Morgunblaðið - 14.05.2002, Síða 32

Morgunblaðið - 14.05.2002, Síða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Utanríkisráðherrar Atl-antshafsbandalagsríkj-anna og nokkurra sam-starfsríkja bandalagsins komu ásamt fjölmennum sendi- nefndum til landsins síðdegis í gær og í gærkvöldi til að sitja utanrík- isráðherrafund sem hefst í dag í Há- skólabíói. Í dag er von á fleiri utan- ríkisráðherrum samstarfslanda bandalagsins þ.á m. Igor Ivanov, ut- anríkisráðherra Rússlands, sem væntanlegur er til landsins skömmu fyrir hádegi. Í gærkvöldi fengust þær upplýs- ingar að allir utanríkisráðherrar NATO-ríkjanna 19 og 27 samstarfs- landa þess hefðu staðfest komu sína á fundinn í gær. Auk utanríkisráðherra 19 NATO- ríkja og 27 samstarfsríkja banda- lagsins eru George Robertson lá- varður, aðalframkvæmdastjóri NATO, og Javier Solana, utanrík- ismálastjóri Evrópusambandsins, meðal fulltrúa sem sitja fundinn. Alls er von á talsvert á annað þús- und gestum til landsins vegna fund- arins, þ.á m. hundruðum starfs- manna erlendra fjölmiðla. Meðal utanríkisráðherra sem fyrstir komu til landsins í gær er Bill Graham, ut- anríkisráðherra Kanada, sem átti síðdegis fund með Halldóri Ás- grímssyni utanríkisráðherra. Á fundinum ræddu ráðherrarnir m.a. um framhald samningaviðræðna um fríverslunarsamning milli Kan- ada og EFTA-ríkjanna og málefni Norðurskautsráðsins, skv. upplýs- ingum utanríkisráðuneytisins. Robertson lávarður og Jozias van Aartsen, utanríkisráðherra Hol- lands, komu saman til landsins í einkaflugvél sem lenti í Keflavík á áttunda tímanum í gærkvöldi. Skömmu síðar var von á einkþotu Silvio Berlusconi, forsætis- og utan- ríkisráðherra Ítalíu, í Keflavík og um svipað leyti lentu flugvélar Jack Straw, utanríkisráðherra Bret- lands, og George Papandreou, utan- ríkisráðherra Grikklands, á Reykja- víkurflugvelli. Þá var von á Dominique de Vill- epin, hinum nýskipaða utanríkisráðherra Frakklands, skömmu síðar og gert var ráð fyrir að Colin Powell, ut- anríkisráðherra Bandaríkjanna, kæmi til Keflavíkur um kl. 23 í gær- kvöldi. Móttaka á Kjarvalsstöðum Í gærkvöldi bauð Halldór Ás- grímsson ráðherrum og háttsettum embættismönnum sem komnir voru til landsins til móttöku á Kjarvals- stöðum. Aðrir utanríkisráðherrar aðildar- landa Atlantshafsbandalagsins sem sitja fundinn í Reykjavík eru Louis Michel frá Belgíu, Janos Martonyi, Ungverjalandi, Jan Kavan, Tékk- landi, Per Stig Möller, Danmörku, Joschka Fischer, Þýskalandi, Lydie Poffer, Lúxemborg, Jan Petersen, Noregi, Wlodzimierz Cimoszewick, Póllandi, Andronio Martins da Cruz, Portúgal, Josep Pique i Camps, Spáni, og Ismail Cem, Tyrklandi. Nokkrir ráðherrar samstarfsríkj- anna voru þegar komnir til landsins í gær, en flestir munu þó vera vænt- anlegir í dag. Meðal ráðherra í þess- um hópi eru utanríkisráðherrar Eystrasaltsríkjanna, Antanas Val- ionis frá Litháen, Indulis Berzins Lettlandi og Toomas Hendrik Ilves Eistlandi. Meðal annarra ráðherra samstarfsríkja eru Tonino Picula frá Króatíu, Vartan Oskanian, Armeníu, Mikhail M. Khvostov, Bélarus, Irakli Menagarishvili, Georgíu, Brian Cowen, Írlandi, Muratbek Imanaliev, Kirgisistan, Nicolae Dudau, Moldóvu, Mircea Dan Geoana, Rúmeníu, Tolbak Naz- arov, Tadsjikistan, Erkki Tuomioja, Finnlandi og Anna Lindh, Svíþjóð. Dagskrá hefst með vorfundi utanríkisráðherra NATO Dagskrá ráðherrafundarins hefst með árlegum vorfundi utanríkisráð- herra Atlantshafsbandalagsríkj- anna í aðalsal Háskólabíós kl. 8:30. Hefst fundurinn á því að Robertson lávarður og Halldór Ásgrímsson flytja ávörp. Kl. 15:30 er svo utan- ríkisráðherrafundur á samstarfs- vettvangi NATO og Rússlands í Há- skólabíói og síðdegis eða kl. 18:15 hefst sameiginlegur utarníkisráð- herrafundur NATO og Evrópusam- bandsins, en hann er haldinn í íþróttahúsi Hagaskóla. Haldnir verða fréttamannafundir