Vísir - 24.06.1980, Page 1
Nliklar sveiflur á fylgi frambióðenda f einstðkum kjördæmum:
EKKIMARKTÆKUR MUNUR
A GUÐLAUGI UG VIGDfSI
Pétur hefur unnið mest á frá siðustu skoðanakðnnun visis og er nú mjðg
svipaður og Aibert. sem er 8-9% lægri en Guðiaugur og Vigdfs
Skoðanakönnun um forsetakosningarnar, sem Visir hefur gert, sýnir að
verulegar fylgissveiflur hafa átt sér stað i hinum einstöku kjördæmum
landsins. Hins vegar eru þær mjög misjafnar og jafna hver aðra upp að
hluta þannig að ekki er um stórfelldar breytingar að ræða þegar litið er á
landið i heild.
Samkvæmt könnuninni er
Guölaugur Þorvaldsson efstur
meö 23.95% atkvæðanna. Hann
hefur aukið sinn hlut frá fyrri
könnun um 1.14%.
Næst er Vigdls Finnboga-
dóttir með 22.87% atkvæða i
könnuninni, eða 0.43% minna en
siðast. Aðeins 1.08% skilja þau
tvö að, og er sá munur ekki
marktækur.
1 þriðja sæti er Albert Guö-
mundsson með 15.56%, sem er
2.74% aukning.
í fjórða sæti er Pétur J. Thor-
steinssonmeð 13.94%, eða 4.82%
aukningu og hefur fylgi hans
aukist mest á timabilinu sem
liðið hefur á milli kannananna.
I skoðanakönnuninni, sem
unnin var á laugardag, sunnu-
I
dag og mánudag, var notað
sama úrtak og i könnun Visis,
sem gerð var um siðustu
mánaðamót, þ.e. fyrir þremur
vikum. Þaö úrtak var unniö af
Reiknistofnun háskólans i sam-
ræmi við skiptingu kjósenda
eftir kyni, búsetu og aldri. Við
þá könnun náðist I 80.6% úrtaks-
ins, og var nú aftur haft sam-
band við það fólk og kannað
hvaða breytingar höfðu átt sér
stað bæði innan einstakra kjör-
dæma og I landinu i heild. Þátt-
taka var mjög góð, eða 91.12%
og niðurstöður yfir landið I heild
nú eins og fram kemur I með-
fylgjandi töflu.
Miklar sveiflur
i kjördæmunum
Verulegar sveiflur hafa orðiö i
ýmsum kjördæmum. Meðal
þess sem athygli vekur er:
Pétur hefur stóraukið fylgi
sitt á Vestfjörðum og er nú þar
efstur, en næstefstur á Vestur-
iandi.
Albert hefur aukið mikið fylgi
sitt I Reykjaneskjördæmi, og er
þar nú i efsta sæti.
Vigdis er efst i fjórum kjör-
dæmum, Suðurlandi, Austur-
landi, Norðurlandi vestra og
Vesturlandi, og næst efst i öðr-
um þremur, Reykjavik, Vest-
fjörðum og Norðurlandi eystra.
Guðlaugur er áfram efstur i
Reykjavik og á Noröurlandi
eystra.
Þeir sem tóku afstöðu
Ef aðeins eru teknir með þeir,
sem tóku afstöðu með ákveðn-
um frambjóðanda, skiptist
fylgiö á milli þeirra sem hér
segir:
Guðlaugur 31.38%
Vigdls 29.97%
Albert 20.39%
Pétur 18.26%
Itarlega er fjallað um skoð-
anakönnunina i opnu Visis i dag,
og m.a. gerð grein fyrir breyt-
ingum frá fyrri könnun Visis i
hverju kjördæmi fyrir sig.
1 Visi á morgun verður gerð
, grein fyrir skiptingu fylgis eftir
aldri frambjóðenda, og sömu-
leiðis áliti stuðningsmanna
hvers frambjóðanda um sig á
þvi, hvaða frambjóöandi muni
sigra i forsetakosningunum.
Sjá nánar I opnu blaðsins 1
dag. —ESJ.
BREYTINGAR FRÁ KÓNNUN VÍSIS 2. JÚNÍ 1980 f %
Fulltrúar forsetaframbjóðenda komu á ritstjórn Vfsls upp úr hálf tlu I morgun og kynntu sér niðurstöður
skoðanakönnunarinnar, og var myndin tekin viö þaö tækifæri. Vfsismynd: GVA.
Könnunin 2/6 Könnunin nú Rreytingar
Albert 12.82 15.56 +2.74
Guðlauoup 22.81 23.95 + 1.14
Pétur 9.12 13.94 +4.82
Vigdis 23.30 22.87 +0.43
Óákveönir 24.17 12.99 +11.18
Neita að svara 7.77 10.69 +2.92
Stiórnarfundur hjá Flugleiðum í dag:
MDurskuröur Atlantshafsflugs?
Verður mikil fækkun á siarfsliði Flugieiða aftur i haust?
Ákvörðun um framtið
Atlantshafsflugs Flug-
leiða verður að öllum lik-
indum tekin á stjórnar-
fundii félaginui dagogþá
hversu mikil fækkun
verður á ferðum næsta
haust og fækkun starfs-
manna i tengslum við
það.
Siguröur Helgason forstjóri
Flugleiða sagöi I samtali við
VIsi aö ekkert lægi fyrir um þaö
hversu mikil fækkunin þyrfti að
vera en hins vegar væri ekkert
nýtt að starfsmönnum þyrfti að
fækka með haustinu. Hann var
spurður hvort starfsmönnum
yröi fækkað um allt að 260 en
orðrómur hefur verið á kreiki
um það en hann vildi ekkert um
það segja, né heldur um þaö
hvort ferðum yrði fækkaö niður
I eina á Atlantshafsflugleiðinni
næsta haust.
Þá var Sigurður spurður
hvort eitthvaö hefði komið út úr
viðræðum við Luxemborgara
um framtlð Atlantshafsflugsins,
en hann kvað svo ekki vera.
Vísir haföi einnig tal af Leifi
Magniíssyni yfirmanni flug-
rekstrardeildar Flugleiða og
taldi hann fjarri lagi aö starfs-
mönnum yrði fækkað um 260
eöa að ferðum yrði fækkað I allt
að eina á viku á Atlantshafsleið-
inni næsta vetur.
— HR