Vísir - 25.06.1980, Side 5
5
vlsm
MiOvikudagur 25. júni 1980.
• Umsjdn: Axel
Ammendrup
Haföi Sanjay ekki
tilskilin réttindi?
- indversk stlórnvðld hættu skyndllega
við rannsókn á tlugslysinu
Sanjay ekur um götur Nýju Delhi og tekur við hamingjuóskum stuön-
ingsmanna sinna eftir aö hafa náö kjöri I þingkosningunum I janúar.
Indverska stjórnin hætti
skyndilega viö rannsókn á flug-
slysinu, sem leiddi til dauða
Sanjays Gandhi, sonar Indiru
Gandhi. Pólitiskir andstæðingar
Sanjays halda þvi fram, að það sé
vegna þess að sonur forsætisráð-
herrans hafi ekki haft tilskilin
réttindi til að fljúga listflugvél-
inni.
Þá segja indversk dagblöð, að
listflug Sanjays yfir þéttbýlis-
svæðum hafi þverbrotið allar
flugreglur og að hann hafi áður
verið varaður við þessu.
Llk Sanjays, sem var 33 ára
gamall, var brennt i gær. Þjóðar-
sorg rikir I landinu, en tilfinning-
ar landsmanna vegna fráfalls
Sanjays eru skiptar, því á stutt-
um stjórnmálaferli sinum eign-
aðist hann bæði ákafa stuðnings-
menn og hatursmenn.
Nú biða andstæðingar jafnt sem
stuðningsmenn Indiru Gandhi
spenntir eftir þvi að sjá hvernig
hún bregst við fráfalli Sanjays,
sem gerði að engu spár um að enn
einn ættliður Nehru-fjölskyldunn-
ar tæki við stjórn Indlands.
Pakistanir:
Krefjast harkalegra
aögeröa gegn ísrael
- Haldl peir lasl við áform um að gera
Jerúsalem að hðfuðborg fsraels
Oryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna mun greiða atkvæði um
nýja tillögu, þarsem Israelsmenn
eru fordæmdir fyrir ráðagerðir
um að gera Jerúsalem að höfuð-
borg rikisins, slðar I þessari viku.
Umræðum um tillöguna var
frestað I gær eftir að Pakistan og
fleiri islamskar þjóðir, sem ekki
eiga aðild að ráðinu, kröfðust
harkalegra aðgerða ef
Israelsmenn héldu fast við áform
sln, en málið er nú fyrir
isreaelska þinginu, Knesset.
Orðalagið I tillögum Pakistana,
sem dreift var til fulltrúa örygg-
isráðsins I gær, er að öllum llk-
indum óaðgengilegt fyrir Banda-
rikjamenn, þvi samþykkt slíkrar
tillögu myndi sennilega kosta
Carter forseta atkvæði Gyðinga i
forsetakosningunum i haust.
Fulltrúar ráðsins munu ræðast
óformlega við I dag og reyna að
breyta orðalaginu þannig, að
Bandarikjamenn geti setið hjá i Pakistan, sem talaði fyrir hönd
við atkvæðagreiðsluna frekar en I islömsku rikjanna, ásakaði
að beita neitunarvaldi. Israelsmenn um útþenslustefnu.
Agha Shahi, utanríkisráðherra | Shahi sagði, að ástandið hefði
versnað vegna seinustu aðgerða
þeirra I þá átt að innlima Jerúsal-
em algerlega. Hann ásakaði
Israelsmenn fyrir að eyðileggja
arfleifð borgarinnar i ofsafengn-
um tilraunum til að gera borgina,
sem hann kallaði jafnan sinu
arablska nafni, A1 Quds A1 Sharif,
„gyðinglega”.
Framdi herinn Ijölda-
morð í El Salvador?
Jose Guillermo Garcia, hers-
höfðingi og varnarmálaráðherra
E1 Salvador, neitaði I gær ásökun-
um biskups I Honduras um að
hersveitir hans hefðu drepiö sex
hundruð manns, sem reyndu að
flýja landið.
Jose Carranza Chavez, biskup
við landamæri E1 Salvador, sagði
I gær að f jöldamoröin hefði átt sér
stað 14. mai, eftir leynifund yfir-
mann herja E1 Salvador, Guate-
mala og Honduras.
Hann sagöi, að þjóðvarðliðar
hefðu hafið skothrlð á flótta-
mennina, þar á meðal margar
konur og börn, þar sem þau biðu
eftir að komast fyrir ána Sumpul
til Honduras.
