Vísir - 04.07.1980, Side 1

Vísir - 04.07.1980, Side 1
Það var jafngott að hafa regnhlifarnar á lofti i höfuðborginni f gær, þvf hellirigning var mestan hluta dagsins. Útlitið er hins vegar nokkru skárra í dag. Visismynd: JA BSRB með gagntilboð á mánudaginn: Minnsta kaup- hækkun verðl 12.000 krðnur Gagntilboð til rikisins frá samninganefnd BSEB mun væntanlega liggja fyrir á mánu- dag að sögn Kristjáns Thorla- cius formanns BSRB f morgun. Samninganefndin var á fundi langt fram eftir kvöldi i gær og ákvað þar að næsta stig við- ræðnanna yrði gagntilboð af hálfu samtakanna, þar sem lögð yrði áhersla á tiltekin megin- atriði. Samkvæmt áreiðan- legum heimildum VIsis eru þessi „tilteknu meginatriði” m.a. þau að fjármálaráðherra tvöfaldi eða þrefaldi sitt grunn- kaupstilboð þannig að lág- marksgrunnkaupshækkun yrði 12.000 krónur uppi 15. launa- flokk. Onnur skilyrði sem BSRB setur fram ef ganga eigi til samninga, erum.a. þauað fólk fari hraðar gegnum neðstu launaflokkana en nú er, timinn til persónuupp- bótar yrði styttur verulega, en hann er nú tiu ár, yfirvinnu- stuðullinn hækki úr 1% i 1,06% þak yrði ekki á visitölubótum, tryggt yröi að BSRB fólk og þeir sem væru I sambærilegum flokkum hjá BHM hefðu ekki lakari kjör og möguleiki á starfslokum við sextiu ára aldur yrði tryggður. Kristján Thorlacius kvaðst gera ráð fyrir að sjö-manna- nefndin, sem kosin var á fundin- um i gær til að gera tillögu um gagntilboö, myndi vinna um helgina og afhenda tillögurnar aðalsamninganefndinni á fundi hennar klukkan fjögur á mánu- dag. Skiptar skoðanir hafa komið fram hjá aðildarfélögum BSRB um þær óformlegu tilslakanir sem „gefnar hafa veriö i skyn” af rikisins hálfu. Kristján sagði að þó væri hægt aö fullyrða að tilslakanirnar gengu almennt of skammt og enginn hefði veriö tilbúinn aðganga til samninga á þeim grundvelli. — Gsal Söguleg kosning flSi i Húsnæðismáiastjórn: Kaus Bnar Ogmundsson Jón en ekkl Benedlkt? ögmundsson, en I morgun neitaði .„harma að Benedikt náði ekki hann þvi alfariö og sagðist kjöri”. —P.M. Viija ekki viöurkenna ónotaiega staðreynd „Fiskurinn okkar er orðinn of dýr og dví ekkl samkeppnlshæfur’’ seglr Magnús Bjarnlreðsson I Víslsgreín A fundi miöstjórnar Alþýöu- sambands Islands I gær voru kosnir tveir fulltrúar I stjórn Hús- næðismálastofnunar rikisins og féllu báðir alþýðubandalags- menninrnir sem geröar voru til- lögur um. Snorri Jónsson, forseti A.S.I., gerði tillögu um þá Björn Þór- hallsson og Benedikt Daviðsson i samræmi við þegjandi samkomu- lag samstarfsaöila I rikisstjórn er Visir hefur greint frá áður. Karvel Pálmason stakk þá upp á Jóni Helgasyni og Guðjóni Jóns- syni. 1 leynilegri atkvæðagreiðslu hlaut Bjöm Þórhallsson 10 at- kvæði og Jón Helgason 8 og náðu þeir þar með kjöri. Benedikt Daviðsson hlaut 7 atkvæði og Guðjón Jónsson 5. Ljóst er þvi að einn alþýöu- bandalagsmaður hefur greitt Jóni Helgasyni atkvæöi sitt og þar með komiö I veg fyrir að Benedikt Davlðsson næði kjöri. Samkvæmt áreiöanlegum heimildum blaðs- ins var hér um að ræða Einar „Fiskurinn okkar er orðinn of dýr til aö standast samkeppni viö önnur matvæli. Framleiðslu- kostnaðurinn er orðinn allt of mikill til þess aö fiskurinn sé samkeppnishæfur, ekki aðeins viö annan fisk heldur lika aðrar fæðutegundir.” Þetta segir Magnús Bjarn- freðsson i grein i VIsi i dag og seg- ir hann þetta vera ónotalega staðreynd, sem viö stöndum nú frammi fyrir. Magnús segir að þeir, sem best þekki til, hafi ekki viljað viður- kenna staðreyndir fisksölumál- anna, og reynt sé að viðhalda blekkingunni um að allt sé I lagi og öll vandamál timabundin, rétt eins og gert hafi verið I land- búnaöinum til skamms tima. Grein Magnúsar er á blaðsiðu 9 i dag en hann mun á næstunni skrifa vikulegar greinar fyrir VIsi um ýmsa þætti þjóðmála og er fyrirhugaö að þær birtist i blaðinu á fimmtudögum. Agnar fékk undanpáguna - án hess að tilskilin vottorð Rannsóknarstolnunar liskiðnaðarins kæmu til Viðskiptaráðuneytið veitti I gær útflutningsleyfi á sildar- farmi sem legiö hefur i marga mánuði á hafnarbakkanum I Kaupmannahöfn vegna þess að leyfið var ekki fyrir hendi. Sildarfarmur þessi er i eigu Agnars Samúelssonar og var hann sendur utan án tilskilinna vottoröa frá Rannsóknarstofnun fiskiönaðarins „fyrir misskiln- ing” eins og Agnar orðaði það i samtali við VIsi. Rannsóknar- stofnunin taldi sig ekki geta veitt þetta tilskilda vottorð þvi hún hefði aldrei fengið sýni til rannsóknar á sfldinni og sagði Björn Dagbjartsson forstööu- maöur að þessi undanþága frá reglugeröum um útflutning á lagmeti gæti „dregið dilk á eftir sér!” Undanþágan var veitt i ljósi þess að dönsk rannsóknarstofn- un hafði gefiö grænt ljós á þennan sildarfarm, enda þótt nú sé liöið hartnær ár slðan það var lagt niöur. Hérlendis er slikt niöurlagt lagmeti dagstimplað og er miöað við að það sé haft á boöstólum i sex mánuði. Það vekur athygli i þessu máli að leyfiö var veitt I gsrmorgun en siðdegis daginn áður hafði deildarstjórinn i viðskiptaráðu- neytinu sem hafði með þetta mál að gera sagt I samtali við Visi, að ákvörðun i þessu máli yröi „sjálfsagt tekin einhvern timann.” Sjá bls. 23. -HR

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.