Morgunblaðið - 23.06.2002, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 23.06.2002, Blaðsíða 48
48 SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. ,,BJARTAR nætur í júní“ er árleg tónlistarhátíð sem Óperustúdíó Austurlands stendur fyrir. Hún var nú haldin í fjórða sinn og er orðin gildur þáttur í menn- ingarlífi Austur- lands. Á dagskrá að þessu sinni voru fjórar óp- erusýningar á Eiðum, tónleikar Kammerkórs Austurlands í Egilsstaðakirkju og Mozart-tón- listarveisla í Eskifjarðarkirkju, alls sex viðburðir á jafnmörgum dögum, 8. til13. júní. Eftir eins dags hlé var síðan haldið til Reykjavíkur og óperan „Cosi fan tutte“ sýnd hér í Borgarleikhúsinu tvisvar um helgina 15.-16. júní. Starfseminni eystra hefur verið góður gaumur gefinn í Morgun- blaðinu. Þannig hef ég úr fjarlægð fylgst með þessum ótrúlegu at- burðum sem hafa verið að gerast á bernskuslóðum mínum austur á Héraði, undrast þann stórhug, áræði og metnað sem þar kemur fram og dáðst að þeirri bjartsýni, útsjónarsemi og atorku sem slík framkvæmd hlýtur að krefjast við þær aðstæður sem þar eru. Ingveldur G. Ólafsdóttir hefur skrifað í Morgunblaðið ágætar um- sagnir um báðar óperu-frumsýn- ingarnar á Eiðum. Þær voru tvær, því að tvískipað er í hvert hlutverk óperunnar. Þar þarf ekki um að bæta. Hins vegar finnst mér óp- eruheimsóknin til Reykjavíkur hafa vakið minni viðbrögð en vænta mátti og ástæða var til. Því get ég ekki orða bundist. „Cosi fan tutte“ er ekki „stærsta“ ópera Mozarts, en kannski er hún einhver hin vand- meðfarnasta. Þar er ekkert stjörnuhlutverk. Persónurnar eru sex, öll hlutverkin álíka stór, gera öll miklar kröfur til söngvaranna, bæði í söng og leik, og umfram allt í samleik og samsöng. Þetta er kallað „ensemble“ á erlendum mál- um, en á íslensku er ekkert orð til um það. Það felur í sér fullkomna samhæfingu, ekki aðeins í rytma og raddbeitingu, heldur einnig í skilningi á viðfangsefninu og við- horfi til þess. Hér vill oft skorta á, jafnvel í stóru óperuhúsunum sem einatt treysta á stjörnurnar til að bera uppi sýningar sínar. Í þessu kom sýningin í Borg- arleikhúsinu verulega á óvart. Þótt raddirnar séu nokkuð misjafnlega þroskaðar, sumir söngvararnir kornungir nemendur en aðrir fullnuma söngvarar, jafnvel með talsverða reynslu að baki, var heildarsvipur sýningarinnar svo samfelldur og hreinn að það hlaut að vekja undrun og aðdáun. Þetta greip áheyrandann þegar í upp- hafsatriðinu og hélt allt til enda. Í heild var sýningin afar fagmann- leg, laus við þá hnökra sem kannski hefði mátt vænta eins og hér var í pottinn búið; í stuttu máli mjög sannfærandi, falleg og hríf- andi. Töframaðurinn sem hér veifaði sprota sínum og er driffjöðrin á bak við „Bjartar nætur í júní“ er Keith Reed, söngkennari við Tón- listarskólann á Egilsstöðum. Hann er fjölmenntaður tónlistarmaður og þaulreyndur óperusöngvari sjálfur. Af tólf söngvurum í tví- settum söngvarahópi sýningarinn- ar er meira en helmingur nem- endur eða fyrrverandi nemendur hans. Margir hafa tekið þátt í fyrri sýningum „Bjartra nátta“ og má kannski segja að þeir hafi alist upp í Óperustúdíói Austurlands. Allt liðið hefur Keith æft frá grunni í hlutverkum sínum, ásamt hljóm- sveitinni sem skipuð er fólki úr ýmsum áttum. Svo er hann leik- stjóri sýningarinnar og hljómsveit- arstjóri og loks aðalhöfundur leik- myndar. Bæði leikstjórn og leikmynd byggjast á óvenjulegum og skemmtilegum hugmyndum sem fara efninu vel. Leiksviðið er taflborð sem hæfir þeirri svika- myllu sem í leiknum felst. En barnið sem býr í hjarta hvers manns – og hverrar persónu leiks- ins – er gert sýnilegt. Börnin lífga sviðið og sýninguna án þess að draga athygli frá því sem máli skiptir. Til þess að hrinda af stokkum og koma í höfn svo miklu fyrirtæki sem Óperustúdíó Austurlands er þarf að huga að fleira en hinu list- ræna. Formaður samtakanna er Ásta Bryndís Schram. Hún er líka framkvæmdastjóri hátíðarinnar og sýningarstjóri óperunnar. Hún skrifar grein í leikskrána þar sem hún telur upp og þakkar fjölda „lykilmanna“ sem lagt hafa mál- efninu lið og sumir gengið svo langt að taka sér sumarfrí til þess að vinna sjálfboðavinnu fyrir óp- eruna. Hugsjónastarf með slíkan stuðning að baki á framtíðina fyrir sér. Megi því vel farnast. JÓN ÞÓRARINSSON, tónskáld. Björt nótt í Borgarleikhúsi Frá Jóni Þórarinssyni: Jón Þórarinsson Málarar - Múrarar - Píparar - Smiðir Dúkarar - Rafvirkjar - Ræstitæknar Vertu í góðum höndum! Eitt númer - 511 1707 www.handlaginn.is handlaginn@handlaginn.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.