Morgunblaðið - 14.05.2002, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2002 15
Vordagar
í garðinum þínum
Garðhús
Garðborð
Skjólgirðingar
Pallaefni o.fl.
Barnahús verð 59.885 kr.
Skjólveggur 200x167 13.950 kr.
Skjólveggur 200x127/90 8.990 kr.
Skjólveggur 200x74/37 5.950 kr.
Skjólveggur 200x167 12.695 kr.
Pallaolía verð 1.450 kr.
3 lítra
Ósamsett
Sími 525 3000 • www.husa.is
Hleðsluborvél 12V 14.995 kr.
auka rafhlaða, vasaljós og bitasett
BÆJARRÁÐ Garðabæjar hefur
samþykkt framkvæmdir við þrjú
leiksvæði í bænum í sumar. Um er
að ræða nýjan sparkvöll í Ásahverfi
og tvö hjólabrettasvæði, annars veg-
ar neðan við Sjávargrund og hins
vegar í Búðakinn. Um leið verður
lagt niður hjólabrettasvæði við
Hofsstaðavöll.
Að sögn Erlu Biljar Bjarnardótt-
ur, garðyrkjustjóra í Garðabæ, er
sparkvöllurinn í Ásahverfi aðeins lít-
ill áfangi í heildarskipulagi hverfis-
ins, sem nú er í byggingu. Hún segir
búið að grófskipuleggja svæðið en
landslagsarkitektinn sem hafi hann-
að það, Áslaug Katrín Aðalsteins-
dóttir, sé að fínvinna tillögurnar um
þessar mundir. „Það kemur fram á
deiliskipulagi hverfisins að það eigi
að vera sparkvöllur á þessu opna
svæði og nú er búið að ákveða á fjár-
hagsáætlun að hann verði fyrsti
áfangi svæðisins.“
Að sögn Erlu Biljar eru mörg
börn komin í hverfið sem væntan-
lega eiga eftir að fagna sparkvell-
inum þegar hann kemur. „Ég lét
setja upp mörk á gamalgrónu túni í
Engidalnum við Álftanesveginn,
sunnan við hverfið, og þar er orðið
iðandi af lífi þannig að krakkarnir
eru fljótir að nýta sér slíkt,“ segir
hún.
Hlaupaköttur í Búðakinn
Hvað varðar hjólabrettasvæðið
við Sjávargrundina þá segir Erla Bil
að það verði neðan við Vífilsstaða-
veginn. „Þetta er svolítið miðsvæðis
og ekki ofan í íbúðarbyggð. Við mun-
um síðan setja háar grasmanir í
kringum hjólabrettasvæðið til að
hindra að hávaði berist frá því og við
höfum ekki fengið annað en jákvæð
viðbrögð frá íbúunum vegna þess-
arar framkvæmdar.“
Gert er ráð fyrir að pallarnir á
svæðinu komi frá hjólabrettasvæði
við Hofsstaðavöll og verður það lagt
af í leiðinni enda segir Erla Bil það
vera nokkuð ofan í byggðinni þar.
Þriðja svæðið sem vinna á að er
leiksvæðið í Búðakinn. „Það er opið
svæði sem við vorum að endurgera
milli Reykjanesbrautar og Lunda-
og Búðasvæðis. Þetta svæði er hugs-
að fyrir eldri krakka og unglinga og
við erum búin að setja niður leiktæki
þar sem eiga að henta þeim aldurs-
hópi. Það er búið að forma svæðið og
þar er komin geysimikil hringlaga
skál sem við ætlum síðan að smíða
hjólabrettapalla í.“ Erla Bil segir
einnig standa til að koma þar fyrir
svokölluðum hlaupaketti.
Að hennar sögn er gert ráð fyrir
að farið verði í þessar framkvæmdir
í sumar en ekki hefur verið hægt að
hefjast handa fyrr þar sem frost er
rétt að fara úr jörðu. Í bókun bæj-
arráðs segir að framkvæmdirnar
eigi að rúmast innan fjárhagsramma
samþykktar um framkvæmdir við
opin svæði á árinu 2002, en hann er
samtals 13,5 milljónir króna. Að
sögn Erlu Biljar er þessari upphæð
ætlað að dekka allar framkvæmdir á
opnum svæðum í bænum í ár en unn-
ið verður á 13 mismunandi stöðum.
Sparkvöll-
ur og tvö
hjólabretta-
svæði gerð
í sumar
Garðabær
alltaf á þriðjudögum
HEIMILI/FASTEIGNIR