Vísir - 15.08.1980, Blaðsíða 6
V¥fj!T¥f)Föstudagur 15. ágúst 1980
6
►
ý-'■.■:■:'■■ ý-ýýýý
|%|P|pgg|p
Mesii mlsskllningurinn að ég
væri góöur söngvari”
blaöa
— Viðtal við prentarann, söngvarann,
manninn og fararstjórann Sigurdór Sigurdórs
■■
MMÉmrM Smmm
■■ÆÆý-y-:-:-
• ' ■ ■ ■
Manni, sem skiptir um bíl, fylgt í gegnum
kerfið
segir.Sigfús Halldórsson, tónskáld og listmál
Fyrsta mnrðið - lyrsta nauðgunin
— 2. hluti frásagnarinnar „Gest ber að garði í
Pottery Cottage".
Geir svarar Gunnari
í Fréliallðsi
Teitur meö
örumufleyg
Teitur Þóröarson og félagar
hans hjá öster léku i gærkvöldi
viö Norrköping og sigruöu 2-0.
Teitur skoraöi annaö markiö og
er þaö taliö eitt þaö fallegasta,
sem sést hefur f Sviþjóö i sumar.
„Ég sá þetta mark hjá Teiti i
sjónvarpinu i gærkvöldi, þar sem
þaö var margendursýnt, og var
þaö sérlega glæsilegt, þrumu-
negling og lá við að boltinn festist
i netmöskvunum” sagði Kjartan
L. Pálsson.er Visir hafði samband
viö hann i gærkvöldi.
Arni Stefánsson lék einnig með
liöi sinu Landskrona og þeir sigr-
uöu Hammerby meö tveimur
mörkum gegn engu.
IBfflBBM
- skoraði
draumamark,
begar ðster
sigraðl
Norrköplng 3:0
- Árnl varði
vítaspyrnu
gegn
Hammerby
Arni byrjaði á þvi að verja vita-
spyrnu i upphafi leiksins og eftir
þaö varöihann allt sem á markið
kom og sýndi sinn besta leik i
langan tima.
Mikil barátta er nú bæöi i All-
svenskan og 2. deildinni suöur
eins og hún er kölluð, og liðiö hans
Teits er með fimm stiga forskot á
næsta lið þeir eru meö 26 stig en
Gautaborg, liðiö hans Þorsteins
Ólafssonar, er I öðru sæti meö 21
stig en þaðhafa Malmö F.F. einn-
ig; 10 umferðir eru eftir i All-
svenskan.
í 2. deiidinni eru Gais, I.F.K.
Malmöog Orgryte, öll efst og jöfn
meö 20 stig; i gærkvöldi léku Orn
Óskarsson og félagar hans hjá
örgryte viö Hássleholm. en máttu
þola tap 0-3,hefðu þeir unnið þann
leik,þá heföu þeir veriö efstir meö
22 stig, Jönköping, liðiö sem
bræöurnir Karl og Arsæll Sveins-
synir leika meö er i fjóröa sæti
með 19 stig.
Þá lék Eirikur Þorsteinsson
meö liði sinu Grimsás gegn
Karlskrona og sigruöu þeir 2-0.
Grimsás er meö 17 stig, en
Sveinbjörn Hákonarson sem leik-
ur meö Grimsás hefur ekki fundiö
sig og ekki verið meö i liöinu
undanfariö. K,lp/röp —
í "tvö" líð "frí AKUREYRI i
i (1. DEILD AB ÁRI? !
Nú fer aö síga á seinni hluta
landsmótanna I knattspyrnu,
þvi að þessa dagana eru úrslita-
leikir i yngri aldursflokkum aö
hefjast og vist er að þar verður
um marga skemmtilega leiki aö
ræöa. Margir telja, aö leikir i 4.
og 5. flokki séu þeir skemmti-
legustu og hygg ég, aö þaö sé
rétt.þviþarmásjá skemmtileg
tilþrif og siöast en ekki sist,
leikgleöi.Ég vilhvetja alla, sem
áhuga hafa á knattspyrnu og
eiga þess kost að fylgjast meö
úrslitaleikjum yngri flokkanna,
aö láta ekki leikina fara fram
hjá sér.
