Morgunblaðið - 14.05.2002, Side 48

Morgunblaðið - 14.05.2002, Side 48
MINNINGAR 48 ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Elsku frænka mín og vinkona. Nú þegar þú ert farin yfir móð- una miklu streyma í gegnum hugann ljúfar minningar um þær samverustundir sem við áttum saman og aldrei bar skugga á. Lína mín, í mínum huga varstu lífskúnstner, listrænn fag- urkeri og sönn ,,lady“. Það er sumar í sveitinni, sólin skín í Stóra-Lambhaga. Lítil stelpa stendur úti á hlaði, úr svip hennar skín eftirvænting. Lína frænka og Einar eru að koma í heimsókn. Ekki líður á löngu þar til bifreið Einars, sem bar ein- kennisstafina Ö-90, rennur í hlað- ið. Út úr bílnum stíga Einar og Lína. Einar, þetta ljúfmenni sem öllum þótti vænt um, og Lína sem var vel til höfð að vanda með sitt ljósa hár, lakkaðar neglur, í vel burstuðum skóm og í fötum sem voru valin af stakri smekkvísi hvað varðaði snið og litasamsetningar. Litla sveitastelpan vissi að í veski Línu frænku leyndist beiskur brjóstsykur, hvítur með rauðum röndum og suðusúkkulaði. Hún vissi einnig að hún myndi fá sinn skerf af góðgætinu. Heimsóknir þínar og Einars í sveitina munu aldrei renna mér úr minni. Oftar en ekki komst þú fær- andi hendi enda gjafmildi þín róm- uð. Þegar við systkinin fermdumst komst þú nokkrum dögum fyrir fermingarnar og hjálpaðir mömmu að setja á terturnar og skreyta þær. Þá naust þú þín og oft var þá NIKÓLÍNA SVERRISDÓTTIR ✝ Nikolína Sverris-dóttir fæddist á Norðfirði 24. septem- ber 1920. Hún lést á Hrafnistu í Hafnar- firði 26. apríl síðast- liðinn og var útför hennar gerð frá Keflavíkurkirkju 3. maí í kyrrþey að ósk hinnar látnu. glatt á hjalla. Þegar þú varst í heimsókn fórstu gjarnan í fjósið með mömmu. Þú skelltir þér þá í fjósastígvél sem voru alltof stór á þig. Mamma er alltaf svo snör í snúningum, það vitum við báðar frænkurnar, þess vegna reyndir þú að flýta þér, við það varst þú örlítið kreppt í mjöðmum og hnjám, en Lína mín, þú varst ekkert fljót- ari. Svo þrömmuðuð þið frænk- urnar saman í fjósið. Sólin var að setjast til viðar og lóan söng dýrð- in dí og þú naust augnabliksins. Í fjósinu skröfuðuð þið vinkonurnar saman meðan mamma mjólkaði. Þegar mamma lagði fötuna fulla af mjólk frá sér nældirðu þér í mjólk- urfroðuna sem myndaðist ofan á fötunni. Þetta minnti þig á liðna tíð þegar að þú varst barn í for- eldrahúsun fyrir austan, á Nes- kaupstað. Þú misstir föður þinn og tvo bræður í sjóinn. Þrátt fyrir það var sjórinn þér ávallt hugleikinn og sjómanndagurinn var þinn há- tíðisdagur. Þá fórst þú í þitt fín- asta púss og oftar en ekki var farið út að keyra og þá niður á bryggju. Oft sagðir þú mér frá föður þínum, móður, bræðrunum tveimur og hundinum Freyju sem faðir þinn átti. Úr frásögnunum skein virðing og væntumþykja og þær voru svo ljóslifandi og svo oft endurteknar að aldrei munu þær gleymast mér. Þú lýstir deginum þegar faðir þinn og bróðir drukknuðu og sorg móð- ur þinnar við þær erfiðu aðstæður sem sá einn skilur sem fær reynt. Lína var gleðinnar manneskja, naut þess að vera innan um fólk og lyfta glasi á góðri stund. Lína og Einar komu stundum í réttirnar, þá líkaði henni lífið. Þá kom ber- lega í ljós hve félagslynd hún var. Þá var spjallað, rifjuð upp ánægju- leg atvik og glaðst. Lína eignaðist góða vini í sveitinni. Hún var mjög gjafmild og það eru ófáir bögglarnir sem hún rétti að fólki, hún naut þess að gefa og gleðja aðra. Lína mátti ekkert aumt sjá og ef hún vissi af ein- hverjum sem átti bágt kom hún færandi hendi. Heimili Einars og Línu