Morgunblaðið - 23.06.2002, Blaðsíða 47
HUGVEKJA
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 2002 47
Staður Nafn Sími 1 Sími 2
Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542
Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600
Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672
Bifröst Bára Rúnarsdóttir 435 0054
Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243
Blönduós Gerður Hallgrímsdóttir 452 4355 868 5024
Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965
Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474
Breiðdalsvík Skúli Hannesson 475 6669 894 2669
Búðardalur Anna María Agnarsdóttir 434 1381
Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039
Djúpivogur Sara Dís Tumadóttir 478 8161
Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350
Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123
Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315
Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370
Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885
Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 699 2989
Grenivík Ólína H. Friðbjarnardóttir 463 3131
Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608
Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148
Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758
Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 892 1522
Hellissandur Sigurlaug G.Guðmundsdóttir 436 6752 855 2952
Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Hofsós Jóhannes V. Jóhannesson 453 7343
Hólmavík Ingimundur Pálsson 451 3333 893 1140
Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823
Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 893 2683
Hvammstangi Gunnar Þorvaldsson 451 2482 894 5591
Hveragerði Imma ehf. 483 4421 862 7525
Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 487 8172/893 1711/853 1711
Höfn Ólafía Þóra Bragadóttir 478 1786 896 1786
Innri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 868 3281
Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463
Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024
Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8372 895 7818
Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112
Laugarás Reynir Arnar Ingólfsson 486 8913
Laugarvatn Berglind Pálmadóttir 486 1129 865 3679
Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 848 2173
Ólafsfjörður Árni Björnsson 466 2347 866 7958
Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305
Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230
Raufarhöfn Alda Guðmundsdóttir 465 1344
Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/892 0488/866 9574
Reykholt Bisk. Guðmundur Rúnar Arneson 486 8797
Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783
Reykjahlíð Mýv. Pétur Freyr Jónsson 464 4123
Sandgerði Sigurbjörg Eiríksdóttir 423 7674 895 7674
Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888/854 7488/865 5038
Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700
Seyðisfjörður Margrét Vera Knútsdóttir 472 1136 863 1136
Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067
Skagaströnd Þórey og Sigurbjörn 452 2879 868 2815
Stokkseyri Kristrún Kalmansdóttir 867 4089
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141
Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864
Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244
Súðavík Ingibjörg Ólafsdóttir 4564936
Tálknafjörður Sveinbjörg Erla Ólafsdóttir 456 2676
Vestmannaeyjar Jakobína Guðlaugsdóttir 481 1518 897 1131
Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 698 7521
Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535 557 5750
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135
Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 868 3281
Þingeyri Sigríður Þórdís Ástvaldsdóttir 456 8233 456 8433
Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627
Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249
Dreifing Morgunblaðsins
Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni
JÓNSMESSAN fer í hönd. Íþjóðarvitund Íslendinga varhún lengi mjög svo tengd yf-irskilvitlegum fyrirbærum,
því aðfaranótt hennar áttu
m.a. kýr að geta talað og selir far-
ið úr hömum sínum. Var hún
þannig talin ein af fjórum mögn-
uðustu nóttum ársins, og er
kannski enn; hinar voru jólanótt,
nýársnótt og þrettándanótt.
Um Jónsmessu, sem er 24.
