Morgunblaðið - 23.06.2002, Blaðsíða 16
16 SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ALLT gekk að óskum ífyrstu veiðiferð Stíg-anda VE 77, sem er nýttog glæsilegt togskip út-gerðarfyrirtækisins
Stíganda ehf. í Vestmannaeyjum. Í
jómfrúarveiðiferðinni var haldið á
karfamiðin á Reykjaneshrygg og
síðan til Bremerhaven í Þýskalandi
þar sem 140 tonn af karfa voru seld
á fiskmarkaði. „Nú vonum við bara
og biðjum til þess sem öllu ræður að
nýja skipinu megi hlotnast farsæld
og gengið verði stígandi upp frá
þessu eftir mjög svo erfitt síðasta
ár,“ segir Þorsteinn Viktorsson,
framkvæmdastjóri Stíganda ehf.
Óhætt er að segja að útgerðin hafi
mátt þola ýmislegt í fyrra, en á því
ári tapaði útgerðin dómsmáli vegna
hlutaskipta auk þess sem tvö skipa
fyrirtækisins sukku svo af hlaust
mannskaði.
Annars vegar sökk nýja skipið í
höfn kínversku skipasmíðastöðvar-
innar í Guangzhou í mars 2001 og
lést þá einn kínverskur starfsmaður
stöðvarinnar. Hinsvegar fórst
Ófeigur II, 138 brúttólesta stálbát-
ur, undan Vík í Mýrdal aðfaranótt 5.
desember 2001 með einum manni,
en átta var bjargað úr gúmbjörg-
unarbát um borð í Danska Pétur
VE. Sá skipskaði var sá þriðji í sögu
útgerðarinnar þar sem Ófeigsnafnið
kemur við sögu, en árið 1943 fórst
Ófeigur VE með allri áhöfn, sem í
voru fjórir menn, og Ófeigur III VE
strandaði við Þorlákshöfn í ársbyrj-
un 1988. Þegar svo farið er að rýna í
hver afdrif þeirra Ófeiga hafa orðið
sem útgerðin hefur selt frá sér í
gegnum tíðina, kemur í ljós að allir
hafa þeir farist utan einn.
„Í ljósi fyrri harmleikja og skaða,
sem útgerðin hefur orðið fyrir, var
ákveðið að nýja skipið skyldi ekki
bera Ófeigsnafnið. Ég tel samt sem
áður að skipskaðarnir tengist ekki
nafninu á neinn hátt. Ófeigarnir
hafa allir verið mjög fengsælir.
Samt sem áður ákváðu eigendurnir
að nýja skipið skyldi bera sama nafn
og útgerðin, Stígandi, en skip með
því nafni tengdist útgerðinni hér á
árum áður og var í eigu föðurafa
míns, Helga Bergvinssonar,“ segir
Þorsteinn, sem er fjórði ættliðurinn
til að stýra fjölskyldufyrirtækinu.
Straumhvörf og kvótakaup
Langafi Þorsteins, Jón Ólafsson
frá Hólmi í Vestmannaeyjum, stofn-
aði útgerðarfyrirtækið árið 1916
með kaupum á 8,5 rúmlesta bát frá
Mjóafirði sem smíðaður hafði verið í
Danmörku. Fjórum árum síðar var
báturinn seldur og eikarbáturinn
Ófeigur VE 217 keyptur, 12,4 rúm-
lesta með 22 hestafla aðalvél. Árið
1935 bættist Ófeigur II VE 324 við,
en sá var 22 rúmlestir með 60 hest-
afla aðalvél. Jón frá Hólmi dó árið
1946 og í kjölfarið keypti tengda-
sonur hans Þorsteinn Sigurðsson
frá Blátindi og Ólafur Sigurðsson
skipstjóri frá Skuld Ófeig II af dán-
arbúi Jóns.
