Morgunblaðið - 25.06.2002, Side 2

Morgunblaðið - 25.06.2002, Side 2
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson Þrjár Chinook-þyrlur voru í gær dregnar frá hafnarbakkanum í Njarð- vík og upp á Keflavíkurflugvöll vegna Samvarðar 2002. ÆFING sprengjusérfræðinga frá fimm löndum fer fram á Keflavík- urflugvelli samhliða björgunar- æfingu Atlantshafsbandalagsins, Samverði 2002, undir stjórn Land- helgisgæslunnar. Þá verða stórar flutningaþyrlur Bandaríkjahers af gerðinni CH-47, Chinook, nýttar til verkefna víða um land líkt og undanfarin ár, að því er segir í fréttatilkynningu frá varnarliðinu. Sprengjudeild Landhelgisgæslu Íslands sér nú alfarið um sprengjueyðingu fyrir varnarliðið en sprengjudeildin þar var lögð niður í kjölfarið á sérstökum samningi. Þátttakendur í æfingu sprengjusérfræðinganna eru frá Eistlandi, Bretlandi, Danmörku og Bandaríkjunum, auk Íslands. Klukkan 11.30 í dag mun stór flutningaþyrla leggja tvo 22 metra langa brúarbita sem vega 5 og 8 tonn yfir gjá hjá Haugs- vörðugjá við Sandvík á Reykja- nesi. Verkið er liður í verkefninu „Brú milli heimsálfa“ þar sem ætlunin er að brúa á milli jarð- skorpufleka. Flutningaþyrlurnar verða við störf næstu daga á Snæ- fellsnesi, í Vestmannaeyjum og Þórsmörk. Æfing sprengju- sérfræðinga FRÉTTIR 2 ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.isÍslandsmeistararnir enn á botninum/B9 Eiður Smári á förum frá Chelsea/B1 12 SÍÐUR48 SÍÐUR Sérblöð í dag Á ÞRIÐJUDÖGUM BILUN varð í löndunarbúnaði Norðuráls snemma í júní, en eitt skip bíður löndunar og er líklegt að það taki um viku til viðbótar að gera við búnaðinn. Að sögn Ragnars Guðmundsson- ar, framkvæmdastjóra fjármálasviðs Norðuráls, kom skipið til landsins frá Suður-Ameríku og hefur það beðið í mynni Hvalfjarðar síðan 18. júní en skipið flytur súrál. „Ný vél í löndunarbúnaðinum bil- aði og það þurfti að senda hana utan til Kanada til viðgerðar en vélin verður tilbúin í næstu viku og þá er áætlað að þeir geti byrjað að losa skipið,“ segir hann. Hann bendir á að engin hætta sé á ferðum þó að skipið bíði fyrir utan Akranes og bætir við að skipið sé áberandi sjón þarna í mynni Hvalfjarðar en súrálsskip séu mjög stór. Umræddur búnaður var settur upp árið 1998 og segir Ragnar að hann hafi ekki bilað áður. „Það kom í ljós við prófun 12. júní að bún- aðurinn var bilaður og þá var hann sendur strax til viðgerðar í Kanada,“ segir hann. Aðspurður hvort biluninni fylgi mikill kostnaðarauki segir Ragnar að það þurfi að borga biðtíma á skip- inu en það sé ekkert stórvægilegt. Hann segist engar upphæðir geta nefnt í því sambandi á þessari stundu en segir þetta samt ekki stór- ar tölur í rekstri Norðuráls. Hann telur að bilunin muni ekki hafa nein áhrif á starfsemi Norðuráls, nægar súrálsbirgðir séu til og þar af leið- andi verði engin stöðvun í rekstri. Bilun í löndunarbúnaði Norðuráls Bíður löndun- ar í Hvalfirði Nauðlending á Skarðsströnd Skrúfan send til rannsóknar RANNSÓKNARNEFND flugslysa vinnur nú að rannsókn á hvað olli því að hreyfilblað í eins hreyfils vél af gerðinni Jodel, TF-ULF, brotn- aði í flugi á föstudagskvöld. Vélin nauðlenti með tveimur mönnum innanborðs við bæinn Á á Skarðs- strönd við Breiðafjörð og sakaði hvorugan. Að sögn Þormóðs Þormóðssonar, rannsóknarstjóra hjá RNF, hefur skrúfan verið send til Iðntækni- stofnunar til rannsóknar. Hann seg- ir flugmennina hafa brugðist hár- rétt við þar sem þeir einbeittu sér að því að fljúga flugvélinni og fundu hentugan stað til nauðlendingar. Að sögn Þormóðs miðast rann- sóknin að því að komast að hvers vegna skrúfan brotnaði og verður það gert í samráði við samstarfs- aðila RNF í Bandaríkjunum, sem rannsaka tildrög flugslysa, og fram- leiðanda vélarinnar. VIÐRÆÐUR um aðkomu nýrra fjárfesta að Fréttablaðinu hafa átt sér stað undanfarna daga og segir Gunnar Smári Egilsson, ritstjóri blaðsins, að þær gangi vel og tíðinda sé að vænta á allra næstu dögum. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins fóru starfsmenn Frétta- blaðsins í setuverkfall í gær, vegna vangreiddra launa, en Gunnar Smári segir að þegar hann hafi komið á skrifstofu blaðsins um sexleytið í gær hafi blaðamenn verið við störf. Hann lagði áherslu á að Fréttablaðið kæmi út í dag, en í gær heyrðust víða þær raddir að blaðið kæmi ekki út sökum setuverkfallsins, m.a. frá starfsmönnum ritstjórnar sem rætt var við. Hann segir ekkert hægt að segja til um það á þessari stundu hverjir hinir nýju fjárfestar séu en ítrekar að viðræðurnar gangi vel og að hver áfanginn á fætur öðrum sé að baki. Gunnar Smári segist sannfærður um að gengið verði frá öllum lausum endum í rekstri, enda skuldi Frétta- blaðið ekki miklar upphæðir heldur skuldi þær á óþægilegum stöðum. „Ég held að það fari enginn með skarðan hlut frá borði,“ segir hann. Ekki náðist í Eyjólf Sveinsson, út- gáfustjóra Fréttablaðsins, þegar Morgunblaðið reyndi að ná tali af honum í gær og Brynjólfur Þór Guð- mundsson, trúnaðarmaður starfs- manna Fréttablaðsins, vildi ekki tjá sig um málið. Rætt um aðkomu nýrra fjárfesta Fréttablaðið kemur út í dag HEYSKAPUR er nú hafinn af fullum krafti. Á bænum Sökku í Svarfaðardal var verið að snúa heyi þegar ljósmyndarinn átti leið hjá og er ekki annað að sjá en að sprettan hafi verið bæði væn og græn að þessu sinni. Morgunblaðið/RAX Heyjað um hásumar Ók ölvaður á 150 km hraða LÖGREGLAN í Hafnarfirði hafði afskipti af 31 ökumanni um helgina vegna umferðarlagabrota, þar af 14 vegna hraðaksturs. Sá sem hraðast ók var mældur á 150 km hraða á Reykjanesbraut í Garðabæ og er hann grunaður um ölvun við akstur. Fram kemur í dagbók lögreglunn- ar eftir helgina að helgin hafi verið hefðbundin í umdæmi lögreglunnar í Hafnarfirði, Garðabæ og Bessa- staðahreppi. Sex umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar um helgina. Ekki urðu slys á fólki í fimm þeirra en á föstudag slasaðist ökumaður bifreið- ar sem lenti í árekstri á mótum Fjarðarhrauns og Hólshrauns í Hafnarfirði. Hann var fluttur á slysadeild í sjúkrabifreið. Alls voru fjórir ökumenn teknir grunaðir um ölvun við akstur. Reykjanesbraut Stjórn Símans Ræddi ráðningu nýs forstjóra STJÓRN Landssímans kom saman til fundar síðdegis í gær og sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins stóð stjórnarfundurinn fram á kvöld. Á fundinum var samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins rætt um ráðningu nýs forstjóra Símans, en seint í gærkvöld reyndist ekki unnt að afla neinna fregna af stjórnar- fundinum, hvorki um það hvern stóð til að ráða sem forstjóra, né hvort ráðningin var afráðin á ofangreind- um fundi. Bílvelta á Kjalvegi BÍLVELTA varð á Kjalvegi, tíu kílómetra frá Blönduvirkj- un, um sjöleytið í gærkvöldi. Að sögn lögreglunnar á Blönduósi missti ökumaður fólksbifreiðar stjórn á bifreið- inni í lausamöl og fór hún einn hring og lenti öfugt. Engin slys urðu á fólki en lögreglan segir að bifreiðin sé ónýt. ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.