Vísir - 09.07.1980, Síða 9

Vísir - 09.07.1980, Síða 9
Þegar ég lit yfir Visi, sem er oftast nær, þá er einungis ein hálfsiða sem ég les ávallt og það er grein Svarthöfða, enda eru þessar grein- ar fjölbreytilegar að efni og yfirleitt hressi- legar. Ef ekkert hefur farið fram hjá mér, þá er þetta i annað sinn sem höfundur heiðrar út- flytjendur frystra sjávarafurða með skrifum sinum. í fyrra skiptið fjallaði greinin um markaðsmál, með sér- stöku tilliti til Rúss- landsviðskipta og þá með þeim hætti, að neöanmóls Eyjólfur fsfeld Eyjólfsson, framkv.stj. Sölumióstöövar hraðfrystihúsanna fjallar um markaösmál og sölu fiskafuröa I tilefni af Svarthöföagrein um sama efni I slðustu viku. ekki mátti kyrrt liggja, enda hafa þau viðskipti nýlega sannað gildi sitt á mjög áþreifanlegan hátt. Markaðsvandamál Svarthöföi hneykslast mjög á hreinskilnum ummælum manns, sem hefur starfaö aö sölumálum bæöi i Evrópu og Bandarikjunum I fjölda ára og sem I stuttu blaöaviðtali hljóta að standa litt rökstudd, en eru þó jafn sönn eigi aö slður. Þaö er afar ósennilegt aö viö finnum nú nýja og áöur óþekkta markaöi fyrir frystan fisk héöan, a.m.k. I þeirri merkingu sem viröist lögö i þessi hugtök. Hinsvegar eru til bæöi þekktir og líklegir markaðir, sem viö höfum ekki nýtt nema aö litlu leyti til þessa, þar sem viö höf- um hingaö til I meginatriöum fleytt rjómann meö því aö beina framleiðslunni á þær brautir sem hafa gefiö hæst verö, enda verölagsþróun hér á landi krafist þess. (Þessi velgengni hefur m.a. leitt til þess aö sam- keppnisaöstaöa annarra út- flutningsgreina i iönaöi hefur veriö stórlega rýrö, þannig aö oröiö hefur að bæta hag þeirra meö ýmsum „aögeröum”). Þetta er verulegur hluti af þeim vanda sem frystihúsin standa frammi fyrir, þar sem þau þurfa nú aö taka upp fram- leiöslu á vörum sem gefa allt aö 30% lægra verö en þau hafa notið, enda enginn varasjóöur I núll-gráöu afkomu til aö mæta slíku. 1 þessum vanda frystihús- anna skortir okkur ekki „sér- fræöinga” til aö benda á „patentlausnir”. Þær eru allt of margar til að þeim veröi gerö skil hér, eins og t.d. aukinni nýtingu og er þá bæöi átt viö aukna nýtingu hráefnisins og aukiö framleiðslumagn I frysti- húsunum. Hér verður látiö nægja aö staldra einungis viö þrjár kenningar þ.e. fiskskorts- kenninguna, smásölukenning- una og V-Evrópukenninguna. Fiskfjall Svarthöfði hefur greinilega gert sér grein fyrir aö hér er ekki fyrst og fremst um geymsluvandamál aöræðaensú skilgreining var furöu llfseig til að byrja meö. Heldur sé hér um aö ræöa fjall sem þarf aö losna viö. Minnir þetta óþægilega á önnur fjöll, eins og lambakjöts- ,smjör- og ostafjöll, sem eru þó ekki annaö en þúfnakollar samanboriö viö fjöll af svipuðu tagi I löndum Efnahagsbanda- lagsins. Hér höfumst viö þó ólíkt aö, þvi þegar Efnahagsbandalagiö lækkar sin fjöll meö þvl aö selja á „hagstæöu veröi” til Rúss- lands, þá reynum við þó aö láta frændur okkar njóta góös af. Svarthöföi er greinilega mann- vinur, því aö hann vill að viö lát- um FAO-þjóöir, þ.e. hungraöar þjóöir þriðja heimsins njóta góös af ríkidæmi okkar. Þessi ágæta stofnun hefur unnið ómetanlegt starf viö aö þróa atvinnuvegi vanþróaöra þjóöa og þá sérstaklega I landbúnaöi og sjávarútvegi. Mér er ekki kunnugt hvort viö höfum lagt fjármagn af mörkum, en hins- vegar veit ég aö viö höfum stutt þetta starf meö þvl aö nokkrir islendingar hafa starfaö á veg- um þessarar stofnunar og þá sérstaklega viö leiöbeiningar- störf I sjávarútvegi, enda eiga margar þessara þjóöa góö fiski- miö, ef þær kynnu eöa heföu fjármagn til aö nýta þau náttúrugæöi. I stuttu máli sagt þá hef ég enga trú á að þær þjóöir sem hafa kaupgetu til aö neyta jafn- dýrs matar og frystur fiskur er, þurfi aö hræöast skort I þeim efnum I fyrirsjáanlegri framtiö. Samanburður við Færeyinga Um smásöluverslana kenn- inguna þarf ekki aö fara mörg- um oröum. Viö höfum margra ára reynslu á þessu sviöi, þar sem einhver hluti fram- leiðslunnar, en þó minnkandi, hefur veriö unninn