Vísir - 02.08.1980, Síða 12
vtsm
Laugardagur 2. ágúst 1980.
helgarpopp
Meatíoaf og Btondie
saman t kvikmynd
Meatloaf og Blondie
Senn liður að útkomu
tónlistar úr kvikmyndinni
>/Roadie"/ en i þeirri
mynd koma m.a. fram’
Meatloaf og Deborah
Harry söngkona Blondie.
Margir kunnir popptónlistar-
menn eiga lög i myndinni og má
nefna Cheap Trick, Styx,
Blondie, Roy Orbison og Joe Ely
þvi til staöfestu.
Meatloaf leikur sveitapilt aö
nafni Travis Redfish i þessari
bandarisku kvikmynd. Hann
gengur I lið meö Blondie á ferö
hljómsveitarinnar sem yfirrót-
ari og þaö leiöir aö lokum til
þess að Redfish hittir Alice
Cooper. Búast má viö að mynd-
in verði sýnd hér á næsta ári.
Gunnar
Salvarsson
skrifar.
Dexy'a Midnight Runners
Bydur press-
unni byrginn
Ein af efnilegustu hljómsveit-
um Breta um þessar mundir,
Dexy’s Midnight Runners hefur
nýlega birt heilslöuauglýsingu á
baksiðu Melody Maker þar sem
segir aö hljómsveitin muni i
framtiöinni ekki eiga nokkur
samskipti viö bresku popppress-
una. Fimm viötöl hafi veriö birt
viö hljómsveitina i jafn mörgum
blöðum og hafi þau verið illa úr
garöi gerð. Eru stór orö látin falla
I garð breskra poppblaðamanna.
Segir hljómsveitin aö hún muni
kaupa rúm i blöðunum hafi hún
eitthvað við þjóöina að segja.
Fyrsta breiðskifa hljómsveit-
arinnar, „Searching For The
Young Rebels”, hafnaði i sjötta
sæti breska listans fyrstu viku
eftir útgáfu.
Paul McCartney
John Lennon
Engin plata í
bráó frá Lennon
Sumir hafa veriö aö gæla viö þá
von aö John Lennon væri e.t.v. aö
hljóðrita nýja plötu. Paul
McCartney var inntur álits á
þessu nýlega og kvaö blaöamað-
urinn Paul hafa a.m.k. skvett
sléttfullri skeiö af köldu vatni á
þann oröróm. Sem sagt, John
Lennon er ekki i plötuhugleiöing-
um.
,,Ég hringi i John annaö veif-
iö”, segir Paul McCartney i viö-
talinu, ,,og siöast hringdi ég I
aann á jólunum. Viö ræddum
einkum um lif okkar, fjölskyldur
okkar. Fólk kallar John einsetu-
mann af þvi aö hann gerir ekki
þaö sem fólk væntir af honum.
Sannleikurinn er hins vegar sá aö
John hamast viö þaö aö vera fjöl-
skyldumaður. Hann var aö elda
síöast þegar ég hringdi og
skemmti sér konunglega. Þaö
vildi til aö ég spuröi hann um tón-
list og hann svaraði „nei” aö
bragöi, kvaöst ekki hafa nokkra
þörf fyrir aö tjá sig i tónlist þá
stundina né i framtiöinni. Hann er
hamingjusamur og þaö skiptir
auövitaö öllu máli. Aödáendur
hans telja sig eflaust svikna en ég
held aö honum standi nákvæm-
lega á sama”.
„Mér likar ekki allskostar aö
tala fyrir John. Mjög margir
spyrjamig umhannog hvað hann
sé aö gera. Og næst þegar ég tala
viö hann, segir hann: „Sagöir þú
þetta virkilega um mig? Þetta er
ekki allt satt”. Svo ég reyni aö
halda kjaftium hann og hann seg-
ir heldur ekkert um mig”.
Þaö veröur þvi a.m.k. einhver
biö á þvi aö John Lennon komi út
úr fjölskylduskelinni og láti I sér
heyra.
