Morgunblaðið - 14.05.2002, Qupperneq 20
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
20 ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
KRINGLAN fékk nýlega við-
urkenningu alþjóðasamtaka versl-
anamiðstöðva, ICSC, fyrir auglýs-
ingaherferð. Um var að ræða
herferð sem ráðist var í á síðast-
liðnu ári, sem hafði það markmið
að sýna sérstöðu Kringlunnar í
ljósi þeirrar auknu samkeppni
sem þá var væntanleg. Þetta er í
annað skiptið sem Kringlan hlýt-
ur viðurkenningu ICSC en á síð-
asta ári hlaut Kringlan svonefnd
byggingaverðlaun samtakanna
fyrir hvernig til þótti hafa tekist
með viðbyggingu hennar.
Afhending viðurkenning-
arinnar að þessu sinni fór fram á
árlegri ráðstefnu ICSC í Monte
Carlo og tók Örn V. Kjartansson,
framkvæmdastjóri Kringlunnar,
við henni. Hann segir ánægjulegt
hvað Kringlan hafi vakið mikla
athygli fyrir frammistöðu, en
auglýsingaherferðin hafi verið að
keppa við herferðir fjölmargra
verslanamiðstöðva víðs vegar að
úr heiminum. Útlit, hönnun og
uppsetning auglýsingaherferð-
arinnar, annars vegar, og árang-
ur hennar, hins vegar, séu þau
atriði sem tekið sé tillit til við val
á verðlaunahöfum í þessari sam-
keppni ICSC.
„Á fyrstu fjórum mánuðum
þessa árs hefur aðsóknin að
Kringlunni verið innan við 3%
minni en á sama tímabili í fyrra,
þrátt fyrir aukna samkeppni og
almennan samdrátt í neyslu,“
segir Örn. „Þá hefur viðhorf
fólks til Kringlunnar breyst mik-
ið. Við gerðum könnun á viðhorfi
fólks áður en auglýsinga-
herferðin hófst. Niðurstaða henn-
ar var á þann veg að um 53% að-
spurðra líkaði mjög við
Kringluna. Sams konar könnun
var síðan gerð í lok nóvember á
síðasta ári, eftir að auglýsinga-
herferðin hafði staðið yfir í nokk-
urn tíma, og þá hafði þeim sem
líkaði mjög vel við Kringluna
fjölgað í 75%. Árangurinn af aug-
lýsingaherferðinni er því aug-
ljós.“
Að sögn Arnar er versl-
unarrými Kringlunnar nánast allt
í útleigu. Hann segir að viðræður
standi yfir um það eina rými sem
ekki hafi verið skrifað undir
samning um útleigu á. Þá séu
vissir aðilar á biðlista sem vilji
komast inn.
Kringlan hlýtur viðurkenn-
ingu fyrir auglýsingaherferð
Morgunblaðið/Ásdís
Guðrún Norðfjörð frá Íslensku auglýsingastofunni, Ívar Sigurjónsson, markaðsstjóri Kringlunnar, og Örn V.
Kjartansson, framkvæmdastjóri Kringlunnar, með viðurkenningu alþjóðasamtaka verslanamiðstöðva, ICSC.
HUGBÚNAÐUR sem byggir á land-
fræðilegum staðsetningum fyrir far-
síma frá upplýsingatæknifyrirtæk-
inu Landmati hefur vakið athygli í
Asíu og var m.a. til umfjöllunar í
morgunþætti sjónvarpsstöðvar CNN
í gærmorgun.
Landmat þróar sérhæfð upplýs-
ingakerfi sem byggja á staðsetning-
um og byggir upp og hýsir gagna-
grunna með samþættu
landupplýsinga- og margmiðlunar-
efni. Geir Oddsson, framkvæmda-
stjóri hjá Landmati, segir að vaxtar-
broddurinn í farsímanotkun sé
hverskonar virðisaukandi þjónusta
og þróun í slíkri þjónustu hefur verið
mjög hröð. „Við höfum hannað og selt
slíkan hugbúnað til símfélaga víða
um heim, einkum í Evrópu og Asíu.
Það hefur sýnt sig að þjónusta af
þessu tagi skilar góðum tekjuauka
fyrir símfélögin. Hjá meðalstóru sím-
félagi, með um eina milljón notendur,
getur þessi þjónusta skilað um 20
milljóna króna tekjum á mánuði.“
Landmat er með söluskrifstofur í
Reykjavík, Stokkhólmi og Singa-
pore. Í þætti CNN í gærmorgun var
rætt við framkvæmdastjóra skrif-
stofu Landmats International í
Singapore og fyrst og fremst fjallað
um stefnumótahugbúnað fyrir far-
síma, DateTrak (Trak-U-Mate í As-
íu), sem Landmat hefur hannað og
hefur nú verið tekin í notkun hjá ind-
verska símafélaginu Barthi (AirTel).