fyrir þennan markaö. Er þar skemmst frá aö segja aöþessi framleiösla skilar um 10% til 20% lægra veröi, ef tekið er tillit til hærri fram- leiðslukostnaðar, en sá markaöur sem viö höfum aöallega lagt áherslu á. A þess- um markaði hefur einnig orðið samdráttur undanfariö. V-Evrópukenningin er einna eftirtektaveröust, enda hefur hún nýlega fengið byr undir báöa vængi vegna ummæla sjávarútvegsráöherra úr Færeyjaför. Til aö fyrirbyggja allan mis- skilning, þá hef ég slöur en svo á móti þvl aö viö séum bornir saman viö Færeyinga, þvl ég tel aö þeir hafi haldiö vel á sinum málum í útflutningsverslun sjávarafuröa. I þvl sambandi viröist óþarfi aö láta þess ógetiö aö skipulag þeirra I þeim mál- um er meö talsvert öörum hætti en hér, þar sem segja má að eitt fyrirtæki hafi með höndum út- flutning megin hlutans af öllum þeirra sjávarafla, en. sllkt er algerlega andstætt Islenskum hugsunarhætti. Hér er ekki taliö nægilegt aö tvö algerlega óskyld fyrirtæki hafi með höndum út- flutning frystra afuröa einna. Þvert ámóti þá hefur þaö verið stefna við6kiptaráöherra hér svo lengi sem ég man „aö þeir heföu bara gott af að hafa hit- ann I haldinu”. íslendingurinn getur allt” Þetta fyrirkomulag gefur ekki aöeins fjárhagslegan styrkleika fyrir fámenna þjóð heldur einnig meira vald og tækifæri til stefnumótunar, en samkeppnis- aðstæöurleyfa hér á landi. I þvl efni nægir aö benda á aö nýtt átak I markaösstarfssemi (ég kýs þetta hugtak fremur en sölumennsku) krefst oftast nær fórna I byrjun og þótt Færey- ingar hafi einhverntima meint þaö, þegar þeir sögöu „islendingurinn getur allt” þá eru þeir sjálfsagt aö grinast nú nema þeir séu hættir aö nota þetta oröatiltæki, sem er trú- legra. Viö höfum lengi þurft aö strlöa viö samanburö I hráefnis- verös-og kaupgjaldsmálum, en þaö viröist aö baki I bili, þótt ég hafi hinsvegar hvergi séö þess getiö aö þeir njóta sem svarar 20% styrks til slns sjávarútvegs frá Dönum. Siöan voru þaö frystihúsin sem þar voru mjög fullkomin, en næsta vanþróuö hér á landi, sem ég hygg aö hafi veriö umdeilanleg fullyröing, þrátt fyrir fjárhagslegt svelti frystihúsanna hér. Færeyingar hafa unniö aö markaösstörfum i Bretlandi I fjölda ára, þótt þaö sé fyrst nýlega sem verulegur skriöur hefur komist á þau mál meö byggingu nýrrar verk- smiöju og frystigeymslu. Þeir hafa heldur ekki átt I neinum útistööum viö Breta I slnum landhelgismálum. Patentlausnir Þar sem mér virðist gæta nokkurs misskilnings I umræö- um um sölur til V-Evrópu, sem sennilega stafar af þvi aö sölu- mál eru þar meö nokkrum öörum hætti en i USA, þá er vart annað marktækara til upplýs- inga, en aö birta útflutnings- tölur S.H. fyrir áriö 1979. Fram- leiöslumagn var þá 107 þúsund tonn. Útflutningur var 100 þúsund tonn. Þetta magn skiptíst þannig eftir löndum, (þar sem 'svo heppilega vill til aö útflutningurinn var 100 þúsund, þá gilda magntölurnar einnig sem hlutfallstölur). USA 58 þúsund tonn Bretland 15 þúsund tonn 7 önnur lönd iEvrópu Sþúsund tonn V-Evrópa samtals 23 þúsund tonn Japan 10 þúsund tonn Rússland 9 þúsund tonn 100 þús. tonn Þaö má lika lita á þetta frá ööru sjónarmiöi. Framleiöslu aukning áranna 1978 og 1979 nemur rúmum 23 þúsund tonn- um (loðnuafurðir undan- skildar). Sala til V-Evrópu áriö 1977 nam tæpum 12 þúsund tonnum. Meö öörum oröum þá fer hvorki meira né minna en helmingur framleiösluaukning- ar til V-Evrópu. Ef þetta heföi gerst I bllaiðnaöi, þá væri þaö sennilega taliö til kraftaverka, eða þvi mætti jafna viö innrás Japana aö undanförnu á bíla- markaðinn I USA. Þess má svo geta I Kðinni, aö framleiösluaukning frystra fiskflaka hér á landi s.l. tvö og hálft ár er mjög nálægt þvi aö jafngilda öllum útflutningi Færeyja á þessum afuröum. Þá er I raun komiö aö kjarna vandans sem ekki er rúm til aö ræöa um hvernig eigi aö leysa, en vonandi veröur þar ekki beitt „patentlausnum” eins og hingað til hefur veriö gert i sambandi við veröbólguvand- ann o.fl.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.