var mjög smekklegt og fal- legt og þangað voru allir velkomn- ir enda voru hjónin bæði gestrisin. Línu þótti gaman að börnum og var mjög frændrækin. Hún lét sig varða hag frændsystkina sinna og spurði ávallt um líðan þeirra þegar við hittumst. Ég man hve hún fylgdist vel með undirbúningnum fyrir giftingu Jóns Sævars sonar míns. Hún naut þess að taka þátt í undirbúningnum í huganum og er ég þess fullviss að hún hefði viljað vera okkur innan handar eins og forðum við fermingarnar í sveit- inni ef heilsan hefði leyft það, enda er Jón Sævar frændrækinn eins og Lína var og hann og fjölskylda hans heimsóttu hana oft eftir að hún kom á Hrafnistu. Það gladdi okkur fjölskylduna mjög að Lína skyldi geta verið við giftinguna en þá var hún farin að tapa heilsu. Eftir Línu liggja óteljandi hann- yrðaverk sem eru hrein listaverk, vel unnin þar sem hver þráður er á sínum stað því nákvæm var hún svo eftir var tekið. Þá báru litaval og litasamsetningar hannyrðalista- verka hennar þess glöggt merki að þar fór listamaður af guðs náð. Minnisstæðasta verk hennar öðr- um fremur er mjög stór mynd þar sem himinn og vatn er málað en jörð er „kúnstbróderuð“, litir jarð- ar eins smekklega og vel valdir eins og best verður á kosið svo un- un er á að horfa. Þá eru ófáir harðangur- og klausturdúkarnir sem hún saumaði, bæði smádúkar og allt upp í dúk á matarborð. Þeir sem til þekkja vita að slík verk eru listaverk og að ófáar vinnustundir liggja að baki hverju stykki, vinna sem krefst nákvæmni þar sem ekki má skeika einum þræði. Ekki skemmdi það heldur verk Línu hve smekkleg hún var. Flesta dúkana gaf hún öðrum sér til ánægju, þannig var Lína. Slík listaverk lifa og bera vitni um frábært hand- bragð og listrænt innsæi. Þegar þú komst síðast í heim- sókn til mín náði mamma í þig og þú varst í dökkri kápu með fallega slæðu um hálsinn, eins og drottn- ing. Við sátum úti í skálanum og drukkum kaffi, skröfuðum saman og nutum veðurblíðunnar og gróð- ursins. Slík hversdagsleg augna- blik gefa oft lífinu gildi. Þannig ætla ég að muna þig, Lína mín. Hvíl þú í friði, elsku frænka mín. Elsku Sverrir, Svana, Einar, barnabörn og aðrir aðstandendur, Guð gefi ykkur styrk í sorginni. Sólveig. MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent- uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/ sendanda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Frágangur afmælis- og minningargreina >               *   *     * 5; I"J H   %7 '%( %( 7(%*12* 7 )*!$4A 5 *!"# !%%% *% ' !1*%*" )% % *  % * !%% ' %$%>1))% *  %5%  *  %" " *)%     %  %"'$% 1*%# ( )   *      *  ; 5#@9  0.* '*=3  !"    " #$ %&    6-' #$*    ?       4' $ ' .'.+'  "5 % )% %$%>#5 % )% 0)1 +#$!% ' 5 %9# K (F0) )% $!%+#0)1 ' $%"(%5'*-%&0)1 )% $F0)1 )%# >      *             $*             ,0 /  (%&H%*()% -.%'$$-.%# %   )    *                  )   $* *   *   *    & ,0 9#0 / 6%% +%&(!$=  % %(# %$%>'!" 0) )% (F (- % )% )  (- % )% 0) , .% $%$% ' 9 $%0) (- % ' ;%  (2 )% -%-.%'$  1 *7#                     ? ,0?   % %:34  %%# (- .%$9 0) )% *$* %( )% $%"(%* )% , .%&%* '#                     )      *   0 0 ; / 2&%% 2%* 1)*2A  !"# * % ( ) ' (- .%$ % )% (%"(% ( ) )% (2%% ' ,%"  ( ) )% ?% % ' 0&"  ( ) ' +)%,%@>% )% $%& ( ) )% (%$% ' +)%% ( ) ' $%"(% %(% )%    -%-.%'$-%-%-.%#                        ) 09  ,/ L  0 ; /  '%(%$.DA %%#          3     :    &)  ' +)%"  7*2% )% % %" 7*2% )% 0), .% 7*2% ' ,% +'%!* )%  7*2% 7*2% ' (- .%$* )%   0)" 5% "0)  )% *  7 )% %"%  7 '   -%-.%'$-%-%-.%#

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.