Vísir - 18.06.1980, Síða 5
•Umsjdn: Axel
Ammendrup
vísm
Miðvikudagur 18. júni 1980
_ S-Afríka:
Atta menn
skotnlr (
átökum
Atta manns eru sagðir
hafa fallið i átökum lög-
reglu og litaðra mót-
mælenda i Höfðaborg i
Suður-Afriku i gær.
Lögreglan, sem lokað hefur
fyrir allar fréttasendingar,
sagöi að nokkrir hefðu látist i
átökum i gær, en nefndi engar
tölur
A sunnudaginn var hvitur
, lögregluþjónn stunginn til bana
og ótíuðust yfirvöld, að það yrði
einungis upphafið á miklum átök-
um i tilefni af þvi að fjögur ár
voru liðin frá átökunum i Soweto,
en i þeim létust nokkur hundruð
blökkumenn.
Ekki hefur komið til jafn
harðra átaka og menn hræddust,
en ástandið i landinu er sagt raf-
magnað.
Tuttugu ný
kjamorkuver
í Comecon-
ríkjunum
Forsætisráðherrar tiu
kommúnistarikja ræddu
á fundi sinum i gær um
nýja kjarnorkuáætlun,
sem myndi fullnægja
um 25% orkuþarfar rfkj-
anna árið 1990.
Rikin, sem öll eru aðilar að
Comecon, áætla að reisa um 20
kjarnorkuver á næsta áratug. t
dag fullnægir kjarnorka aðeins
4% af orkuþörf rikjanna.
Þá var á fundi forsætisráðherr-
anna i gær einnig rædd örtölvu-
áætlun, sem kosta mun um 18
milljarða dollara i framkvæmd,
en áætlunin nær til fimm ára.
Löndin tiu, sem tóku þátt i um-
ræðunum, voru Sovétrikin,
A-Þýskaland, Pólland, Tékkó-
slóvakia, Búlgaria, Rúmenia,
Ungverjaland, Kúba, Mongólia
og Vietnam.
Alexei Kosygin, forsætisráð-
herra Sovétrikjanna, sem orðinn
Kosygin mælti fyrir nýrri kjarn-
orkuáætlun á fundi Comecon.
Samkvæmt áætluninni á að reisa
tuttugu ný kjarnorkuver á næstu
tiu árum.
er 76 ára gamall, viðurkenndi að
verslunarbannið, sem sett var á
Sovétrikin eftir innrásina i
Afganistan, ylli timabundnum
efnahagslegum erfiðleikum, en
lagði áherslu á að stjórnin i
Moskvu léti ekki undan slikum
pólitiskum þrystingi.
Þá taldi Kosygin, að helstu
erfiðleikar, sem blöstu við jarð-
arbúum i dag, væru orku- og hrá-
efnaskortur.
Gestir svætðir á
kaftihúsunum
i Amsterdam
Lögreglan I Amsterdam rann-
sakar nú þann möguleika, að
maður nokkur gangi á milli
veitingahúsa borgarinnar og
setji svefntöfiur I kaffi gest-
anna.
Fimm manns voru fluttir á
sjúkrahús i gær eftir að þeir
liðu út af þegar þeir höfðu
drukkið kaffið sitt. Sjúkdóms-
greining leiddi I ljós, að þeir
höfðu tekið inn svefnlyf. Við-
komandi voru hver á sinum
veitingastaðnum.
Hollenska lögreglan rann-
sakar nú málið í samvinnu við
v-þýsku lögregluna.en i Dussel-
dorf kom nýlega upp svipað
mál, en þá voru sjö menn fluttir
á sjúkrahús*
Sprenging
i Beirut
öflug sprengja sprakk I bil i
Beirut i gær. Einn maður lést og
22 slösuðust, margir þeirra
alvarlega. Billinn var fyrir utan
næturklúbb i vesturhluta
borgarinnar.
Ekki er vitað hver kom
sprengjunni fyrir eöa hvers
vegna.
Óeiröir urðu viö háifreist kjarnorkuver i Seabrook i Bandarikjunum nýlega, er mörg þúsund kjarn-
orkuandstæðingar hugðust leggja verið undir sig. Nokkur hundruð þjóövaröliöar tóku á móti mót-
mælendum og beittu táragasi og kylfum til að hrekja þá á flótta, sem tókst eftir nokkur átök. Nokkrir
menn meiddust, enginn þó alvarlega.
A meðfylgjandi mynd, sem Þórir Guömundsson, ljósmyndari Visis, tók I átökunum, sést einn mót-
mælenda. A bringu hennar er skrifað: Ed Muskie (utanrlkisráðherrann), frið i Bandarikjunum! Enga
kjarnorku!
Kim Jong-Pil hefur veriö sakaður um spillingu og mútuþægni.
SPILLING I S-KÚREU
Kim Jong-Pil, fyrrverandi
forsætisráðherra S-Kóreu og
náinn samstarfsmaöur Parks,
fyrrum forseta, hefur verið
ásakaður um mútuþægni og
spillingu. A þann hátt á Kim að
hafa dregið að sér um 36
milljónir dollara.
Að sögn herforingjastjórnar-
innar i S-Kóreu, mun Kim
sleppa viö málaferli, þar sem
hann hefur boðist til að endur-
greiða múturnar, sem hann
fékk, aðallega frá kaupsýslu-
mönnum.
Kim Jong-Pil var handtekinn i
mai siðasta eftir stúdentaóeirð-
ir, sem urðu i landinu. Hann var
forsætisráðherra á árunum
1971-1975 og stofnandi og for-
maður Lýðræðissinnaða demó-
krataflokksins, sem hefur
meirihluta á þingi. Hann hjálp-
aði Park fyrrverandi forseta, að
Ikomast til valda i byltingu áriö
1960. Kim hcfur sagt af sér for-
imennsku i Lýðræöissinnaða
idemókrataflokknum.
Niu aðrir háttsettir S-Kóreu-
menn hafa einnig verið sakaðir
um mútuþægni og spillingu og
má þar nefna fyrrverandi inn-
anrikis- og dómsmálaráðherra
Kim Chi-Yeol og fyrrverandi
yfirmann öryggissveitanna,
Park Chong-Kyu. Málaferlum á
hendur nimenningunum verður
aflýstsvo fremi sem þeir endur-
greiöi mútur þær, sem þeir
þáðu.
Vöruöílstlórar
loka spænsku
landamærunum
Spænskir vöruflutningabil-
stjórar hafa lokað allri umferð
viðfrönsku landamærin og segj-
ast ekki létta banninu fyrr en
frönsk yfirvöld gripa til aö-
gerða, er tryggi öryggi
spænskra vörubíla á ferð um
Frakkland.
Spænsku ökumennirnir hófu
aðgeröir sinar á mánudag eftir
að franskir bændur kveiktu i tiu
spænskum vörubilum nálægt
Perpignan til að mótmæla inn
flutningi á ódýrum spænskum
landbúnaðarv örum.
Mikiö umferðaröngþveiti
varð i gær i La Jungnera, þegar
mörg hundruð vörubilar lokuðu
veginum. Við La Junguera er
helsta samgönguæðin við Kata-
lóniu og Miöjaröarhafsströnd-
ina spænsku.