Morgunblaðið - 23.06.2002, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 23.06.2002, Qupperneq 2
FRÉTTIR 2 SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðinu í dag fylgir auglýsingablaðið „Í hring- iðunni í 40 ár“ frá Radisson SAS Hótel Sögu. Blaðinu verð- ur dreift um allt land. LÖGREGLA hefur ekki náð tali af manni sem sagðist í út- varpsviðtali hafa orðið vitni að því þegar eiturslanga slapp út úr húsi í Grafarvogi síðastliðið mánudagskvöld. Í öðru út- varpsviðtali á föstudag var staðhæft að slangan hefði fundist á húsþaki í hverfinu en lögreglan hefur efasemdir um sannleiksgildi sögunnar allrar. Viðmælandinn finnst ekki Eins og Morgunblaðið greindi frá á föstudag náðist ekki í viðmælandann úr út- varpsþættinum, þar sem þáttastjórnandinn vissi ekki nafn hans. Að sögn lögreglu er málið því strand og óvíst hvort frekar verður aðhafst í málinu. Lögreglumaðurinn sem Morgunblaðið ræddi við segist hafa sínar efasemdir um að maðurinn sem auglýst hefur verið eftir hafi verið að segja sannleikann í fyrra útvarpsvið- talinu. Þannig væri hugsanlegt að hringt hafi verið inn í síðara viðtalinu til að „bjarga sér fyr- ir horn“, eins og hann orðaði það. Efasemd- ir um til- vist eitur- slöngu ÖRN Johnson, flugmaður eins hreyfils vélarinnar sem nauðlenti við bæinn Á á Skarðsströnd á föstu- dagskvöldið, segir að annað hreyf- ilblað vélarinnar hafi brotnað á flugi en ekki skemmst við lend- inguna eins og fram kom í frétt Morgunblaðsins í gær, sem byggð var á upplýsingum Flugmála- stjórnar. Mjög sjaldgæft sé að slíkt gerist og reynsla hans og annars flugmanns sem í vélinni var hafi tví- mælalaust skipt sköpum við lend- inguna. Örn segir að vélin, sem er af gerð- inni Jodel, hafi verið í samfloti með 11 öðrum vélum sem lögðu upp í skemmtiferð frá Reykjavík og Mos- fellsbæ um hálfáttaleytið á föstu- dagskvöld en ferðinni hafi verið heitið að Holti í Önundarfirði. „Ferðin gekk vel í blíðskaparveðri en í 4.000 feta hæð yfir Klofningi kom skyndilega mikill hristingur á vélina. Við drápum á hreyfli vél- arinnar og ofreistum hana til þess að stöðva snúning hins skrúfublaðs- ins. Hófst svo leit að lendingarstað en þar sem við vorum í 4.000 feta hæð gáfust til þess nokkrar mínútur enda lækkaði vélin hæð sína aðeins um 600 til 700 fet á mínútu. Okkur þótti vegurinn á Skarðsströnd álit- legastur en þar sem flugvélin er lág- þekja og vegstikur eru beggja vegna vegarins töldum við lendingu á túni heppilegri og fundum við tún við bæinn Á á Skarðsströnd, svifum þangað til lendingar og tókst lend- ingin vel,“ segir Örn. Farþegi Arnar í vélinni var Jón Karl Snorrason atvinnuflugmaður og eru þeir Örn báðir þrautreyndir flugmenn sem hafa æft nauðlend- ingar í mörg ár í lendingarkeppn- um. Örn telur ekki nokkurn vafa leika á því að reynsla þeirra í nauð- lendingum hafi skipt sköpum í at- vikinu á föstudag. „Hún gerði það að verkum að við gátum á örskömm- um tíma metið möguleika okkar til þess að finna heppilegan lending- arstað og tekið ákvörðun um lend- ingu í réttri hæð svo að hægt væri að hitta á túnið á réttum stað,“ segir Örn. Aðspurður segir Örn að þeim hafi auðvitað brugðið verulega þeg- ar atburðurinn varð. „Hvorugur okkar hefur lent í þessu áður enda tel ég að svona atvik séu afskaplega sjaldgæf. Að lokinni lendingu skoð- uðum við brotna skrúfublaðið og er ekki að sjá neitt sem bendir til gam- allar sprungu í því svo þetta kom mjög óvænt. Að auki erum við þess báðir fullvissir að við fengum ekki fugl á okkur,“ segir Örn. Hann segir að við atvikið hafi þeir Jón Karl strax látið hinar vélarnar vita að það væri hættuástand um borð og óskað eftir að Flug- málastjórn yrði gert viðvart. „Eftir lendinguna létum við samferðafólk okkar vita að hún hefði heppnast vel og óskuðum þeim svo góðrar ferðar um helgina,“ segir Örn. Nauðlending eins hreyfils flugvélar á Skarðsströnd í fyrrakvöld Annað hreyfilblaðið brotnaði Ljósmynd/Egill Rúnar Reynisson Flugmennirnir Örn Johnson og Jón Karl Snorrason standa við vélina eftir vel heppnaða nauðlendingu. DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segir að það hafi verið mat lögreglu- yfirvalda að lögreglan treysti sér ekki til þess að tryggja öryggi for- seta Kína og sendinefndar hans nema fylgjendum Falun Gong yrði meinuð landganga á Íslandi. „Það hefði verið ábyrgðarlaust