Morgunblaðið - 24.05.2002, Blaðsíða 14
AKUREYRI
14 FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
sími 462 2900
Útskriftaruglur
fyrir MA og
VMA
Blómin
í bænum
Framangreind jörð er nú til sölu. Hér er um að ræða um
40 ha ræktað land. Húsakostur á jörðinni er góður.
Íbúðarhús er forsteypt á einni hæð ásamt bílskúr, samt.
um 232 fm, byggt árið 1985. Fjós 346 fm (breytt í mjög
gott hesthús f. ca 65 hesta) og hlaða, um 340 fm,
hvorutveggja byggt 1970. Auk þess er viðbygging við fjós
34 fm, geymsla 66 fm og gamalt íbúðarhús sem mögulegt
er að endurnýja. Jörðin er án kvóta. Fjarlægð frá Akureyri
um 19 km. Góður skóli við Hrafnagil stutt frá.
Upplýsingar hjá Fasteignasölunni Eignakjöri ehf.,
Akureyri, sími 462 6441.
TIL SÖLU
JÖRÐIN MÖÐRUFELL Í
EYJAFJARÐARSVEIT
NEMENDUR í Menntasmiðju unga fólksins
lögðu lokahönd á vegglistaverk sem þau hönn-
uðu og unnu saman að undir handleiðslu Joris
Rademaker myndlistarkennara.
Vegglistaverkið er málað á vegg milli Ket-
ilhúss og Listasafnsins en með því að setja
þessi kraftmiklu ungmenni varanlegt mark
sitt á Akureyri og leggja sitt af mörkum til að
fegra bæinn. Menntasmiðja unga fólksins er
námstilboð fyrir fólk á aldrinum 17 til u.þ.b.
26 ára, á vegum Menntasmiðjunnar á Ak-
ureyri, og hafa u.þ.b. 13 manns verið við nám
þar síðan 16. janúar sl.
Námið er svokallað lífsleikninám, í anda
hugmyndafræði norrænu lýðháskólanna, þar
sem fléttað er saman sjálfsstyrkingu, hag-
nýtum fögum og skapandi fögum.Mennta-
smiðja unga fólksins er tilraunaverkefni á
vegum Menntasmiðjunnar á Akureyri.
Helstu samstarfsaðilar eru fjölskyldudeild
Akureyrarbæjar og Svæðisvinnumiðlun Norð-
urlands eystra.
Næsta námsönn í Menntasmiðju unga fólks-
ins hefst í janúar 2003.
Vegglistaverkið mun blasa við vegfarendum um Grófargil.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Glaðbeittir að loknu góðu dagsverki; Finnur, Siggi og Gummi.
List unga fólksins í Menntasmiðju
Einkadans
verði bannaður
BÆJARRÁÐ Akureyrar lagði í gær
til við bæjarstjórn að gerð verði
breyting á Lögreglusamþykkt Akur-
eyrar í þá veru að einkadans verði
bannaður á næturklúbbum.
Gert er ráð fyrir að á veitingastað
með reglubundna starfsemi þar sem
heimilt er að sýna nektardans, verði
lagt bann við hvers konar einkasýn-
ingum og dansi. „Dansatriði skulu
einungis fara fram á einu afmörkuðu
svæði í veitingasal þar sem tryggt er
að fjarlægð milli dansara og áhorf-
enda sé a.m.k. 4 metrar. Dönsurum
er óheimilt að fara um á meðal áhorf-
enda,“ segir í tillögunni.
Borðstemmn-
ingar í
Samlaginu
TVÆR myndlistakonur, Anna Sigga
og Hadda, opna sýningu á þremur
borðstemmningum í innra rými Sam-
lagsins á morgun, laugardaginn 25.
maí, kl. 11. Það sem lagt verður á borð
er stellið Mamma Mia, fyrir pasta-
rétt, Madam Butterfly, fyrir sushi, og
að sjálfsögðu Hnallþóra, fyrir íslenskt
kaffiborð. Stemmningarnar eru á
handofnum borðmottum úr hör ásamt
servíettum og gestabókum.
Sýningin er opin alla daga kl. 14-
18, laugardaga 11-16. Lokað er á
mánudögum. Sýningin stendur til
sunnudagsins 2. júní.
Karrí og djass
VINSTRI grænir bjóða vegfarend-
um um göngugötuna í Hafnarstræti
upp á kraftmikið karrí og grillað
grænmeti eftir hádegi í dag, föstu-
dag. Djasstríóið Hrafnaspark leikur
kl. 16 við kosningamiðstöðina Græna
húsið og kl. 17 mætir skúringakonan
á svæðið og fremur hreingjörning.
Þá verður opið fram eftir kvöldi með
tónlist og upplestri.
Námskeið um
líkamstjónarétt
NÁMSKEIÐ um líkamstjónarétt
verður haldið á vegum símenntunar
Háskólans á Akureyri dagana 31.
maí og 1. júní. Kennari á námskeið-
inu er Viðar Már Matthíasson pró-
fessor við lagadeild HÍ. Námskeiðið
er ætlað lögfræðingum og þeim sem
starfa hjá vátryggingafélögunum við
líkamstjónamál. Á námskeiðinu
verður farið ítarlega yfir líkams-
tjónarétt, sem er sérstakur hluti
skaðabótaréttar. Upplýsingar og
skráning er á skrifstofu RHA.
Uppskeruhátíð
UPPSKERUHÁTÍÐ yngri flokka
handknattleiksdeildar KA verður
haldin í KA-heimilinu á morgun, laug-
ardaginn 25. maí, og hefst hún kl.