júní, eins og allir vita, segir Árni
Björnsson þjóðháttafræðingur í
Sögu daganna:
„Hún leysti af hólmi forna sól-
hvarfahátíð í Róm, og virðist einnig á
Norðurlöndum hafa komið í stað slíkr-
ar veislu. Suður í Evrópu var Jóns-
messa talin miðsumarsnótt og var mik-
il alþýðuhátíð með brennum, dansi og
svokölluðum nornamessum. Hérlendis
var hátíðahald mun minna en í grann-
löndunum. Kann að hafa ráðið nokkru
að á þjóðveldisöld lenti dagurinn á
miðjum alþingistímanum.“
Annað sem gerði það að verk-
um, að minna var um tilstand hér
á þessum degi en annars staðar í
Evrópu, var m.a. skortur á eldi-
við; að eyða því litla sem til var, í
gleðibrennur á miðju sumri, hefur
ekki þótt spaklegt. Einnig hefur
það spilað inn í, að lítið var hér
um drauga, púka, tröll og aðrar
óvættir. Um það segir Árni
Björnsson:
„Á því gæti verið sú einfalda skýring
að óvættir eru yfirleitt heldur ljós-
fælnar verur. Því hlaut Jónsmessunótt
á Íslandi að vera einhver óheppilegasti
tími fyrir þvílíkt illþýði að vera á ferli
eða yfirleitt að láta sjá sig... Þessi mis-
munur gæti skýrt nokkuð þá eyðu í
hefðbundnu íslensku skemmtanalífi
sem sumum hefur í seinni tíð fundist
átakanlegur, nefnilega að þar finnst
enginn Jónsmessufagnaður... Auk þess
olli strjálbýlið nokkru um á þessum
árstíma sem öðrum.“
Aðfaranóttin sjálf var þó kröft-
ug, eins og áður er nefnt. Margir
tóku það ráð, hér sem erlendis, að
velta sér allsberir í dögginni á
Jónsmessunótt, sem átti að hafa
sérstakan lækningarmátt, eða þá
fóru að leita töfragrasa og nátt-
úrusteina.
Heiti dagsins er annars komið
af nafni Jóhannesar skírara;
þetta er fæðingardagur hans og
messudagur. Áður fyrr nefndist
hann í íslenskum heimildum Jóan
baptisti eða skírari, og einnig Jón,
með sömu viðurnöfnum.
Í bókinni Nöfn Íslendinga, eftir
Guðrúnu Kvaran og Sigurð Jóns-
son frá Arnarvatni, segir um
nafnið Jóhannes:
„Nafnið er sótt til Biblíunnar og er
hebreskt að uppruna... og merkir eig-
inlega „guð hefur sýnt miskunn“... Af
þessu nafni eru leidd nöfnin Jón, Jó-
hann, Jens, Hannes, Hans.“
Og um nafnið Jón segir þar:
„Það er stytting af Jóhannes eða Jó-
hann. Það má hugsa sér þróunina
þannig: Jóhannes>Jóhann>Jóan-
>Jón.“
Jóhannes skírari var frændi
Jesú í móðurætt og jafnaldri hans
að kalla, ekki nema um sex mán-
uðum eldri. Foreldrar hans voru
þau Sakaría prestur og Elísabet,
en hún var fram að því „óbyrja,
og bæði voru þau hnigin að aldri,“
eins og segir í Lúkasarguðspjalli.
Spámannlega köllun fékk hann
árið 27 e. Kr. eða svo, hafandi þá
verið lengstum í óbyggðum Jú-
deu, bíðandi eftir merki frá Guði.
Hann gekk þar um í klæðum úr
úlfaldahári, gyrtur leðurbelti um
lendar sér, og nærðist á engi-
sprettum og villihunangi.
Á settum tíma fór Jesús að
hitta þennan frænda sinn, og er
talið að fundi þeirra hafi borið
saman við ána Jórdan, nærri
þeim stað er heitir Deir Mar-
Yuhanna (Qasr el-Yehud). Þeir
ræðast við og Jesús tekur loks
skírn af honum, og fer síðar um
hann miklum viðurkenning-
arorðum.
Jóhannes skírari og María
guðsmóðir eru einu kaþólsku dýr-
lingarnir sem eiga fæðingardaga
sína að messudögum; dán-
ardagur, upptökudagur beina eða
skrínlagning hefur ráðið vali í
dæmum annarra. Jóhannes varð
einnig fyrsti alþjóðlegi dýrlingur
kirkjunnar í austri og vestri, eigi
síðar en frá 4. öld.
Margar kirkjur á Íslandi voru
fyrrum helgaðar Jóhannesi skír-
ara, ýmist einum eða með öðrum;
hann var m.ö.o. nafndýrlingur
sautján guðshúsa og vernd-
ardýrlingur tíu. Mætti sem dæmi
nefna hér Stað í Grunnavík, Bæg-
isá í Hörgárdal, Saurbæ á Hval-
fjarðarströnd og Viðey. Einnig
voru myndir af honum í um tutt-
ugu kirkjum hér á landi.