Bob James — „H"
CBS 84238
Nýi djassinn, fusion eða
hvað hann nú kallast, hefur að
mestu feykst framhjá mér.
Margt af þessari nýju tónlist
hefur mér enda þótt ofrokkað
og ekki standast gamla djass-
inum snúning. Engar alhæf-
ingar skulu þó lagöar út frá
þessum orðum. En meö Bob
James kom fram á sjónar-
sviðið djassmaöur aö minu
skapi, maður sem gæddi
djassinn nýju lifi og spann
hugmyndir sinar jöfnum
höndum úr gömlum og nýjum
tima. Tónlist hans og félaga
hans I Nýju Jórvik er geysi-
finleg, New York djassistarnir
ungu hafa haldiö mikiö hóp-
inn. Auk Bob James má nefna
Eric Gaie, Earl Klugh, Gary
King, Doug Stegmeyer, Hiri-
am Buliock og Ralph Mc-
Donald, en ailir þessir höfö-
ingjar hafa leikiö meö Bob
James. Þó vantar tvo þá fyrst-
töidu á þessa plötu. ,,H” er fln
plata, en hún er tæpast þaö
besta frá Bob James.
Áhötd um
uppsogn
Nýveriö vöktu mikla athygli fréttir þess efnis
að Ian Anderson fyrirliöi Jethro Tull heföi gerst
stórtækur meö reisupassann og látiö þrjá af
máttarstólpum hljómsveitarinnar gegnum árin,
Barriemore Bariow, John Evan og David Palm-
er, fá pokann sinn. Framhaldsfregnir hermdu aö
i þeirra staö heföu verið ráönir hljómborös-
leikarinn Eddie Jobson og trymbillinn Mark
Craney. Ekki er um þaö deilt aö þessir tveir
vinna aö gerö nýrrar plötu meö Ian Anderson.
En Ian hefur komiö aö máli viö pressuna og
sagt fréttirnar ónákvæmar og i sumum tilvikum
meiöaridi fyrir þá sem I hluta eiga. Segir hann
núverandi liðsskipan aöeins timabundna meöan
aörir liðsmenn hljómsveitarinnar sinni öörum
verkefnum utan hennar og sjálfur vinni hann að
gerðsólóplötu. „Barriemore Barlow, John Evan
og David Palmer kusu aö standa utan viö gerö
„minnar” plötu, en þeim hefur ekki verið sagt
upp eins og staöhæft hefur veriö. David Pegg og
Martin Barre vinna með mér aö plötugeröinni og
Eddie Jobson og Mark Craney komu frá Banda-
rikjunum mér til aðstoðar”, sagöi Ian Anderson
og harmaði mjög fréttirnar um manna-
breytingarnar I Jethro Tull.
Ian Anderson.
Gunnar Salvarsson skrifar
Battlefield — Stand
Easy
Topic Records 12TS404
Umsagnir um popp- og
rokktónlist hafa einkennt skrif
I Helgarpoppi og þvi iitiö fariö
fyrir ágætri tónlist af öörum
toga. Þjóöiagatónlist hefur
t.a.m. orðiö útundan. Þó hún
hafi aldrei veriö hátt skrifuö
hjá mér játa ég aö þessi tónlist
Battlefield kom mér þægilega
á óvart. Battlefield er skosk
hljómsveit, eins skosk og
nokkur skosk hljómsveit getur
veriö, byggir tónlist sina ein-
vöröungu upp á heföbundinni
og rótgróinni skoskri þjóö-
lagatónlist, þar sem sekkja-
pfpur, fiðlur og flautur leika á
als oddi i forgrunni. Þessi
ágæta hljómsveit hefur veriö
starfandi i hartnær tiu ár, og
fyrstu fimm árin var hún
áhugamannahijómsveit en frá
1975 hafa liðsmenn hennar
fimm getaö sinnt henni óskipt-
ir. Mér fróöari menn um þjóö-
lagatónlist segja Battlefield
meö þvi ailra besta á þvi sviöi.
Þá fullyröingu rengi ég ekki.