í lok hvers ráðherrafundar. Á morgun hefst dagskráin með hringborðsfundi í Evró-Atlants- hafsráðinu (EAPC) kl. 9:15 í íþróttahúsi Hagaskóla. Búist er við að allir 46 utanríkisráðherrar NATO-ríkja og samstarfslanda þess muni sitja þann fund ásamt fulltrúum úr sendinefnd hvers ríkis eða alls um 150 manns. Fimmti og síðasti utarníkisráð- herrafundurinn er svo fundur í samstarfsnefnd NATO og Úkraínu, sem hefst kl. 15:15, á morgun í Háskóla- bíói. Auk formlegra ráðherrafunda er gert ráð fyrir að fram fari tví- hliðafundir utanríkisráðherra ein- stakra landa. Gengið hefur vel að útvega gistirými Radisson SAS Hótel Saga er full- bókuð vegna utanríkisráðherra- fundarins. Þar verður einnig að- staða fyrir tvíhliða ráðherrafundi og skrifstofusaðstaða fyrir starfs- menn. Hótelið er innan hins afgirta öryggissvæðis og dvelja ekki aðrir gestir á hótelinu en sem hér eru vegna ráðherrarfundarin undirbúningurinn gengið að sögn Hrannar Greipsdó elstjóra. Lára B. Pétursdóttir Utanríkisráðherrar 19 NATO-rík Mikill viðbúna ströng öryggis Fundir utanríkisráðherra 19 aðildarþjóða Atlantshafsbandalagsins og 27 samstarfs- ríkja þess hefjast í Háskólabíói í dag. Fjöldi ráðherra og sendinefnda kom til landsins í gær og í dag er von á fleiri ráðherrum til landsins. Allir ráðherrar ríkjanna 46 hafa staðfest þátttöku sína. Umfangsmikill viðbúnaður var við komu ráðherranna og ströng öryggisgæsla er á fundarsvæðinu. George Papandreou, uta í gær en flugvél han Vopnaðir lögreglumenn Hér er ve Yfir þúsund gestir vænt- anlegir til landsins HALLDÓR Ásgrímsson ut isráðherra segir að fundur ríkisráðherra Atlantshafs bandalagsins sem hefst í d stefnumarkandi um ýmis f armál bandalagsins. Hann gera sér vonir um að fund verði árangursríkur og se líkur séu á að hann marki tímamót. „Þetta verður mjög mik fundur. Þarna verður lagð grunnur að nýjum samsta vangi Atlantshafsbandala Rússlands sem síðan verðu anlega staðfestur á Ítalíu s þessum mánuði. Þetta mál mikil tímamót í samskiptu Rússa og er mjög táknræn breytta stöðu heimsmála. Í öðru lagi verða rædd m framtíðarmál Atlantshafs Halldór Ásgr Þetta stefnu andi f MIKILVÆG MÁL Á DAGSKRÁ Í REYKJAVÍK Ýmis mikilvæg mál verða á dag-skrá utanríkisráðherrafundaAtlantshafsbandalagsins (NATO) og samstarfsríkja þess, sem haldnir verða hér á landi í dag og á morgun. Þar ber þrjú mál hæst; breytingar á bandalaginu til að það verði betur í stakk búið til að mæta hryðjuverkaógninni, stofnun nýs samstarfsráðs með Rússlandi og frekari stækkun NATO til austurs. Í öllum þessum málum hafa skap- azt nýjar forsendur eftir hryðju- verkaárásina á Bandaríkin 11. sept- ember í fyrra. Lengi hefur verið um það rætt innan NATO að viðbúnaður og skipulag bandalagsins þurfi m.a. að taka mið af ógninni af hryðjuverk- um. Árásin á Washington og New York sýndi að sú ógn er áþreifanleg og nærtæk og NATO-ríkin verða að taka hana jafnalvarlega og þá hern- aðarógn, sem þau vígbjuggust gegn í kalda stríðinu. Margar mikilvægar spurningar liggja því fyrir ráða- mönnum NATO á fundum þeirra í Reykjavík þótt ekki sé víst að svör finnist við þeim öllum. Gert er ráð fyrir að í Reykjavík verði gengið efnislega frá samningi um nýjan samráðsvettvang NATO og Rússlands, sem veita mun Rússum áhrif á mótun stefnu NATO um m.a. varnir gegn hryðjuverkum, hömlur við útbreiðslu kjarnorkuvopna, eld- flaugavarnir, friðargæzlu og afvopn- unarmál. Rússland fær þó ekki neit- unarvald í neinum málum og gert er ráð fyrir að náist ekkert samkomu- lag, geti hvor aðili um sig farið sínu fram. Ekki er við því að búast að Rúss- land og NATO-ríkin verði sammála um alla hluti í þessu nýja samstarfi. Engu að síður er hér stigið mikil- vægt skref. Tortryggni Rússa í garð NATO var mikil lengi eftir að kalda stríðinu lauk. Afstaða þeirra til bandalagsins og áforma um stækkun þess til austurs stóð