Vísir - 10.10.1980, Side 20
20
Föstudagur 10. október 1980
A síöiistu stundu
Laugarásbió: Moment
by Moment
Höfundur handrits og
leikstjóri: Jane Wagn-
er
Myndatökumaður:
Philip Lathrop
Framleiðandi: Robert
Stigwood
Aðalleikarar: Lily
Tomlin og John Tra-
volta
Trisha Rawling býr i Beverly
Hills,klæöist fallegum pastellit-
um fötum frá dýrum verslunum
og á eiginmann sem bæöi heldur
framhjá henni og klæðist ljótum
skræpóttum skyrtum. Tisha er
að vonum leið á eiginmannin-
um, en skilnaður þeirra hjóna
fær ekki hrakið frá henni
leiðindin. Hún flyst þvi i hús við
sjávarsiðuna og safnar um sig
þægum og umgengnisgóðum
húsdýrum, tveim hundum og
piltinum Strip, sem John Tra-
volta leikur.
Tisha og Strip eiga bæði voða
bágt. Strip er ósköp lummuleg-
ur i klæðaburði, fávis, litt
skólaður i mannasiðum og úr
fjölskyldu sem ekki kærði sig
um hann. Vandræði Tishu tengj-
ast körlum. Eiginmaðurinn er
ágæt fyrirvinna en eins og áður
segir, um of uppá kvenhöndina.
L
Aðalleikararnir I Moment By Moment, Tomlin og Travolta, ásamt framleiðanda myndarinnar Robert
Stigwood.
Elskhuginn Strip er :hins vegar
úr lágstétt og bagalega ungur
miðað við frúna.
Vissulega er i „Moment by
Moment” drepið á raunveruleg
vandamál, en framsetning
þeirra er svo óraunsæisleg að
með ólikindum má kallast.
Tisha og Strip eru eins og tusku-
brúður á streng, fæddar i
draumi.
Jane Wagner leikstjóri og
höfundur handrits hefur skapað
þessar undarlegu draumaper-
sónur afturgengnar úr ódýrum
eldhúsrómönum.
John Travolta er ákaflega
ljúfur strákur i „Moment By
Moment” og uppfyllir án efa
allar kröfur aðdáenda sinna þó
risið á rullunni sé ekki hátt.
Undarlegra er að alsæmileg
leikkona á borð við Lily Tomlin
(hún lék t.d. i „Nashville”)
skuli hafa fengist i hlutverk
Tishu, enda þótti um tima ekki
annað liklegra en hún tæki sið-
ustu sporin á leiklistarbrautinni
i „Moment By Moment”.
„Moment By Moment” fengi
sennilega bestu einkunn væri
hún lögð fram sem auglýsing
fyrir bandariskan textiliðnað og
dýrar fataverslanir. En lengd
auglýsinga er tiðast mæld i
sekúndum en sýning myndar-
innar tekur eina og hálfa
kliiklnisfnnH
-i
Woody Allen fer á kostum f
„Annie Hall”.
Annle
Hall
enflursýnfl
Tónabió endursýnir i
kvöld og nokkur næstu
kvöld gamanmyndina
„Annie Hall” eftir háð-
fuglinn Woody Allen
Annie Hall er ein frægasta
mynd Allens og fékk hún 5
Óskarsverðlaun. Woody Allen
leikstýrir myndinni og leikur
annað aðalhlutverkið, en hitt er i
höndum Diönu Keaton. Myndin er
sýnd klukkan 5, 7 og 9.
LEIKFELAG 2Æ3f^
REYKJAVlKUR
Aö sjá til þin, maður!
9. sýn. í kvöld kl. 20.30
Brún kort gilda
10. sýn. sunnudag kl. 20.30
Bleik kort gilda
Rommí
föstudag kl. 20.30
miðvikudag kl. 20.30
Ofvitinn
laugardag kl. 20.30
Þriðjudag kl. 20.30.
Miðasala i Iðnó kl. 14-20.30
Sími 16620.
^ÞIÓÐLEIKHÚSIU
Smalastúlkan
og útlagarnir
i kvöld kl. 20
sunnud. kl. 20.
Snjór
laugardag kl. 20
Óvitar
sunnudag kl. 15
Litla sviðið:
i öruggri borg
sunnudag kl. 20.30
Tvær sýningar eftir.
