Vísir - 09.07.1980, Side 24
Miðvikudagur 9. júlí 1980
síminner 86611
veOriö hér
og har
Klukkan sex í morgun:
Akureyri alskýjað 11, Bergen
léttskýjaö 16, Helsinki létt-
skýjað 17, Kaupmannahöfn
þokumóða 16, Oslöskýjað 17,
Reykjavikþokumóða 8, Stokk-
hólmur skýjað 17, Þórshöfn
skýjað 7.
Klukkan átján I gær: Aþena
Urkoma 18, Chicagoléttskýjaö
27, Frankfurt skýjaö 17, Nuuk
léttskýjaö 13, Luxembourg
skýjað 15, Las Palmasskýjað
23, Mallorca skýjað 25, New
York skýjað 24, Parls skýjað
15, Malaga skýjað 23, Winni*
pegskýjað 26.
veðurspá
dagsins
Frá norðaustanverðu Græn-
landi liggur hæðarhryggur
subur yfir landið sem þokast
austur. Um 400 km SSV ai
Hvarfi er 993 mb lægð sem
hreyfist norðaustur. Hiti
breytist lltiö.
Suðurland og Faxaflói: Hæg-
viöri og skýjaö I dag en S og
SA gola, skýjað og súld i nótt.
Breiöafjörður til Norðurlands
vestra: Hægviðri, skýjað að
mestu og þokubakkar á djúp-
miöum i nótt.
Norðuriand eystra og Austur-
land: Hægviðri og viða bjart
veður inn til landsins.
Austfirðir og Suöausturland:
Hægviðri til landsins en NA
gola austan til á miðum.
Skýjað að mestu og dálitil súld
eða rigning á miðum og við
ströndina i nótt.
Loki segir
Mikil aukning banaslysa í umferöinni:
Þrefalt fielri hala
láiist nú en 79
í lúnímánuðl elnum hala orðið sex hanasiys í umlerðinni
,,Það er alveg ljóst, að sumar-
ið virðist vera okkur hættulegt
hvað varðar slysfarir, og má
benda á i þvi sambandi, að i
júnimánuöi hafa orðiö sex bana-
slys I umferðinni”, — sagöi
Hannes Hafstein, fram-
kvæmdastjóri Slysavarnarfé-
iags tslands er Visir hafði sam-
band við hann vegna hinna tiðu
banaslysa nú að undanförnu.
Hannes sagöi, að á fyrstu sex
mánuðum þessa árs heföu 43
látið lifið af slysförum hér á
landi og er það sama tala og i
fyrra. Hins vegar væri það slá-
andi hversu mjög umferðar-
slysum hefði fjölgað en á fyrstu
sex mánuðum ársins hefðu 16
látist af völdum umferðarslysa
á móti 5 i fyrra.
Af völdum sjóslysa og
drukknana hefðu 19 látist nú en
24Ifyrra. Banaslys viðflug væri
1 nú en ekkert i fyrra og bana-
slys af öðrum orsökum væru 7
nú en 14 1 íyrra.
Þá benti Hannes á, að á fyrstu
helgi júlimánaðar hefðu orðið
þrjú banaslys þannig að ljóst
væri, að sumarmánuðirnir virt-
ust varhugaverðir hvað þetta
snerti.
„Ef miðað er við skýrslu
Slysavarnarfélagsins frá þvi i
fyrra er uggvænlegt að horfa
upp á, hversu mjög umferðar-
slysin hafa aukist og raunar
sérstök ástæða til aö vekja at-
hygli á þessum staðreyndum”,
sagði Hannes ennfremur.
Hannes benti á, að auk bana-
slysanna mætti ekki gleyma þvi
óbætanlega tjóni sem oft fylgja
umferðarslysum jafnvel þótt
bani hljótist ekki af. Að auki
væri svo fuli ástæða til að vara
við þeirri vaxandi ónáttúru
manna að aka ölvaðir en slikt
athæfi býöur hættunni heim og
hefur oft valdið alvarlegum
slysum. —Sv.G.
Mikill bægsiagangur varö i Nauthólsvik þegar Fransmaöurinn Thierry
D'Ornano gerði tilraun til aö kenna tsiendingum á seglbretti þau sem
hann hefur veriö að prófa á vötnum og víkum íslands. Thierry leist svo
vel á aöstæöur hér að hann hefur flutt inn ein fjögur segibretti til sölu I
iþróttaversluninni Otilif. Hér sýnir hann Gunnlaugi Jónassyni hvernig
fara á að. — Visismynd ÞG.
