Morgunblaðið - 25.06.2002, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 25.06.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ MMC Pajero 3200 GLS diesel, f. skr.d. 16.06. 2000, ek. 58 þ. km., 5 d., sjálfsk., 33" breyttur, leðurinnrétting, varadekkshlíf, dráttarkrókur o.fl. Verð 4.580.000 Nánari upplýsingar hjá Bílaþingi. Opnunartímar: Mánud.-föstud. kl. 10-18 og laugard. kl. 12-16. Laugavegur 170-174 • Sími 590 5000 • Heimasíða: www.bilathing.is Netfang: bilathing@hekla.is FORSVARSMENN fyrirtækja og stofnana vildu í lok apríl og fyrri hluta maí fækka starfsfólki um 400 til 500 manns eða sem nemur um 0,4% af starfandi fólki í landinu. Kemur þetta fram í skýrslu Vinnu- málastofnunar um könnun hjá 534 fyrirtækjum, 287 á höfuðborgar- svæðinu og 247 á landsbyggðinni. Vinnuveitendur vildu einkum fækka fólki í samgöngum og flutningum, fjármálaþjónustu, verslun og við- gerðarþjónustu. Þeir vildu hins veg- ar fjölga í byggingariðnaði. Horfur í atvinnumálum eru taldar nokkuð bjartar fyrir sumarið, segir í skýrslunni. Í apríl var atvinnuleysi 2,6% en 2,5% í maí. Reiknað er með svipuðu atvinnuleysi í nóvember. Fram kemur í skýrslunni að at- vinnuleysi hefur aukist á þessu ári og er þar gert ráð fyrir að meðal- talsatvinnuleysi ársins verði 2,3% en það hefur verið um 1,3 til 1,4% síðustu tvö árin. Segir að atvinnu- leysið virðist ætla að verða meira en gert var ráð fyrir í spá Vinnumála- stofnunar í desember síðastliðnum sem hljóðaði uppá 2,1%. Könnunin náði til flestra atvinnu- greina en ekki til opinberrar stjórn- sýslu eða fræðslustarfsemi, að litlu leyti til heilbrigðisþjónustu og land- búnaður var að mestu undanskilinn. Fjöldi starfsmanna fyrirtækja sem rætt var við er um 20% af þeim sem starfa í atvinnugreinunum sem könnunin náði til. Munur á stórum fyrirtækjum og litlum Í skýrslu Vinnumálastofnunar kemur fram að nokkur munur er á eftirspurn eftir vinnuafli eftir lands- hlutum. Á höfuðborgarsvæðinu vildu vinnuveitendur fækka um 0,8% af starfandi fólki en á lands- byggðinni vildu atvinnurekendur fjölga um 0,3%. Kemur munurinn einkum fram í iðnaði þar sem vilji var til fjölgunar á landsbyggðinni en því var öfugt farið á höfuðborg- arsvæðinu. „Þá kemur vilji til fækk- unar starfsfólks í verslun og við- gerðarþjónustu einkum fram á höfuðborgarsvæðinu, og vilji til fjölgunar í þjónustu birtist einkum á landsbyggðinni.“ Þá kemur fram að mikill munur er milli stórra fyrirtækja og lítilla. Þar sem starfsmenn eru 10 eða fleiri vildu forsvarsmenn fækka starfsmönnum en vilji var til fjölg- unar starfsfólks lítilla fyrirtækja. Sé litið til sumarsins segja forsvars- menn 32% fyrirtækja að starfs- mönnum muni fjölga yfir sumarið en 9% telja að starfsfólk sitt verði færra. Fjölgunin er mest áberandi í ferðaþjónustu. Yfir 60% forsvarsmanna fyrir- tækja og stofnana segjast munu ráða sumarafleysingafólk til starfa í sumar og er ekki munur að ráði eft- ir greinum eða landshlutum. Um 6% töldu að skortur á fólki til sum- arafleysinga yrði til vandræða. Spurt var í könnuninni um fjölda þeirra sem ráða á og miðað við það er búist við að 10 til 15 þúsund manns verði ráðnir í sumarafleys- ingar á landinu öllu. Varðandi fram- haldið töldu nærri 19% forsvars- manna að starfsmenn yrðu færri í nóvember en í apríl-maí en 15% töldu að þeir yrðu fleiri. „Almenn virðast forsvarsmenn fyrirtækja og stofnana vera nokkuð bjartsýnir hvað varðar verkefna- stöðu næsta vetrar, en meira en fjórðungur þeirra telur að meira verði að gera næsta vetur en var síðasta vetur, en aðeins um 12% að minna verði að gera. Nánast enginn munur er á atvinnugreinum