Miðasala 13,15-20. simi 1-
1200.
/í>ÆR\
/wonaL
PUSUNDUM!
wffmm
smáauglýsingar ■» 86611
Hinn geysivinsæli gam-
anleikur
iÞorlókur
þreytti
verður sýndur að nýju vegna
fjölda áskorana á morgun
laugardag kl. 20.30. Næsta
sýning mánudag.
Skemmtun fyrir
qIIq fjölskylduno
Þar sem að selst hefur
upp á allar sýningar, er
fólki ráðlagt að vera
tímanlega að ná sér í
miða.
Miðasala i Félagsheimili
Kópavogs frá kl. 18-20.30 nema
iaugardaga frá kl. 14-20.30.
LAUGARÁS
B I O
Simi 32075
Caliguia
MALCOLM Mc DOWELL
PETER O’TOOLE
SirJOHNGIELGUD soni .NERVA'
CALIGULA
.EN TVRANSSTDRHEDOG FALD'
Strengl forbudt C
forbern. oaiCTAtrnNnui
Þar sem brjálæðið fagnar
sigrum nefnir sagan mörg
nöfn. Eitt af þeim er
Caligula. Caligula er hrotta-
fengin og djörf en þó sann-
söguleg mynd um róm-
verska keisarann sem
stjórnaði með morðum og
ótta. Mynd þessi er alls ekki
fyrir viðkvæmt og hneyksl-
unargjarnt fólk. íslenskur
texti.
Aðalhlutverk:
Caligula. Malcolm McDowell
Tiberius......Peter O’Toole
Drusilla .. Teresa Ann Savoy
Caesonia......Helen Mirren
Nerva.........John Gielgud
Claudius . Giancarlo Badessi
Sýnd daglega kl. 5 og 9
Laugardaga og sunnudaga
kl. 4-7 og 10 Stranglega bönn-
uð innan 16 ára. Nafnskir-
teini. Hækkaö verð. Miða-
sala frá kl. fjögur daglega,
nema laugardaga og sunnu-
daga þá frá kl. 2.
SMIDJUVEGI 1. KÓP. SÍMI 43500
(Útv*g«bankabú*lnu
MMtMt f Kópmogl)
Bráðfyndin og splukuný
amerisk gamanmynd eftir
þá félaga Hanna og Barbara
höfunda Fred Flintstone.
Mjög spaugileg atriði sem
hitta hláturtaugarnar eða
eins og einhver sagði:
„Hláturinn lengir lifið”.
Mynd fyrir unga jafnt sem
aldna.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
ðÆJARBiP
■ 'f" ■■ ■ c: —: cm qa
Simi 50184
Kapp er best
með forsjá
Ný mjög spennandi og
skemmtileg mynd um ung-
linga, sem eru að ljúka
menntaskólanámi.
Sýnd kl. 9 föstudag.
Sýnd kl. 5 laugardag (engin
sýning kl. 9).
Sýnd kl. 5 og 9 sunnudag.
Lagt á brattann
(You Light Up My
Life)
tslenskur texti
Afar skemmtileg ný amerisk
kvikmynd i litum um unga
stúlku á framabraut i nútima
pop-tónlistar. Leikstjóri.
Joseph Brooks. Aðalhlut-
verk: Didi Gonn, Joe Silver,
Mishael Zasolow.
Sýnd kl. 9 og 11.
Þjófurinn frá Bagdad
tslenskurtexti
Spennandi ný amerisk ævin-
týrakvikmynd i litum.
Aðalhlutverk: Kabir Bedi,
Peter Ustinov,
Sýnd kl. 5 og 7.
Myndfyrir alla fjölskylduna.
Simi50249
Óskarsverölaunamyndin
Norma Rae
Frábær ný bandarisk kvik-
mynd er allstaöar hefur
hlotið lof gagnrýnenda. í
april sl. hlaut Sally Fields
Óskarsverðlaunin, sem
besta leikkona ársins, fyrir
túlkun sina á hlutverki
Normu Rae.
Leikstjóri: Martin Ritt
Aðalhlutverk: Sally Field,
Bau Bridges og Ron Leib-
man, sá sami er leikur Kaz I
sjónvarpsþættinum Sýkn eða
sekur.
Sýnd kl. 9.