Jónsmessa var numin úr tölu
íslenskra helgidaga árið 1770. Í
alþýðutrúnni lifði hún þó áfram,
eins og margar fornar hátíðir úr
kaþólskum tíma, sem lagðar
höfðu verið niður upp úr siðbreyt-
ingu. Enn má t.d. heyra af fólki,
sem afklæðist og veltir sér nakið í
dögg umræddrar nætur. Sam-
kvæmt þjóðtrúnni átti slíkt að
lækna kláða og átján önnur
óhreinindi í holdi. Ekki er ólík-
legt, að það atferli hafi orðið til af
reynslu kynslóðanna, sem þekkti
vel til hinna ýmsu jurta og virkni
þeirra til góðs.
Að lokum er þess að geta, að
Jóhannes á sér aðra messu á dán-
ardegi sínum, höfuðdegi, 29.
ágúst.
Jónsmessa
sigurdur.aegisson@kirkjan.is
Í huga flestra lands-
manna er Jóns-
messa á sumri æði
merkilegur tími í
almanaksárinu, sér í
lagi aðfaranóttin; þá
á margt undarlegt
að gerast. En eins
og Sigurður Æg-
isson bendir hér
á, vita þó færri, að
umræddur dagur
ber nafn af Jóhann-
esi skírara.
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá Þingflokki
VG:
„Þingflokkur Vinstrihreyfingar-
innar – græns framboðs minnir á að
óbyggðir Íslands og víðerni eru ein
dýrmætasta auðlind Íslendinga.
Vaxandi fjöldi nýtir náttúru landsins
til útivistar, og hálendið, vötnin og
árnar í öllum sínum margbreytileika
eru undirstaða fyrir þróun ferða-
þjónustu og afþreyingar í margvís-
legum myndum. Óspillt náttúra, laus
við skaðlega mengun, er jafnframt
gildur þáttur í þeirri ímynd hollustu
sem festa þarf í sessi af Íslandi og
forsenda sjálfbærrar þróunar í
byggðarlögum um land allt.
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinn-
ar – græns framboðs lýsir þungum
áhyggjum yfir stóriðjustefnu ríkis-
stjórnarinnar og afleiðingum henn-
ar, þar sem skammtímasjónarmið
ráða ferðinni og vegið er að ofan-
greindum gildum og alþjóðlegum
leikreglum um náttúruvernd. Með
blessun stjórnvalda er nú verið að
undirbúa þreföldun álframleiðslu í
risaverksmiðjum hérlendis, hjá
ÍSAL, Norðuráli og á Reyðarfirði.
Álfyrirtækjunum er lofað ókeypis
losun gróðurhúsalofttegunda, en
öðrum atvinnurekstri og almenningi
ætlað að bera hita og þunga af sam-
drætti í losun sem Ísland hefur
skuldbundið sig til að hlíta sam-
kvæmt Kyótóbókuninni. Stóriðjuá-
formin kalla á stórvirkjanir og veitur
á hálendinu með tilheyrandi raflín-
um, samveitu stórfljóta og öðru
raski sem gjörbreyta mun vatnafari
og ásýnd landsins á stórum svæðum.
