Morgunblaðið - 23.06.2002, Síða 50
DAGBÓK
50 SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í dag
er Bitland væntanlegt
og á morgun Vædderen,
Margrét EA, Poseidon,
Irena Arctica, Akureyr-
in og Wiesbaden.
Hafnarfjarðarhöfn: Á
morgun eru væntanleg
Pólar Siglir og Selfoss.
Mannamót
Aflagrandi 40. Á morg-
un kl. 9 og kl. 13 vinnu-
stofa, kl. 14 spilavist.
Árskógar 4. Á morgun
kl. 9 opin handa-
vinnustofan, kl. 10.15
leikfimi, kl. 11 boccia, kl.
13.30-16.30 opin smíða-
stofan/útskurður, kl.
13.30 félagsvist, kl. 16
myndlist. Bingó er 2. og
4. hvern föstudag. Pútt-
völlurinn er opin alla
daga. Allar uppl. í s.
535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Á
morgun kl. 9-16 handa-
vinna, kl. 9-17 fótaað-
gerð, kl. 10-11.30 sam-
verustund.
Hjúkrunarfræðingur á
staðnum kl. 11-13.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 á mánud.
kl. 20.30. Fótaaðgerða-
stofan opin frá kl. 10.
Skrifstofan Gullsmára 9
er opin á morgun kl.
16.30-18, s. 554 1226.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Á morgun kl. 8
böðun, kl. 9 fótaaðgerð,
kl. 10 verslunin opin, kl.
11.20 leikfimi, kl. 13
föndur og handavinna.
Félagsstarfið Dalbraut
18-20. Á morgun kl. 9
böðun.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Sundleikfimin
hjá Lovísu í Sundlaug
Garðabæjar byrjar 25.
júní kl. 16 og verður á
þriðjud. og fimmtud. í 3
vikur. Allir velkomnir.
Golfnámskeiðið hjá
Sturlu verður á þriðjud.
og miðvikud. kl. 13
næstu 3 vikur í GKG í
Vetrarmýrinni. Fótaað-
gerðarstofa, tímapant-
anir eftir samkomulagi í
s. 899 4223.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli ,
Flatahrauni 3. Á morg-
un, mánudag, verður fé-
lagsvist kl. 13.30. Frjáls
spilamennska þriðjudag
kl. 13.30, pútt á Hrafn-
istuvelli þri. kl. 14-16.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan
opin alla virka daga frá
kl. 10-13. Kaffi, blöðin
og matur í hádegi.
Sunnudagur: Dans-
leikur kl. 20, Caprí-tríó
leikur fyrir dansi.
Mánudagur: Brids kl.
13. Danskennsla Sig-
valda, framhald, kl. 19
og byrjendur kl. 20.30.
Söguferð í Dali 25. júní,
dagsferð. Eiríksstaðir-
Höskuldsstaðir-
Hjarðarholt-Búð-
ardalur-Laugar-
Hvammur. Léttur há-
degisverður á Laugum í
Sælingsdal. Kaffihlað-
borð í Munaðarnesi.
Leiðsögumaður Sig-
urður Kristinsson.
Brottför frá Ásgarði
Glæsibæ kl. 8.
Miðvikud: Göngu-
Hrólfar fara í létta
göngu frá Hlemmi kl.
9.45.
Þórsmörk – Langidalur
4. júlí. Kaffihlaðborð á
Hvolsvelli. Leiðsögn
Þórunn Lárusdóttir.
Skráning hafin.
Hálendisferð 8.-14. júlí 7
dagar. Ekið norður
Sprengisandsleið.
Herðubreiðarlindir,
Askja, Mývatn o.fl. stað-
ir skoðaðir, ekið suður
um um Kjöl. Leiðsögn
Sigurður Kristinsson.
Ferð í Galtalæk á úti-
tónleika 14. júlí með
Álftagerðisbræðrum,
Diddú. Örn Árnason og
Karl Ágúst slá á létta
strengi. Lagt af stað kl.
15 frá Glæsibæ. Nánari
uppl. á skrifstofunni.
Silfurlínan er opin á má-
nud. og miðvikud. frá kl.
10-12 fh. í síma 588 2111.
Skrifstofa félagsins er
flutt að Faxafeni 12,
sama símanúmer og áð-
ur. Félagsstarfið er
áfram í Ásgarði í
Glæsibæ. Upplýsingar á
skrifstofu FEB.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Á morgun kl.
9-16.30 opin vinnustofa
m.a. handavinna og
föndur, kl. 9-17 hár-
greiðsla, kl. 14 fé-
lagsvist.
Gerðuberg, félagsstarf.
Á morgun, mánudag, kl.
9-16.30 vinnustofur opn-
ar. Kl. 9.30 sund og leik-
fimi í Breiðholtslaug.
