Morgunblaðið - 24.05.2002, Side 21
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2002 21
brýnt að bæta úr því fyrr en áætlanir
gera ráð fyrir?
„Sérfræðingar okkar hafa metið
það svo að raunveruleg þörf fyrir
hafnaraðstöðu skapist eftir um 15 ár
þegar Sundahöfn verði fullbyggð. Þar
er enn hægt að koma fyrir meiri
starfsemi og eftir að gera landfylling-
ar. En þar þarf að fylgja fram-
kvæmdaáætlunum. Ef einhverjir
koma einmitt þegar land er ekki til-
tækt, þá getum við ekki sagt annað
en: Því miður!“
Hvaða starfsemi sérðu fyrir þér í
væntanlegri höfn í Eiðsvík?
„Við höfum kallað þetta fjölnota-
höfn. Þegar þetta byrjaði má sjá í
gögnum hafnarstjórnar frá 9. ára-
tugnum að talað er um stórskipahöfn,
en við höfum ekki notað það orð. Með
fjölnotahöfn er átt við höfn sem getur
tekið við margs konar starfsemi.
Sinnt inn- og útflutningi eftir því sem
á þarf að halda. Hún gæti þannig
mætt því þegar koma ný fyrirtæki inn
á þennan markað og vilja hugsanlega
fara í samkeppni við Eimskip og
Samskip. Við eigum í dag erfitt með
að sinna því hjá Reykjavíkurhöfn. Þar
geta einnig verið fyrirtæki í sjávar-
útvegi eða útflutningi á frystum sjáv-
arafurðum. Við gerum ráð fyrir að í
Gufunesi þróist ekki einungis íbúðar-
byggð heldur er einnig rætt um
ferðaþjónustu, ylströnd og hótel með
ráðstefnuaðstöðu. Fjölnotahöfn gæti
og tekið við skemmtiferðaskipum.
Innst í krikanum í Eiðsvík gæti verið
smábátaaðstaða, eða seglskútuað-
staða.“
En koma ekki nein önnur svæði til
greina á strandlengju Reykjavíkur
fyrir höfn en Eiðsvík?
„Þegar byrjað var með Eiðsvíkur-
málið voru allir sammála um og bókað
í fundargerðum hafnarstjórnar, með-
al annars af Sjálfstæðisflokknum, að
þetta væri langákjósanlegasta hafn-
arsvæðið í landi Reykjavíkur. Þar er
gott aðdýpi og gott var. Það er ekki
endilega þar með sagt að það sé hið
eina. Sjálfstæðisflokkurinn flutti til-
lögu um að kanna möguleika á höfn í
Kollafirði. Tæknimenn Reykjavíkur-
hafnar og Siglingastofnun Íslands
gerðu lauslegar athuganir sem sýndu
að þar þyrfti gríðarlegar landfylling-
ar og ekki síst mikil brimvarnar-
mannvirki því fjörðurinn er opinn fyr-
ir vestan og norðvestan öldunni.“
Árni sagði að menn hefðu einnig velt
fyrir sér hafnargerð í Hvalfirði en
taldi að það myndi kalla á tvöföldun
Hvalfjarðarganganna.
„Við erum reiðbúin að láta skoða
mjög rækilega, t.d. á næsta kjörtíma-
bili, hvaða aðrir kostir koma til greina
og meta þá bæði út frá hafnarsjón-
armiðum, samgöngu-, samfélags- og
umhverfislegum sjónarmiðum. Ég er
sannfærður um að Geldinganes og
Eiðsvíkurhöfnin koma vel út fyrir
marga þessa þætti, en ekki endilega
alla. Við erum reiðubúin til að endur-
skoða þau áform ef heildarniðurstað-
an yrði að best væri að vera með höfn-
ina annars staðar. Meðan slíkt liggur
ekki fyrir finnst okkur ekki forsvar-
anlegt að taka þetta þróunarsvæði
hafnarinnar, sem verið hefur á skipu-
lagi í 20 ár, og henda því bara burt án
þess að hafa aðrar lausnir.“
Að taka meiri
hagsmuni fyrir minni
Inga Jóna Þórðardóttir, borgar-
fulltrúi og fulltrúi sjálfstæðismanna í
hafnarstjórn, var spurð álits á því
mati á þörf fyrir aukið hafnarsvæði
sem fram kemur í aðalskipulagi 2001–
2024.
„Það er til skýrsla erlends sérfræð-
ings sem fenginn var á vegum svæð-
isskipulagsins, en hann mat það svo
að núverandi hafnarsvæði myndu
duga í 50 ár. Miðað við það sem búið
er að skipuleggja í Sundahöfn, stækk-
unarmöguleika sem þar eru og bætta
nýtingu á hafnarbökkum, er ekki
annað að sjá en að það svæði eigi að
duga í nokkra áratugi. Alla vega
fjóra. Ég marka það af því að um
höfnina fara nú um 200 þúsund gáma-
einingar á ári. Afkastagetan á að geta
farið í 500–600 þúsund gámaeiningar,
eða tæplega þrefaldast. Áætlanir
Reykjavíkurhafnar um vöruinnflutn-
ing gera ráð fyrir 2–3% aukningu á
hverju ári, miðað við það erum við að
tala um nokkra áratugi.“
Inga Jóna vildi leggja áherslu á þá
skoðun sína að Reykjavíkurborg væri
að leggja mjög mikið land undir hafn-
arstarfsemi í Sundahöfn. „Það er al-
veg frá Laugarnestanga og inn fyrir
Gelgjutanga. Allt þetta svæði verður
samfelldur hafnarbakki samkvæmt
skipulaginu. Við verðum að gera þá
kröfu að bakland á slíku hafnarsvæði
sé nýtt eins og kostur er. Svona verð-
mætt land verður að nýta til hins ýtr-
asta. Nýtingu þess er hægt að bæta.