að sumu leyti í vegi fyrir því að hægt yrði að leita framtíðarlausna til að tryggja stöð- ugleika og frið í Evrópu. Erfiðleikar komu upp í samskiptunum við Rússa vegna átakanna á Balkanskaga og loftárása NATO á Júgóslavíu, en mikil umskipti urðu eftir hryðju- verkaárásirnar í fyrra. Rússar hafa allar götur síðan veitt Bandaríkjun- um og bandamönnum þeirra í NATO eindreginn stuðning í baráttunni gegn hryðjuverkamönnum, sem þeir heyja jafnframt sjálfir á heimavelli. Sú tilfinning, að báðir eigi í höggi við sameiginlegan óvin, hefur sömuleiðis stuðlað að því að snúa almennings- álitinu í Rússlandi til fylgis við nán- ara samstarf við Vesturlönd. Þetta er mikilvæg breyting, þótt hún megi ekki leiða til þess að NATO-ríkin samþykki gagnrýnislaust allar að- gerðir Rússa sem beinast gegn meintum hryðjuverkamönnum, t.d. í Tsjetsjníu. Nýtt afvopnunarsamkomulag Bandaríkjanna og Rússlands, sem opinberað var í gær, er til marks um batnandi samstarf og mun án efa stuðla að góðum anda á fundum ráð- herra NATO og Ívanovs utanríkis- ráðherra Rússlands hér í Reykjavík. Það er ánægjulegt að í Reykjavík skuli lagður grunnur að nýju og von- andi farsælu samstarfi NATO og Rússlands, ekki sízt í ljósi þess að á Reykjavíkurfundi Reagans og Gorb- atsjovs fyrir sextán árum var búið í haginn fyrir víðtæka afvopnunar- samninga Bandaríkjanna og Sovét- ríkjanna og endalok kalda stríðsins. Það er vissulega jákvætt ef nafn Reykjavíkur tengist enn nánar um- ræðum um alþjóðlega viðleitni til að skapa frið og stöðugleika í heimin- um. Hvað stækkun NATO varðar, er ekki við því að búast að formlegar ákvarðanir verði teknar á fundunum í Reykjavík en gera má ráð fyrir að farið verði yfir hvernig þau ríki, sem sótt hafa um aðild að bandalaginu, eru á vegi stödd við að uppfylla inn- tökuskilyrðin, bæði hvað varðar hernaðarlega getu en ekki síður á sviði lýðræðislegra umbóta. Einhver þeirra munu svo fá boð um aðildar- viðræður á leiðtogafundi NATO í Prag í haust. Eystrasaltsríkin þrjú, Eistland, Lettland og Litháen, ásamt Slóveníu og Slóvakíu eru talin eiga góða möguleika á NATO-aðild á næstu misserum, en staða Rúmeníu og Búlgaríu er meira álitamál. Bætt samskipti við Rússland hafa í för með sér að aðild Eystrasaltsríkj- anna að Atlantshafsbandalaginu er nú raunhæfur möguleiki. Það er sér- stakt fagnaðarefni fyrir Íslendinga, sem hafa alla tíð stutt baráttu Eystrasaltsríkjanna fyrir sjálfstæði og viðleitni þeirra til að verða full- gildir aðilar að samfélagi vestrænna lýðræðisríkja með aðild að NATO og Evrópusambandinu. Atburðirnir 11. september 2001 hafa einnig flýtt fyrir þróuninni hvað varðar stækkun NATO. Aðildarríkj- um NATO, ekki sízt Bandaríkjunum, er mikið í mun að stækka bandalagið til að eignast nýja og öfluga banda- menn í baráttunni gegn hryðjuverk- um og stuðla að útbreiðslu stöðug- leika, sem byggist á lýðræðislegu þjóðskipulagi og öflugum vörnum. Fundir NATO og samstarfsríkja bandalagsins eru umfangsmestu al- þjóðlegu fundir, sem haldnir hafa verið hér á landi. Mörgum þykir nóg um umstangið og kostnaðinn og ströng öryggisgæzla, sem jafnan þykir nauðsynleg við slíka fundi, hef- ur jafnvel skotið einhverjum íbúum í Vesturbæ Reykjavíkur skelk í bringu. Ótti við slíkar öryggisráð- stafanir er þó ástæðulaus, enda afar ólíklegt að nokkrar þær uppákomur verði í kringum fundina, sem ógni ör- yggi almennra borgara. Þvert á móti ættum við að hafa í huga að fundirnir eru haldnir í þágu öryggis og friðar á alþjóðlegum vett- vangi. Það er átak fyrir agnarlítið ríki eins og Ísland að vera gestgjafi við slíkt tækifæri, en engu að síður nauðsynlegt til að undirstrika virka þátttöku okkar í samstarfi lýðræð- isríkja, sem hefur tryggt okkur frið og farsæld undanfarna fimm áratugi og styrkt stöðu okkar í samfélagi þjóðanna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.