Vísir - 04.07.1980, Blaðsíða 13
I
VISIR Föstudagur
r-—-
4. júll 1980.
PUNKTUR.PUNKTUR”
KOMINN Á SKRIÐ
KvikmyndataKa hefst 13. júlí - Áætlaður Kostnaður um 100 milliónir
SNú er búið að finna stráka i
hlutverk Andra 1 Punktur,
_ punktur, komma.strik, skáld-
| sögu Péturs Gunnarssonar, sem
_ á að kvikmynda i sumar. Andra
| 10 ára leikur Pétur Jónsson,
b strákur úr Breiðholtinu sem
| fannst á Lækjatorgi 17. júni og
m Andra 15 ára leikur Hallur
I Helgason úr Hafnarfirði. Hallur
■ lék i kvikmyndinni Veiðiferð, og
■ er þvi ekki alls ókunnugur um
■ starfið.
Andrarnir voru kynntir blaða-
I mönnum á fundi i gær, sem og
I foreldrar Andra, en þeir verða
I leiknir af Erlingi Gislas. og
1 Kristbjörgu Kjeld. Valdemar
I Helgason og Aróra Halldórs-
dóttir leika afa og ömmu og
aðrir leikarar i myndinni verða
m.a. Bjarni Steingrimsson,
Halla Guðmundsdóttir, Karl
Guðmundsson, Stefán frá
Möðrudal, Asi i Bæ o.fl. Enn
vantar þó fólk einkum á aldrin-
um 30-80 ára, og geta þeir, sem
hafa áhuga, gefið sig fram við
skrifstofuna i Hagaskólanum.
Gert er ráð fyrir að um 300
manns komi fram i myndinni,
þ.á.m. mikill fjöldi barna og
unglinga.
Umsjón með leikmynd hafa
þau Björn Björnsson og Friður
ólafsdóttir, sem hannar bún-
inga. Þau sögðu viðbrögð alls
almennins hafa verið með ein-
dæmum góðviljuð, þegar aug-
lýst var eftir fötum, hlutum og
öðru, sem nauðsynlegt er til að
gefa kvikmyndinni rétta um-
gjörð, en hún gerist á árunum
1955-1962. Sem dæmi um greið-
viknina nefndi Björn, að þegar
ibúð með timaréttum innbúnaði
hefði fundist, hefðu ibúarnir
boðist til að flytja út á meðan á
myndatökunni stæði og einfald-
lega afhent Punkts-fólki lykla-
völdin! ,,En okkur vantar enn
þá ýmislegt” sagði Björn,
„smáhluti eins og t.d. sængur-
fatnað, buddur, gleraugu, tima-
rit o.fl.” Friður bætti við að það
helsta sem enn vantaði af
fatnaði, væru barnaföt, ,, og
Mamma, pabbi, Andri og Andri.
Kristbjörg, Erlingur, Pétur og Hallur.
ekki spariföt, heldur hversdags-
föt, skó og stigvél”. Báðu þau
blaðamenn fyrir skilaboð til les-
enda þess efnis, að athuga nú
vel hvað leyndist af öllu mögu-
legu frá árunum 1947, 1958 og
1963og láta vita i s. 16717, ef það
óskaði að lána það á meðan á
kvikmyndatöku stendur. „Og
við skilum öllu aftur i sama
ásigkomulagi og það var.”
Leikstjóri kvikmyndarinnar
er Þorsteinn Jónsson. Hann
gerði einnig handrit i samvinnu
við Pétur Gunnarsson.
Þorsteinn hlaut i vetur styrk úr
Kvikmyndasjóði til að gera
þessa mynd. Sá styrkur mun þó
aðeins kosta myndina að sem
nemur einum tiunda hluta, en
áætlaður kostnaöur er imi 100
milljónir.
Aðstoðarleikstjóri er Þór-
hallur Sigurðsson, kvikmynda-
töku annast Sigurður Sverrir
Pálsson og Finninn Mikael
Sievers sér um hljóðupptöku.
Taka myndarinnar mun hefjast
13. júli og fer að miklu leyti
fram á heimaslóðum Andra, i
Vesturbænum. Ibúðin, sem I
myndinni veröur heimili Andra
og fjölskyldu hans, er við Selja-
veg. Þ.e.a.s. að innan, heimilið
að utan verður aftur á móti hús
við Framnesveg. Það verður
ekki siður erfitt að skapa réttu
umgjörðina i útisenunum, t.d.
var enn vinstri umferð i landinu
á sögutimanum og hefur m.a.
orðið að finna strætisvagn með
stýri réttu megin til að koma
fram i myndinni.
önnur útiatriði verða tekin
upp viða I Reykjavik, á Suður-
nesjum og sveitaatriði verður
tekið að Indriðastöðum i
Skorradal.
Framleiðandi myndarinnar
er Óðinn h.f., hlutafélag stofnað
af aðstandendum myndarinnar.
Framkvæmdastjóri er órnólfur
Arnason. Bækistöð Óðins h.f. er
i Hagaskóla.
Kvikmyndatakan hefst 13. júli
og stendur til 24 ágúst. Lengd
myndarinnar verður um 90 min.
og gert er ráð fyrir að frumsýn-
ingin verði 1. mars 1981.
1w;/.vv.v.v.v.v.v.v.,.,.v.v.w.v.,.v.w.v.v.v.v.,,v1
NÝTT íBÍLAVIÐSKIPTUM
I Opið frá
S>í.;■?:<>
'
Vegna mikillar sö/u
vantar okkur bila
i sýningarsal okkar
að Borgartúni 24
Bílasala
T ómasar
Borgartúni 24 — Sími 28255
l
I