Vísir - 18.06.1980, Blaðsíða 12

Vísir - 18.06.1980, Blaðsíða 12
VÍSIR Miðvikudagur 18. júni 1980 - segir Pétur Thorsteinsson Stuðningsmenn Péturs Thorsteinssonar i Vest- mannaeyjum hafa komið upp rúmgóðri kosninga- skrifstofu við Skólaveg og þar náði Visir tali af for- setaframbjóðandanum, og spurði um gang kosn- ingabaráttunnar fram að þessu. Blaðamaður náði tali af Pétri, þegar hann heimsótti skrifstofu stuðn- ingsmanna sinna við Skólaveg. „Hólgreinar gefa óraunveru- lega mvnú af framblóðendum” ■ ,,Ég er ánægður með gang ■ mála fram að þessu og þetta hef- ■ ur allt miðað i rétta átt hjá mér og ■ minum stuðningsmönnum. Ég fæ fl ekki betur séð en að það sé mikil * hreyfing á kjósendum varðandi I fylgi við forsetaframbjóðendurna * og það er greinilegt, að straumur- | inn til okkar fer vaxandi. Hvað |a okkur snertir, er ekki hægt a J segja annað en að kosningabar- ™ áttan, bæði vinnustaðaheimsókn- B ir og annað, hafi verið mjög - ánægjuleg”. | —Ertu ánægöur með þann far- in veg, sem kosningabarattan hefur 1 farið i, eða hefðirðu viljaö hafa ■ hana með öðrum hætti? B ,,Nú hef ég ekki veriö á fundum ■ hinna frambjóöendanna, en eftir B þvisem mér skilst, er þar oft rætt H um mál, sem ekki koma forseta- B embættinu viö. A minum fundum ■ hef ég lagt á það megináherslu, ™ að kynna forsetastarfið, — hver störf forsetans eru og hvaða þýð- ® ingu þau hafa. Einnig hef ég talað H um hvernig unnt er að móta em- ™ bættið. y bá hef ég rakið minn starfsfer- ra il, en varðandi hann virðist S nokkur misskilningur hafa verið n rikjandi. Sumt fólk virðist halda, B aö ég hafi verið erlendis stærstan gj hluta starfsævinnar og gleymir æ þvl, aö ég hef starfaö hér á landi I | ein átján ár. Formiö á kosningabaráttunni E hefur verið rétt aö þvi leyti, að ■j vinnustaðafundirnir hafa reynst H vel, en ég^ er þeirrar skoö- ■ unar að jafnframt hefði átt að ■ hafa sameiginlega fundi fram- ■ bjóðenda”. 8 — Hvaö um þátt fjölmiöla? „Hvaö dagblööin snertir, hefur “ kynningin hingað til einskoröast |j við hólgreinar um frambjóðend- “ ur, sem gefa mjög óraunverulega myndaf þeim. Rikisfjölmiölarnir H hafa ekki sinnt kosningunum sem ;:j skyldi hingað til og það, sem er “ framundaa er ófullnægjandi. I Utankjörstaðaatkvæöagreiösla _ hófst 1. júni og þaö er forkastan- legt.að ekki skuli enn hafa farið _ fram nein kynning á frambjóð- endum i útvarpi og sjónvarpi. Það hefði auðvitað átt að fara fram kynning á hverjum fram- bjóðanda fyrir sig strax og fram- boðsfrestur rann út. Ég tel ekki, að fjölmiölar hafi sýnt viljandi hlutdrægni i þessari kosningabaráttu, en starf sumra frambjóðendanna hefur verið meira i sviðsljósinu en annarra. Skoðanakannanir dagblaða hefðu ekki áttt aö eiga sér stað svona snemma i kosningabaráttunni og ég tel að i framtiðinni verði aö setja fastar reglur um slikar kannanir”. — Nú er stuttur Umi fram að kosningum, en svo virðist sem fjöldi fólks hafi ekki enn gert upp hug sinn um hvern það hyggst styöja. Hvaö veldur, að þinum dómi? „Mér finnst nokkuð ljóst af við- tölum minum við fólk út um land- ið,að fjöldi manns biður eftir nán- ari