Raforka sem þarf til vinnslu
þeirra 800–900 þúsund áltonna á ári,
sem nú er verið að leggja drög að,
nemur um 12 teravattstundum, en á
síðasta ári var raforkuframleiðsla til
allra nota hérlendis samtals 8 tera-
vattstundir. Stóriðjuáformin eru
keyrð áfram af stjórnvöldum áður
en lokið er vinnu við Rammaáætlun
um greiningu virkjunarkosta hér-
lendis. Bráðabirgðaniðurstöður
Rammaáætlunar sem kynntar voru
fyrir fáum dögum benda eindregið
til að þeir virkjunarkostir sem nú
eru efstir á blaði hjá Landsvirkjun,
Norðlingaölduveita í Þjórsárverum
og Kárahnjúkavirkjun, valdi alvar-
legustu röskun á náttúrufari og um-
hverfi af þeim möguleikum sem til
skoðunar hafa verið hingað til. Þing-
flokkur VG krefst þess að heildstæð
vinna við Rammaáætlunina verði til
lykta leidd og nýtt sem undirstaða
fyrir stefnumörkun um verndun og
nýtingu óbyggða Íslands, vatna-
kerfa og jarðhitasvæða til langs
tíma. Ótrúleg skammsýni einkennir
vinnulag ríkisstjórnarinnar, sem auk
umhverfisröskunar stefnir hagþró-
un í hættu og kemur í veg fyrir
möguleika til fjölþættrar at-
vinnuþróunar og þjónustu um land
allt.
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinn-
ar – græns framboðs heitir á þjóðina
að rísa til varnar náttúru og um-
hverfi og fylkja sér um fjölþætta at-
vinnuþróun á sjálfbærum forsend-
um.“
Óspillt náttúra án mengunar gildur þáttur í ímynd hollustu
VG lýsir áhyggjum yfir stór-
iðjustefnu ríkisstjórnarinnar
Í ÁR eru liðin tíu ár frá því að ráð-
stefna Sameinuðu þjóðanna um um-
hverfi og þróun var haldin í Rio de
Janeiro. Af því tilefni halda Samein-
uðu þjóðirnar leiðtogafund um sjálf-
bæra þróun í Jóhannesarborg í Suður
Afríku 26. ágúst til 4. september 2002.
Forsætis-, utanríkis- og umhverf-
isráðuneyti efna til kynningarfundar
um leiðtogafundinn á Grand Hótel
mánudaginn 24. júní 2002 kl. 14:00.
Fundarstjóri er Ólafur Davíðsson,
ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytis-
ins.
Dagskrá:
14:00 Ólafur Davíðsson, ráðuneyt-
isstjóri forsætisráðuneytisins: Tilurð
og markmið leiðtogafundarins
14:10 Þórir Ibsen, skrifstofustjóri í
utanríkisráðuneytinu: Málefnaaf-
staða Íslands við undirbúning leið-
togafundarins
14:25 Magnús Jóhannesson, ráðu-
neytisstjóri umhverfisráðuneytisins:
Stefnumörkun ríkisstjórnarinnar um
sjálfbæra þróun
14:40 Stefán Gíslason, verkefnis-
stjóri: Staðardagskrá 21
14:55 Fyrirspurnir og umræður
Skráning þátttöku er í síma eða
með tölvupósti: skraning@utn.stjr.is.
Leiðtogafund-
ur um sjálf-
bæra þróun
SUNNUDAGSKVÖLDIÐ 23. júní
kl. 23.00 til 01.00 verður frítt inn í
Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í til-
efni af Jónsmessu.
Við það tækifæri verður margt
gert til skemmtunar og má þar nefna
brennu, gítarspil og harmonikuleik.
Trjálfur verður á vappi að segja sög-
ur og tröll og annar ófögnuður verð-
ur á sveimi. Spákona mun spá fyrir
gestum og í kaffihúsinu verður boðið
upp á kúmenkaffi og ástarpunga,
segir í fréttatilkynningu.
Jónsmessukvöld í
Húsdýragarðinum
Í TILEFNI af uppgræðsluátaki í ná-
grenni Litlu kaffistofunnar efna
samtökin Gróður fyrir fólk í Land-
námi Ingólfs (GFF) og samstarfsað-
ilar til stuttrar samkomu í Litlu
kaffistofunni mánudaginn 24. júní kl.
9.30. Samkoman gengur undir nafn-
inu „Trukk í uppgræðslu“ og er nú
haldin annað árið í röð.
Tilgangur samkomunnar er að
vekja athygli á og kynna samstarfs-
verkefni að uppgræðslu.
Trukk í
uppgræðslu