Vísir - 02.08.1980, Page 29

Vísir - 02.08.1980, Page 29
Laugardagur 2. ágúst 1980. Islendingum 1 stuttri heim- sókn erlendis þykir flestar krár alveg eins — þaB er sama hvar bjórinn er drukkinn svo fremi hann sé áfengur. Hinir, sem dvelja lengur, jafnvel árum saman, hætta fljótt að velja staði eftir áfengismagni og þeysa jafnveí enda stórborgar á milli til að finna nýja bjórteg- und, nýja músik eöa nýjan gest- gjafa. Þvi bjórkrá er eitthvað allt annað en staður til að verða fullur á. Bjórkrá er samkomu- staður, heitt skot á vetrar- kvöldi, fólkið f landinu, umræöa ogathvarf og þótt drykkurinn sé auövitað punkturinn yfir i-inu, þá skiptir hann minna máli en margan grunar i bjórleysinu á íslandi. IMunchen, þar sem bjórlykt- in stendur alltaf upp i fangið, hvernig sem viðrar.er ofterfitt að útskýra fyrir gestum, hvers vegna ekki er bara farið inn á næstu krá eftir sopa i stað þess að fara langa leið og fram hjá mörgum álitlegum stöðum. Það þykir ekki ósjaldan leitað fjári langt yfir skammt. En hvað sv.o sem íslendingar I Munchen kunna að þvælast góðan part úr kvöldi, er þó nær óbrigðult að þeir enda á Möggunni. Maggan er ekki stór staður, ölluminni en t.d. barinná Hðtel Borg. Nýkomnum frá Reykja- vik sem ekki þekkja annað en Hressó eða Brauðbæ, virðist þetta vera imynd bóhemaknæp- unnar, á kafi i reyk, full af sið- skeggjuðum körlum og konum.i indverskum bómullarkjólum sem stara þegjandi inn i flökt- andi kertaljós. Aldursforseta Islendinganýlendunnar er fyrir löngu farið að sviöa I augun af svælunni og lita „bóhemana” hornauga, flestir þeirra eru fyrrverandi skáld, fyrrverandi kvikmyndagerðarmenn sem drukknuðu I þýsku bylgjunni — eða bara fyrrverandi hippar, sem enn þá lifa á 7. áratugnum. Eiginlega er Maggan fyrrver- andi knæpa! En allir halda þeir þó áfram að koma, fá sér bjór og velta vöngum yfir þvi hvers vegna þeir hafi ekki fyrir löngu fundið annan og betri stað. Og gestirniraBheiman, sem aðeins veröa i tvo eöa þrjá daga, þeir lita i kring um sig og spyrja: Hvað er við þennan stað? Svarið er auðvitað ,,mamm- an”. Og hefðin. Þvi Maggan hefur verið fastur samastaður islenskra námsmanna I Munch- en i' rúma tvo áratugi. Og mamma á hann og rekur hann og skenkir endalaust bjór og stundum snaps og þekkir alla og man eftir öllum. Á Möggunni er það ekki endilega bjórinn, ekki endilega fólkið, ekki endilega múslkin, sem dregur að sér, heldur gestgjafinn. Maniman Mamman heitir réttu nafni SophieMohr. Maðurinn hennar, CarlHeinz, vareitt sinn þekktur bariton-söngvari og söng i óper- um viöa i Mið-Evrópu og Sophie fékk viðurnefnið mamma bak- sviðs, þegar hún kom og hjálp- aðitil — þvi oft þurfti að hlaupa i skarðið þar, ekki sist á striðs ogeftirstriðsárunum. Siðan hef- .Svona var aðeins hægt að treysta tslendingum”, Sophie Mohr aiias mamma. Allir á Mögguna Heimsókn á Chez Margot, , sem hefur verið Islend Ll ingaknæpa í 20 ár Maggan var máluð af fátækum listamanni, sem fékk bjór og beina I laun. Nú hefúr hann getið sér frægðarorð i Berlin, en „trén” hans Pétur veigrar sér ekki viö aö skála við kráargesti ef þannig liggur á honum. (Hörður tók myndirnar) söng við og mamma eldaöi mat handa gestunum. Kráin var i stúdentahverfi Munchenar miðju og þau geröu garðinn frægan. Alltaf var fullt út aö dyrum og árin fyrir stúdenta- óeirðirnar með sinum uppreisn- aranda fóru ekki fram hjá mömmu. Flestir kunnustu stúdentaleiötogarnir áttu sitt sæti á Möggunni: Ralf Pohle og Fritz Teufel, sem seinna áttu eftir að gegna stórum hlutverk- um i Baader-Meinhof samtök- unum, voru á meðal þeirra. Mamman er þó enn viss um að þeir hafi verið góðir inn við beinið. Og fólkið úr kvikmyndaskól- anum lagði leið sina á Mögg- una: Fassbinder, Herzog, Schlöndorff... Mamma þekkti þá alla og enn lita