Vísir - 25.06.1980, Blaðsíða 23

Vísir - 25.06.1980, Blaðsíða 23
23 vtsm Miövikudagur 25. júnl 1980. Umsjdn: Kristin Þorsteinsdóttir, Sjöundi þáttur myndaflokksins norska ,, Milli vita,, er á dagskrá sjónvarpsins i kvöld kl. 21.15. A mynd inni sjást skötuhjúin Karl Martin og Mai. ÚTVARP KL. 22.50: LJðÐ DAVÍÐS FRÁ FAGRASKÚGI 1 útvarpinu i kvöld er þáttur, sem nefnist „Hátiöarljóð 1930.” Þar veröur flutt kantata fyrir blandaöan kór, karlakór, ein- söngvara, framsögn og hljóm- sveit eftir Emil Thoroddsen við ljóö Daviös Stefánssonar frá Fagraskógi. óratoriukórinn, karlakórinn Fóstbræður, Elisabet Erlingsdóttir, Magnús Jónsson, Kristinn Hallsson, Óskar Halldórsson og Sinfóniuhljóm- sveit Islands flytja, Ragnar Björnsson stjórnar. Davið fæddist og ólst upp aö Fagraskógi viö Eyjafjörö og undi sér hvergi betur en á þeim slóð- um. Fyrstu ljóö hans birtust i timaritum 1916, en þremur árum siöar komu út „Svartar fjaörir” og vakti bókin meiri athygli með- al þjóðarinnar en titt er um ljóöa- bækur. Upp frá þvi varö Daviö eitt ástsælasta skáld þjóðarinnar. En þótt ljóðin ættu sterkust itök i honum spreytti hann sig einnig á leikritum, „Munkarnir á Möðru- völlum” og „Gullna hliöiö,” og skáldsagnaritun, „Sólon Islandus.” Daviö Stefánsson andaöist 69 ára gamall áriö 1964 og haföi þá verið einn helsti jöfur islenskrar ljóðlistarum háifrar aldar skeiö. Við andlát Daviös skrifaöi Halldór Laxness m.a.: „Daviö Stefánsson liföi i þeirri ljóölist, sem var eins og töluð út úr hjarta þjóðarinnar á enn einum morgni þjóðarævinnar: og heldur áfram að lifa þar.” — K.Þ. Daviö Stefánsson, þjóöskáldiö ástsæla frá Fagraskógi. utvarp Miðvikudagur 25. júni. 7.00 Veöurfregnir. Fréttir. 7.10 Leikfimi. 7.20 Bæn Tónleikar. Þulur velur og kynnir. 8.00 Fréttir. Tónleikar. 9.05 Morgunstund barnanna: „Frásagnir af hvutta og kisu” eftir Josef Capek. Hallfreöur örn Eiriksson þýddi. Guörún Asmunds- ddttir les (6) . 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. 10.00 Fréttir. 10.10 Veður- fréttir. 10.25 Frá tónleikum Drengjakórs Dómkirkj- unnar I Gautaborg i Há- teigskirkju I júnimánuði i fyrra. Organleikari: Eric Persson, Birgitta Persson stj. 11.00 Morguntónleikar 12.00 Dagskrá. Tónieikar. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veöur- fregnir. Tilkynningar.Tónleika- syrpa Tónlist úr ýmsum áttum, þ.á m. léttklassisk. 14.30 Miödegissagan: „Söngur hafsins" eftir A. H. Rasmussen. Guömundur Jakobsson þýddi. Valgeröur Bára Guömundsdóttir les(7). 15.00 Popp. Dóra Jónsdóttir kynnir. 15.50 Tilkynningar. 16.00 Fréttir. Tónleikar. 16.15 Veöurfregnir. 16.20 Siðdegistónleikar. 17.20 Litli barnatfm- inn. Stjórn: Oddfriður Steinddrsdóttir, leggur leiö sína i skdlagaröa Hafnar- fjaröar. 17.40 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.35 Einsöngur i útvarpssai: 20.00 „Sök bftur sekan”. smásaga eftir Vincent Starrett.Asmundur Jónsson þýddi. Þórunn Magnea Magnúsdóttir leikkona les. 20.25 „Misræmur”. Tónlistar- þáttur I umsjá Astráös Haraldssonar og Þorvarös Arnasonar. 21.05 „Mjór er mikiis vfsir” 21.30 Kórsöngur: Kór Mennta- skólans viö Hamrahlfö syngur Islensk þjóölög og alþýöulög. Söngstjóri: Þorgeröur Ingólfsdóttir. 21.45 Utvarpssagan: „Fugla- fit” eftir Kurt Vonnegut. Hlynur Arnason þýddi. Anna Guömundsdóttir les (11). 22.15 Veöurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. 22.35 „öxar viö ána”. Arnar Jónsson leikari ies kvæöi tengd Þingvöllum og sjálfstæöisbaráttunni. 22.50 „Hátiöarljóö 1930”. Kantata fyrir blandaöan kór, karlakór, einsöngvara, framsögn og hljómsveit eftir Emil Thoroddsen viö ljóö Daviös Stefánssonar frá Fa graskógi. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. sjónvarp Miðvikudagur 25. júni 1980. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsi ngar og dagskrá. 20.35 Kalevala. Mynd- skreyttar sögur úr Kale- vala-þjóökvæöunum finnsku. Annar þáttur. Þýö- andi Kristin Mantyla. Sögu- maöur Jón Gunnarsson. ( Nordvision — Finnska sjón- vaipiö). 20.45 Nýjasta tækni og visindi. Kynntar verða nýjungar I byggingriðnaði og rætt við Sturlu Einarsson og Öttar Halldórsson. Umsjónar- mabur örnólfur Thorlacius. 