Útgerð þeirra félaga þótti ein-
staklega vel heppnuð meðan báðir
lifðu og létu þeir m.a. smíða tvo ný-
tísku stálfiskibáta, annan í Hollandi
og hinn í Austur-Þýskalandi. Ófeig-
ur III VE 325, sem var fyrsti stál-
fiskibátur sem smíðaður var fyrir
Íslendinga, kom skipið frá Hollandi
árið 1955. Hann var 55 rúmlestir
með 220 hestafla aðalvél og eftir
lengingu á Akranesi tíu árum síðar
fór hann upp í 86 rúmlestir. Nýr
Ófeigur II VE 324 kom svo frá
Austur-Þýskalandi árið 1959, 100
rúmlesta með 400 hestafla aðalvél.
Haustið 1983 keypti útgerðin 103
rúmlesta bát, Árna í Görðum VE,
sem fékk nafnið Ófeigur VE 324.
Eftir að Ófeigur III strandaði við
Þorlákshöfn, opnaðist tækifæri til
að byggja nýtt og öflugt skip í stað-
inn án þess að kaupa úreldingu á
móti. Hafist var handa við nýsmíði á
frambyggðum togbát í Svíþjóð sem
kom nýr til landsins árið 1990.
„Þetta skip, sem svo fórst í des-
ember síðastliðnum, olli straum-
hvörfum í útgerðarsögu fyrirtækis-
ins þar sem hin skipin voru að heita
má orðin börn síns tíma. Skipið var í
raun alltof öflugt fyrir þær veiði-
heimildir, sem við höfðum þá yfir að
ráða, og upphófst nú sá tími þegar
menn tóku að viða að sér auknum
aflaheimildum til að vega upp á móti
árlegum aflamarksskerðingum. Á
áratugnum 1990–2000 keyptum við
aflaheimildir fyrir um 320 milljónir
króna óframreiknað til að halda í
horfinu. Þrátt fyrir öll þessi kvóta-
kaup, sitjum við uppi með þá stað-
reynd að við höfum verið skertir í
bolfisktonnum talið meira en sem
nemur þeim tonnafjölda sem var á
skipinu árið 1990, eða áður en af
stað var farið. Við fengum rúmlega
500 tonna bolfiskkvóta í úthlutun
árið 1990, en höfum verið skertir um
rúm 600 tonn í bolfiskinum á síðustu
tólf árum.
Ekki síst í þessu ljósi leiðist mér
allt tal um gjafakvóta. Umræðan í
kringum sjávarútveginn er alltof
neikvæð. Útgerðir fengu í upphafi
kvótakerfisins ákveðinn grunn til að
byggja á, byggðan á veiðireynslu án
þess að hann hafi verið nógu mikill
til að gera út á ársgrundvelli, enda
lagði Halldór Ásgrímsson þáver-
andi sjávarútvegsráðherra til á að-
alfundi LÍÚ á Akureyri að þeir, sem
væru ungir í greininni, keyptu þá
eldri út því úthlutaður kvóti dygði
engan veginn fyrir allan flotann,“
segir Þorsteinn.
Heildarþorskígildiskvóti fyrir-
tækisins er nú um 1.300 tonn, þar af
er uppistaðan karfi.
Hús og eignir að veði
Ólafur skipstjóri lést um aldur
fram árið 1969 og hélt Þorsteinn
rekstrinum áfram fram til ársloka
1973 er tengdasynir hans, þeir Vikt-
or Helgason og Sigurður Elíasson,
tóku við. Sigurður dró sig hinsvegar
út úr fyrirtækinu um áramótin 1986/
1987 og hafa hjónin Viktor Helga-
son og Stefanía Þorsteinsdóttir, eig-
inkona hans, verið einir eigenda síð-
an. Þau eiga þrjá syni og er
Þorsteinn, núverandi framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins, þeirra elstur.
Næstur kemur Helgi Berg Viktors-
son, sem vinnur hjá blikksmiðjunni
Glófaxa í Reykjavík, og yngstur er
Gunnar Berg Viktorsson, atvinnu-
maður í handbolta hjá París SG.