Guillermo, hershöfðingi,
bauð blaðamönnum að fara með
þáámeintan morðstað til að
sannafyrir þeim, að ásakanirnar
væru falsaðar.
„Það er alger fjarstæða aö her-
inn standi að sllkum glæp”, sagði
ráðherrann.
Baskarmeö
enn eina
sprengju-
herferöina
Spænska lögreglan lét tæma
mörg hótel og veitingahús I
austurhluta landsins I gær eftir að
skæruliðar Baska hótuðu að
sprengja þar tvær sprengjur.
Aðskilnaðarsamtökin ETA
höfðu samband við fréttastofu
Baska og tilkynntu að þau hefðu
komið sprengjunum fyrir I
Alicante og Javera, og myndu
þær springa einhverntima á
timabilinu frá miðnætti til klukk-
an átta I morgun.ETA samtökin
gáfu nákvæmar upplýsingar um
hvar sprengjurnar væru og lögðu
til að staðirnir yrðu tæmdir af
fólki. Siðast þegar fréttist höfðu
engar sprengjur sprungið.
ETA-samtökin tilkynntu á
laugardaginn, að þau hygðust
hefja nýja sprengjuherferð á fjöl-
förnustu ferðamannastöðum
Spánar. Sprengingarnar myndu
halda áfram þangað til stjórnvöld
leystu úr haldi 19 Baska, sem
grunaðir væru um hermdarverk.
Fjórir skæruliöar Baska með al-
væpni ræðast við. Litiö hefur frest
af skæruliðunum undanfarna
mánuði, en nú hafa þeir hafiö
nýja sprengjuherferð.
Kviknaðl í út
frá sígarettu
Siðustu fréttir af brunanum i
skýjakiúfnum I Manhattan
herma, að eldurinn hafi kviknað
út frá sigarettuglóð. ,
Eins og sagt er annars staöar á
siðunni veiktust á sjötta tug
slökkviliðsmanna af reykeitrun
en um 200 slökkviiiðsmenn tóku
þátt I að slökkva eldinn.
Gerði allt vlttaust
í tiiótabátnum '
Drukkinn, þýskur sjómaöur,
gekk berserksgang á fljótabát og
sigldi bátnum sem brjálaður væri
um sex kllómetra langa leið eftir
skurðum V-Berlinar, áöur en lög-
regla náði að stökkva um borð I
bátinn og stöðva manninn.
Lögregluþjónar sáu bátinn rek-
ast utan I tvær brýr, sigla á
nokkra báta og rekast stöðugt ut-
an I skuröbakkana.
Lögreglan sagöi, að hinn 28 ára
gamli sjómaður hafi tekiö bátinn
eftir mikla drykkju, og hafi hann
áður skýrt skipstjóranum frá þvi,
að hann ætlaöi að sigia niður að
Rinarfljóti til hafnar, nálægt
heimkynnum hans.
Gullverð hækkar
skyndllega
Gullverð hækkaði um lSdoilara
I New York i gær og þegar verð-
bréfamarkaöir voru lokaðir, var
gullverðið 10 dollurum hærra I
New York en i London.
Gullúnsan komst upp I 616,50 og
gátu menn ekki skýrt þessa
snöggu veröhækkun. Töldu sum-
ir, að arabiskir oliukóngar væru
að taka guli sitt út úr vestrænum
bönkum.
Skiptu peningum
bankans á mim
íbúa borpslns
Vinstri sinnaðir skæruiiðar
tóku kolumbiskt þorp á sitt vald
og héldu þvi I tvo tima I gær. Þeir
drápu einn lögregluþjón og tóku
alla peninga ur bönkum þorpsins
og dreifðu þeim á milli þorpsbú-
anna.
18 félagar i M-19 hópnum, þeim
sama og tók Dóminikanska sendi-
ráðið i Bógóta i febrúar og hélt
þvi I tvo mánuöi, komu til
ICONONZO SEM ER UM 250
kflómetra frá höfuðborginni, i
tveimur strætisvögnum i gær.
Þeir hófu skothrið á lögregluliö
bæjarins, drápu einn lögreglu-
þjón og særðu þrjá alvarlega.
Aður en þeir hurfu á braut aftur,
tóku þeir 65 þúsund dollara úr
tveimur bönkum þorpsins og
dreifðu þeim á milli Ibúanna.