Morgunblaðið - 24.05.2002, Blaðsíða 46
MINNINGAR
46 FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
:
'
))
#&
#&
!
#&
#
-*
3
3 #&?
#< %)
?
3
"" #'&$
#"4 $$'" :<"$1$ "$
#"4 #"4 $$'" &-" . &#$
#'& #"4 $$'" $ "G)"""&
&H #"4 $ 1$""1#(#"J$'"
'& " ")
"
K8
7#< &=
#< %
)
33
:
# & '
'
)
)
#
##
5
+
? +
)
!75
+
,)
,3&
&"#2# $#"$ )
FRÉTTIR
Við kveðjum frænda
og vin okkar, Einar
Kristján. Við þökkum
honum ótal ljúfar
minningar og fyrir að
hafa spunnið líf okkar og fjölskyld-
ur saman.
Í barnæsku okkar var Einar
uppáhaldsfrændi, hafði meiri þol-
inmæði en önnur skyldmenni og
var endalaust til í að hamast með
okkur krökkunum, leiðbeina og
leika. Hann nennti að horfa á
frumsamda dans- og söngleiki,
hlusta á brandara og var oft eini
áhorfandinn. Alla tíð sýndi hann
hugðarefnum okkar áhuga, hafði
mikla trú á hæfileikum okkar,
hversu lítilfjörlegir sem þeir voru,
og hvatti okkur til að vera skap-
andi. Hann var ætíð tilbúinn að
gefa okkur tíma, segja okkur til og
grínast. Í síðasta sinn sem við
heimsóttum Einar, örfáum dögum
fyrir andlátið, slefaði litla dóttir
okkar á hönd hans. Hann þurrkaði
slefuna í jakka Hafsteins og sagð-
ist vera að launa honum alla snjó-
boltana í Lindarselinu í gamla
daga.
Við tókum alla tíð mikinn þátt í
lífi hans, þar á meðal fæðingu
Hildigunnar, sem var stór stund í
fjölskyldum okkar. Einar var henni
einstakur faðir. Hann var frum-
kvöðull hinna mjúku feðra, hann
var opinskár á tilfinningar sínar
gagnvart henni, sem var ekki kom-
ið í tísku þá. Hann spilaði ósjaldan
Brian Eno, Music for airports, fyr-
ir dótturina meðan hún var unga-
barn í vöggu.
Við minnumst ógleymanlegra
funda okkar við Einar og Önnu í
Kaíró fyrir nokkrum árum. Eins og
Einars var von og vísa bjó hann á
einstaklega frumlegu hóteli, sem
hafði verið vinsælt um og eftir 1930
en hafði ekki verið skipt um hús-
gögn eða endurnýjað, jafnvel bar-
þjónninn virtist einnig vera upp-
EINAR KRISTJÁN
EINARSSON
✝ Einar KristjánEinarsson fædd-
ist á Akureyri 12.
nóvember 1956.
Hann lést á Land-
spítalanum við
Hringbraut 8. maí
síðastliðinn og var
útför hans gerð frá
Dómkirkjunni í
Reykjavík 16. maí.
runalegur. Það var
eins og við hefðum
farið aftur í tímann.
Einar sagði okkur að
þetta væri uppáhalds-
hótel John Cleese.
Allt svona vissi hann.
Einar var auga-
steinn og eftirlæti
ömmu og afa, yngsta
barnið þeirra. Hann
skipaði sérstakan sess
í fjölskyldunni,
heillandi persónuleiki
og einstakur listamað-
ur. Í fjölskylduboðum,
í gleði og sorg, feng-
um við alltaf einkatónleika og verk-
ið Minningar frá Alhamra varð lag
fjölskyldunnar. Einar og fjölskyld-
an koma upp í hugann þegar það
hljómar. Veikindi Einars voru mik-
ið áfall, þá sást glöggt hversu vin-
margur hann var og hversu mörg-
um þótti innilega vænt um hann.
Við þökkum fyrir þá góðu gæfu
að hafa kynnst Einari og teljum
okkur eiga honum margt að þakka.