þeir við hjá henni, ef þeir eru 5 bænum — það er gaman að vita hvað þeim hefur gengið vel”. Enn er alltaf slæðingur af fólki úr kvik- myndabransanum á Möggunni, stundum til að drekkja von- brigöum, stundum til að skála fyrir góöu gengi — oft á kostnaö gestgjafans. Og mamma hefur frá mörgu fróðlegu að segja. Frá hörm- ungurp striðsáranna og fátækt eftirstriðsáranna. Þegar jafnvel aðal-baritóninn varð að mæta með eldivið á leiksýningar svo hægt væri að kynda. Þegar heimiliö var sprengt upp i' strið- inu. Þegar hún fékk ekkert nema kartöflur i matinn handa börnunum svo vikum skipti. Fyrir mörgum námsmanninum ermammaneini fulitrúi þeirrar kynslöðar þýsku, sem lifði Hitierstimann og hörmungar hans og sögur hennar verða mörgum umhugsunarefni. I þeim kemur fram önnur hliö en sú, sem mannkynsagan i skól- anum sýndi. Og Pétur I rauninni er þetta þriðja Maggan. Sú minnsta og liklega sú fámennasta. Mamman er hætt aö koma daglega, pabbi sést aðeins öðru hvoru. Það er aðstoðarfólk, Renata t.d. sem hefur veriö árum saman en sem þvi miður var i frii þegar mynd- Maggan er I Iltilli hliðargötu. irnar voru teknar. Stundum hjálpar lika maðurinn hennar, ef mikiö er aö gera. EBa bara einhver hleypur I skaröiö — bar- boröiö er ekki landamerki hér. Ogsvoer auðvitað Pétur. Pétur, sem einu sinni ætlaði að verða arkitekt en dvaldi of lengi á Möggunni. Pétur, sem kann best aö meta strák, þótt stelp- urnareigi svo sannarlega góðan vin i honum. Pétur, sem syngur ogdansaref velliggurá honum, en rifur kjaft af miklum hressi- leik ef I það fer. Pétur man lfka eftir mörgum Islendingum, þau rifja upp sögur af landanum hann og mamman og skemmta sér konunglega. Ykkur hefur farið fram i drykkju „Fyrstu Islendingarnir, sem komu inn, voru 4 og þeir voru með Norðmönnum. Þaðvar áriö 1959 segir Mamma. Upp frá þvi fóru þeir aö venja komur sinar hingað”. Hún nefnir ótal nöfn, en e.t.v. er ekki fallega gert að hafa þau eftir — það þekki hver sig! „Þaö get ég fullyrt” segir hún, ,,að ykkur tslendingum hefurfarið fram i drykkju, hafið róast og lært að fara með áfengi. Þeir voru stundum svartir hérna, skal ég segja þér! ” „En allir tslendingar, sem ég hef kynnst hafa veriö alveg stál- heiöarlegir. Ég man eftir þvi aö einu sinni hélt Islendingafélagið hátlö hjá mér, liklega var það á 17. júni'. Þaö er núorðiö ansi langt siðan. Nú, þeir uröu alltaf fyllri og fyllri og einn og einn varaðdetta út af. Þá var Magg- an á öðrum stað en hér og viö bjuggum i ibúð fyrir ofan. Svo ég sagöi við forkólfana, sko, ég get ekki staðið hér lengur, en þiö getið verið áfram. Skrifiði bara allt niður og svo getið þiö gert þaö upp við mig seinna. Ég lét þá fá púða og teppi og fór svo bara upp aö sofa. Daginn eftir, þegarégkom niöur,var búið að taka allt til, og á borðinu var ná- kvæmur listi yfir allt sem hafði verið drukkið og yfir mat, þvi þeir höföu farið i eldhúsiö og spælt sér egg i morgunmat. Og allt var borgað. Svona gat ég engum treyst nema Islending- um”. Hún hefur greinilega gaman af aö rifja þetta upp, man enn nöfnin og spyr eftir þeim. Ætlar hún ekki að koma i heimsókn til tslands? „Jú, það væri nú gaman, og sjá alla aftur. Annars er mesta furða hvaö þið komið oft, löngu eftiraö náminu er lokið. Islend- ingarhljóta að vera tryggt fólk. stundum fæ ég kort” og hún sýnir mér kort frá þremur is- lenskum verkfræðingum. Það haföi greinilega glatt hana mik- Þabje/komið langt fram fyfir miðnætti og rólegt á Möggunni, enda miö vika. Allt i einu berast tónar Eine kleine Nachtmusik um staöinn, Pétur hefur ákveðiö aðmál sé aö linni. Mozart hefur alltaf siðasta orðið áMöggunni. Ms I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I B I I I I I I I I I I I I I I H I I

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.