kynningu á frambjóðendum oghefur treyst þvi að sjónvarpið, sem gegnir stærstu hlutverki i þessu sambandi, myndi sjá fyrir slikri kynningu. Það hefur hins- vegar ekkert skeð i þeim efnum ennþá og þvi miður litur ekki út fyrir að svo verði, þvi að eins og ég sagði áðan, er það sem fram- undan er algjörlega ófullnægj- andi. Þetta er að minum dómi meg- inorsök þess, að fólk hefur beðið með að taka ákvörðun”. — Hverjar teluröu sigurllkur þinar vera i komandi kosningum? „Það er sýnilegt, að mjög mik- ill hluti kjósenda, allt að þriöjungur, hefur ekki enn gert upp hug sinn, þannig að of snemmt er að spá um úrslit. Hinsvegar hef ég alltaf verið bjartsýnn hvaö mig snertir og mun herða barattuna”. — Ef til þess kemur, að þú verð- ir ekki kjörinn forseti að þessu sinni, gætirðu þá hugsaö þér aö gefa kost á þér <aftur? „Ég hef aldrei hugsað út i aö slikt kæmi til mála, en ég aftek þaö ekki. Þaö færi eftir þvi, hvenær það yrði”. 12 'Ttsm Miðvikudagur 18. júnl 1980 13 Dagur í lífi forseiaframmóðenda - Nleð Pélri i Vestmannaeyjum „ANHAD OG MEIRA EN VIRÐINGARSTAÐA” Slæmt flugveður á Hornafirði varð þess valdandi, að dagur Visismanna með Pétri Thorsteinssyni og Oddnýju konu hans varð i stysta lagi. Þetta kom þó ekki i veg fyrir að blaðamönnum gafst tækifæri til að fylgja þeim hjónum um nokkra vinnustaði i Eyj- um, auk þess sem farið var i heimsókn á sjúkrahús- ið og elliheimilið. ■ Slæmt flugveður tafði Pétur. Þaö var ekki fyrr en klukkan hálf tvö sem Pétur Thorsteinsson og Oddný kona hans komu t'il Vestmannaeyja, en Visismenn höfðu búist við þeim mun fyrr og voru komnir til Eyja klukkan hálf-niu um morguninn. Astæðan fyrir þessari töf var sú, að ekki haföi gefist flugveöur frá Horna- firði, en þar haföi Pétur verið með kosningafund kvöldið áður. Stuöningsmenn þeirra hjóna tóku á móti þeim á flugvellinum I Eyjum og buðu þeim til nokkuð siöbúins hádegisverðar. Að hon- um loknum heimsóttu þau hjónin skrifstofu stuöningsmanna sinna, en siðan var haldið i Vinnslustöð Vestmannaeyja og spjallað við fólk i saltfiskverkun. Viðdvölin i vinnslustöðinni var stutt, þar sem vinnu var lokið i pökkunarsalnum og fólkið farið heim. Fjölgun kuffitima i kosningum. Klukkan rúmlega þrjú var farið i Fiskiðjuna og var ætlunin að Pétur ávarpaði starfsfólkið i kaffitimanum. Þegar hér var komið sögu, var sólin hins vegar farin að brosa sinu breiðasta og fólkið hafði tvistrast i allar áttir til að njóta hennar þannig að litið varð Urræðuhöldum. Pétur sagði það vera skemmti- legt að fá tækifæri til að spjalla við fólk meöan það væri að störf- um, en þaö væri áhrifameira aö „predika” yfir þvi i kaffitimum. Hann sagðist geta hugsaö sér aö beita sér fyrir fjölgun kaffitima meðan á kosningaundirbúningi stæði, yrði hann kjörinn forseti. Pétur spjallaði við Hjört Her- mannssson, yfirverkstjóra i Fisk- iðjunni, um erfiðar markaðshorf- ur og fleira i þeim dúr, en skoðaði siðan humarvinnslu fyrirtækis- ins. „Annað og meira en virðingar- staöa”. Eftir að hafa heimsótt stærstu fiskvinnuslustaðina i Eyjum lögðu þau hjónin leið sina I sjúkrahúsið og þar tóku á móti þeim, meðal