Frá hádegi spilasalur
opinn. Kl. 15.30 almenn-
ur dans hjá Sigvalda. Á
fimmtud. 27. júní ferða-
lag um Suðurnes. M.a.
ekið um Hafnarfjörð,
Vatnsleysuströnd,
Njarðvíkur og í Garð-
skaga o.fl. Kaffihlaðborð
í Golfskálanum í Leiru.
Mæting í Gerðubergi kl.
13.30. Staðkunnugur
leiðsögumaður. Skrán-
ing hafin. Uppl. á staðn-
um og í síma 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Á morgun er handa-
vinnustofan opin. Vor-
vaka eldra fólks í Kópa-
vog verður í Gjábakka,
Fannborg 8 í kvöld,
sunnudagskvöldið 23.
júní. Á dagskránni, sem
hefst kl. 22, verður m.a.
spiluð félagsvist, harm-
onikkuleikur, sam-
söngur undir slætti Guð-
rúnar á gítarstrengi.
Einnig verður lesið úr
óútkominni ljóðabók.
Kaffiveitingar á vægu
verði. Dagskrárlok
óákveðin. Allir eru boðn-
ir velkomnir og
skemmti- og fræðsluefni
er vel þegið.
Vegna forfalla eru 4
sæti laus í ferð um Vest-
firði 15.-19. júlí. Þeir
sem ekki hafa staðfest
nú þegar eru beðnir að
gera það sem fyrst.
Uppl. í síma 554 3400.
Hraunbær 105. Á morg-
un kl. 9 perlusaumur og
kortagerð, kl. 10 bæna-
stund, kl. 13 hárgreiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Á
morgun kl. 9 böðun, kl.
10 boccia, kl. 13 frjáls
spilamennska, kl. 13.30
gönguferð. Fótaaðgerð,
hársnyrting. Allir vel-
komnir.
Norðurbrún 1. Á morg-
un kl. 10 ganga, kl. 9
fótaaðgerð. Allir vel-
komnir.
Vesturgata 7. Á morgun
kl. 9-16 fótaaðgerðir og
hárgreiðsla, kl. 9.15
handavinna, kl. 10
boccia kl. 12.15-13.15
danskennsla kl. 13.30
ganga.
Vitatorg. Á morgun kl.
9 smiðjan, kl. 9.30 bók-
band handmennt og
morgunstund. Leikfimi
kl. 10. Brids, frjálst, kl.
13.
Sumarferð á vegum Fé-
lagsþjónustunnar í
Hvassaleiti, Hæð-
argarði og Sléttuvegi
verður farin næsta mið-
vikudag 26. júní nk. og
lagt af stað kl.10:30. Ek-
ið um Þrengsli að Eyr-
arbakka og Stokkseyri
og ekið austur með
ströndinni að Þjórsá.
Þaðan verður stefnan
tekin á Skálholt. Máls-
verður í Réttinni við Út-
hlíð. Leiðsögumaður
verður Kristrún Hreið-
arsdóttir. Verð kr. 3.100.
Skráning fer fram á
skrifstofum staðanna og
í símum: 588 9335 og
568 3132 og 568 2586.
Félag eldri borgara,
Selfossi. Dagsferð á
Njáluslóðir. Farið verð-
ur á söguslóðir Njálu
þriðjud. 25. júní. Leið-
sögumaður verður Ósk-
ar H. Ólafsson. Lagt af
stað frá Mörkinni
(Grænumörk 5) kl. 10 og
komið við í Horninu.
Ferðaáætlun: Sögusetr-
ið á Hvolsvelli skoðað,
farið að Bergþórshvoli
og síðan að Vík í Mýrdal
en þar verður léttur há-
degisverður. Síðan farið
í Kerlingardal og til
baka upp Mark-
arfljótsaura í leit að
Gunnarshólma. (Sumir
segja að Rangæingar
séu búnir að týna hon-
um). Þaðan er farið að
Hlíðarenda. Kaffiveit-
ingar í Langbrók. Leiðin
liggur framhjá Þríhyrn-
ingi að Keldum og svo
heim um Rangarvelli.
Heimkoma áætluð um
kl. 18. Kostnaður kr.
3.000-3.500 á mann.
Farpantanir og upplýs-
ingar í síma 482-4117
(Óskar) eða 482-2938
(Böðvar). Gjörið svo vel
að panta far ekki síðar
en á sunnudagskvöld.
Allir velkomnir.
Lífssýn. Árlega Jóns-
messuferð til Þingvalla
verður farin á morgun,
mánudag, 24. júní. Safn-
ast verður saman við
Bolholt kl 19. Erla ætlar
að benda okkur á ýmsar
orkulínur og orku-
uppsprettur staðarins.
