Vísir - 02.08.1980, Síða 21
Laugardagur 2. ágúst 1980.
sandkasslnn
Gisli Sigur-
geirsson,
blaöamaður
VIsis á Akur-
eyri, skrifar.
Komiðinúöllsólsælogúti-
tekin.
Mig langar fyrst að
kenna ykkur ráð, sem
ætti að duga ef þið
lendið í erf iðleikum með
að komast inn á
skemmtistað um
helgina. Snúið bara
bakinu í dyrnar þegar
dyravörðurinn opnar, en
berið ykkur síðan til við
að ganga aftur á bak
inn. Þá heldur dyra-
vörðurinn að þið séuð að
fara út og allt verður í
besta lagi. Ég hef meira
að segja meðmæli með
þessari aðferð, því einn
ágætur vinur minn
reyndi hana í Færeyjum
um s.l. helgi, með
ágætum árangri!!
•
„Akureyringar fá skatt-
inn á morgun"
segir Vísir á mánu-
daginn. Þá er nú í lagi að
hækka skattana, fyrst
við Akureyringar fáum
þá. Ég sem hélt að það
væri ríkið sem hirti
þetta allt.
Fyrirgefið þetta hlé,
sem varð vegna þess að
I ég var að fá skattseðil-
inn inn um bréfalúguna.
Þar komst ég að raun
um að þetta var mis-
skilningur, þetta með að
við Akureyringar
fengjum skattinn. Það
■ virðist vera ég sem á að
borga'ann.
„Þurfum að vera i
úlpum ef hvessir úti".
segir einn af starfs-
mönnum Frihafnar-
innar í Vísi. Þarna er
kominn skýringin á
vodkarýrnuninni sem
verið var að tala um i
fyrra. Er þeim nokkur
vorkunn, þó þeir taki úr
sér sárasta hrollinn.
„Var alveg við það að
hengja Kúbanann",
segir Bjarni Friðriksson
judómaður í Vísi. Þetta
I kom honum nú í koll, því
á fimmtudaginn mátti
lesa í Þjóðviljanum:
„Vinnuferð til Kúbu"
Mogginn hefur verið
0 heldur seinheppinn í
n pólitíkinni að undan-
förnu. Á þriðjudaginn
tilkynnti hann með
þunga:
cr
„Sólskinið á förum"
Ég leit þetta mjög
„alvarlegum augum",
enda best að trúa öllu
sem stendur í Mogg-
anum. Daginn eftir var
25 stiga hiti hjá okkur
hér fyrir norðan, og út-
varpið sá til þess að
hægt var að gera línurit
yfir hitastigið í Reykja-
vík, sem komst hæst í
23.9 stig.
kom að, ég vissi það
kæmi að því, eins og við
erum búin að fara með
landið.
Þrjár fyrirsagnir voru i
opnu Þjóðviljans á
fimmtudaginn, sem ein-
hverjir ósýnilegir
þræðir lágu í milli: „Að
fylgja þróuninni" —
„Vinnuferð til Kúbu" —
„Að glíma við f rumstæð
öfl".
„Markverðir streyma til
Fram",
segir Mogginn. Rétt
Framarar, þið þurfið
ekki nema svona 30-40 til
að loka markinu örugg-
lega. Munið bara, að það
er allra hluta vegna
öruggara að þeir snúi
bakinu fram.
•
„Viðskiptaráðherra
krækti í silfurverð-
launin",
segir í frétt frá íslands-
mótinu í golfi. Þetta er
áreiðanlega það lengsta,
sem nokkur ráðherra,
núverandi og undan-
genginna ríkisstjórna,
hefur náð.
„ Rikisstjórnin býður
fram 5-7 milljarða",
segir Dagblaðið. Já,
takk, þetta var fallega
gert.
•
„Sjö sækja um hitaveit-
una",
segir Vísir og á við hita-
veituna sem verið er að
leggja um Akureyri
þvers og kruss. Mér
f innst þetta nú f ullmikið
umstang, ef það eru
ekki nema sjö manns,
sem vilja hitaveitu.
•
„ Ríkisst jórnin ræðir
málið",
„Að fá sem mest fyrir
peningana sína",
segir Þjóðviljinn. Með
leyfi að spyrja, hvaða
peninga?
•
„Atakanlegt peninga-
leysi ráðherra má ekki
verða landi og þjóð til
skammar",
segir Ragnar Arnalds
hinn bratfasti í Mogg-
anum. Mér varð það á
að lesa þessa fyrirsögn
vitlaust tvö fyrstu
skiptin, las: „Átakan-
legt getuleysi". En úr
því þeir eru peninga-
lausir blessaðir má þá
búast við peningasöf nun
til styrktar fátækum
ráðherrum?
•
„Býsna mikill þorskur í
sjónum",
segir Tómas Árnason,
ráðherra, í Mogganum.
Mér datt í hug vísan
hans Páls Ölafssonar:
Það er ekki þorsk að fá
úr þessum firði,
þurru landi eru þeir á
og einskis virði.
^Rússneskt loft veldur
hita hér",
segir Mogginn. A-ha,
lúmskir Rússarnir, hver
skyldi svo vera næsti
leikur?
segir Þjóðviljinn og er
hinn roggnasti. Það var
nú mál til komið, búin að
vera við völd í hálft ár.
En eitt er orð og annað
gerðir.
•
„Alagningu einstaklinga
er lokið",
segir Þjóðviljinn. Nú er
heima, farnir að leggja
einstaklingana á, en á
hvað?
•
„Frumbyggjar kvöddu
sér hljóðs,"
segir Þjóðviljinn. Þar
„Hvað er að sjá þig
Steini minn, dauða-
drukkinn um miðjan
dag, og það á fimmtu-
degi", sagði Öli danski
við Steina á förnum
vegi.
„Það er rétt", svaraði
Steini, „ég er fullur, en
það lagast. Þú ert hins
vegar danskur, og það
laqast aldrei".
•
Hafið sólsæla versl-
unarmannahelgi.
•
Bless og hittumst hress.
bakhjarl...
Sá sem situr rétt
afkastar meiru
Drabert — skrifstofustólarnir, sem eru byggöir á hinni vinsælu
Relax — O — flex kenningu, fyrirbyggja þreytu meö því að styðja
vel við bakiö á yður.
Sannkallaðir bakhjarlar.
]SKRIFSTÖFUm^^N
Hallarmúla 2 sími 83211.
ÍS - SHAKE • BANANASPLIT
GAMALDAGS ÍS • GOS
HEITT:
KAKO • PYLSUR • SAMLOKUR
HAMBORGARAR
NÆG BÍLASTÆDI