Lokið er 13. umferöum i 1.
deild og 2. deild og eru linurnar
nokkuö famar aö skýrast, þött
erfittsé aðspáum,hverfermeö
sigur af hólmi, þvi eins og menn
vita, getur allt skeð i knatt-
spyrnu.
Keppnin i 1. deild hefur verið
nokkuö spennandi ekki vegna
þess aöliöin leiki svo góöa knatt
spyrnu, heldur vegna þess, aö
mörg liöanna eru mjög jöfn aö
getu, þannig aö enginn er
öruggur um sigur fyrirfram.
Gengi liöanna hefur veriö
nokkuð rokkandi, en nú undir
lokinsýnast mér tvö liö liklegust
til aö hreppa sigur, en þaö eru
Valur og Vikingur. Valsmenn
hafa tekið góöan kipp I siöustu
umferöum og unniö eftirtektar-
veröa sigra og auk þess sýnt
góöa knattspyrnu. Þeir verða
þvf aö teljast sigurstranglegast-
ir.
Þá hafa Vlkingar sýnt vax-
andi getu að undanförnu, en
hvort þaö dugir þeim i lokahrin-
unni, skal ósagtlátiö. Hinsvegar
má benda á, að Vikingar hafa
ekki oröib íslandsmeistarar sið-
an 1924, ef ég man rétt, og finnst
stuðningsmönnum þeirra þvi án
efa tfmi til kominn, aö bikarinn
verði vistaður i félagsheimili
þeirra við Hæðargarö. Þá má
ekki gleyma Frömurum,
Skagamönnum og Vestmanna-
eyingum, sem ekki eru langt á
eftir, en liö þeirra eru svo fjarri
lagi búin aö missa af lestinni i
baráttunni um hinn eftirsótta
Islandsbikar. En tvö liö falla i' 2.
deild og ekki veröur enn séö,
hvaöa lið þaö veröa og ég ætla
aösleppa öllum spádómum i þá
veru aö þessu sinni.
Liklegt veröur aö telja, að
Akureyrarliðin, KA og Þór komi
til meö aö taka sæti i 1. deild á
næsta ári, ef fer sem horfir, þvi
mér sýnast þau liö haf tekið af-
gerandi forystu i 2. deild. Það
uröu mikil umbrot i knattspyrn-
unni á Akureyri fyrir nokkrum
árum, þegar sú ákvöröun var
tekin að hætta þátttöku i lands-
mótum undir nafni ÍBA, eins og
gert hafði veriö um áraraðir, en
I staö þess, að félögin KA og Þór
sendu lið i mótin.
Ég efa ekki, aö þaö verður
sögulegur atburöur i knatt-
spyrnusögu Akureyrar, er þaö-
an leika tvö liö i 1. deild.
Þegar þetta er skrifað, hafa
Vestmannaeyingar tryggt sér
réttinn til að leika til úrslita i
Bikarkeppni KSI og mæta
Fram. Vestmannaeyingar hafa
þrisvar áöur leikið til Urslita I
Bikarkeppni KSI og tvisvar far-
ið meö sigur af hólmi.
Annars er þaö athyglivert viö
þessa keppni I ár, aö hvorki
Skagamenn né Valur eru með i
úrslitum, en þessi lib hafa veriö,
annaöhvort annað eöa bæði i' úr-
slitum allar götur siðan 1974.
Ég vil 1 júka þessu spjalli minu
1 dag meö þvi að minna menn á
úrslitaleiki i yngri aldursflokk-
um, sem eru aö hefjast þessa
Á FÖSTUDEG/
Helgi
Daníelsson
skrifar
r
[
i