annarra, Einar Val- ur Bjarnason, yfirlæknir og Eyjólfur Pálsson, framkvæmda- stjóri. Yfir kaffibolla lýsti Pétur þeirri skoðun sinni, að önnur viöhorf giltu í sambandi viö forsetakjör að þessu sinni en oft áður. Fram- undan væru erfiðleikatlmar hér heima fyrir og ýmsar blikur væru á lofti i alþjóðamálum. Það væri þvi meiri nauösyn nú en áður, aö til forseta veldist maður, sem kynni góð skil á þessum málum öllum og að embættið væri nú annað og meira en virðingar- staða. „Hvert sem ég hef farið um landiö, er ég alltaf spuröur álits á Stuöningsmaöur Péturs og Oddnýjar tekur á móti þeim á Vestmanna- eyjaflugvelli. Hér séstPétur rabba viö krakka, sem unnu viö humarflokkun I Fiskiöj unni. A Nausthamarsbryggju spjallaði Pétur viö nokkra málmsmiöi, sem unnu aö þvf aö byggja yfir bátsdekk Hér eru þau Pétur og Oddný f hópi fjallhressra „eyjapeyja” sem voruaöbletta skuttogarann Breka. A sjúkrahúsinu uröu fagnaöarfundir meö þeim Pétri og Lýö Brynjólfs- syni, en þeir unnu saman i vegavinnu á Holtavöröuheiöi I gamla daga. Pétur og Oddný heimsóttu elliheimiliö, án þess aö vita um utankjör- fundaratkvæöagreiöslu, sem þar fór fram i sömu mund. þvi, hvort auka beri vald forset- ans. Þetta sýnir, að fólk hefur áhyggjuur af stöðu mála og þeirri óvissu, sem er framundan og eitt af þvi fyrsta, sem fólki dettur I hug til Urbóta, er að auka áhrif forsetans. Forsetinn getur haft áhrif á stjórnarfarið, en skilyröi þess er að hann kunni einhver skil á því”, sagði Pétur. Hann sagði ennfremur, að sér virtist vera komin upp sú staða, að margir segjast ætla að kjósa þann, sem þeir telja líklegastan til að fella þann, sem þeir síst vilja. „Þetta er afleitt viðhorf, þegar þjóðin velur sér forseta”, sagði Pétur. Hann lagöi einnig áherslu á að starf forsetans væri gifurlega umfangsmikiö og að hann yrði að vera vel heima i öllum þeim mál- um, sem þjóðarhag varða. Jafn- framt sagöi Pétur, að athuga ætti hvort ekki ætti að bera stór mál oftar undir þjóðaratkvæöi. „Ég var aö kjósa og kaus herr- ann”. Eftir að hafa gengiö um ganga og rabbað við fólkiö á sjúkrahúsinu, var elliheimiliö heimsótt. Þegar þau hjónin höfðu spjallaö við vist- mennina um hrið, kom upp úr kafinu, að i sömu mund fór fram utankjörfundaratkvæðagreiðsla á elliheimilinu. Þegar Oddný og Pétur uppgötvuðu hvers kyns vac hröðpðu þau sér burt, en áður hafði gömul kona undið sér að Pétrl klappaö á öxlina á honum og sagt: „Ég var að kjósa og kaus herrann”. Siðan var haldið niöur á Naust- hamarsbryggju og málmsmiðir teknir tali, þar sem þeir voru aö byggja yfir dekkið á fiskibáti. Þegar hér var komið sögu, var klukkan langt gengin i sjö og Pétri og Oddnýju var boðiö til kvöldverðar hjá stuðnings- mönnum. Um kvöldiö var svo haldinn fjölmennur kosninga- fundur I samkomuhúsinu. Þess skal getið, að þau Pétur og Oddný höfðu fyrr i kosningabar- áttunni heimsótt Vestmannaeyj- ar og þá þrætt nærfellt alla vinnu- staði bæjarins. — P.M. Texti: Páll Magnússon Myndir: Gunnar V. Andrésson Pétur ávarpar fundargesti I Samkomuhúsinu um kvöldiö. (Mynd: G.S.Vestm.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.