Elsku Anna, Hildigunnur, amma,
Aggi, Óttar, mamma, fjölskylda og
vinir. Guð styrki ykkur í þessari
miklu sorg.
Blessuð sé minning Einars
frænda, minningin um góðan
dreng.
Ragnheiður
og Hafsteinn.
Gamli góði Kirkjuhóll
á endimörkum veraldar
þegar jökullinn
afklæðist brúðarkjólnum
og bræðir hjörtu mannanna
á svartri strönd við hafið.
Kviknakin börnin
busla berfætt í sjónum
og skilja eftir sig smástíg fótspor
í blautum fjörusandi.
Rekaviðurinn ber okkur fregnir
frá fjarlægum ströndum –
fyrirheit um nákomna framtíð.
Bálkösturinn tignarlegi
logar glatt
inn í stjörnubjarta nóttina.
Undir verndarvæng jökulsins
voru vináttuböndin treyst.
(Hitabylgja á Snæfellsnesi
sumarið ’84.)
Megi kraftur Guðs styrkja fjöl-
skyldu og vini Einars Kristjáns
Einarssonar.
Sverrir Guðjónsson,
Elín Edda Árnadóttir.
Ég horfi í gegnum
gluggann,
á grafhljóðri vetrarnóttu,
og leit eina litla stjörnu,
þar lengst úti í blárri
nóttu.
Hún skein með svo blíðum bjarma,
sem bros frá liðnum árum.
Hún titraði gegnum gluggann,
sem geisli í sorgartárum.
(Magnús Ásgeirsson.)
Með þessum ljóðlínum vil ég í ör-
fáum orðum minnast vinar míns til
margra ára, Braga Óskarssonar,
BRAGI
ÓSKARSSON
✝ Bragi Óskarssonfæddist á Ísafirði
11. janúar 1951.
Hann lést 18. febrúar
síðastliðinn og var
útför hans gerð frá
Grafarvogskirkju
27. febrúar.
sem lést svo óvænt og á
svo sorglegan hátt 18.
febrúar síðastliðinn.
Það er svo sárt að
hugsa til þess að þetta
skyldi þurfa að henda
þennan góða dreng.
Þegar ég kynntist
Braga vann hann sem
blaðamaður á Morgun-
blaðinu. Bragi var
einkar ljúfur og
skemmtilegur maður,
bráðgreindur og mikill
náttúruunnandi.
Ófáar ferðir voru
farnar á Reykjanesið
sem honum var mjög kært, þar var
margt að skoða og alltaf eitthvað
nýtt sem hann hafði að sýna og segja
frá. Þar þekkti hann sig líka vel enda
heimavanur á Reykjanesvita þar
sem foreldrar hans höfðu búið til
margra ára.
Bragi fór sem kennari út á land
veturinn 1996 og kenndi við grunn-
skólann á Raufarhöfn. Við hittumst
lítið næstu árin eins og gengur, en
oftar nú í seinni tíð eftir að hann fór
að vinna hjá Hagvögnum. Ekki datt
mér í hug þegar við sátum saman í
vagninum síðast, hann að fara í vinn-
una og ég heim að þetta væri í síð-
asta sinn sem við sæjumst, þá fannst
okkur nógur tími til að hittast og
spjalla.
Það á enginn að geyma til morg-
uns það sem hægt er að gera í dag
því það veit enginn hvað morgun-
dagurinn ber í skauti sínu.
Bragi las eitt sinn fyrir mig upp úr
bók um kínverska speki eftir La-
oTse, mér finnst þessi orð vera eins
og sögð um hann. „Ég á þrjár ger-
semar sem ég gæti vel, ein þeirra er
ást, önnur er nægjusemi, sú þriðja
er auðmýkt. Sá einn sem elskar er
hugrakkur, aðeins hinn nægjusami
er mikilhæfur, og einungis sá auð-
mjúki er fær til valda.“
Ég þakka Braga fyrir dýrmætar
stundir frá liðnum árum, allar góðu
minningarnar um hann geymi ég í
hjarta mínu.
Meinabætur margar
minningarnar geyma.
Til eru ljós, sem lýsa
langt inn í æðri heima.