„Stefnumótaleikurinn er einkum
markaðssettur fyrir símnotendur á
aldrinum 15 til 25 ára. Notendur gefa
upp hverskonar upplýsingar um
sjálfa sig, svo sem aldur, kyn og
áhugamál, og kerfið leitar síðan að
heppilegu stefnumóti fyrir notand-
ann. Inn í kerfið er síðan byggt spjall-
kerfi og þannig geta notendur skipst
á frekari upplýsingum. Hugbúnaður-
inn byggist á landfræðilegri stað-
setningu og þannig er leitað að sam-
svörun á tilteknu svæði.
Við höfum boðið þessa þjónustu
hér heima, bæði hjá Íslandssíma og
Tali, en einnig selt hana víða um
heim. Nú í maí var byrjað að bjóða
þessa þjónustu í Indlandi. Hvergi í
heiminum er eins mikill vöxtur í far-
símaeign og í Indlandi. Þó að mark-
aðurinn sé tiltölulega lítill í dag, eða
um 6 milljónir notenda, þá er gert ráð
fyrir að notendur verði orðnir 10
milljónir í árslok.
Það hefur geysilega mikla þýðingu
fyrir okkur að fá umfjöllun hjá CNN,
í þætti á besta tíma sem milljónir
manna um allan heim horfa á. Þetta
er ómetanlega kynning fyrir fyrir-
tæki eins og okkar, enda nær hún til
mjög breiðs og mikilvægs markhóps
og sýnir að við erum að gera eftir-
tektarverða hluti.“
Stjörnuspáin í farsímann
Geir segir að Landmat hafi einnig
boðið aðra virðisaukandi þjónustu
fyrir farsíma. „Meðal annars er
stjörnuspárleikur sem heitir Star-
Trak sem unninn er í samstarfi við
stjörnuspár fyrirtækiðTelenstar. Þar
er um að ræða stjörnuspá sem sím-
notandi getur fengið senda í farsím-
ann sinn, sem byggð er á upplýsing-
um um notandann sjálfann. Þarna er
vissulega um leik að ræða en rann-
sóknir sýna að stjörnuspá er eitt vin-
sælasta efnið á Netinu, einkum meðal
kvenna. Þetta er því mjög áhuga-
verður markaður fyrir farsímafyrir-
tækin.
Ennfremur höfum við boðið hug-
búnað sem heitir TravelTrak en þá fá
farsímanotendur sendar upplýsingar
frá TimeOut Guides um afþreyingu í
um 70 borgum í heiminum, til dæmis
upplýsingar um veitingastaði, hótel
og viðburði. Þessari þjónustu, sem
einnig byggist á landfræðilegri stað-
setningu, verður m.a. hleypt af
stokkunum hjá einu stærsta farsíma-
félagi í Evrópu innan nokkurra
vikna. TravelTrak er nokkuð frá-
brugðin hinum, þar sem ekki er um
hreina afþreyingu að ræða, heldur er
verið að miðla ýmsum gagnlegum
upplýsingum.“
Hugbúnaður frá Land-
mati vekur athygli í Asíu
NM Pharma ehf., dótturfyrirtæki
Delta, setti í gær á markað lyfið
Euthyrox sem inniheldur skjald-
kirtilshormónið levótýroxín natríum
og er notað gegn vanstarfsemi í
skjaldkirtli. Í fréttatilkyningu frá
fyrirtækinu segir að ætla megi að
4–5.000 manns þjáist að jafnaði af
vanstarfsemi í skjaldkirtli hér á
landi.
Um síðustu áramót var eina lyfið
sem innihélt levótýrokíum natríum
hér á landi, Thyroxin-Natrium, af-
skráð af íslenskum lyfjamarkaði, og
fékkst einungis afgreitt gegn und-
anþágu. Segir í tilkynningu NM
Pharma að markaðssetningu
Euthyrox hafi verið flýtt verulega
þegar Thyroxin-Natrium hafi farið
af markaði, til að bregðast mætti
við eftirspurn eftir lyfinu. Mikill
kostur sé fyrir lækna, sjúklinga og
apótek að nýtt lyf gegn vanstarf-
semi í skjaldkirtli skuli vera komið
á markað því afgreiðsla sé flókin og
tímafrek á lyfi sem sé á undanþágu-
lyfseðli.
Að sögn Ara Jóhannessonar, sér-
fræðings í lyflækningum, innkirtla-
og efnaskiptasjúkdómum á Land-
spítala - Háskólasjúkrahúsi, skap-
aðist mikið óvissuástand, bæði með-
al lækna og þeirra sem þurftu á
lyfinu að halda, þegar ljóst var að
lyfið væri ófáanlegt. Hann segir að
notkun þess hafi aukist verulega
síðastliðinn áratug.
Fræðslufundur um
skaldkirtilssjúkdóma
Af þessu tilefni hélt Delta, ásamt
Félagi um innkirtlafræði, fræðslu-
fund fyrir alla heimilis- og lyflækna
um skjaldkirtilssjúkdóma í Smára-
bíói í Smáralind 8. maí sl.
Aðalfyrirlesari fundarins var dr.
