Morgunblaðið - 23.06.2002, Blaðsíða 25
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 2002 25
Járn + C vítamín
fyrirbyggir járnskort.
C-vítamínið
eykur nýtingu járns.
Nýtt frá Biomega
Fæst í apótekum
Verð kr. 49.950
M.v. 2 í íbúð, 3. júlí, vikuferð.
Flug og gisting, skattar.
Staðgreitt. Alm. verð kr. 52.450.
Verð kr. 49.865
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára.
Flug, gisting, skattar, 3. júlí, 2 vikur.
Staðgreitt. Alm. verð kr. 52.360.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Nú getur þú valið um eina eða
tvær vikur á ótrúlegum kjörum á einn vinsælasta áfangastað
Íslendinga í sólinni, Benidorm. Þú bókar núna, og tryggir þér
síðustu sætin, og fjórum dögum
fyrir brottför hringjum við í þig og
tilkynnum þér hvar þú býrð. Og að
sjálfsögðu nýtur þú traustrar
þjónustu fararstjóra Heimsferða
allan tímann.
Síðustu 11 sætin
Stökktu til
Benidorm
3. júlí
frá 39.865
Verð kr. 39.865
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára.
Flug, gisting, skattar, 3. júlí, vikuferð.
Staðgreitt. Alm. verð kr. 41.860.
VIÐ Íslendingar eigumláni að fagna í mörgutilliti. Á tyllidögum, viðnotalegt orðagjálfurráðamanna um bjarta
framtíð með blóm í haga, verður
manni jafnvel hugsað til annarra
þjóða með nokkurri vorkunn. Aum-
ingja þær. Hvað verður nú um alla
þeirra drauma og þrár, þegar
bjartsýnigljáðir Íslendingar fara
sem logi yfir
akur á mörkuð-
um og menn-
ingarsvæðum
og leggja heim-
inn að fótum
sér? Eiga aðrar
þjóðir enga almennilega leiðtoga
sem geta velt sér og þjóð sinni upp
úr gömlum kveðskap um djörfung
og dug og snjókrýnd fjöll með
bláum himni?
Ég hef kannski ekki lagt næga
rækt við að upplifa tyllidagaræður
erlendis, en leyfi mér þó að fullyrða
að meðal þjóða sem við teljum okk-
ur skyldastar, megi lengi leita til að
finna andlegar værðarvoðir í lík-
ingu við þær sem fyrirmenn okkar
leitast oft við að færa okkur í máli
sínu. Það er kannski helst vestur í
þeim risastóru, fjölmennu og sund-
urleitu Bandaríkjum Norður-Am-
eríku sem vart verður við eitthvað
svipað.
Eitt af því sem við Íslendingar
getum sannarlega verið ánægðir
með er sú staðreynd að við höfum
verið með gáfað fólk í vinnu við það
árum saman að finna íslensk orð yf-
ir ný fyrirbæri og hugtök. Frá síð-
ari árum er eitt slíkt orð mér einatt
ofarlega í huga. Ekki vegna þess að
það sé endilega snjallara en svo
mörg önnur sem sköpuð hafa verið
eða endurnýjuð, heldur vegna þess
hve mér þykir það ótrúlega viðeig-
andi um líf okkar í þessu landi.
Þetta er orðið „sýndarveruleiki“.
Þegar farið er um höfuðborgar-
svæðið og eins þegar rýnt er í ýms-
ar tölulegar hagfræðiupplýsingar
ber fyrir augu þjóð og samfélag
sem sannarlega nýtur blessunar
undir sérpöntuðum bláum himni,
umkringd snjókrýndum fjöllum í
miklu úrvali. Velmegunin sem við
blasir er þvílík að til að finna eitt-
hvað svipað verður maður að aka
skárri göturnar í Beverly Hills, þar
sem eitthvert auðugasta fólk heims-
ins dregur fram lífið undir fölleitu
og sólbrunnu himinskæni og grillir
varla í fjöllin fyrir mengun.
Hér standa gljáfægðar glæsi-
kerrur og jökulbúnir jeppar hlið við
hlið á stórbrotnum listaverkum í
hellulögn, fellihýsin, vélsleðarnir og
nuddpottarnir í baksýn. Eigend-
urnir sólbrúnir og sællegir allan
ársins hring af stöðugum víking í
útlandinu. Heilu hamraveggirnir af
blikandi gleri blasa við í glæstum
stórbyggingum yfir hraðvaxandi
fyrirtæki.
