Morgunblaðið - 24.05.2002, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 24.05.2002, Blaðsíða 16
SUÐURNES 16 FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ HIÐ árlega Hvítasunnumót SJÓVE var haldið um síðustu helgi. Að þessu sinni var mikið lagt undir vegna 40 ára afmælis Sjóstanga- veiðifélags Vestmannaeyja, SJÓVE. Eins og oft áður var veðurfar rysjótt um hvítasunnuhelgina og fór svo að engir bátar fóru á sjó á laugardeg- inum og var þá ákveðið að keppn- isdagurinn að þessu sinni væri ein- ungis sunnudagurinn. Farið var óvenju snemma á sjó eða kl. 04.00 og var veðrið þá þokkalegt, en þegar leið á morguninn tók aftur að hvessa og þegar bátarnir komu í land kl. 13.00 var komin austan bræla. Þrátt fyrir það fengu nokkrir þolanlegan afla. Aflahæsta sveit kvenna var skipuð þeim Guðrúnu Snæbjörns- dóttur, Sigríði Kjartansdóttur, Maríu Þórarinsdóttur og Katrínu Gísladóttur og fengu þær samtals 489,3 kg. Aflahæsta sveit karla var skipuð Arnþóri Sigurðssyni, Jóhann- esi Sigurðssyni, Auðni Stefánssyni og Árna Karli Ingasyni og veiddu þeir samtals 637,1 kg. Aflahæsta konan var Guðrún Snæbjörnsdóttir með 219,350 kg og aflahæsti karlinn Stefán B. Sigurðsson með 267,6 kg. Alls tóku á milli 60-70 manns þátt í mótinu á 14 bátum. Aflahæsti bát- urinn var Víkurröst með 605,4 kg og skipstjóri var Haraldur Hannesson. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Hvítasunnumót í sjóstöng Vestmannaeyjar SLÁTURFÉLAG Austurlands hef- ur keypt dilkasláturhúsin á Fossvöll- um og Breiðdalsvík af Kaupfélagi Héraðsbúa og verða húsin afhent 1. júní nk. Þá hefur Sláturfélagið jafn- framt tekið á leigu stórgripaslátur- hús KHB á Egilsstöðum með að- stöðu til kjötvinnslu, og er sá samn- ingur til þriggja ára. Sigurjón Bjarnason, fram- kvæmdastjóri Sláturfélagsins, segir kaupsamningana jafngilda hóflegri leigu fyrir slíkar eignir í um það bil þrjú ár. Húsin nálgast úreldingu vegna aldurs, auk þess sem verulegt óhagræði fylgir því að slátra búfé á þrem stöðum á félagssvæðinu og geyma síðan kjötið í frysti á allt að fjórum stöðum. Því er mikilvægt að huga að því að byggja nýtt sláturhús miðsvæðis í fjórðungnum. Reiknað er með að slátrað verði um það bil fimmtíu og fimm þúsund fjár á vegum félagsins í haust. Tvö dilkaslátur- hús á Austurlandi skipta um eiganda Egilsstaðir STARFSFÓLK Íslandspósts fór í sína árlegu vorgöngu um síðustu helgi. Að þessu sinni var gengið ofan af Hellisheiði og komið niður Ham- arinn. Þaðan var gengið í gegnum vesturhluta Hveragerðis að Fossflöt í Lystigarðinum. Þegar þangað kom var göngufólkinu boðið upp á grill- mat. Þátttakendur voru 240 manns að þessu sinni. Gangan hófst kl. 10.30 og komu fyrstu göngugarparnir á leiðarenda rétt fyrir kl. 14.00. Leið- sögumaður ferðarinnar var Björn Pálsson héraðsskjalavörður. Starfs- fólk Íslandspósts hefur farið í vor- göngur í nokkur ár og eru alltaf nýir staðir skoðaðir í hvert sinn. Íslandspóstur – gönguferð Göngufólkið að koma í gegnum „Drullusundið“ inn í miðju bæj- arins. Hveragerði Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir VERIÐ er að leggja lokahönd á deiliskipulag vegna framtíðar Hafn- argötunnar í Keflavík, aðal verslun- argötu bæjarins, en samkvæmt nú- verandi skipulagsáætlun er gert ráð fyrir að aðal miðbæjarstarfsemi Reykjanesbæjar. Verslunarsvæðið við Samkaup verður minnkað og hluti þess tekin undir íbúðarbyggð en þar verður þó áfram gert