11.30. Veittar verða viðurkenningar,
farið í leiki og einnig verður grillað.
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
STJÓRN Fasteigna Akureyrar-
bæjar hefur hafnað þeim kaup-
tilboðum sem bárust í húseignirn-
ar við Þórsstíg 2 og 4. Eitt tilboð
barst í báðar eignirnar og tvö til-
boð í Þórsstíg 2.
Gatnagerð Akureyrarbæjar var
til húsa við Þórsstíg 2 en þar er
um að ræða 400 fermetra iðnaðar-
húsnæði. Starfsemi Ako-Plastos
var til húsa að Þórsstíg 4 en það
húsnæði eignuðust Akureyrarbær
og Byggðastofnun á uppboði á síð-
asta ári. Um er að ræða 3.800 fer-
metra iðnaðar- og skrifstofuhús.
Fasteignafélag Höldurs ehf.
bauð 160 milljónir króna í báðar
eignirnar, sem yrði greitt með
eignarhlut Höldurs ehf. í Hafn-
arstræti 97 á Akureyri en þar er
um að ræða 3., 4. og 5. hæð húss-
ins, sem er í útleigu. Tilboðinu var
hafnað. Fasteignafélag Höldurs
bauð 20 milljónir króna í Þórsstíg
2 en einnig barst annað tilboð frá
einstaklingum í eignina upp á 4
milljónir króna.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæj-
ar telur ekki rétt að selja Þórsstíg
2 fyrr en kaupandi hefur fengist
að Þórsstíg 4 og hafnaði því báðum
tilboðunum.
Morgunblaðið/Kristján
Húseignir við Þórsstíg sem Akureyrarbær og Byggðastofnun vilja selja.
Bragginn til hægri verður hins vegar fjarlægður í sumar.
Tilboðum í Þórs-
stíg 2 og 4 hafnað
FYRSTA skemmtiferðaskip sum-
arsins kemur til hafnar á Akureyri
snemma í fyrramálið, á laugar-
dagsmorgun. Skipið, Black Prince,
kemur að Oddeyrarbryggju á
bilinu frá kl. 7.30 til 8 fyrir hádegi
og mun bæjarstjóri, Kristján Þór
Júlíusson, taka við landfestum.
Alls eru 36 skemmtiferðaskip
væntanleg til Akureyrar í sumar.
Heildarstærð þeirra er 803.664
brúttótonn og er það um 14%
aukning frá fyrra sumri. Gert er
ráð fyrir að farþegar verði um 20
þúsund talsins, en í fyrra voru far-
þegarnir rúmlega 17.500 á 28 skip-
um. Farþegarnir voru frá 44 þjóð-
um, Þjóðverjar fjölmennastir,
rúmlega 8 þúsund, og þá komu
tæplega 4 þúsund Bretar með
skemmtiferðaskipum til Akureyrar
á liðnu sumri.
Langstærsta skipið
sem leggst að bryggju
Stærsta skipið sem kemur í
sumar er A’rosa blu, en það er
70.285 brúttótonn og 245 metra
langt og hét áður Crown Princess.
Unnið hefur verið við dýpkun Odd-
eyrarbryggju og er þess vænst að
skipið leggist að bryggjunni þegar
það kemur, fyrst 7. júlí og svo aft-
ur 21. júlí. Ef svo fer verður það
langstærsta skip sem komið hefur
að bryggju á Akureyri.
Af því tilefni munu félagar í
Lúðrasveit Akureyrar leika fyrir
gesti skipsins við fyrri komu þess.
Þá er vonast til að einhverjir far-
þeganna muni tefla á Hafnarskák-
móti sem efnt verður til í sam-
vinnu Skákfélags Akureyrar og
Akureyrarhafnar 21. júlí. Karlakór
Akureyrar mun svo syngja fyrir
farþega Deutschland, sem kemur
7. ágúst, og Kvennakór Akureyrar
syngur fyrir farþega á Rotterdam,
sem er síðasta skipið sem hingað
kemur í sumar, 19. ágúst.
Þó nokkur skip afbókuðu komur
sínar til Akureyrar í sumar í kjöl-
far hryðjuverkaárásanna á Banda-
ríkin 11. september á síðasta ári,
en Bandaríkjamenn hafa eftir
þann atburð verið tregari til að
ferðast. Talið er að skipakomur
hefðu orðið um 42 til 44 alls í sum-
ar hefðu afbókanir vegna árásanna
ekki komið til.
Fyrsta skemmtiferðaskip
sumarsins kemur á morgun
Um 20 þúsund
farþegar á 36
skipum í sumar
ÁGÆT aflabrögð hafa verið hjá
smábátasjómönnum á Akureyri að
undanförnu, að sögn Bergsteins
Garðarssonar á Hafbjörgu EA.
Hann sagði menn aðallega stunda
handfæra- og línuveiðar um þessar
mundir og væri stutt að fara eftir
fiskinum. Bergsteinn sagði að nokk-
uð væri af síld í firðinum, skammt
fyrir utan Sandgerðisbót en menn
væru ekki að reyna við hana nú, þar
sem nóg væri til af frosinni beitu.
Hann sagði að fyrr í haust hefði
loðnan komið inn fjörðinn og varð
hennar vart alveg syðst á Pollinum.
Bergsteinn kom með um 200 kg
af þorski til hafnar, ásamt félaga
sínum Jóni Sigurðssyni og voru þeir
bara nokkuð sáttir með aflann.
Morgunblaðið/Kristján
Bergsteinn Garðarsson, t.h.,
landaði um 200 kílóum af þorski
í Sandgerðisbót í gær.
Ágæt afla-
brögð hjá
smábátum