Það er ekki undarlegt að erlendir
gestir sem hingað koma eigi erfitt
með að trúa því að undir öllu þessu
undursamlega eignasafni standi
samfélag sem telur um 285 þúsund
manns.
Þarna er það sem hið dásamlega
orð, „sýndarveruleiki“, kemur til
sögunnar. Því það er einmitt orðið
yfir þessa gullnu mynd sem birtist
manni á götum og innkeyrslum og í
ræðum veisluþreyttra fyrirmenna.
Þegar aðrar staðreyndir og tölur
eru skoðaðar en þær sem ég nefndi,
kemur nefnilega í ljós að okkar fá-
menna þjóð stendur í raun alls ekki
undir glæsileikanum.
Á bak við sýndarraunveruleik-
ann er allt önnur mynd, þar sem
langhrjáð fólk þarf að neyta klíku-
skapar til að fá bót meina sinna og
hinir sem eru klíkulausir eiga ein-
faldlega ekki séns. Heimilin svamla
í skuldafeni, fyrirtækin skila millj-
arðatapi ár eftir ár, meira að segja
seðlaprentun kvótakerfisins hefur
ekki náð að laga stöðuna nema þá á
erlendum bankareikningum útval-
inna.
Á bak við glansmyndina hamast
eignafólk við að koma verðmætum
sínum úr landi og helst sjálfum sér
um leið. Á bak við glansmyndina er
hnípin þjóð í vanda, sem hún hefur
skapað sér sjálf með því að kaupa
þessa sýndarveruleikamynd af
sjálfri sér og leiðtogum sínum á
raðgreiðslum.
Kannski var það þess vegna sem
við fögnuðum ekki meira en raun
bar vitni á þjóðhátíðardaginn 17.
júní. Við vorum ekki að fagna neinu
öðru en því að þann dag hófst nýtt
kortatímabil.
Hæ hó jibbí jei og
nýtt kortatímabil
HUGSAÐ
UPPHÁTT
Eftir Sveinbjörn
I. Baldvinsson
Teikning/Andrés
AÐALFRAMKVÆMDASTJÓRI
UNESCO, Koichiro Matsuura, kem-
ur til landsins í dag, sunnudag, í boði
menntamálaráðherra og dvelst hér
fram á þriðjudagsmorgun.
Í heimsókn sinni mun aðalfram-
kvæmdastjórinn hitta að máli Tóm-
as Inga Olrich menntamálaráðherra
og Sverri Hauk Gunnlaugsson,
ráðuneytisstjóra í utanríkisráðu-
neytinu. Hann mun einnig heim-
sækja Árnastofnun, þar sem Vé-
steinn Ólason mun taka á móti
honum, og Íslenska erfðagreiningu,
þar sem hann mun njóta leiðsagnar
Kára Stefánssonar.
Auk þess mun Matsuura fara til
Þingvalla en verið er að undirbúa
umsókn Íslands um að Þingvellir
komist á lista UNESCO yfir helstu
menningar- og náttúruminjar
heims. Loks mun Matsuura sitja boð
forseta Íslands að Bessastöðum.
Matsuura mun hitta Vigdísi Finn-
bogadóttur, fyrrverandi forseta Ís-
lands, en hún er velvildarsendiherra
UNESCO fyrir tungumál og var til
skamms tíma formaður þeirrar
nefndar samtakanna sem fjallar um
siðfræði vísindarannsókna (COM-
EST).
Mánudaginn 24. júní mun Koich-
iro Matsuura sitja fyrir svörum í
Þjóðmenningarhúsi en til þess fund-
ar hafa verið boðaðir fulltrúar úr ís-
lensku UNESCO-nefndinni, for-
svarsmenn mennta-, vísinda- og
menningarstofnana og samtaka sem
láta sig þróunar- og mannréttinda-
mál varða, svo og fulltrúar fjölmiðla.
Íslendingar eiga sem kunnugt er
fulltrúa í stjórn UNESCO um þess-
ar mundir en það er Sveinn Ein-
arsson leikstjóri.
Aðalframkvæmda-
stjóri UNESCO
hingað til lands