„Í dag er mitt starf að sjá um dag-
legan rekstur fyrirtækisins, en auð-
vitað tek ég engar róttækar ákvarð-
anir án vitundar eigendanna,
foreldra minna,“ segir Þorsteinn,
sem fæddur er árið 1963 og er iðn-
rekstrarfræðingur af útvegssviði
Tækniskóla Íslands að mennt. Við
hlið hans á skrifstofunni starfar eig-
inkonan DíannaEinarsdóttir, sem
séð hefur um fjárreiður og bókhald í
áratug.
Eftir að þeir svilar Viktor og Sig-
urður tóku við útgerðinni, upphófst
mikið erfiðleikatímabil í sjávarút-
vegi hér á landi og voru aflabrögð í
ofanálag mjög döpur þó ekki sé
meira sagt. Þeir ákváðu því á þess-
um tímapunkti að selja bæði fiski-
skipin sem þeir voru þá með í
rekstri, Ófeigana sem byggðir höfðu
verið í Hollandi og Austur-Þýska-
landi, enda voru þeir með allt sitt
bundið í þessum rekstri og höfðu
lagt hús sín og eignir að veði. „Það
finnast hinsvegar aldrei neinir
kaupendur þegar illa árar, en þeir
náðu engu að síður að losa sig við
annað skipið, hinn austur-þýska
Ófeig II. Verðbólgan sá á þessum
árum mjög vel um að éta upp sölu-
verðmæti eigna og telja margir, sem
losuðu sig út úr greininni á þessum
árum, það hafa verið sín mestu mis-
tök.
Það, sem svo varð til þess að
hjálpa mönnum út úr þessum erf-
iðleikatímum, var þegar hægt var
að fara að gáma fiskinn og senda
hann á markað erlendis. Sú þróun
hafði þær afleiðingar að fiskverðið
fór að breytast og hagurinn að
vænkast, sérstaklega hjá þeim sem
voru eingöngu í útgerð, enda höfðu
þeir, sem voru bæði með útgerð og
fiskvinnslu á sinni könnu, getað náð
virðisauka út úr vinnsluþættinum,“
segir Þorsteinn.
Karfaveiðar á Reykjaneshrygg
Nýja skipið Stígandi VE 77, sem
er 54 metrar að lengd og 11,2 metr-
ar að breidd, kom fánum prýddur til
heimahafnar í Vestmannaeyjum
þann 18. mars síðastliðinn eftir 36
daga siglingu frá Kína. Smíðin hefur
Öll áföll hljóta að hafa til
Morgunblaðið/Sigurgeir
Karlinn í brúnni á Stíganda VE er Guðmann Magnússon.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Eigendur Stíganda ásamt nokkrum fjölskyldumeðlimum og skipstjóra á Bása-
skersbryggju í Vestmannaeyjum. Frá vinstri: Helgi Berg Viktorsson, Guðmann
Magnússon skipstjóri, hjónin Viktor Helgason og Stefanía Þorsteinsdóttir og
hjónin Díanna Einarsdóttir og Þorsteinn Viktorsson, núverandi fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins. Fyrir framan stendur Lea Helgadóttir.
Stígandi ehf. í Vestmanna-
eyjum er líklega elsta starf-
andi fjölskyldufyrirtækið í
útgerð þar í bæ. Nýlega
kom til heimahafnar nýtt
togskip, sem eigendurnir
létu byggja fyrir sig í Kína.
Þorsteinn Viktorsson fram-
kvæmdastjóri sagði
Jóhönnu Ingvarsdóttur að
ákveðið hefði verið í ljósi
sögunnar að nefna skipið
Stíganda en ekki Ófeig, eins
og öll skip fyrirtækisins
hafa heitið til þessa.
Nýja tog- og túnfiskveiðiskipið Stígandi er 54 metrar að lengd og 11,2 metrar á breidd.