hvað þetta varðar, nema hvað fyrirtæki í byggingariðnaði skera sig úr, en þar telja yfir 40% að verkefni næsta vetrar verði minni en síðasta vetur og aðeins 12% að meira verði um- leikis,“ segir í skýrslunni. Spurn eftir erlendu vinnuafli frá löndum utan Evrópska efnahags- svæðisins hefur dregist saman síð- ustu mánuði. Gefin voru út 206 ný tímabundin atvinnuleyfi frá janúar til maí en 760 á sama tíma árið áð- ur. Vildu fækka fólki á höfuðborgarsvæðinu en fjölga á landsbyggðinni Vilja fækka fólki í sam- göngum og flutningum TILKYNNT var um bruna í ein- býlishúsi á Álfhólsvegi 38 um tíu- leytið í gærmorgun. Slökkvilið höf- uðborgarsvæðisins var kallað á vettvang og tókst að koma í veg fyrir stórbruna en efri hæð húss- ins skemmdist þó mikið af eldi. Öldruð kona var í húsinu er eld- urinn kviknaði en hana sakaði ekki. Um tíma var talið að barn væri inni í húsinu en það reyndist ekki vera raunin. Slökkviliðsmenn þurftu að rífa þiljur og klæðningar í þaki til að komast fyrir glæður og við leit inni í húsinu fékk lögreglumaður snert af reykeitrun og var fluttur á sjúkrahús. Að sögn slökkviliðs mun eldur- inn hafa kviknað á efri hæð húss- ins en reykur stóð út um glugga þar þegar að var komið. Allt til- tækt lið slökkviliðs var sent á vett- vang. Þegar reykkafarar höfðu gengið úr skugga um að enginn væri inni í húsinu hófst slökkvi- starf og að því búnu var reykræst. Að sögn lögreglu eru eldsupptök ókunn en unnið er að rannsókn málsins. Bruni í húsi í Kópavogi Efri hæð hússins mikið skemmd Morgunblaðið/Júlíus Efri hæð hússins skemmdist mikið að innanverðu í brunanum. ÞAÐ er ekki dónalegt útsýnið hjá þessum litla herramanni sem spókaði sig ásamt mömmu sinni í miðbænum í góða veðrinu. Sterk- ir litir hafa löngum höfðað til fólks af hans stærðargráðu og kannski það sé þess vegna sem hann tekur þann kostinn að snúa í átt að litríkum stjúpunum á meðan mamma hans virðir fyrir sér mannlífið í borginni. Morgunblaðið/Arnaldur Lokkandi litir TVEIR karlmenn, bræður á átt- ræðisaldri, voru í gær dæmdir til að greiða dóttur annars þeirra skaðabætur vegna slyss sem hún varð fyrir ásamt systur sinni í júní 1991. Konurnar voru 22 og 23 ára þegar þær féllu af húsþaki birgða- skemmu graskögglaverksmiðju í eigu mannanna, en stúlkurnar voru þar starfsmenn. Þær voru að mála þakið þegar málningarfatan féll um koll og þær runnu í máln- ingunni og fram af þakinu. Fallið var um fimm metrar og komu systurnar niður standandi á mal- arplan fyrir neðan. Sú eldri hæl- brotnaði og hlaut 10% varanlega örorku. Mennirnir voru dæmdir sameig- inlega til að greiða eldri konunni tæpar 5,2 milljónir króna auk vaxta. Dómurinn komst að þeirri nið- urstöðu að mönnunum hafi sem vinnuveitendum systranna borið að tryggja öryggi þeirra og við- hafa nauðsynlegar varúðarráðstaf- anir. Viðhlítandi verkstjórn og eft- irlit hafi skort. „Vanræksla á því var sýnu alvarlegri þar sem við verkið vann ungt fólk sem hafði ekki mikla reynslu af málningar- vinnu af þessu tagi og því var rík þörf á sérstakri aðgæslu,“ segir í dómnum. Þá var litið til þess að mennirnir hefðu getað með lítilli fyrirhöfn komið í veg fyrir slys með því að treysta stöðugleika málningarfötunnar og koma fyrir fallvörnum, en slysið var rakið til skorts á fallvörnum og ótrausts umbúnaðar málningarfötunnar. Greta Baldursdóttir, héraðs- dómari í Reykjavík, kvað upp dóminn. Reimar Pétursson hdl. flutti málið fyrir hönd konunnar en héraðsdómslögmennirnir Guð- jón Ólafur Ólafsson og Hlynur Jónsson voru til varnar fyrir bræðurna. Bætur fyrir vinnuslys árið 1991

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.