúð daginn eftir, sem hefur ein-
hverntima verið mjög glæsileg.
Annað klósettið var bilað, og
sturtan i ólagi og ekki nein upp-
hitun. Það var þvi kuldi og saggi
I ibúðinni. Eftir langa mæðu feng-
um við rafmagnsofn og þá
sprengdi hann öll öryggi i ibúð-
inni.
Þetta er nú ekki neitt", hélt
Arni Garðar áfram. „Við vorum
tiltölulega heppin miðaö við hina.
Ýmsir aðrir höfðu engin eldhús-
áhöld nema eina teskeið, sem ég
hafði með mér úr flugvélinni.
Óþrifnaðurinn i ibúðinni var
slikur að kona min og dóttir stóðu
i stórhreingerningum. Það komu
hreingerningakonur 3 sinnum á
þessum 3 vikum og struku yfir
gólfið. Þetta fékk maður fyrir 500
þús. á mann.
Ein hjónin lentu i saggafullum
kjallara með einni ljóstýru og þau
vissu ekki hvort var nótt eöa dag-
ur. Það var vatnslaust — konan
lenti á divangarmi með þremur
fótum svo setja varð ferðatösk-
una undir rúmfótinn. Eiginmað-
urinn fékk snert af lungnabólgu
og fyrsta verk læknis var að koma
honum út úr hinu heilsuspillandi
húsnæði", sagði Arni Garðar.
A.S.
„STðRLEGA ÝKT"
- segir Eysteinn Helgason
„Þessi lýsing Arna Garðars er
stórlega ýkt og það var strax haf-
ist handa við að bæta þeim sem
fengu slæman aðbúnað, aðstöðu-
leysið og allt gert til að lagfæra
það sem hægt var", sagði
Eysteinn Helgason forstjóri
ferðaskrifstofunnar Samvinnu-
ferðir/Landsýn. „Það er ljóst að
við komum til með að bæta þvi
fólki sem orðið hefur fyrir
skakkaföllum tjónið. Þarna var
um að ræða byrjunarerfiðleika.
sem íii.a. stöfuðu af slæmri
veðráttu á strönd Adriahafsins en
það fo'lk sem er þarna núna hefur
fengið þær ibiiðir sem það keypti
og dvelur þarna i góðu yfirlæti f
sumri' og sól. Ég vil undirstrika
aö um byrjunarerfiðleika var að
ræða".
A.S./-HR
Dagur í lífi forseta-
framhióðenda:
VISIS
PETRII
EYJUM
Vfsismenn hafa að undan-
förnu fylgt forsetaframbjóðend-
um i einn dag og skýrt lesendum
frá þvi, hvernig hagar kosn-
ingabaráttu þeirra. Að þessu
sinni er röðin komin að Pétri J.
Thorsteinssyni, en blaðamaður
og ljósmyndari Vísis fylgdust
með honum einn dag í Vest-
mannaeyium.
í opnu Visis i dag er skýrt frá
þessum degi i lifi Péturs og rætt
er við hann um kosningabarátt-
una, en kjördagur nálgast nú
óðum.
Myndin hér til hliðar var tekin
iEyjum.þegar Péturvar þar að
ræða við starfsfólk I Fiskiðjunni
i Eyjum.
Vfsismynd: GVA
Forsetar AlDingis fjalla um 20% hækkunina á fimmtudaginn:
Meirihluti beirra á móti
Forsetar . Alþingis koma
saman til funáar á morgun til að
ræða beiðni fjármálaráðherra
og þingflokksformanna Alþýðu-
bandalags og Framsóknar-
flokks um að fella úr gildi
ákvörðun þingfararkaups-
nefndar um 20% launahækkun
til þingmanna. Heimildir Visis
herma, að úrskurði nefndar-
innar verði hnekkt. Jón
Helgason, forseti Sameinaðs
alþingis og Helgi Seljan, forseti
efri deildar, munu leggjast gegn
þvi að ákvörðun nefndarinnar
nái fram að ganga, en Sverrir
Hermannsson, forseti neðri
deildar, sem jafnframt er vara-
formaður þingfararkaups-
nefndar, hefuriyst þvi yfir, að
hann fari ekki að hnekkja
ákvörðunnefndar, sem hafi haft
með launamál þingmanna að
gera i 130 ár.
Fulltrúar þingflokkanna
munu væntanlega einnig sitja
forsetafundinn á morgun, en
samkvæmt lögum um þing-
fararkaup er heimilt að skjóta
úrskurði þingfararkaups-
nefndar til forseta Albineis. sem
fellir endanlegan úrskurð.
Mánaðarkaup þingmanna átti
samkvæmt urskurði þingfarar-
kaupsnefndar að hækka úr
rúmum 817 þús. kr. i riflega 981
þús. auk þess sem þeir áttu að fá
rúma eina milljón sem uppsafn-
aðan mismun frá áramótum.
Þingfararkaupsnefnd hefur
einnig samþykkt nýverið
hækkun á tveimur kostnaðar-
liðum vegna þingstarfa. Húsa-
leiga hækkaði úr 100. þus kr. i
120 þús. og ferðakostnaður i
kjördæmi var hækkaður úr 900
þus. i 1200 þús. Dvalarkostnaður
var hækkaður i desember s.l. úr
5.2 milljónum i 6.5 milljónir kr.
—Gsal.