Morgunblaðið - 14.05.2002, Side 22
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
22 ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
A
B
X
/
S
ÍA
Ármúli 13, 108 Reykjavík
sími 515 1500
www.kaupthing.is
Stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins boðar til sjóðfélaga-
fundar í Hvammi, Grand Hóteli, þriðjudaginn 4. júní
nk. kl. 17.15.
Frjálsa lífeyrissjóðnum
Til sjóðfélaga og rétthafa í
Dagskrá:
1. Sameining Frjálsa lífeyrissjóðsins og
Lífeyrissjóðsins Einingar
2. Samþykktabreytingar
3. Kosning stjórnar
Sérstakur kynningarfundur, þar sem farið verður
ítarlega í atriði sem tengjast sameiningu sjóðanna,
verður haldinn í Geysi, fundarsal Kaupþings á
4. hæð í Ármúla 13, fimmtudaginn 23. maí nk. kl. 17.15.
Fyrirhugaðar samþykktabreytingar munu liggja
frammi á skrifstofu Kaupþings 2. vikum fyrir
sjóðfélagafund.
Allir sjóðfélagar og rétthafar í Frjálsa lífeyrissjóðnum
eru hvattir til að mæta á báða fundina.
Stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins.
BÁTASMIÐJAN Knörr ehf. á
Akranesi afhenti nýverið Jónasi
Ragnarssyn útgerðarmanni nýjan
bát af gerðinni Knerrir og hefur
báturinn hlotið nafnið Gunna ÍS.
Um er að ræða 8 metra langan
bát, með 420 hestafla vél af Yan-
mar-gerð. Ganghraði bátsins er
30 sjómílur. Báturinn tekur 6
fiskikör í lest og er áætluð burð-
argeta a.m.k. um 6 tonn af fiski.
Báturinn hefur veiðileyfi í sókn-
ardagakerfi. Jafnframt hefur Jón-
as Ragnarsson forkaupsrétt á
næstu smíði sem er fyrirliggjandi.
Að sögn Eggert Sk. Jóhann-
essonar hjá Skipamiðluninni Bát-
um & Kvóta, sem er umboðsaðili
Knarrar ehf., hefur verið mjög
mikil ásókn í báta í sókn-
ardagakerfi eftir að breytingar
urðu í þá veru að dögum var
breytt í sóknarklukkustundir.
Jafnframt hefði verð á sókn-
ardögum hækkað mikið og verð
fyrir hvern sóknardag væri nú um
750–800 þúsund krónur hver dag-
ur.
Knörr ehf. selur nýsmíði
FISKISTOFA hefur svipt bátinn Sig-
urvon RE veiðileyfi vegna afla um-
fram heimildir. Leyfissviptingin gild-
ir þar til aflamarksstaða bátsins hefur
verið lagfærð.
Sigurvon kom inn til Patreksfjarð-
ar á föstudag til löndunar. Eftirlits-
menn Fiskistofu fóru um borð, þar
sem rökstuddur grunur var um að
skipið væri að fiska umfram heimild-
ir. Eftirlit Fiskistofu leiddi í ljós að
þorskafli var, samkvæmt afladagbók,
um 22 tonn, en heimildir bátsins í
þorski námu aðeins um 6 tonnum.
Tekin var ákvörðun um tafarlausa
veiðileyfissviptingu vegna gruns um
að halda ætti skipinu til veiða á ný.
Venjulega fá útgerðir þrjá daga til að
færa aflaheimildir inn á bátana, sé
farið umfram heimildir. Hafi það ekki
verið gert, eru skipin svipt leyfi þar til
aflamarksstaðan hefur verið lagfærð.
Ólöglegt er með öllu að halda skipi til
veiða, sem engar aflaheimildir hefur
eða hefur verið svipt veiðileyfi vegna
umfram afla.
Gangur mála er svo að jafnaði sá,
að viðkomandi aðilar flytja aflaheim-
ildir á skip sín til að vega upp á móti
því sem veitt var umfram. Sé það hins
vegar ekki gert, er staða skipsins,
eins og allra annarra, gerð upp um
kvótaáramótin. Sé staðan enn sú, að
veitt hafi verið umfram heimildir án
þess að það hafi verið lagfært, er við-
komandi útgerð krafin um greiðslu
sem nemur verðmæti þess afla, sem
umfram er.