Á því byggi ég að við getum nýtt þetta
svæði um nokkurra áratuga skeið.“
Til dæmis um slæma nýtingu hafn-
arsvæðisins nefndi Inga Jóna að stór
hluti óseldra nýrra bíla væri látinn
bíða á hafnarbakkanum.
En liggur ekki fyrir hafnarstjórn
fjöldi beiðna um pláss á hafnarsvæð-
inu, sem ekki er hægt að sinna?
„Það eru beiðnir frá alls konar
starfsemi, sem í mörgum tilvikum
þarf ekki á hafnarbakka að halda. Á
liðnum árum hefur ýmislegt verið
sett á hafnarsvæðið sem ekki er beint
tengt höfninni. Það er vegna þess að
R-listinn hefur ekki útvegað atvinnu-
lóðir annars staðar í borginni. Ýmsir
aðilar, svo sem innflutningsaðilar,
hafa í auknum mæli sótt inn á hafn-
arsvæðið. En við þurfum að horfa
gagnrýnum augum á allar umsóknir
til að það verði sem best nýting á
svæðinu.“
Rætt hefur verið um Eiðsvík sem
framtíðarhafnarsvæði í meira en 20
ár. Voru sjálfstæðismenn ekki sam-
mála því lengi framan af?
„Þegar mörkuð var stefna um höfn
í Eiðsvík á sínum tíma var meira verið
að tala um iðnaðarstarfsemi. Þær for-
sendur eru enn til grundvallar skipu-
laginu. Við sjálfstæðismenn teljum að
slík starfsemi eigi ekki heima í hjarta
íbúðarbyggðar. Íbúðarbyggðin er að
þróast og við teljum að hún eigi að
hafa forgang. Í kringum 1998 breytt-
um við um áherslur því við sáum að
það var ekkert vit í að vera að taka frá
landsvæði á þessum stað fyrir iðnað-
ar- og stórskipahöfn í framtíðinni. Þá
bentum við á að ef þörf væri á svona
höfn á næstu áratugum í Reykjavík
skyldum við láta kanna Kollafjörð.“
Að sögn Ingu Jónu var gerð lausleg
könnun á Kollafirði. Frá hafnarstjóra
hafi komið að þar séu verri skilyrði en
í Eiðsvík vegna strauma og veður-
fars. „Það liggur alveg fyrir að Eiðs-
vík er ákjósanlegra svæði fyrir höfn,
en í Kollafirði eru líka góðar aðstæður
m.a. mikið dýpi. En við Eiðsvík og
Geldinganes eru líka kjöraðstæður
fyrir íbúðarbyggð. Við þurfum að
hafa þrek til að láta minni hagsmuni
víkja fyrir meiri. Niðurstaða okkar er
að hagsmunir íbúðarbyggðar séu
miklu meiri.“
Inga Jóna benti einnig á að ef
skipafélögin flyttu í Eiðsvík, þá færu
þau þangað með alla sína starfsemi.
Þau myndu ekki vera á tveimur stöð-
um. „Nú eru þessir aðilar í miklum
fjárfestingum. Auðvitað þurfa þeir að
nýta þessar fjárfestingar og afskrifa
þær á löngum tíma. Menn munu
leggja ofuráherslu á að nýta Sunda-
höfn eins og kostur er. Við skulum
ímynda okkur að við lítum yfir höf-
uðborgarsvæðið þegar liðin verða
fjörutíu ár. Hverjum heldur þú að
detti þá í hug að setja höfn í Eiðsvík í
hjarta byggðarinnar? Þessi starfsemi
á að fara á jaðarsvæði.“
En hvað þá með Gömlu höfnina?
„Hana eigum við að treysta fyrir
fiskiskipaflotann. Tónlistar- og ráð-
stefnuhúsið verður sett við Faxa-
skála. Á móti eigum við að byggja upp
betri fiskiskipaaðstöðu í Vesturhöfn-
inni.“ Þar nefnir Inga Jóna ýmsa
möguleika á endurnýjun og nýbygg-
ingu hafnarmannvirkja til að treysta
aðstöðu sjávarútvegsins.
Inga Jóna sagði að sjálfstæðis-
menn hefðu lagt áherslu á að aðstaða
fyrir skemmtiferðaskip væri sem
næst miðborginni. Aðeins minnstu
skemmtiferðaskip geta lagst við Mið-
bakka. „Við fluttum tillögu í júní 1998
um að láta reikna út kostnað við
byggingu hafnarbakka fyrir framan
Sætún, austan Ingólfsgarðs, til móts
við Sjávarútvegshúsið. Tengja þar
með ferðamannastrauminn frá
skemmtiferðaskipum við miðborgina.
Í dag leggjast flest ferðamannaskip
að Korngarði, sem ekki er aðlaðandi
aðkoma. R-listinn hefur sagt að
skemmtiferðaskipin eigi að fara í
Geldinganes. Það sýnir betur en
mörg orð á hvaða plani sú umræða er
af þeirra hálfu.“
Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30
Laugardaga kl. 10:00 - 17:00
Sunnudaga kl. 13:00 - 17:00
OPIÐ
Blómabarn?
ÍS
LE
NS
KA
A
UG
LÝ
SI
NG
AS
TO
FA
N
EH
F/
SI
A.
IS
IK
E
17
66
7
05
.
20
02
Býður
einhver betur!
Stjúpur 20 í bakkaj í
Ertu
890kr.