Hvíld er hverjum heitinn
hvað sem yfir dynur,
Guð og góðir englar
gæti þín elsku vinur.
(Davíð Stefánsson.)
Ég votta móður hans, Valgerði,
bræðrum hans, Gylfa og Flosa, og
öðrum ástvinum mína dýpstu samúð.
Margrét.
ELÍSABET Sif og Robin Sewell,
Dansfélaginu Hvönn, Kópavogi,
tóku þátt í árlegri Imperial Open
Dans-keppni í suður-amerískum
dönsum í London 17. maí sl.
ásamt 150 öðrum danspörum og
enduðu í 3. sæti á eftir rússnesku
pari sem varð í 1. sæti og ítölsku
sem varð í 2. sæti. Þá kom þýskt
par í 4. sæti og enskt í því
fimmta.
Vakti árangur þeirra mikla at-
hygli þar ytra. Þá tóku þau þátt í
keppni daginn eftir National
Open og komust einnig í úrslit
þar og lentu í 4. sæti.
Íslenskt par í þriðja sæti
HÁSKÓLINN í Reykjavík (HR)
hefur lagt áherslu á að byggja
upp samstarf um fjarnám í kerf-
isfræði við stofnanir tengdar
menntun á landsbyggðinni.
Byrjað var á Austurlandi í sam-
vinnu við Fræðslunet Austur-
lands sem skilaði góðum árangri
og í haust verður haldið áfram
að byggja upp það starf ásamt
því að fá fleiri til samstarfs, að
því er fram kemur í fréttatil-
kynningu.
Nú þegar hafa verið haldnir
kynningarfundir á Patreksfirði
og Ísafirði í samvinnu við
Fræðslumiðstöð Vestfjarða, á
Sauðárkróki í samvinnu við Far-
skóla Norðurlands vestra og í
Reykjanesbæ í samvinnu við
Miðstöð símenntunar á Suður-
nesjum.
Á Selfossi er HR í samvinnu
við Nýja tölvu- og viðskiptaskól-
ann og Fræðslunet Suðurlands.
Einnig er unnið að samstarfi við
menntastofnanir í Þingeyjar-
sýslu. Lögð er áhersla á að
bjóða nemendum upp á vinnuað-
stöðu á hverjum stað og aðstoð í
formi dæmatíma þar sem nem-
endur geta hitt kennara einu
sinni til tvisvar í viku.
Tölvunarfræðideild HR býður
námsefni fyrstu þriggja anna (af
fjórum) í fjarnámi. Um er að
ræða námsefni af kjörsviði not-
endahugbúnaður. Nemendur
innritast í kerfisfræði en til að
ljúka kerfisfræðiprófi þurfa
nemendur að koma í hefðbundið
staðarnám á 4. önn. Nemendur
geta ákveðið síðar að ljúka BS
gráðu (90 einingar) í hefðbundnu
námi. Námsefni og námskröfur í
fjarnámi er nákvæmlega það
sama og í staðarnámi.
Fjarnámið er tekið á hálfum
hraða; tvö námskeið á haustönn
og tvö námskeið á vorönn ásamt
verklegu námskeiði á vorönn
sem krefst þess að nemendur
vinni verkefni í skólanum í þrjár
vikur. Þannig tekur hver önn
einn vetur í fjarnámi. Fjarnám
er valkostur fyrir nemendur sem
ekki hafa aðstæður til hefðbund-
innar skólagöngu og fer námið
fram í sérhönnuðu fjarnámsum-
hverfi sem deildin hefur þróað á
undanförnum árum og byggir
nær eingöngu á nettækni, segir í
fréttatilkynningu.
Reynslan hefur sýnt tölvunar-
fræðideildinni að stuðningur við
nemendur í heimabyggð er mik-
ils virði og er mikilvægt að
byggja upp aðstöðu til þess á
sem flestum stöðum. Upplýsing-
ar um fjarnámið er að finna á
vef skólans www.ru.is en einnig
hjá Ásrúnu Matthíasdóttur,
asrun@ru.is, lektor og verkefn-
isstjóra fjarnáms.
Fjarnám í tölvunar-
fræði víða um land