Vísir - 24.06.1980, Blaðsíða 23
23
vtsnt
Þriöjudagur 24. júni 1980.
Umsjdn: Kristln
Þorsteinsdóttir,
„Umheimurinn” er á dagskrá
sjónvarpsins i kvöld og er
ögmundur Jónasson, frétta-
maður, umsjónarmaöur hans.
Þátturinn, scm fjallar um
erlenda viðburði og málefni, hefst
kl. 22.00 og stendur I tæpa klukku-
stund.
Annar þáttur myndaflokksins
„Sýkn eða sekur" er á dagskrá
sjönvarpsins i kvöld. Aðalhlut-
verkið er I höndum Ron nokkurs
Leibman, sem hér er til hægri á
myndinni.
Útvarp ki. 14.00:
Setning presta-
stefnunnar
Prestastefnan verður sett i dag
kl. 14.00. Setningin fer fram i
Menntaskólanum i Reykjavik og
verðurhenni útvarpað. Á setning-
unni flytur biskup Islands ávarp
og yfirlitsskýrslu um störf og hag
þjóðkirkjunnar á synodusárinu.
1 tilefni prestastetnunar verður
siðan flutt synoduserindi i
útvarpinu kl. 19.35. Flytjandi er
Kristján Valur Ingólfsson og
nefnir hann erindið „Messan i
sögu og samtið.”
K.P.
Biskup tslands, herra Sigurbjörn Einarsson.setur
prestastefnuna i dag kl. 14.00.
útvarp
Þriðiudagur
24. júni
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
7.10. Leikfimi. 7.20 Bæn.
7.25 Tónleikar. Þulur velur
og kynnir.
8.00 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. For-
ustugr. dagbl. (útdr.). Dag-
skrá. Tónleikar.
8.55 Mælt máL Endurtekinn
þáttur Bjarna Einarssonár
frá deginum áður.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Frásagnir af hvutta og
kisu” eftir Josef Capek.
Hallfreður örn Eiriksson
þýddi. Guðrún Asmunds-
dóttir leikkona les (5).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
gregnir.
10.25 „Man ég það, sem iöngu
leiö” Ragnheiður Viggós-
dóttir gefur þessum þætti
sérheitið: „Svanir til söngs,
álftir til nytja”. Lesin grein
eftir Jón Theodórsson I Gils-
fjarðarbrekku um nytjar af
álftafjöðrum.
11.00 Sjávarútvegur og
siglingar. Umsjónarmaður-
inn, Ingólfur Arnarson,
fjallar um ýmis erlend mál-
efni, sem sjávarútveginn
varða.
11.15 Morguntónleikar:
12.00 Fréttir. Tónleikar. Til-
kynningar. A frivaktinni.
Sigrún Sigurðardóttir
kynnir óskalög sjómanna.
14.00 Prestastefnan sett i
Menntaskólanum i Reykja-
vik. Biskup tslands flytur
ávarp og yfirlitsskýrslu um
störf og hag þjóðkirkjunnar
á synodusárinu.
15.15 Tónleikasyrpa.Tónlist úr
ýmsum áttum og lög leikin á
' mismunandi hljóðfæri.
15.50 Tilkynningar.
16.00 Fréttir. Tónleikar. 16.15
VeBurfregnir.
16.20 Sfðdegistónleikar
17.20 Sagan „Brauð og hun-
ang” eftir Ivan Southall.
Ingibjörg Jónsdóttir þýddi.
Hjalti Rögnvaldsson les (5).
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Rréttir. Tilkynningar.
19.35 Messan I sögu og samtið.
Séra Kristján Valur Ingólfs-
son flytur synoduserindi.
20.00 Frá Mozarthátiðinni I
Salzburg I janúar þ.á.
21.00 Jónsmessuvaka bænda.
Agnar GuBnason blaBafull-
trúi bændasamtakanna tal-
ar viB SigurB Agústsson i
Birtingaholti um tónlist og
Halldór Pálsson fyrrver-
andi búnaöarmálastjóra um
hrútasýningar fyrst og
fremst.
21.45 Otvarpssagan: „Fugla-
fit” eftir Kurt Vonnegut.
Hlynur Arnason þýddi.
Anna GuBmundsdóttir les
(10).
22.15 Fréttir. Veðurfregnir.
Dagskrá morgundagsins.
22.35 „Nú er hann enn á norð-
an”.
23.00 A hljóöbergi. Umsjónar-
maBur: Bjöm Th. Björns-
son listfræöingur. Þrir
heimskunnir myndhöggvar-
ar ræöa um verk sin og viö-
horf: Barbara Hepworth,
Reg Butler og Henry Moore.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
sjonvarp
Þriðjudagur
24. júní 1980.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Tommi og Jenni.
20.40 Dýrðardagar kvikmynd-
anna. Fimmti þáttur.
Gamanmyndirnar. ÞýBandi
Jón O. Edwald.
21.10 Sýkn eöa sekur?
22.00 Umheimurinn. Þáttur
um erlenda viBburöi og
málefni. Umsjónarmaöur
ögmundur Jónasson frétta-
maöur.
22.50 Dagskrár'lok.
GAGNRÝNi A FJðLDAHREYFINGAR
Tvenn samtök bera gjarnan á
tyllidögum heitið „fjöldahreyf-
ingar fólksins” i munnum
þeirra, sem halla sér til vinstri
allt inn i miðjan Framsóknar-
flokk. Þetta er verkalýðshreyf-
ingin og sam vinnuhreyfingin.