Takið með ykkur nesti.
Stjórnin
Háteigskirkja, eldri
borgarar, mánudaga fé-
lagsvist kl. 13-15, kaffi.
Í dag er sunnudagur 23. júní, 174.
dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Drottinn er ljós mitt og fulltingi,
hvern ætti ég að óttast? Drottinn
er vígi lífs míns, hvern ætti
ég að hræðast?
(Sálm. 27, 1.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 skvampa, 4 hrósaði, 7
ómerkileg manneskja, 8
vanvirða, 9 blóm, 11
brún, 13 vangi, 14 hakan,
15 lauf, 17 skoðun, 20
bókstafur, 22 ávarpar, 23
hreyfir fram og aftur, 24
kasta, 25 áma.
LÓÐRÉTT:
1 bugða, 2 beiskan, 3
keyrir, 4 lof, 5 birta, 6
duglegur, 10 vanskil, 12
afreksverk, 13 rösk, 15
ótta, 16 ójafnan, 18 lag-
hent, 19 kaka, 20 baun, 21
ófríð.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: - 1 skrælingi, 8 sótti, 9 urtur, 10 nón, 11 iðrun, 13
nærri, 15 stáls, 18 stekk, 21 kóp, 22 flaga, 23 urrar, 24
vankantur.
Lóðrétt: - 2 kætir, 3 ærinn, 4 Iðunn, 5 getur, 6 usli, 7
grái, 12 ull, 14 æft, 15 saft, 16 ábata, 17 skark, 18 spurn,
19 eirðu, 20 kort.
ÞAKKIR fyrir yndislega
ferð með eldri borgurum
með Bólstaðarhlíð 43. Guð-
björg Jóna og Anna Þrúður
frábærar á öllum sviðum.
Stórgóður bílstjóri, Dala-
Brandur, og munnhörpu-
leikarinn var einnig góður.
Ferðalok í Hreðavatns-
skála, yndislega vel fram
borinn matur og ljúffengur.
Gestgjafar frábærir. Veisla.
Draumaferð í alla staði.
Þakkir.
Eldri borgari og maki.
Einni bálreiðri svarað
KÆRA bálreiða kona!
Vegna skrifa þinna hér í
Morgunblaðinu 16. júní sl.
verð ég að koma nokkrum
staðreyndum á framfæri.
Það er út í hött að rík-
isstjórnin hafi sýnt sjálf-
stæði í máli Falun Gong-
liða. Hún hefur þvert á móti
farið hamförum í að þókn-
ast Kínaforseta. Og veist þú
eitthvað um blóði drifna
fortíð hans? Farið er með
friðsamlega mótmælendur
eins og glæpamenn og þeir
sviptir bæði tjáningar- og
ferðafrelsi á meðan Zemin
leikur lausum hala, sjálfur
ábyrgur fyrir hræðilegum
mannréttindabrotum; af-
tökum, pyntingum og kúg-
un í heimalandi sínu.
Eru Íslendingar að verða
algjörir fasistar? Ellilífeyr-
isþegar á kvöldgöngu rekn-
ir úr Öskjuhlíð í lögreglu-
fylgd og hlíðin girt gulum
borðum og varin af lamb-
húshettuklæddum víkinga-
sveitarmönnum svo Zemin
geti náðarsamlegast borðað
í Perlunni.
Allt gert til þess að
tryggja að forsetinn verði
ekki var við reiði almenn-
ings, til þess að „tryggja ör-
yggi hans“ en maður les
milli línanna óöryggi heima-
manna í garð hinna 30
vopnum girtu og skotglöðu
lífvarða sem forsetinn fékk
að taka með sér – auk þess
sem það má auðvitað ekki
styggja svona stóran kall.
Hvar er sjálfstæðið? Og
hvað með okkar forseta,
Ólaf, sem á sínum yngri ár-
um var titlaður friðarsinni?
Hvernig stendur á aðgerð-
arleysi hans? Nú skemmta
þeir forsetarnir sér saman í
karaoke á meðan mannrétt-
indabrotunum fjölgar og
pyntingar og morð á Kín-
verjum halda áfram að vera
daglegt brauð.
Hvert stefnir? Er skrítið
að mér finnist eitthvað vera
að?
Rósa.
Wet ’n’ Wild fást víða
VEGNA fyrirspurnar í Vel-
vakanda nýlega barst Vel-
vakanda bréf frá Sif ehf.,
innflytjanda Wet ’n’ Wild
snyrtivaranna, þar sem
bent er á að hægt sé að fá
þessar vörur á eftirtöldum
stöðum: Samkaup Hafnar-
firði, Samkaup Njarðvík,
Nótatún Selfossi, Samkaup
Egilstöðum, Nettó Akur-
eyri, Samkaup Ísafirði og fl.
smærri stöðum.