21.15 Millivita.Sjöundi þáttur. Þýðandi Jón Gunnarsson. (Nordvision — Norska sjónvarpið). 22.25 Fiskur á færi. Kvikmynd, gerö á vegum Sjónvarpsins, um laxveiöar og veiöiár á Islandi. Um- sjónarmaöur Magnús Bjarnfreösson. Aöur sýnd 16. september 1973. 22.55 Dagskráriok. SJAVAROTVEGUR Afl ST0BVAST Furöulegt ástand rikir nú I is- lenskum sjávarútvegi, sem enn er meginstoö efnahagslifs hér á landi. Þetta ástand hlýtur aö vekja á ný margar spurningar um grundvöll efnahags okkar og nauösyn aukinnar fjölbreytni I atvinnulif inu. Vandi frystiiönaöarins I land- inu er vafalaust margþættur eins og venjulega. Sú allt aö 10% gengisfelling, sem rikisstjórnin og Seðlabankinn hafa ákveöiö vegna fiskverðshækkunarinnar, gerir litiö meira en aö mæta kostnaðarauka þessarar at- vinnugreinar vegna hækkana innanlands aö undanförnu, og reyndar er óvist á hve löngum tima seinni hluti þessarar gengisfellingar, þ.e. 6% kemur til framkvæmda. Til viöbótar býr frysti- iönaöurinn nú viö söiutregöu á helsta markaössvæöi okkar vestan hafs, og birgöir hlaöast upp í frystigeymslum um allt landið. Þaö er dýrt aö geyma miklar birgðir, og skuldasöfnun frystihúsanna hefur þvi oröiö mikil, enda vextir ekki skornir viö nögl. Vart veröur sagt aö rikis- stjórnin hafi Tlýtt sér sérstak- lega mikiö viö aö leysa úr þess- um vanda, og I reynd er ákvörö- unin um gengisfellinguna, eöa gengissigiö, eina aögeröin, sem tekin hefur veriö ákvöröun um. Aöra þætti máisins var ákveöiö I rikisstjórninni að setja í athug- un, og má búast viö aö þaö taki tlmann sinn aö fá eitthvaö raun- hæftútúrþeirri athugun, m.a. á* nýjum mörkuöum. Frystihúsin sjálf virðast vera aö vinna sér frest meö þvi aö senda starfsfólk sitt heim i sumarleyfi á svipuöum tima. Stefnir allt i aö næsta mánuö veröi Htiö sem ekkert unniö I flestum frystihúsum iandsins af þessum sökum. Þá er ljóst, aö aðgeröir rikis- stjórnarinnar til aö takmarka ásókn I fiskstofnana munu leiöa til þess, aö t.d. togaraflotinn veröi meira og minna frá veiö- um i sumar. Þannig blasir sú staöa viö 1 þessum undirstööuatvinnuvegi okkar, aö hann veröur meira og minna óvirkur stóran hiuta sumars. Þau vandamál, sem reynt hefur aö leysa i sjávarútvegi ui.Janfarin ár og sumir hafa availt sagt tima- bundin, eru I reynd óleyst og varanleg, og aukast reyndar frekar en minnka. Þetta dregur auövitaö ekki úr þeirri staöreynd, aö sjávarút- vegurinn er enn grundvallarat- vinnuvegur þjóöarinnar, en itrekar hins vegar nauðsyn þess, aö nú veröi sem fyrst komiö fleiri stoöum undir okkar atvinnulif. Þaö er ekki lengur fært fyrir tslendinga aö treysta i jafn rikum mæli á þessa einu og óstööugu atvinnugrein og verið hefur til þessa. Margoft hefur veriö bent á þá staöreynd, aö viö eigum hér margar auðlindir aörar en fisk- inn I sjónum, og þær auðlindir eru vannýttar en ekki ofnýttar eins og giskstofnarnir. Þarna má alveg sérstaklega taka til vatnsorkuna I fossum landsins og gufuorkuna I iðrum jaröar. Þessi orka er mjög vannýtt, og er það ekki vansalaust fvrir okkur, hversu lengi ruglaöir labbakútar hafa meö (ilbúnum röksemdum barist gegn nvtingu þessara mikilvægu orkuiinda og eflingu iönrekstrar i tengslum við þær. Þessir hópar hafa beitt öllum tiltækum ráöum til þess aö koma I veg fyrir stóriöju i tengslum viö beislun þessarar orku, og leitað þar fáránlegustu raka. Skemmst er aö minnast þess, þegar mótmælagrúpp- urnar notuöu fullyröingar um mikia mengunarhættu frá málmblendiverksmiöju I Hval- firöi sem meginröksemd gegn þvl aö reisa þá verksmiöju. Nú hefur auövitaö komið I Ijós aö 'þessi mengunarhætta er engin og þvi aöeins tilbúin. röksemd. isiendingar veröa aö taka sig á i þessum efnum ef ekki á aö fara illa um efnahagsiegt sjálf- stæöi okkar og velmegun. Þaö þarf aö gera stórhuga áætlun um virkjun fallvatnanna og uppbyggingu stóriðjufyrirtækja I tengsium viö þær virkjunar- framkvæmdir. Þessum áætl- unum þarf siöan aö koma I framkvæmd á næstu árum. Þannig ætti okkur aö takast aö skjóta fleiri stoöum undir at- vinnulifiöá þessum áratug, svo slfeildar sveifiur I fiskveiöum og á fiskmörkuöum haldi ekki áfram framtiðarvelmegun okkar I stööugri óvissu. Svarthöföi.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.