ráð fyrir stórverslunum. Áætlað er að færa fjöruna fjær Hafnargötunni með landfyllingu og að gerður verði nýr vegur með sjón- um (Ægisgötu) en særok hefur lengi verið vandamál við götuna. Þeirri framkvæmd er einnig ætlað að taka gegnumakstur og alla þungaumferð af Hafnargötunni. Þá er fyrirhugað að breikka gangstéttir og fjölga bíla- stæðum við götuna. Gatan verður gerð vistvænni með gróðri, setbekkj- um, lægri lýsingu og listaverkum. Áætlað er að yfirbragð götunnar, frá Duustorgi að gatnamótum við Vík- urbraut verði eitthvað í líkingu við Laugaveg og Skólavörðustíg í Reykjavík. Lauslega áætlað mun verkið kosta 350–400 milljónir, auk kostnaðar við áðurnefnda fyllingu og gerð Ægisgötu og er ráðgert að verkið hefjist á næsta ári og verði unnið á tveimur árum. Kom það fram í máli Viðars Más Aðalsteinssonar, forstöðumanns umhverfis- og tækni- sviðs Reykjanesbæjar, en það stóð fyrir morgunverðarfundi sl. föstu- dag um framtíð Hafnargötunnar og framtíðarsýn verslunar og þjónustu í bænum, ásamt Markaðs-, atvinnu- og menningarsviði Reykjanesbæjar (MOA). Boðið upp á stöðumat Helga Sigrún Harðardóttir, at- vinnuráðgjafi hjá MOA, kynnti ný verkefni er varða verslun og þjón- ustu sérstaklega sem fyrirhugað er að hrinda í framkvæmd í samvinnu við norræna aðila. „Markmið þessa norræna samvinnuverkefnis (NBU) er að efla innviði verslunar og þjón- ustu með námskeiðahaldi fyrir stjórnendur og starfsfólk og ýmsum greiningum á starfsemi fyrirtækj- anna auk samvinnu við verslunar- og þjónustufyrirtæki í þátttökubæjun- um. Verkefnið verður unnið á þrem- ur árum, að danskri fyrirmynd, með Dönum, Norðmönnum og Svíum en verið er að bíða eftir svörum frá Nor- ræna iðnaðarsjóðnum sem gefið hef- ur vilyrði fyrir því að styrkja verk- efnið með myndarlegu fjárframlagi,“ sagði Helga Sigrún í samtali við Morgunblaðið. Hjá Helgu Sigrúnu fengust einnig þær upplýsingar að með haustinu stæði til að bjóða upp á hagnýt við- mið í gæðastjórnun, Benchmarking- úttektir, en með þeim hætti er gerð greining á starfsemi fyrirtækja og niðurstöðurnar bornar saman við annars vegar önnur fyrirtæki og hins vegar líkan sem byggt er á há- marks árangri. „Upplýsingarnar sem nást með slíkum úttektum gefa stjórnendum færi á að styrkja stöðu fyrirtækjanna sé þess þörf. Þessar úttektir mun MOA geta boðið með- alstórum þjónustufyrirtækjum en að undirbúningi stöðumatsins stendur, auk MOA, Impra, þjónustumiðstöð frumkvöðla og fyrirtækja hjá Iðn- tæknistofnun.“ Steinþór Jónsson, hótelstjóri Hót- els Keflavíkur, kynnti á fundinum stofnun kaupmannasamtaka í Reykjanesbæ og tilkynnti jafnfram að hótelið og Sparisjóðurinn í Kefla- vík hefðu nú þegar lagt fram 200 þúsund króna sjóð til styrktar sam- tökunum. Steinþór óskaði eftir að kaupmenn tilnefndu einn fulltrúa inn í kaupmannasamtökin og síðar á fundinum var Róbert Svavarsson, kaupmaður í Bústoð, kjörinn með lófataki. Þá sögðu Þór Gunnarsson, verk- fræðingur frá Verkfræðistofunni Hniti, og Viðar Páll Þorgrímsson, kaupmaður í Tösku- og hanskabúð- inni frá reynslu sinni við uppbygg- ingu miðborgar Reykjavíkur og því raski sem óneytanlega fylgir slíku fyrir kaupmenn. Viðar stappaði stál- inu í kaupmenn við og í nálægð við Hafnargötuna vegna fyrirhugaðra framkvæmda þar, en rúmlega 60 manns sóttu fundinn. Líflegar um- ræður spunnust og voru menn al- mennt jákvæðir í garð framkvæmd- anna og líta framtíð verslunar og þjónustu í