Morgunblaðið - 14.05.2002, Side 23

Morgunblaðið - 14.05.2002, Side 23
NEYTENDUR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2002 23 FREGNIR bárust af því um síðustu mánaðamót að vísindamenn við Stokkhólms-háskóla hefðu fundið akrýlamíð í nokkrum gerðum mat- væla. Netútgáfan WebMD, sem sér- hæfir sig í fréttum af læknisfræðileg- um toga, hefur eftir sænskum embættismönnum á fundi þar sem rannsóknin var kynnt í lok apríl að að einn poki af kartöfluflögum inni- héldi 500 sinnum meira af akrýlamíði en Alþjóða heilbrigðisstofnunin (WHO) leyfði í drykkjarvatni að há- marki. Hermt er á WebMD að há- marksgildi stofnunarinnar fyrir akrýlamíð í drykkjarvatni sé eitt míkrógramm á lítra. Hollustuvernd ríkisins segir á heimasíðu sinni að nýtt hámarksgildi fyrir akrýlamíð í neysluvatni taki gildi í desember 2003, þar sem miðað er við 0,1 míkrógramm á lítra. Samkvæmt upplýsingum á heima- síðu Hollustuverndar er akrýlamíð vatnsleysanlegt efni sem notað er við framleiðslu á pólýakrýlamíði. Fram kemur að ekki sé vitað hvers vegna akrýlamíð finnist í sumum matvælum en svo virðist sem kolvetni og ef til vill önnur efni brotni niður og myndi akrýlamíð við hátt hitastig (yfir 100°C). „Samkvæmt þeirri þekkingu sem nú er til staðar lítur út fyrir að akrýl- amíð myndist í mestu magni í kol- vetnaríkum matvælum sem hituð eru mikið. Efnið finnst ekki í matvælum sem eru framleidd eða elduð við suðuhitastig (100°C). Dæmi um mat- væli sem mikið hefur mælst í eru kartöfluflögur, steiktar kartöflur, djúpsteiktar kartöflur, hrökkbrauð, kex og smákökur. Akrýlamíð hefur hingað til ekki fundist í hráum eða soðnum matvælum (kartöflum, hrís- grjónum, pasta, hveiti, haframjöli og kjöti). Akrýlamíð um 1% hættulegra efna í mat Með þeirri þekkingu sem við höf- um í dag virðist sem akrýlamíð sé lít- ill hluti þeirra hættulegu efna sem við fáum í gegnum matinn, eða tæpt 1%. Akrýlamíð skaðar erfðaefnið í líkam- anum og þar með eykst hættan á þró- un krabbameins,“ segir Hollustu- vernd. Bent er á einfaldar aðferðir til þess að minnka inntöku á akrýlamíði, svo sem að forðast mikla steikingu, brenndan mat, mikinn bakstur, mikið (dökk)ristaðan mat og að gæta þess að fæði sé fjölbreytt. „Almennt séð er betra að sjóða matinn en steikja, ofn- baka, djúpsteikja og grilla. Reyk- ingamenn fá í sig meira af akrýlamíði en þeir sem ekki reykja. Að hætta að reykja er ein leið til þess að minnka inntöku akrýlamíðs.“ Loks segir Hollustuvernd að vænta megi frekari rannsókna í kjöl- farið sem skýri betur hvernig og við hvernig aðstæður efnið myndast. Nýtt viðmið fyr- ir akrýlamíð í vatni árið 2003 LÍFSTYKKJABÚÐIN flyt- ur nú inn silíkonfyllingar til að nota í brjóstahöld- urum og sjálflímandi fyll- ingar undir flegna eða hlýralausa kjóla. Einnig er um að ræða silíkonpúða til að setja undir hlýra á brjóstahöldurum og minnka þannig álag á axlir, segir Guðrún Steingrímsdóttir verslunarmaður. „Silíkonfyllingar eru tilvalin lausn fyrir konur sem vilja fallegri línur án þess að þurfa að leggjast undir hnífinn. Þær eru framleiddar úr mjúku silíkoni sem fellur að lög- un og líkamshita konunnar, sem gerir þær afar þægilegar í notk- un,“ segir hún ennfremur. Gerðirnar sem um ræðir eru „Secret Breast Enhancers“ sem lyfta brjóstunum og gefa þeim meiri fyllingu, „Little Secrets Breast Enhancers“, sérhannaðar fyllingar sem móta brjóstin auk þess að gefa þeim meiri fyllingu. Eru þær sagðar tilvaldar fyrir kon- ur sem nota A og AA skálar og vilja sveigðari útlínur. Loks er um að ræða „Secret Cups“ sem hægt er að nota án brjóstahaldara, til dæm- is undir mjög flegna eða hlýralausa kjóla. „Fyllingarnar eru festar und- ir brjóstin með húðvænu lími og gefa brjóstunum fyllri og fallegri lögun. Auðvelt er að koma þeim fyrir og fjarlægja þær,“ segir Guð- rún. Líka fyrir konur sem misst hafa brjóst „Fyllingarnar og púðarnir eru framleiddir af fyrirtækinu Trulife sem hefur sérhæft sig í hönnun og framleiðslu á silíkonfyllingum í læknisfræðilegum tilgangi. Fyr- irtækið framleiðir fyllingar fyrir konur sem misst hafa brjóst af völd- um krabbameins auk fylgihluta fyr- ir þær konur sem vilja fyllri brjóst og sveigðari barm,“ segir Guðrún Steingrímsdóttir loks. Silíkonfyllingar sem móta og stækka NÝTT Buxur Jakkar Anorakkar ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U TI 1 76 22 05 /2 00 2 Smáralind - Glæsibæ Anorakkur - 8.590 Buxur - 5.790 Stær›ir: S-XXXL Litur: Ljós blár, rau›ur Jakki - 8.990 Buxur - 4.990 Stær›ir: S-XXXL Litur: Hvítur, rau›ur, ljós Sumar 2002 Stær›ir: XS-XL Litur: Blár Matinbleu fötin henta konum á öllum aldri. Komdu í Útilíf og skoðaðu úrvalið. línan komin aftur Buxur - 5.790 Jakki - 9.790 Stær›ir: XS-XL Litur: Blár Jakki - 7.990 Buxur - 4.990 Simi 545 1550 og 545 1500 Á góðum bíl í Evrópu Hringdu til AVIS í síma 591-4000 Pantaðu AVIS bílinn þinn áður en þú ferðast – Það borgar sig (Verð miðast við lágmarksleigu 7 daga) Innifalið í verði er ótakmarkaður akstur, trygging, vsk. og flugvallargjald. Bretland kr. 3.000,- á dag Ítalía kr. 3.700,- á dag Frakkland kr. 3.000,- á dag Spánn kr. 2.200,- á dag Portúgal kr. 2.600,- á dag Danmörk kr. 3.500,- á dag www.avis.is Við reynum betur Morgunblaðið/Kristinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.