Það er án efa rétt aö finna má
margan skyldleikann I sögu
þessara samtaka, en óneitan-
lega þykir oft leika vafi á þvi,
að „fólkið” eigi eða ráði þessum
hreyfingum.
Ástandið innan verkalýös-
hreyfingarinnar er öllum ljóst.
Þar hefur á undanförnum árum
og áratugum þróast fámennis-
stjórn, sem kemur litið við,
hvað hinir almennu félagsmenn
i verkalýösfélögunum kunna að
vilja. Þeim er mjög sjaldan gef-
inn kostur á að tjá sig um mál-
efni hreyfingarinnar, og þá yfir-
leitt með þeim hætti, aö flestir
almennir launþegar, sem litið
kunna fyrir sér I málflutningi á
fundum, veigra sér við að láta I
sér heyra eða jafnvel aö mæta.
' Þess vegna er fundir I félög-
unum fámennir og forystan
ræður öllu sem hún vill ráöa og
allt I nafni „fólksins” eða „al-
þýðunnar”. Það bætir svo ekki
úr skák, að þessar fámennis-
stjórnir eru yfirleitt flokkspóli-
tiskar, enda litið á þær af for-
ingjum stjórnmálaflokka sem
skiptimynt I flokkabaráttunni.
Samvinnuhreyfingin býr
einnig I reynd við flokkspóli-
tiskar fámennisstjórnir. Þaö
vita auðvitaö allir, aö I stjórnum
langflestra kaupfélaga á land-
inu eru framsóknarmenn með
töglin og hagldirnarog er KRON
I Reykjavik helsta undantekn-
ingin, en þar hefur kommunum
lengi tekist að halda völdum. I
stjórn Sambandsins er svo
flokkspólitisk blanda, þar sem
framsóknarmenn hafa þó
vænan meirihluta og ráða þvi
öllu, sem þeir hafa hug á.
Vmsir toppar I stjórnkerfi
þessara hreyfinga kenna vafa-
laust „fólkinu” um hvernig
komið er, það sé áhugalaust,
mæti ekki á fundum og notfæri
sér þannig ekki þann rétt, sem
það hefur á pappirnum til að
hafa áhrif á gang mála I hreyf-
ingunni, kjör I stjórnir o.s.frv.
En meginástæöan fyrir þvi,
hversu félagsmenn eru áhuga-
litlir um að mæta á félagsfund-
um, er hins vegar sú, aö þeir
geta einir og hver um sig ná-
kvæmlega engin áhrif haft gegn
sameinuðu valdi t.d. stjórnar
kaupfélags og kaupfélagsstjóra.
Og ef félagsmenn á einhverju
félagssvæðinu færu að koma á
meö sér skipulögöum samtök-
um til aö knýja fram breytta
stefnu á aöalfundi, eöa jafnvel
kaupfélagsstjóraskipti, er hætt
viö að harkalega yröi gripið á
móti. Þetta vita menn og láta
þvi oft vera aö koma nálægt
starfsemi félaganna.
Mörgum, sérstaklega i sveit-
um landsins finnst að kaupfélög
in (Tafi mjög fjarlægst sitt upp-
haflega markmið og séu stund-
um rekin út frá allt öðrum
sjónarmiðum en beinum hags-
munum félagsmanna sjálfra.
Þessa gagnrýni taka margir fé-
lagsmenn I kaupfélögunum
undir þegar hún ber á góma.
t nýjasta afsprengi islenska
kvikmyndavorsins, ööali feðr-
anna eftir Hrafn Gunnlaugsson,
er sett fram mjög hörö ádeila á
kaupfélögin. Þar er að visu lögö
megináhersla á spillingu for-
ystumanna kaupfélaganna, og
slik persónuleg spilling stund-
um máluð of sterkum litum til
þess aö hún verði raunsæ. Þess
verður að sjálfsögðu að gæta i
allri gagnrýni, aö ekki sé svo
langt seilst, aö sá sem gagnrýn-
ina á að nema, neiti að trúa.
Þótt á þessu örli I Óöali feör-
anna er rétt að undirstrika, að
sú gagnrýni, sem fram kemur
þar á réttindaleysi bænda gagn-
vart kaupfélögunum, á I megin-
atriðum rétt á sér, burtséð frá
persónulegum uppákomum
kaupfélagsstjóra og fjölskyldu
hans i myndinni.
Ekki er að efa að einhverjir
eiga eftir að risa upp til varnar
fyrir kaupfélögin þegar farið
verður að sýna kvikmynd
Hrafns út um land og jafnvel
fyrr, enda ná ádeilukvikmyndir
engum árangri I samtimanum
nema þær leiði til umræðu og
hugsanlega endurmats.
Það væri vissulega skemmti-
legt, ef Islenska kvikmynda-
voriö, sem vonandi veröur
innan tlðar að langvarandi
sumri, kallaði á næstunni á
kvikmynd, sem tæki á gagnrýn-
inn hátt fyrir misbeitingu valds
og aðstæðna i verkalýðshreyf-
ingunni á svipaöan en kannski
aö hluta til á raunsærri hátt en
Óöal feöranna tekur samvinnu-
hreyfinguna til bæna.
Svarthöfði