Möguleiki er að vörurnar
verði seldar víðar í Reykja-
vík, t.d. Nettó í Mjódd, en
það mun koma í ljós á
næstu mánuðum.
Tapað/fundið
Lykill í óskilum
LYKILL merktur Volks-
wagen fannst á Rauðarár-
stígnum gegnt Búnaðar-
bankanum. Upplýsingar í
síma 552 1922.
Lyklakippa í óskilum
LYKLAKIPPA með spjaldi
sem á stendur Óli fannst í
Vesturbænum. Upplýsing-
ar í síma 561 1795.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Draumaferðin
Víkverji skrifar...
ÍSLENDINGAR þurfa að læra aðtaka meira tillit til náungans í um-
ferðinni. Eitt sem Víkverji áttaði sig á
fyrir skemmstu þegar hann var á ferð
á þjóðvegi 1 var að það heyrir nánast
til undantekninga ef ökumenn fara að
þeirri beiðni vegagerðarmanna að
draga úr hraða þar sem nýtt yfirlag
hefur verið lagt á veginn eða aðrar
framkvæmdir standa yfir.
Víkverji rak sig á það hvað eftir
annað að þar sem skilti gáfu til kynna
að aka skyldi á 30 km hraða fóru bílar
mun hraðar yfir og áttu til að ausa
möl yfir bíl Víkverja.
Hverju sætir svona framkoma?
x x x
VÍKVERJI hefur fylgst vel meðheimsmeistarakeppninni í
knattspyrnu og verður að segja alveg
eins og er að hann hefur orðið fyrir
miklum vonbrigðum með frammi-
stöðu sumra dómaranna.
Ekki er til dæmis að undra að Ítalir
skuli vera súrir í bragði því nokkur
mörk, sem virtust algjörlega lögleg,
voru tekin af þeim, eins og sagt er, í
keppninni. Ekki dæmd gild.
Víkverji gat hins vegar ekki annað
en brosað – og vissi svo sem ekki
hvort hann átti að hlæja eða gráta –
þegar fréttir bárust af því að Kóreu-
maðurinn sem skoraði sigurmarkið
gegn Ítalíu hefði verið rekinn frá fé-
lagsliði sínu, Perugia á Ítalíu. Forseti
þess kvaðst þjóðernissinni og sagði að
ekki kæmi til greina að hann færi að
greiða þeim manni laun sem rústað
hefði ítalskri knattspyrnu. Landið
hefði opnað dyr sínar fyrir honum og
hann síðan vogað sér að koma svona
fram; skora sigurmark gegn Ítalíu.
Þetta er auðvitað svo barnalegt að
engu lagi er líkt. Víkverji var raunar
sannfærður um það í fyrstu að um
grín væri að ræða, en svo virðist ekki
vera. Ótrúlegt, en satt.
x x x
SPÁNVERJAR mega líka veraóhressir vegna leiksins gegn Suð-
ur-Kóreumönnum í gærmorgun. Vík-
verji gat ekki betur séð en algjörlega
löglegt mark væri „tekið af þeim“ í síð-
ari hálfleik og annað í framlengingu.
Hefði það staðið hefðu Spánverjar
brosað breitt í dag en aðstoðardómari
(línuvörður) skar úr um að boltinn væri
farinn aftur fyrir endalínu áður en
hann var sendur fyrir markið þar sem
einn Spánverjanna skallaði í markið.
Í sjónvarpi sást greinilega að bolt-
inn var langt í frá farinn aftur fyrir.
Samkvæmt reglum þarf boltinn allur
að hafa farið yfir línuna til að teljast
utan vallar og svo var greinilega ekki.
Þetta atriði hefur lengi farið í taug-
arnar á Víkverja í leikjum hér heima
á Íslandi. Hann hefur stundum á til-
finningunni að línuverðir (aðstoðar-
dómarar) kunni greinilega ekki regl-
urnar. Svo er vonandi ekki.
x x x
FYRST minnst er á Ítalina og„brottfall“ þeirra verður Vík-
verji að taka fram að það var auðvitað
ekki einvörðungu slakri frammistöðu
dómara að kenna. Seint í síðasta
leiknum fékk markaskorarinn mikli,
Christian Vieri, til að mynda ákjós-
anlegt tækifæri til að koma knettin-
um í mark Suður-Kóreu. Algjört
dauðafæri. Var einn fyrir opnu marki
og skaut yfir. Hefði þessi snjalli leik-
maður skorað hefði líklega enginn
nefnt hlut dómaranna.
Svona er oft stutt á milli hláturs og
gráts í íþróttakeppni.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Morgunblaðið/Arnaldur