Vísir - 04.07.1980, Blaðsíða 2

Vísir - 04.07.1980, Blaðsíða 2
Hvert telurðii vera mesta vandamál þjóðarinnar i dag? Erlendir laikamólar árvlssir gestlr hér Hjörvar ó. Jensson — bankainað- ur: ,,Ætli það sé ekki þessi eilifa verðbólga og ráðaleysi stjórn- málamannanna”. Páll Ingólfsson — Orkustofnun: ,,Ég held það sé að menn verða að gera sér grein fyrir að stilla verð- ur kröfunum i hóf”. Ólafur Jónsson —bilstjóri: „Þaö veit ég ekki”. Steinn Einarsson — rafvirki: „Dýrtiö og verðbólga”. Friðrik ólafsson — „Það eru efnahagsmálin”. Fálkaþjófar virðast vera orðnir árlegir gestir hér á íslandi. Samhent átak lögreglu og almennings hefur þó orðið til þess að ýmsir hafa verið gómaðir og sendir snauðir af tækj- um, eggjum og fálkum úr landi eins og dæmið nú um helgina sannar. Ætlaði að kenna íslend- ingum Fyrsta málið, sem Ævar Petersen, kannaðist við var þegar alræmdur fálkaþjófur kom hingað til lands fyrir um 15 árum — eftir að hafa veríð með fjálglegar yfirlýsingar erlendis um að hann ætlaði að sýna ís- lendingum hvernig mætti temja fálka. Það siðasta sem fréttist af honum, var að hann starfaði sem fálkatamningamaöur I Saudi-Arabfu. Þekktasti fálkaþjófur Evrópu mætir til leiks. Menn rekur eflaust minni til Þjóöverja aö nafni Konrad Chicielski, sem komst mjög veglega i íslensk dagblöð i júnl 1978. Hér er um að ræða al- ræmdan mann I iðninni, sem hlotið hefur dóma vlða um heim fyrir fuglaþjófnað,m.a. á Itallu. Hann er að veröa þjóðsagna- persóna hjá fálkaáhugamönn- um, þvl mjög erfitt hefur verið að sanna á hann ýmis mál, sem þó hefur þótt augljóst að hann stæði á bak við. Tekinn i Keflavik Arið 1976fundust 5 fálkaungar I handtösku á salerni á Kefla- vlkurflugvelli. Nýtt vopna- leitartæki var einmitt I prófun þennan dag, og er taliö að þjóf- urinn hafi ekki vogaö sér með ungana framhjá tækinu. Við athugun á farþegalista flugvéla sem héldu frá Keflavlk þennan dag, kom nafn Chicielskis I ljós, og fylgdi þvl sii skýring frá erlendum náttúrufræöisamtök- um, að þetta væri örugglega maðurinn, og væri hann þekktur fyrir slfkt athæfi viöa um heim. Ekkert var hægt að sanna á hann. Aftur á kreiki 1977 kom Chicielski hingaö til lands með Smyrli, en mjög lltið er vitað um feröir hans þá. Það þarf hins vegar ekki aö vera að þessir fagmenn hreppi sjálfir ungana, þeir kynna sér allar að- stæöur, en senda siöan aöra til þess aö vinna verkið. 1978 voru íslendingar viðbúnir komu Chicielskis og fylgdust nú með ferðum hans. 4. júnl lét lög- reglan til skarar skrlða og stöðvaði Þjóöverjann, þar sem hann ók í bifreið sinni áleiöis til Mosfellssveitar. í búnaöi hans fundust langvluegg, veiöibún- aöur, sigbúnaður og vél til þess að halda eggjum heitum. Faðir og sonur 1 yfirheyrslum kom berlega fram að Chicielski laug þvert ofan I þær skýrslur sem lögregl- an hafði gert um ferðir hans, og sagðist t.d, aldrei á ævinni hafa séö fálka. Þjóðverjanum var visað úr landi eftir aö málsatvik höfðu veriö rannsökuð. Þyngst I málinu vóg tækjabúnaður Þjóð- verjans og svo það að marg oft haföi verið fylgst með honum fara rakleiðis að fálkastöðum. Konrad var synjað um ferða- leyfi til Islands til ársins 1980. Sonur hans, sem var með hon- um I síðustu ferö, hafði þó ný- lega samband viö útlendinga- eftirlitið til að kynna sér hvernig mál þeirra stæðu. Vist má telja að starfsmenn útlend- ingaeftirlitsins hafi ekki veriö of mjúkmálir um endurkomu höfðingja fálkaþjófanna til Is- lands. En þetta ár hefur ekki farið varhluta af fálkaþjófum þó Chicielski fái ekki ferðaleyfi. Austurríkismennirnir sem sendir voru úr landi á mánudag, eftir að hafa játað á sig þjófnað á 4 fálkaungum og 5 smyrils- ungum, eru aöeins hluti þess hóps sem hefur atvinnu af sllku athæfi. Ac Sumarið ’80 um landið Hljómsveit Stefáns P. ásamt þeim Grétari Hjaltasyni eftir- hermu og Baldri Brjánssyni töframanni eru nú að hefja yfir- reiö um landiö meö skemmtana- og dansleikjahaldi undir nafn- inu „Sumar ’80”. Hópurinn mun byrja á Hvoli n.k. laugardagskvöld og sföan veröur farið hringinn I kringum landiö og endað á Kirkjubæjar- klaustri um verslunarmanna- helgina. Aö sögn Stefáns P. er hér um aö ræöa hressilega skemmtun með tilheyrandi dansleik og má geta þess að bæði Grétar og Baldur eru meö nýtt efni, sem ekki hefur áður veriö flutt á skemmtunum hér. Auk Stefáns P. sem leikur á gitar og hljóm- borð skipa hljómsveitina þeir Sigurður Björgvinsson bassa- leikari og Skúli Einarsson sem leikur á trommur. —Sv.G.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.