Gísli Rúnar Gíslason, deildarstjóri
lögfræðisviðs Fiskistofu, segir að alla
jafna leiðrétti þeir aflamarksstöðu
sína, sem hafi veitt umfram heimildir.
Þess séu hins vegar nokkur dæmi,
meðal annars fjögur frá því í vetrar-
lok, þar sem menn hafi haldið úti skip-
um þrátt fyrir að þau hafi verið svipt
veiðileyfi. Slíkt sé með öllu ólöglegt,
en mál útgerða fjögurra báta frá
Snæfellsnesi séu nú til meðferðar hjá
Fiskistofu. Hann segir mál Sigurvon-
ar ekki eins alvarlegt og þessara báta,
en nauðsynlegt sé að koma í veg fyrir
að menn geri sér leik að því að róa eft-
ir að þeir hafi verið sviptir veiðileyfi.
Sigurvon RE
svipt veiðileyfi
SÍLDARVINNSLAN hf. á
Neskaupstað hefur sótt um leyfi
til þess að ala allt að 2.000 tonn
af þorski í Norðfirði. Áður hafði
verið sótt um leyfi til laxeldis í
firðinum, en fallið hefur verið
frá þeim áformum.
Síldarvinnslan tekur þátt í
uppbyggingu Sæsilfurs hf. á
laxeldi í Mjóafirði, þar sem
áformað er að framleiða 4.000
tonn af eldislaxi árið 2003. Nú
hafa öll nauðsynleg gögn í
tengslum við umsókn um leyfi
til þorskeldis í Norðfirði verið
send til Skipulagsstofnunar,
sem ákvarðar hvort skylt sé að
meta umhverfisáhrif slíkrar eld-
isstöðvar. Á heimasíðu Síldar-
vinnslunar segir að í tengslum
við eldisáform Síldarvinnslunn-
ar í Norðfirði hafi farið fram
talsverðar umhverfisrannsóknir
í firðinum. Gerðar hafi verið
straummælingar og búið sé að
rannsaka efnasambönd í sjó og
niðurstöður þessara rannsókna
komi til góða við undirbúning
þorkeldisins.
Síldarvinnslan hefur haft eld-
isþorsk í kvíum í Norðfirði síðan
í nóvember síðastliðnum og hef-
ur fiskurinn dafnað vel. Þar eru
6.000 þorskar í tilraunaeldi og
áformað er að setja 3.000 til við-
bótar, en sá fiskur verður hafð-
ur í annarri kví og vöxturinn
borinn saman. Tilgangurinn
með þessu tilraunaeldi er að fá
vísbendingar um hvernig fisk-
urinn stendur sig yfir veturinn
og hvort hann þrífst almenni-
lega. Hitastig sjávar fór niður í
eina gráðu í vetur, en það virtist
ekki hafa mikil áhrif á þorskinn
sem þrífst vel í Norðfirðinum.
SVN sækir
um þorsk-
eldisleyfi
HAGNAÐUR Þorbjörns Fiskaness
hf. nam 479 milljónum króna fyrstu
þrjá mánuði ársins samanborið við 90
milljóna króna hagnað á sama tíma-
bili í fyrra. Rekstrartekjurnar námu
1.548 milljónum króna og rekstrar-
gjöldin 1.032 milljónum króna.
Eigið fé félagsins er 2.398 milljónir
króna og hefur hækkað úr 1.899
milljónum króna um áramót. Eigin-
fjárhlutfallið var þann 31. mars
25,44%.
Hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði var 516 milljónir. Hagnað-
ur af reglulegri starfsemi fyrir skatta
var 588 milljónir. Veltufé frá rekstri
var kr. 465 milljónir. Samkvæmt til-
kynningu frá félaginu skila fyrsti og
síðasti ársfjórðungar ársins að jafn-
aði bestri afkomu hjá félaginu.
Afkoma Þorbjörns
Fiskaness góð