Gagnlimoö BSRB:
„Langt frá tllboOl
fjármálaráðherra”
„Gagntilboð BSRB er töluvert
iangt frá gagntilboði fjármála-
ráöherra”, sagði Þorsteinn
Geirsson, sem á sæti i samninga-
nefnd rikisins,er Visir haföi tal af
honum i morgun. Samninganefnd
BSRB lagði sem kunnugt er fram
gagntilboð i gær og sagði Þor-
steinn að meðaihækkun á iauna-
stiganum samkvæmt þvi tilboöi
væri 19,1%. Fjármálaráðherra
hefur margitrekað aö ekki sé
svigrúm til almennra grunn-
kaupshækkana, svo ljóst er að
samningar eiga langt i land.
Þorsteinn kvað BSRB hafa
slegið svolitið af kröfum sinum,
enenn væru veigamiklar kröfur i
tilboðinu sem ekki væri hægt að
fallast á. „Þar má nefna”, sagði
Þorsteinn, „hlutfallslegar verð-
bætur samkvæmt framfærslu-
visitölu og hækkanir á launastig-
anum”.
„Er það einkum þetta tvennt
sem samningarnir stranda á?”
„Já, ég tel svo vera. Þessar
tvær kröfur þýöa gifurlega út-
gjaldaaukningu”.
Þorsteinn kvaðst ekki vilja spá
um það hvort samningar drægj-
ust fram á haustiö, ,, þeir gætu
breytt afstöðu sinni”, sagði hann
um fulltrúa BSRB. Ragnar Arn-
alds fjármálaráðherra hefur
fengið gagntilboðiö i sinar hendur
og kvað Þorsteinn rikisstjórnina
væntanlega fjalla um það á næst-
unni.
Samningafundir liggja niðri
þar til formlegt svar fæst frá rik-
inu. —Gsal
innbrot i
manniausa íbúð:
Gómaður
meðmilljón
í vasanum
Maður á miöjum aldri var
handtekinn um hádegisbiliö i gær
er hann var að koma út úr mann-
lausri Ibúð við Hverfisgötu i
Reykjavik. 1 fórum mannsins
fannst um ein milljón fslenskra
króna og 4000 sænskar krónur,
sem hann hafði tekið ófrjálsri
hendi I ibúöinni.
Ibúi i húsinu, sem er fjórbýlis-
hús, varð var viö óeðlilegar
mannaferðir i ibúðinni sem hann
vissi að var mannlaus og gerði
hann lögreglunni þegar aðvart.
Þegarlögreglan kom að var mað-
urinn á leið út úr ibúöinni með
feng sinn og fékk hann að sjálf-
sögðu viðeigandi viðtökur. Mál
þetta er nú i rannsókn hjá Rann-
sóknarlögreglu rikisins.
—Sv.G.
ÐaggjOld sjúkrahúsa
hækkuð um rúm n%
Akvðrðun um greiðsiu 585 milljóna kr. haiiadaggjalda liggur ekki fyrir
Farandverkafólk i Eyjum
vill eðlilega aðskiija maðkaða
skreið og mannfólk i verðbúð-
um þar um slóðir, en verö-
búöareigandinn er hinn
þverasti og svarar fullum
hálsi. Hann er sennilega á
móti ölium tegundum
apartheid.
Heimiluð hefur verið 11.1%
hækkun á daggjöldum sjúkra-
húsanna en ákvörðun um
greiðslu hailadaggjalda iiggur
ekki fyrir.
Haukur Benediktsson fram-
kvæmdastjóri Borgarspitalans
sagði I samtali við Visi að óbætt
halladaggjöld siðasta árs næmu
nú um 585 milljónum króna til
sjúkrahúsanna I heild.
Svavar Gestsson heilbrigðis-
ráðherra sagði í samtali við
blaöið, að halladaggjöldin væru
nú I athugun og væri ákvörðun-
ar að vænta á næstunni.
Ef tekin eru dæmi af rekstrar-
daggjöldum þá eru þau nú á
Borgarspítalanum 83.700.
Sjúkrahúsinu Vestmannaeyjum
kr. 43.800. á Fæðingardeildinni
kr. 52.000. og á Sankti Jósefs-
spitalanum Landakoti kr.
73.200. —ÓM.