Reykjanesbæ björtum augum. Miklar skipulagsbreytingar fyrirhugaðar á Hafnargötu Vistvænt yfirbragð miðbæjarins Hafnargatan í Keflavík verður með vistvænu yfirbragði, hellulögð með trjágróðri. Teikningin er frá gatnamótunum við Tjarnargötu en þar er gert ráð fyrir hringtorgi, eins og á flestum gatnamótum. Keflavík HALLDÓRA M. Baldursdóttir er í efsta sæti framboðslista V-lista áhugafólks um velferð Vatnsleysu- strandarhrepps. Er þetta þriðji list- inn í hreppnum en áður hefur verið sagt frá frambjóðendum H-lista og T-lista. Tildrög framboðsins eru þau að nokkrar konur komu saman til að ræða þá stöðu sem upp var komin í hreppspólitíkinni en þær töldu ekki útlit fyrir að kona næði kjöri í hreppsnefnd á þeim listum sem komnir voru fram. Þótti þeim það óviðunandi staða og ákváðu að leggja fram nýjan lista með konu í fyrsta sæti. „Við viljum nýta reynslu og krafta kvenna til jafns við karla í þágu samfélagsins alls og jafnframt að konur og karlar deili sem jafnast með sér ábyrgð á því samfélagi sem við búum í,“ segir í yfirlýsingu listans. Listinn er þannig skipaður: 1. Halldóra M. Baldursdóttir, aðstoð- armaður gæðastjóra Orkuveitu Reykjavíkur, 2. Hörður Harðarson framkvæmdastjóri, 3. Hrafn Helga- son, vélvirki og nemi, 4. Hrafnhildur Ýr Hafsteinsdóttir nemi, 5. Krist- björg D. Þorbjarnardóttir fram- kvæmdastjóri, 6. Jón Dofri Baldurs- son verkstjóri, 7. Ásta Björk Marteinsdótir verslunarmaður, 8. Bergur B. Álfþórsson iðnverkamað- ur, 9. María Kristín Gunnarsdóttir, starfsmaður Nesbús, og 10. Lárus K. Lárusson iðnverkamaður. Konur á þriðja listanum Vatnsleysustrandarhreppur F-LISTINN í Garði heldur grill- skemmtun á Garðskaga föstudaginn 24. maí kl. 19. Boðið verður uppá ým- is skemmtiatriði og leikir verða fyrir börnin. Ávörp verða flutt. Frambjóð- endur F-listans sjá um að grilla fyrir gesti. Kosningakaffi verður svo allan kjördag í samkomuhúsinu. Grill á Garðskaga Garður VARNARLIÐSMENN bjóða til ár- legrar vorhátíðar á Keflavíkurflug- velli laugardaginn 25. maí. Hátíðin er með „karnivalsniði“ og fer fram í stóra flugskýlinu næst vatnstanki vallarins frá klukkan ellefu að morgni til fjögur síðdegis. Fjölbreytt skemmtun fyrir alla fjölskylduna verður í boði, lifandi tón- list, þrautir, leikir, matur og hressing og sýningar af ýmsu tagi, og björg- unarþyrla og annar búnaður varnar- liðsins verður til sýnis á svæðinu. Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir, segir í fréttatilkynningu frá varnarliðinu. Umferð er um Grænáshlið ofan Njarðvíkur. Gestir eru vinsamlega beðnir að hafa ekki með sér hunda. Vorhátíð hjá varnarliðinu Keflavíkurflugvöllur Sýning á handverki aldraðra SÝNING á handverki eldri borgara í Reykjanesbæ verður opnuð sunnu- daginn 26. maí nk. klukkan 14 í Sel- inu, Vallarbraut 4 í Njarðvík. Á sýningunni verður margt fal- legra muna, að því er segir í frétta- tilkynningu frá starfsmönnum tóm- stundastarfs, því eldri borgarar í Reykjanesbæ eru ekki sagðir sitja auðum höndum heldur starfa af krafti við ýmiss konar handverk, t.d. út- skurð, glerlist, leirmótun, keramik- málun, alla almenna handavinnu, silkimálun, íkona- og servíettu- myndagerð. Við opnun sýningarinnar eru allir eldri borgarar boðnir vel- komnir sem og þeir sem áhuga hafa á málefnum eldri borgara. Sýningin stendur til og með 31. maí og er opin í Selinu frá kl. 13 til 18. Reykjanesbær
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.