Toft, lyflæknir við The Royal In-
firmary of Edinburgh og fyrrver-
andi forseti konunglega lækna-
félagsins í Edinborg (The Royal
College of Physicians), en hann er
sérstaklega þekktur fyrir rannsókn-
ir sínar á skjaldkirtilssjúkdómum.
Greindi dr. Toft m.a. frá niðurstöð-
um ýmissa rannsókna á vanstarf-
semi í skjaldkirtli og áhrifaríkri
notkun á skjaldkirtilshormóninu
levótýroxín natríum.
Lyf gegn
vanstarf-
semi í
skjaldkirtli
JAPANIR eru sakaðir um að bjóða
vanþróuðum ríkjum þróunaraðstoð í
skiptum fyrir atkvæði þeirra í Al-
þjóðahvalveiðiráðinu til að hnekkja
banni við hvalveiðum í atvinnu-
skyni. Talið er líklegt að tillaga um
afnám bannsins verði samþykkt á
ársfundi ráðsins hefst í Japan 20.
maí nk.
Smáríkin Grænhöfðaeyjar og
Benín gengu nýverið í Alþjóðahval-
veiðiráðið, örfáum dögum eftir að
japanskir ráðamenn höfðu spáð því
að banni við hvalveiðum frá árinu
1986, yrði hnekkt á ársfundi ráðsins
í Japan. Japanir hafa á undanförn-
um árum veitt háum fjárhæðum til
þróunaraðstoðar til smárra og
vanþróaðra ríkja, sem sum hver
hafa gengið í Alþjóðahvalveiðiráðið
og stutt við bakið á þeim þjóðum
sem vilja hefja hvalveiðar að nýju.
Japanir hafa barist ötullega fyrir af-
námi hvalveiðibannsins en ráðið
hefur til þessa ætíð hafnað tillögum
þeirra. Nú eru hinsvegar töluverðar
líkur á því að banninu verði aflétt á
fundi ráðsins í Japan en alls þarf
samþykki ¾ aðildarríkjanna til að
hnekkja banninu. Talið er að 38
þjóðir innan Aþjóðahvalveiðiráðsins
muni lýsa sig fylgjandi hvalveiðum
á fundi ráðsins í Japan en 26 á móti.
Líkur á af-
námi hval-
veiðibanns
BRESKA lágfargjaldaflugfélagið
EasyJet og British Airways hafa
skrifað undir samkomulag um skil-
yrði fyrir yfirtöku EasyJet á flug-
félaginu Deutsche BA, dótturfélagi
British Airways, sem rekið hefur
verið með tapi.
Greint var frá þessu í tilkynningu
á heimasíðu EasyJet í síðustu viku. Í
tilkynningunni kemur fram að skrif-
að hafi verið undir samkomulag þess
efnis að EasyJet yfirtaki DBA á
tímabilinu til 31. mars á næsta ári,
með möguleika á framlengingu til 3.
júlí. Kauprétturinn miðist við
greiðslu upp á 5 milljónir evra við
undirskrift og 600 þúsund evrur á
mánuði þar til kaupin hefðu að fullu
farið fram. Segir í tilkynningu Ea-
syJet að stefnt sé að því að ganga frá
yfirtökunni fyrir 30. júní næstkom-
andi.
Í frétt í Financial Times segir að
forráðamenn British Airways meti
samninginn við EasyJet á bilinu 30-
46 milljónir evra, jafnvirði um 2,6-3,9
milljarða íslenskra króna, eftir því
hvenær gengið verður frá kaupun-
um.
Stutt er síðan sagt var frá því að
viðræður hefðu farið fram um hugs-
anlega yfirtöku EasyJet á breska
lágfargjaldaflugfélaginu Go. Við
samruna þeirra myndi verða til
stærsta lágfargjaldaflugfélagið í
Evrópu en hið írska Ryanair er nú
stærst þeirra. Haft er eftir Ray
Webster, framkvæmdastjóra Ea-
syJet, í FT að hann sé sannfærður
um að viðræðum um yfirtöku Easy-
Jet á Go muni ljúka fljótlega. Bar-
bara Sassani, framkvæmdastjóri Go,
er hins vegar sögð andvíg yfirtök-
unni.
Forráðamenn Lufthansa
með áhyggjur
DBA er næststærsta flugfélagið í
Þýskalandi, næst á eftir Lufthansa,
og er eingöngu í innanlandsflugi.
Forráðamenn Lufthansa höfðu gefið
í skyn að til stæði að félagið myndi
setja á fót sitt eigið lágfargjaldaflug-
félag. Fyrir tæpum þremur vikum
sagði Jürgen Weber framkvæmda-
stjóri félagsins hins vegar að af því
yrði ekki. Lufthansa myndi einbeita
sér að þeirri starfsemi sem það hefur
verið í. Í frétt FT segir að yfirtaka
EasyJet á DBA og hugsanlegur
samruni EasyJet og Go valdi for-
ráðamönnum Lufthansa hins vegar
miklum áhyggjum.
EasyJet
stefnir að
yfirtöku á
Deutsche BA
♦ ♦ ♦