af hálfu stjórnvalda að hafa að engu ráðleggingar þeirra og álit sem best þekkja til,“ segir Davíð í viðtali sem birt er í Morgunblaðinu í dag. Hefðum orðið að gera hið sama ef 1.000 Tíbetar hefðu komið Forsætisráðherra segir það um- husunarefni að 500 til 600 manna vel skipulagður hópur útlendinga geti ákveðið að sækja landið heim í þeim eina tilgangi að breyta eða skaða verulega ákvarðanir sem rétt kjörin stjórnvöld hafa tekið. Davíð segir alveg fráleitt að saka ríkisstjórnina um að ganga erinda kommúnistastjórnar vegna fram- göngu sinnar í þessu máli. ,,Við hefð- um orðið að gera hið sama ef hingað hefðu komið eitt þúsund Tíbetar. Ég ber mikla virðingu fyrir þeirra mál- stað en ef þúsund Tíbetar hefðu hingað komið og ætlað að stöðva heimsókn Kínaforseta, þá hefðum við ekki getað unað því heldur. Það hefði engin þjóð gert,“ segir hann. Formaður dagskrárnefndar á þjóðhátíð hóf stórpólitíska árás Davíð gagnrýnir í viðtalinu við- brögð við aðgerðum stjórnvalda og ræðu sem Steinunn Valdís Óskars- dóttir, borgarfulltrúi og formaður þjóðhátíðarnefndar í Reykjavík, flutti á Austurvelli 17. júní. „Meira að segja formaður dag- skrárnefndarinnar, sem á að gera grein fyrir dagskránni, hóf stórpóli- tíska árás á forseta og ríkisstjórn í viðurvist tuga erlendra sendimanna og dylgjaði um að stjórnvöld á Ís- landi væru kynþáttahatarar. Ég hef heyrt einhverja sjálfskipaða um- ræðusnillinga halda því fram að það væri bara sjálfsagt mál. Viðkomandi hefðu að öðrum kosti ekki getað ver- ið þarna. Gat þá ekki alveg eins stjórnandi lúðrasveitarinnar líka tjáð sig um þetta? Ráðist á ríkis- stjórnina og forsetann fyrir framan 50 erlenda sendiherra eins og for- maður dagskrárnefndarinnar tekur allt í einu upp hjá sér að gera?“ segir Davíð. Byggðist á mati lögreglu- yfirvalda  Ólíkar/10–12 Davíð Oddsson forsætisráðherra um þá ákvörðun að meina fylgjendum Falun Gong landgöngu HAGNAÐUR Alcan á Íslandi (ISAL) eftir skatta árið 2001 var 2,6 milljarðar króna. Velta fyrirtækisins nam 26,6 milljörðum króna og skatt- greiðslur vegna ársins 2001 voru rúmar 900 milljónir króna. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu. Þar segir að framleiðslumet hafi verið slegið enn eitt árið þar sem 168.276 tonn af áli hafi verið fram- leidd á síðasta ári. Þá hafi útflutn- ingsverðmæti framleiðslunnar num- ið um 13,5% af heildarverðmæti útfluttra vara frá Íslandi árið 2001. Fram kemur að framleiðsla síð- asta árs var 4% hærri en áætluð ár- leg framleiðslugeta verksmiðjunnar en með sértækum aðgerðum tókst að auka framleiðsluna verulega. „Af- koma ársins 2001 er ein sú besta í sögu fyrirtækisins, þrátt fyrir að ál- verð hafi verið lágt. Meðalverð árs- ins var 1.456 Bandaríkjadalir á tonn af áli á heimsmarkaði, 111 dollurum lægra en árið 2000,“ segir í tilkynn- ingunni. Helstu skýringar á hinni góðu afkomu eru sagðar góður tæknilegur rekstur verksmiðjunnar og aukin framleiðsla, auk þess sem gengisþróun hafi haft jákvæð áhrif á rekstrarreikning fyrirtækisns. Reiknað með hækkun á álverði Loks segir að horfur fyrir yfir- standandi ár séu góðar þrátt fyrir að álverð hafi enn lækkað frá því í fyrra. „Reiknað er með að verðið fari að hækka að nýju á seinni hluta þessa árs og spurn eftir áli aukist með bættu efnahagsástandi víða um heim.“ Lögformlegu nafni ISAL var breytt á aðalfundi félagsins hinn 5. júní þegar nafnið „Íslenska álfélagið hf.“ var lagt niður og „Alcan á Ís- landi hf.“ tekið upp í staðinn. Verk- smiðjan sjálf verður þó áfram kölluð ISAL. Nafnabreytingin endurspegl- ar breytt eignarhald fyrirtækisins. Þá urðu breytingar á stjórn ISAL þegar Cynthia Carroll, yfirmaður hráálsdeildar Alcan, tók sæti Emery LeBlanc, fyrrverandi yfirmanns hrá- álsdeildarinnar, sem hefur látið af störfum vegna aldurs. Ein besta afkoma í sögu Alcan á Íslandi (ISAL) KANDÍDATAR við brautskráningu frá Háskóla Íslands í gær voru 715 talsins. Athöfnin fór fram í Laug- ardalshöll við mikið fjölmenni. Dagskráin hófst að venju með því að prófskírteini voru afhent en að því búnu ávarpaði rektor kandídat- ana. Þetta var í fyrsta sinn sem nemar úr framhaldsnámi í laga- deild og guðfræðideild útskrifuðust og sömu sögu má segja af nemum í MBA-námi við háskólann. Morgunblaðið/Jim Smart 715 kandídatar brautskráðir frá HÍ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.